Tíminn - 10.10.1970, Blaðsíða 10
U)
TIMINN
LAUGARDAGUR 10. oktober 1970.
Sebastien Jabrisot:
Kona, bíll, gleraugu og byssa
12
Ef hann kæmi cinhvcrra hluta
vegna aftur í kvöld. Gegn vilja
mínum dró ég úr hraðanum.
Þegar Caravaille fyndi ekki bíl-
inn, héldi hann, að ég hefði lent
í árekstri- Eflaust mundi hann
hringja heim til mín (hafði hann
þá númerið ofan á allt annáð!, en
ég væri ekki við, svo að hann
hlypi niðrá iögreglustöð. Þá yrði
Jýst eftir mér um landið þvert,
lögregluþjónum skipað meðfram
ölíum þjóðbrautum og. . . Nei,
þetta var hlægilegt. Ég er í al-
genxi mótsetningu við annað fólk.
Þegar það segist ætla að gera eitt
hváð, lætur það verða af því.
Caravaille kæmi ekki aftur fyrr
en á miðvikudag. Hann var méð
konu sína og dóttur, og honum
var auðvitað mest um vert, að
þær nytu sem lengst hvíldar og
hressingar. Hann segði litlu stúlk
unnið að anda nú vel að sér hreinu
og tæru fjallaloftinu. og hann
mundi bjóða henni í bátsfeu-ð im
vatnið. Hvað átti hann sosum að
gera í París? Allt var lokað »ram
á miðvikudag. Borgin var dauð.
Ég ók á stolnum bíl, og ég ætl-
aði að halda honum, meðan eig-
andinn skemmti sér j Sviss. I-Ivað
hafði ég að óttast? Ékki nokkurn
skapaðan hlut. Ég sló í bílinn.
Yfir mér blámaði í heiðan him-
in, og sólglitið þræddi um hveiti-
akra. Kvíðinn, §efn .hsíði seitlað,
gegnum mig . við skiltlð forðum,
hreiðraði um sig í myrkustu
fylgsnum hugans. Þö að ég
þröngvaði hennj niður, marði
hún kyrr. Þegar minnst varði,
mundi hún hrugga sér til eins
og þungfært dýr eða annað sjálf
að bylta sér í svefni.
Ég ók upp með Yonne-fljóti.
Ég man, að ég stoppaði hjá kaffi-
stofu í Joigny til að fara á kló-
settið og ná mér í sígarettur. Á
veggnum fyrir aftan afgreiðslu-
borðið héngu Ijósmyndir af bif
reiðaárekstrum og auglýsinga-
spjald í fánalitunum, þar sem
skýrt var frá hátíðardagskránni
fjórtánda júlí. Nokkrir vörubil-
stjórar skeggræddu yfir bjórkoll-
um. Þeir sátu þögulir, meðan ég
stóð þarna við. Þegar ég ætlaði
að borga ávaxtasafann. sem ég
hafði. hvolft í mig við borðið,
sagði einn þein-a, að þetta væri
á hans reikning. Ég vildi ekki
láta hann borga, en hann
kvaðst mundu gera það eigi að
síður, og ég hirti þá aftur pen-
ingana. Ég var að ræsa bílinn,
þegar hann kom út ásamt öðrum
bílstjóra. Hann gekk til mín.
Hann var á líkum aldri og ég,
dökkur á hörund og brosti gleitt.
Hann skotraði augum yfir bílinn
og sagði með suðrænum talanda:
— Þú kemst svei mér áfram á
svona verkfæx-i, Ég kinkaði kolli.
Hann sagði það vera bölvað ólán.
Við mundurn þá ekki hittast aft-
ur. Þegar ég ók út af planinu,
opnaði hann dyrnar á vörubíln-
um, klöngraðist í sætiö, veifaði
/Jil mín og kallaði: Ef viff. nitt-
.umst aftur, skal ég láta þif fá
hann. Hann hélt á einhvei’ju, en
ég sá ekki, hvað það var. Þegar
ég leit í gluggasylluna, varð mér
ljóst, að honurn hafði tekizt að
hnupla fjóluvendinum.
