Tíminn - 23.07.1970, Qupperneq 16

Tíminn - 23.07.1970, Qupperneq 16
Flmmhjdagui* 23. júlí 1970. xttérthál ií< íkskws Frá brunastaðnum Njálsgötu 4b. Slökkviliðsmenn búnir að ráða niður- lögum eldsins. Kviknaði í út frá hraðsuðukatli á Njálsgötu: Maðurinn enn meSvitundariaus ÖÓ—Reykjavík, miðvikudag. Maðurinn, sem bjargað var út úr brennandi fbúð að Njálsgötu 4b í gær, er enn ekki kominn til meðvitunar. Hann heitir Sigurður íshólm og er 76 ára að aldri. Þeg ar slökkvilíðsmenn björguðu hon um út úr íbúðinni var eldur í öllum herbergjum, nema bví sem Sigurður var í, en það var fullt af reyk. Rannsóknarlögreglan hefur unn ið að rannsókn á brunanum og éftir því sem næst verður kom- izt mun hafa kviknað i, út frá hraðsuðukatli í eldhúsi. Var eld húsið hvað mest brunnið. Virðist sem ketillinn hafi verið í sam- bandi og allt vatn gufað upp úr honum. Var brunnið gat á botn kétilsins og lá elimentið niðri. snúran va; einnig mikið brunnin Var rofinn í sambandi við raf magnsístungu á veggnum, og var ketillinn greinilega i sambandi þegar kviknaði í. Slökkviliðinu var tilkynnt um r rarnid : - ftls 14 Islenzkar stúlkur til starfa í sænskri niðurlagningaverksmiðju EB-Reykjavík, miðvikudagur. Svíar vilja fleiri íslendinga í vinnu, og nú er það kvenkynið sem þeir auglýsa eftir. Ein stærsta niðurlagningaverksmiðjan i Sví- þjóð, Abba í Kunshavn, hefur nú óskað eftir 10—20 íslenzkum stúlk um í vinnu, og þá einkum við nið- lagningu á síld. Hafa þrjár ísl. stúlkur nú ráðið sig í vinnu hjá verksmiðjunni, og hefja þær störf um miðjan ágúst, þegar verksmiðj an tekur að nýju til starfa eftir sumarieyfið. Það er í dagblöðunum hér heima, sem fyrirtækið sænska hef ur auglýst eftir stúlkunum og að því er Gunnar Ói’afsson, er sér um ráðninguna fyrir fyrirtækið hér á landi, sagði Tímanum í dag, hef- ur nokkuð verið um, að fólk hringi til hans og spyrst fyrir um vinnuna. Er eins og fyrr sagði, þegar búið að ráða þrjár ísl. stúlk ur til starfa. Abba-verksmiðjan, sem sér um niðurlagningu á síld og hrognum, var stækkuð til tnuna s.l. vor, og er það þess vegna sem hana hefur vantað meira vinnuafl. Nú vinna finnskar stúlkur í verksmiðj- unum, fyrir utan innlent vinnu- afl. Vinnur því engin íslenzk stúika þar sem stendur, en nokkrar íslenzkar stúlkur unnu þar fyrir fáum árum, og eru þrjár þeirra nú búsettar á staðn- um. Hallgrí mskirkjuturnisin kemur í Ijós í september SB—Reykjavík, miðvikudag. Miklar framkvæmdir við Hall- grimskirkju standa fyrir dyrum á næstu vikum og mánuðum. Ganga á frá turninum að miklu leyti, hengja þar upp 32 klukkur og 4 stundaklukkur. í haust verður byrj að að slá utan af turninum og verður timbrið notað til að slá upp vinnupöllum inni í kirkju- skipinu. Útsýnisferðir upp í kirkjst turninn hafa verið mjög vel sótt ar í sumar. Hermann Þorsteinsson, gjald- keri byggingarnefndar Hallgríms kirkju sagði í viðtali við blaðið í dag, að nú sé nokkurs konar logn á undan stormi við kirkjubygging una. Á næstunni stæði mikið til. Gengið verður frá turninum að utan, en ekki er hægt að segja, hvað það tekur langan tíma, bví turninn er svolítið sérstakur, mik ið um súlur og múrverkið því nokk uð seinlegt. Þá er unnið að undir búningi klukkuuppsetningarinnar. — Þetta er óskaplega merkilegt klukknaspil ,sem þarna verður, sagði Hermann. — Þrjár stórar klukkur eiga að hringja til tíða, en 29 minni klukkur