Tíminn - 22.08.1970, Blaðsíða 10
to
TIMINN
í-bnden Griersorv;
UNGFRÚ SMITH
11
— Hvað í ósköpunum? spurði
: Pat, sem kom hlaupandi.
—Þarna inni! stundi Anne
upp. — Siangan. . . .
— Það er iM©ga bara Sammy.
— Sanuny?
—Já, hann býr þarna inni og
ísér um að veiða rottur og mýs.
ÍHann er duglegri en nokfeur kött
' ur og alveg hættuiaus.
— Nú gerir hann grín að anér,
hugsaði Anne og reiðin sauð í
henni.
— Hann beið eftir, að ég yrði
hrædd. — Hvers vegna minntust
þér ekki á hann í gær? spurði
hún. — Þér vissuð, að ég hlyti
að verða skelkuð.
— Já, og ég verð að viður-
kenna, að ég varð ckki f-yrir von
brigðum, svaraði hann.
Anne hvítnaði af bræði. Herra
Kennedy, sagði hún og röddin
titraði. — Ég veit ósköp vel, að
þér viljið e'kki hafa mig hérna,
' en ég vil vekja athygli yðar á
því, að svona lagað dugar ekki
■ til að fæta mig burtu. Ég fer
ekki, hvað sem þér gerið.
Brosið thvarf af andliti hans.
—Siappið af, sagði hann. —
Þér vcriðið hérna meðan þér ræk
ið störf ‘yðar sómasamlega. Ef
ekki, þá skrifa ég herra Maynard
og segi, að þér séuð hætt, hvort
sem þér eruð á samningi eða ekki.
— Hver segir þáð? hvæsti hún
næstum.
— Ég segi það! Það er ég, sem
ræð hér, og þér sk-uluð muna það.
Hann snerist á hæli og fór, en
hún stóð með körfuna á hand-
leggnum og starði heiftarauigum
á eftir honum.
5. kafli.
Næstu tvær vikurnar var Anne
svo þreytt, að hún hafði aldrei á
ævinni verið eins uppgefin á
hverju kvöldi. Máltíðirnar náðu
næstum saman fyrir henni og hún
skildi ekki, hvernig sjö karlmenn
gátu borðað önnur eins ósköp af
anat. Þótt maturinn væri efcki allt
af fyrstá f'okks. hvað tiJbúning-
inn snerti, hvarf alt eins og dögg
fyrir sólu. Það fór í taugarnar á
henni, að s.já þetta hverfa á nokkr
um mínútum, eftir að hún var
búin að hafa fyrir því heilan
morgun. Alít sern hún féfck, var
fjall af uppvaski. Þegar mennirn
ir fóru að venjast því, að hafa
eldabusku, fóru beir að gera at-
hugasemdir við matinn og oft-
sinnis sárnáði Anne Fyrir þeim
var hún einungis Annc Smith.
sem lifði á að elda mat. Stund-
um kom jafnvel fyrir, að hún
saknaði kiífcunnar og Roddie, sem
alltaí var reiðubúinn að slá henni
gullhamra.
Getur verið, að ég sé að verða
ástfangin af honum? hugsaði hún
með sér.
Þegar vinnudegi hennar var
lokij, fór hún venjuiega beint í
rúmið, en fannst hún aldrei sofa
nema smástund, áður en Pat
barði á hurðina.
— Ungfrú Smith. Tími til að
fara á fætur!
Síðan þetía með slönguna var
Anne ísköld gagnvart honum og
talaði ekfci' við hann, nema nauð-
syn bæ-ri til, en svolítið ergði það
hana, að honum virtist líka það
bezt. Hún hafði á tilfinningunni,
að hann hefði nánar gætur á
henni og biði bara eftir t.ækifæri
til að skrifa lögrfæðingnum og
segja, að hún væri ómöguleg til
verfca.
Garðyrkjumáðurinn lézt held-
ur ekki sjá hana. Á hverjum
morgni kom hann með grænmet-
ið inn í eldhúsið, slengdi þvi á
befckinn og fór svo aftur. Eitt
sinn lenti hún i hörkurifrildi við
han:., þegar hún fór út 1 garðinn
og klippti nokkrar rósir. Hann
rauk til hennar og sagðist ætla
að láta hana vita, að hún hefði
ekkert leyfi til þess. Hann kærði
sig ekkert um, að hún eyðilegði
garðinn, bara vegna þess, að hún
viidi skreyta í kringum sig.
