Tíminn - 08.08.1970, Page 16
Laugardagur 8. ígúst 1970.
Mál og málfar - Sjá blaðsíðu 6
í verzlun íslenzks markaðar á Keflavíkurflugvelli í gær. F. V. Pétur Sigu rðsson vaktformaSur, Pétur Pétursson framkvæmdastjórl, Einar Elíasson
stjórnarformaður, GerSur Hjörleifsdóttir verzlunarstjóri íslenzks heimilisiðnaðar, Jón Arnþórsson framkvæmdastjóri, Hákon Hertervife arkitekt
og Guðmundur Ingólfsson verzlunarstjóri. (Tímamynd Kári)
SELT FYRIR 330 ÞÚS. KR. Á DAG í VERZLUN
ISLENZKS MARKAÐAR A KV. FLUGVELLI
KJ-Reykjavik, föstudag.
Verzlun fslenzks markaðar h.f.
á Keflavíkurflugvelli hefur nú
verið opin í viku, og hefur salan
verið um 330 þúsund á dag til
jafnaðar, nema fyrsta daginn, þá
var selt mun meira, enda er um-
ferðin um völlinn mest á laugar-
| ' ' , ' ■‘""‘VíSi
/v;" v^
ÍÉÉriíy |
■
Wmm
M
Bjarni Bjarnason
jarðsunginn
Bjarni Bjarnason fyrrum skóla-
tjóri á Laugarvatni verður jarð-
(Unginn frá Dómkirkjunni í Reykja
zík í dag kl. 10,30. Hans verður
uinnzt í íslendingaþáttum síðar.
FUF í Reykjavík efnir
Hl ferðar í Veiðivötn
Félag ungra Framsóknarmanna
fnir til skemmtiferðar til Veiði-
.atna og nágrennis dagana 14. —
ifi. ágúst. Farið verður frá Reykja
nk að kvöldi föstudagsins, og
iomið til haka á sunnudagskvöld.
Nánari ferðaáætlun verður birt í
biaðinu á næstunni. Fargjaldi
verður í hóf stillt.
FIJF Reykjavík.
dögum, og þá mest sala. Forráða-
menn verzlunarinnar, sem á ensku
heitir ICEMART, tjáði fréttamönn
um í dag, að mest væri selt af
ullarvörum, en þær eru töluvert
dýrari þarna en í minjagripa-
verzlunum í Reykjavík.
Einar Elíasson, stjórnarformað-
ur fyrirtækisins, sagði fréttamönn
um, að ástæðan til þess, að max’gar
vörur væru dýrari í íslenzkum
markaði, en í öðrum verzlunum
væri sú, að fyrirtækið greiddi
Ferðaskrifstofu ríkisins 21 krónu
fyrir hvern farþega, sem fer um
völlinn, og auk þess væri verzlun-
in á vellinum opin allan sólar-
hringinn, og hefði það að sjálf-
sögðu aukinn kostnað í för með
sér.
I>ess má geta, að peysurnar í
íslenzkum onarkaði h.f. kosta upp
í 21 dollar, en kosta hér í verzl-
unum um 10 dollara.
Þá sagði Einar að þegar verzl-
unin væri kocnin í fastan farveg,
yrði verð á vörunum endui-skoðað,
en það færi að sjálfsögðu eftir
eftirspurninni. Matvörur eru hins
vegar ódýrari í nýju verzluninni,
og er það vegna tollendurgreiðslu
og niðurgreiðslu, eins og um út-
flutning væri að ræða.
Þá kom það fram á blaðamanna
fundinum hjá íslenzkum markaði
h.f., að Loftleiðafarþegar kaupa
tiltölulega ekki eins mikið í verzl
uninni, og farþegar cnargra ann-
arra flugfélaga, sem koma við
á Keflavíkurflugvelli.
Upphafsmenn að þessari verzl-
un eru Einar Elíasson, framkv,-
stjóri Glits h.f. og Agnar Tryggva
son, framkvæmdastjóri búvöru-
deildar SÍS.