spila lög, sálrna og fleira eftir óskum á hátíðum. Klukkurnar eru ailar úti í Hollandi ennþá. Til stóð, að þær kæmu til landsins í júní, en ým- issa hluta vegna hefur þeim seink að og koma ekki fyrr en með haustinu. Þá eru það stundaklukk urnar, þær verða sín á hverri hlið turnsins, svo allir ættu að geta séð, hvað klufckan er. Þær sjást langt að, því þvermál þeirra er hvorki meira né minna, en hálfúr þriðji metri. Þær eru í smíðum í Hol- landi, eins og hinar. Slegið verður utan af turninum í áföngum og byrjað á spirunni. það verður vonandi í september eða þar um bil, sem hún sézt. Þegar vinnupallarnir eru famir, verður gengið frá gólfi upp í klukknaportinu, fyrir gesti sem vilja njóta útsýnisins í framtíð- inni. Þegar svo búið er að ná niður öllu þessu gífurlega timbri, Framhald á bls. 14. Meiri þátttaka í hópferðum ferðaskrifstofa: Flestir vilia suður að Miöjarðarhafi SB—Reykjavík, miðvikudag. i íslendingar virðast ekki vera að draga úr utanlandsreisum sín- um heldur þvert á móti. Flestirl vilja sem áður fara suður að Mið i jarðarhafi og einnig margir tilj Kaupmannahafnar. Þátttaka í hóp ferðuin frá ferðaskrifstofunum er meiri i sumar. en nokkru sinni fyrr, og einnig skipuleggja ferða- skrifstofurnar ótal ferðir fyrir ein- staklinga. Blaðið hafði samband vjð nokkrar ferðaskrifstofanna í Reykjavík í dag. Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar sagði, að ef dæma mætti eftir aðsókninni hjá þeim í sum ar, hefðu utanferðalög landans aukizt mjög mikið. — Hópferðalög in eru sérstaklega vinsæl síðan gengið féll, sagði Ingólfur, — því þá komust tnargar að því, að nú má fara hópferð fyrir sama verð og einstaklingsferð áður. Þá kem ur það líka til, að nú er kostur á að fara með þotuflugi beint suð ur á Costa del Sol, sem er sá staður, þar sem aukningin hérna er allra mest til. Fólk vill lang samlega helzt fara til Miðjarðar- hafsstrandarinnar, ég er með feríj ir tii Ítalíu og Júgóslavíu líka og svo siglingu um Miðjarðarhaf ið. Þessar ferðir eru alíar fullar fram í septemberlok. Þær fylltust Framhald á bls. 14. Kitstjóri skátablaðs sem gef- ið er út í 2,5 millj. eintökum — safnar efni á Landsmóti skáta að Hreðavatni. EB-Reykjavík, miðvikudag. í morgun kom hingað til lands William Hillcourt rit- stjóri Boy’s Life, ásamt eigin- konu sinni. Eru þau hingað komin vegna landsmóts skáta að Hreðavatni, en Hillcourt er vel þekktur fyrir dugmikið starf í skátahreyfingunni enda er Boy‘s Life stærsta skátablað I heimi. Við litum inn hjá Hillcourt og eiginkonu hans í dag á Loft ieiðahótelinu þar sem þau dvelja tram að helgi, en haldj pá upp í Borgarfjörð á lands- mótið og dvelja á Hótel Bifröst. Báru þau ís.’andi vel söguna þann stutta tíma sem þau hafa nvalið hér á 'andi, eiikum lof- ■iömuðu þau veðurblíðuna og sögðusr gjarnan vilja dvelja iengur hér, er. þær þ",ár vikur sem þau hafa áætlað, haldizt veðurblíðan eins og hún var í dag. — Eftir ,'andsmótið ætlum við að ferðast eitthvað um hér, sagði Hillcourt. Og auðvitað ætluðu þau hjónin, eins og svo margir aðrir útlendir, að fara á Þingvöll. síðan að líta við hjá Gullfossi og Geysi og kannski skreppa austur að Heklu. Wi.'liam Hillcourt er af Dön um kominn og fæddur í Arós um í Danmörku. Þegar hann Framhaic s p|s 14 William Hillcourt og Grace Brown kona hans. (Tímamynd-GE)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.