— Ég hef efcki eyðilagt neitt,
mótmælti hún. — Og enginn
safcnar rósanna.
— Það skiptir efcki máli, urr-
aði hann. — Ég hef séð um þenn
’ an garð, allan tímann, sem hús-
i bóndinn Jifði og hann á að vera
eins faMegur, þegar nýi eigand-
inn kemur. Ef hún kemur ein-
hvern daginn og sér, hvernig þér
farið með þetta. . . .
— En hún sér ekki. . .
— Ég sé þáð og það er nóg
• Yðar staður er eldhúsið!
Anne beit á vörina og leit á
hann. Greinilegt var, að honum
var alvara og hún gat varla reiðzt
honum fyrir að vera svo trúr í
st-arfi sínu. Hún baðst afsöfcunar.
— Mér þykir það leitt, Alan,
en mér finnst svo gaman af blórn
um. ...
— Þér getið tint blóm á tún-
inu, en fyrst þér getið ekki sett
rósirnar á sinn stað aftur, megið
þér eiga þær. En gerið þetta ekki
aftur, þvj þá segi ég Pat frá því.
Nafnið eitt var nóg til að Anne
hraðaði sér burtu úr garðinum.
— j Seinna um kvöldið, minntist hún
á þetta við Dick.
— Garðurinn er það eina, se-m
Alan lifir fyrir og hann vonar
bara. að ungfrú Carrington-
Smythe komi einhvern daginn og
hrósi honum. Hann vonast tii að
halda stöðunni ævilangt í þaikk-
lætisskyni.
—Er hann orðinn gamall?
— Hann er á áttræðisaldri.
— Það er ótrúlegt. En hann
fyrirlítur þó ekki eigandann, eins
og allir hinir hérna.
— Þér eigið Xíklega við Pat
núna, sagði Dick og brosti. — Ég
get ráðlagt yður, að ef þér viljið
gera Pat reglulega vondan, þá
skuluð þér bara tala um eigand-
ann.
— Hvernig stendur eiginlega á
því, að Pat er svo illa við hana?
— Ég þarf að ganga frá dálitl-u,
svaraði Dick aðeins. — Góða nótt,
ungfrú Smith.
Svo fór rann og Anne sat eftir
hugsi. Hún leit út á veröndina, þar
sem hinir sátu og spjöltaðu sam-
| an og fannst næstum leitt, að
i geta ekki farið út og tekið þátt
I í umræðunum. í þess stað áfcváð
j hún að fara í gönguferð. Skor-
! dýrin suðuðu og hún heyrði
i brafca í runnun-um. Sóli-n var sezt
j og Anne hugsaði um stöðu Pats
j á Gum Vailey. Allt í ein-u datt
I myrkrið á. og hún snori heim á
leið, en skyndilega kom jeppi ut-
an úr myrkrinu og staðnæmdist
hjá henni. Pat hallaði sér út um
gluggann og spurði:
— I-Xvað eruð þér að gera hér?
—Ég leyfði mér að fara út og
ganga svolítið um, svaraði hún.
—Eruð þér ekki þreytt?
— Ekki núna.
Hann opnaði bíldyrnar.
Kannske þér viJjið þá koma
með mér. Það eru nc-kkrir geita-
hirðar þarna útfrá og ég ætla að
skreppa til þeirra með brauð og
ávexti.
Þetta var þó alltaf tilbrey.ting,
svo Anne þakkaði boðið og sett
ist inn. Þau óku þegjandi um
stund, en svo sagði Pat:
— Við byrjium að slá á morgun.
LAUGARDAGUR 22. ágúst 1970.
— Tekur það langan tíma?
— Nei, ekkj ef góða veðriS
helzt Oig vélarnar verða í lagi.
— Eru þær biiaðar?
Hann hló fculdalega.
— Umgfrú Smith. Þessar vélar
voru ekki nýjar, meðan húsbónd-
inn var á lífi og þær hafa gert
sitt gagn allan tímann síðan. En
samt þurfum við að fá nýjar.
— Hvers vegna kaupið þið þær
þá etoki?
— Spyrjið ung'frú A.C.S. að því,
svaraði hann biturfega.