Þegar ég var komin út úr Aux-
erre, fór ég á þjóðbraut, sem er
ennþá í lagningu, og ég ók hrað-
ar en nokkru sinni fyrr. Sunnan
við Avallon skipti ég yfir á braut
6. Sól hafði lækkað á lofti, og
þó vax' enn mjög heitt. Ég hi'oll-
aði samt við stýrið. Ég hafði súð
fyrir eyrum og fannst ég galtóm
í höfðinu. Máski var það æsingur
inn, óttinn, er hríslaðist um mig
alla þegar ég steig bei'fætt á bens
ínið og þokaði fetlinum stöðugt
nær gólfinu. Ég held, að æsingur
inn hafi líka valdið því, að ég ýkti
um of fyrir sjálfri mér lítilvægt
atvik, sem henti skömmu síðar. Ég
má ekki minnast á það ef þeir
yfirheyra mig. Það mundi eyði-
leggja allt. Þeir héldu, að ég væri
gengin af vitinu, og hættu að trúa
mér.
Þetta gerðist í fyrsta þorpinu,
sem ég ók gegnum á braut 6.
Mér þótti ég kannast við mig,
það er alveg satt. En í sérhverju
þorpi með grásteindum húsum,
háum, bröttum þökum og ásum í
fjai-ska og af bragði á strætinu
sumarsól, svo að ég fæ glýju í
augun og verð að nema staðar —
í sérhverju sliku þorpi finnst mér
eins og ég hafi komið þar áður,
fyrir ævalöngu og svo mörgum
árum, að ég get ekki munað þau
atvik, sem drógu mig þangað.
Gömul, grindhoruð og skorpip
kona með svarta svuntu sat í gai-ð
’stól'Við gættina á koldimmri veit-
ingastofu. Ég ók mjög hægt,
biinduð af sól, og leit allt í einu
til hliðar og sá konuna benda í
átt að mér og kalla eitthvað til
mín. Ég sveigði upp að stéttinni.
Hún hökti að bílnum, og ég steig
út. Hún talaði hátt, en ts-ygldi í
henni, svo áð mér gekk Ula að
skilja hana. Hún sagði, að ég
hefði gleymt kápunni minni í
morgun. Hún lægi inni á veitinga
stofunni. Ég man, að hún hélt á
baunabelgjum í hendinni og hafði
körfu í kelt-u sér, þegar hún sat.
Ég svaraðj og sagði, að hér hlyti
að vera um einhvern misskiln-
ing að i-æða. Ég hefði ekki gleymt
kápunni minni hérna j morgun
einfaldlega vegna þess, að ég
hefðj aldrei komið hingað. Hún
hélt nú barasta. Hún hefði borið
mér kaffi og brauð. Hennj hefði
ekki dulizt, að mér lá eitthvað
þungt á hjarta. Hana hefði ekki
rekið í stanz, þegar hún fann
kápuna á stólnum. Ég sagði að
henni skjátlaðist, — en þakka yður
samt fyrir, og ég flýtti mér að
setjast í bílinn.
Ég var hrædd við hana. Hún
hvessti á mig augum og fylgdi
mér eftir að hurðinni. Höndin,
sem þreif í gluggakarminn, var
moldbrún og ki-ukluð, og mai-kaði
fyrir hverri hnútu. Hún endui-tók,
að ég hefði fengið mér kaffi og
brauð, meðan gert var við bílinn.
Ég hitti ekki á kveikjulásinn.
Ég reyndi að útskýra málið, enda
þótt mér væri það þvert um geð:
í morgun hefði ég verið í Paris,
fjarri öllum sveitaþorpum og veit
ingaki’ám, hún villtist á bílum.
Hún brosti ljótu gamlingjabi’osi
og sagði þau orð, sem nístu mig
í gegn: „Bíllinn var í viðgerð, og
ég sá hann aldrei, en ég sá yður.
Ég veit ekki, hverju sló á mig.
Ég vatt höndina af kanninum og
hrópaði um leið, að hún ætti að
láta mig í friði. Ég þekkti hana
ekki, og hún hefði aldrei séð mig.
Hún mætti engum segja, að hún
hefði hitt mig. Engum, engum.
Og þá veitti ég því athygli, að
nokkrir menn stóðu spölkorn fi-á
bílnum og horfðu á okkur. Ég ók
á burt.