Íslenzkur markaður h.f. er sam
tök no'kkurra stærstu framleið-
enda útflutningsvara um verzlun
þá í flughöfn Keflavíkurflugvall-
ar, sem nú er risin um 600 ferm.
að stærð, sem opnaði kl. 12 á
hádegi 1. ágúst s.l. Verzlunin er
byggð á kostnað íslenzks marlkað-
Framhald á bls. 14.
META STOÐU YLRÆKTAR
á ylræktarráðstefnunni í Norræna húsinu.
EB—Reykjavík, föstudag.
Ylræktarráðstefnan sem Sölufé
lag garðyrkjumanna gengst fyrir
í Norræna húsinu hófst kl. 10 í
morgun. Setti Ingólfur Jónsson
landbúnaðarmálaráðherra ráðstefn-
una, sem stendur í tvo daga.
Um 100 aðilar sitja á ráðstefn-
unni, þar af þrír fræðimenn frá
„N. .1. F.’s Væksthusgruppe“,
sem dvalizt hafa hér á vegum
sölufélagsins frá 25. júlí og kynnt
sér garðyrkju og gróðurhús á að-
alylrækarsvæðunum. Flytja þeir
erindi á ráðstefnunni um athug-
anir sínar og niðurstöður.
Á ráðstefnunni er m. a. fjall-
að um ylræktun grænmetis og
blóma, jarðvegsrann.sóknir, jurta-
sjúkdóma. gróðurhúsabyggingar
og gróðurhústækni, framkvæmda
og rekstrarlán og annað, er at-
vinnuveginn varðar. Verður leit
azt við að meta stöðu ylræktar-
innar í dag og gera tillögur og
áætlanir um framtíðarþróun henn
ar.
Erlendu fræðimennirnir brír
sern áður hefur verið um getið,
eru þeir prófessor A. Klougart,
forstöðumaður garðyrkjudeildar
Búnaðarháskólans í Kaupmanna-
höfn, V. A. Hallig, forstöðumað
ur ylræktartilraunarstöðvar danska
ríkisins í Virum, og Vilhelm Niel
sen, verkfræðingur, en hann er
ráðgjafi um byggingar og tækni-
búnað gróðurhúsa og jafnframt
kennai’i i þeim greinum við Bún
aðarháskólann i Kaupmannahöfn.
Flytja þessir fræðimenn erind-
in á ráðstefnunni og flutti A.
Klougart fyrsta erindi ráðstefn-
unnar sem fjallaði um blómayl-
rækt. Síðan flutti Vilhelm Niel-
sen, verkfræðingur erindi um
byggingar og gróðurhúsatækni.
Síðasta erindið fyrir hádegi flutti
V. A. Hallig er fjaliaði um græn
metisylrækt. Eftir hádegi flutti
A. Klougart erindi um ki-öfur
Framhald á bls. 14.
GB-Akranesi, föstudag.
Gylfi ísaksson, byggingaverk-
fræðingur, hefur verið kosinn
bæjarstjóri á Akranesi. Hann var
kosinn með 6 atkvæ'ðum. Fimm
sóttu um bæjarstjórastöðuna, en
sumir drógu umsóknir sínar til
baka.
Gylfi ísaksson er Reykvíkingur
fæddur 7. júlí 1938. Hann var
stúdent frá MR, stærðfræðideild
1958 og stundaði síðan nám við
tækniháskólann í Miinchen og
lauk prófi þaðan 1964. Síðan starf
aði hann um skeið hjá Hochtief.
Frá 1966 hefur hann unnið hjá
borgarverkfræðingi í Reykjavík,
einkum að skipulagsmálum.
HÉRAÐSMÓT
Á SUÐUREYRI
Framsóknarmeim á Suðureyrl
halda Héraðsmót laugardaginn 15.
ágúst og hefst það kl. 9 síðdegis.
Ræður flytja Steingrimur Her-
mannsson framkvæmdastjóri og
Guðmundur G. Þórarinsson verk-
fræðingur. Skemmtiatriði annast
Órhar Ragnarsson og Hljómsveit
Ásgeirs Sigurðssonar leikur fyrir
dansi-
Steingrimur
Guðmundwr
v . ....u.i.yirvi