Anne sá að nú var tækifærið
til að ko-mast að andúð hans á
eigandanum, sem hann hafði þó
aldrei hitt, en þegar hún ætlaði
að halda áfram að spyrja, komu
þau að bálinu hjá geitahirðunum.
Geiturnar lágu allt í kring og
mennirnir innan um þær. Þeir
stóðu upp, þegar þeir sáu bílinn.
— Sæll Pat!
Þegar Anne var Xcynnt fyrir
þeim, horfði hún forvitnilega á
þá. Hún hafði aldrei séð geita-
hirða fyrr, en sýndist þeir bar-a
venjulegir menn.
Einn þeirra sagði brosandi við
Pat: — Þið e-ruð aldeilis að verða
fínir með ykkur á Gum VaSley.
Bara komnir með eldabusfcu.
Hvernig líkar yður, ungfrú?
—Agætlega, svaraði hún. —
Það er svo dásamlega rólegt'
hérna úti.
— Rétt er það, en ef þér vilj-
ið vita, hvað raunverulegúr frið-
ur er, þá ættuð þér að vera með
okkur. Við höfum rekið hjörðina
um þr jú hundruð kílómetra lang-
an veg, án þess að koma nálægt
nokkrium mannabyggðum. Það
eina sem er að, er að Harry tal-
ar of mikið.
— Ég hef þrisvar yrt á hann
í dag, sagði þá Harry og Mó.
Þeir brostu báðir og Anne hugs
aði með sér, að þessir menn hlytu
að vera einstaklega góðir vinir,
fyrst þeir gátu þolað návis-t hvors'
annars svona lengi. Hún reyndi
að ímynda sér Roddie í þessari
aðstöðu og var næstum búin að'
skella upp úr við tilhugsunina.
Hirðarnir buðu upp á te og
er laugardagur 22. ágúst
— Symphóríanusmessa
Tuugl í liásuðri kl. 5.46.
Árdegisháflæði í Rvík kl. 9.55.
HEILSUGÆZIA
Slökkviliðið og sjúkiubifrciðir.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði,
sími 51336.
fyrir Reykjavík og Kópavog
sími 11100.
Slysavarðstofan í Borgarspítalanum
er opin allan sólarhringinn. Að-
eins móttaka slasaðra. Sími
81212.
Kópavogs-Apótek og Keflavíkur-
Apóték eru opin virka daga kl.
9—19 laugardaga kl. 9—14, lielga
daga kl. 13—15.
Almennar upplýsingar um lækna
JijónMstu J horginni eru gefnar í
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur, sími 18888.
Fæðingarheimilið í Kópavogi.
I-Ilíðarvegi 40, sími 42644.
‘Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka daga frá M. 9—7 á laugar-
dögurn M. 9—2 og á sunnudögum
og öðrum helgidögum er opið frá
M.Z-4.
Tannlæfcnavafct er í Heilsvernd-
arstöðinni (þar sem slysavarðstof-
an var) og er opin laugardaga o-g
sunnudaga kl. 5—6 e. h. Sími
22411.
Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka
í Reykjavík vikuna 22. ágúst til
28. ágúst annast Apótek Austur-
bæjar og Háaleitis-Apótek.
Næturvörzlu í Keflavík 22.—2,3.
ágúst annast Guðjón Klemenzson.
Næturvöi-zlu í Keflavík 24. og 25.
ágúst annast Kjartan Ólafsson.
KIRKJAN
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra
Óskar J. Þorláksson.
Kópavogskirkja. Guösþjónusta fcl.
10.30. Séra Gunnar Árnason.
Laugarneskirkja. Messa kl 11.
Séra Garðar Svavarsson.
Hallgrímskirkja. Messa kl. 11.
Séra Jón Bjarman.
Neskirkja. Guðsþjónusta fcl. 11.
Séra Magnús Guðmnudsson.
Háteikskirkja. Messa tol. 11. Séra
Grírnur Grímsson messar. Dagleg-
ar kvöldbænir eru í kirkjunni
kl. 6.30. Séra Arngrímur Jónsson.
Ásprestakall. Messa í Háteigs-
kirkju kl. 11. Séra Grímur Gríms-
son.
Langholtsprestakall. Guðsþjónusta
kl. 10,30. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson.
FÉLAGSLlF
Ferðafélagsferðir.
Miðvikudaginn 26/8.
Þórsmörk, síðasta miðvikudags-
ferð.
Fimmtudaginn 27/8.
Norður fyrir Hofsjökul, 4ra daga
ferð.
Ferðafélag íslands, Öldugötu 3.
Sírnar 19533 og 11798.
ÁRNAÐ HEILLA
Fimmtugur er í dag, laugar-
daginn 22. ágúst, Aðalsteinn Jóns-
son frá Sumarliðabæ í Holtusi,
nú til heitnilis að Hjarðarhaga 32,
Rvík. Hann tekur á móti gestum
í kvöld í mötuneyti Sambandshúss-
ins við Sölfhólsgötu.
SIGLINGAR
Skipaútgerð rfkisins.
Baldur fer frá Reykjavík kj. 12.00
á hádegi í dag vestur um la.nd í
hringferð. Herjólfur fer frá Vest-
manneyjum kl. 12.00 á hádegi í
dag til Þorlákshafnar, þaðan aft-
ut kl. 17.00 til Vestmanaeyja. Á
morgun (sunnudag) fer á sama
tíma milli Vestmannaeyja og Þor-
lákshafnar, en síðan fer skipið frá
Vestmannaeyjum kl. 21.00 um
kvöldið til Reykjavikur. Herðu-
breið er á Ausfjai'ðahöfnum á
norðurleiö. Baldur fer til Snæfells
ness- og Breiðafjarðarhafna á
þriðjudag.
Skipadeild SÍS.
Arnarfell er í Hull, fer þaðan 25.
þ.m. til Reykjavíkur. Jökulfell
lestar á Vestfjörðum. Dísarfell fór
20. þ.m. frá Djúpavogi til Hull,
Aahus, Nörresundsby, Nörrköp-
ing, Liibeck og Svendborgar. Litla
feill fer í dag frá Reyfcjavík tii
Ólafsvíkur og Akureyrar. Helga-
feli er á Akureyri. Stapafell los-
ar á Norðurfandshöfnum. Mælifell
fer í dag frá Þorlákshöfn til Akur
eyrar. „Falcon Reefer“ væntan-
legit til Hornafjarðar 24. þ.m.,
brottför 25.
SÖFN OG SYNINGAR
Ásgrímssafn. Bergstaðastrætj 74
er opið alla daga nema Laugard.
frá kl 1.30—4.
íslenzka dýrasafnið
verður opið daglega 1 Breiðfirð-
mgabúð. Skólavörðustig 6B kl.
10—22. IsL dýrasafnið
GENGISSKRÁNING
Nr. 95 — 17. ágúst 1970
1 Bandar dollaT 87,90 88,10
1 Sterlingspund 209,90 210,40
1 Kanadadollar 85,90 86,10
100 Danskar fcr. 1.171,80 1.174,46
100 Norskar kr. 1.230,60 1.233,40
100 Sænskar kr. 1.697,74 1.701,60
100 Fimnsk börk 2.109,42 2.114,20
100 Franskir fr. 1.592,90 1.596,50
100 Belg. framkar 177,10 177,50
100 Svi?s*i ,'r. 2.042,30 2.046,96
100 Gyliind 2.441,70 2.447,20
100 V.-þýzk raörk 2.421.08 2.426,50
100 r.fniT 13,96 14,00
100 Austurr. sch. 340,57 341,35
100 Escudos 307,00 307,70
100 Pesetai 126,27 126,55
100 Reiknlnigskrónur —
Vörusklptalönd 99,86 100,14
1 ReikningsdoHar
Vörusklptalönd 87,90 88,10
1 Reiknlngspund _
Vöruskiptalönd 210,95 211,45
Lárétt: 1) Flækist um 6) Endir
7) Grassylla 9) 1001 10) Máttvana
11) Leit 12) Ókunnugur 13 Borð-
haldi 15) Gorgeirinn.
Krossgáta
Nr. 609
Lóðrétt: 1) Fótveikur 2)
Bor 3) Hornalaus 4) Eins
5) Höfuðburðurinn 8) Mörg
9) Ójöfnuður 13) Spil 14)
Eins-
Ráðning á gátu nr. 608:
Lárétt: 1 Kafarar 6) Flá 7) -■
RS 9) RS 10) Liðamót 11)
In 12) II 13) Öðs 15) Gæða-
vín.
Lóðrétt: 1 Kerling 2) FF 3)
Aldauða 4) Rá 5) Rostinn 8)
Sin 9) Ról 13) Óð 14) SV.