Það er nú það. Síðan er líðinn
tæpur stundai-fjórðungur. Ég ók
beint af augum. Ég reyndi að
hugsa um eitthvað í-óandi: um-
sjónarmömmuna, rúmið mitt, haf
ið. Ég gat það ekki. Vinstra meg-
in við brautina sá ég bensínstöð.
Ég hafði li-tið á bensínmælinn hjá
flughöfninni, og þá var tankur-
er laugardagur 10. ágúst
— Gereon
Tungl í hásuðri kl. 21.54
Árdegisháflæði í Rvík kl. 2.07
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan i Borgarspit. nurp
er opin atlan sólarhringinn Að
elns mótt a slasaðra Stu'
812154
Kópavogs-Apótek og Reflavíkur
Apótek em opin virka daga k|
9—19 taugardaga kl 9—14. helea
daga fcl 13—15
Slökkviliðið og sjúkrablfrelðii
fyrlr ".eykjavík og Kópavos
*ím- 11100
Sjúfcrabifreið . Hafoarfirði
sjnt. 51336.
Almennar upplýsineax um læfcna
bjónustu i borglnn) eru aefnar '
simsvara Læfcnafélagí Revkiavtk
ur. slml 18881
Fæðingarheimili) i KópavogV
HUðarvegi M) si:n) 42644
TatmlæfcnavaJn ei Hellsverno
arstöðipiu (þai sem ot
an var) og ei opia laueardaga or
smnnudaga fcl 5—6 e. u. Slm)
32411
Anótek Hafnarfiarðar er oolð aiia
virka daga fra fci 9—7 á Uwiear
dögum fcl. 9—2 og a sunnudöguro
og öðrum helgidögum er opið fri
<\ 2—4
Kvöld- og helgidagavörziu apóteka
í Reykjavík vikuna 10.—16. okt.
annast Vesturbæjar apótek og Háa
leitisapótek.
Næturvörzlu í Keflavík 10. okt.
annast Kjartan Olafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 12. okt
annast Arnbjörn Ólafsson.
FÉLAGSLIF
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ.
Þriðjudaginn 13. október hefst
handavinna og ýmiss konar föndur
kl. 2 e. h. 67 ára borgarar og eldri
dru velkomnir. Stjórnin.
KIRKJAN
Háteigskirkja. Lesmessa kl. 9.30.
Bamasamko na kl. 10.30. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Messa kf. 2. Sr.
Jón Þorvarðsson.
Hallgrimskirkja. Bai-naguðsþjón-
usta kl. 10. Fermingarmessa k,’. 11.
Altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
Dómkirkja. Messa kl. 11. Sr. Jón
Auðuns, dómprófastur' Messa kl.
2. Sr. Óskar J. Þorláksson.
Laugarneskirkja. Messa kl. 2.
Barnaguðsþjóno k.-. 10.30. Sr.
Garðar Sva\ .....
Fríkii-kjan i .xrfirði, Barna-
samkoma k'. 11. Messa kl. 2. Sr.
Bragi Benediktsson.
Bústaðaprestakail. Barnasam-
koma í Rétax-holtsskóla kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Skátar aðstoða.
Sr. Ólafur Skú/ason.
Kirkja Oháða safnaðarins. Mcssa
kl. 2, sunnudag. Sr. Emfi Björns-
son.
Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 2.
Sr. Garðar Þorsteinsson.
Hafnarfjarðarkirkja. Barnagu'ðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Garðar Þor-
steinsson.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta
kl. 10.30. Ferming. Sr. Gunnar
Ái-nason.
Langholtsprestakall. Ferming k»’.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Predik-
un sr. Guömundur Óskar Ó'.afsson.
Sóknarprestar.
Ásprestakall. Messa kl. 5 í Laug-
arneskirkju. Barnasamkoma kl. 31
í Laugarásbíói. Sr. Grímur Gríms-
son.
Árbæjarsókn. Barnamessa í Ár-
bæjarskóla kl. 11. Sr. Bjarni Sig-
urðsson.
Lágafellskirkja. Barnamessa kl.
2. Sr. Bjarni Sigurðsson.
Neskirkja. Barnasamkoma k'.
10.30. Messa kl. 2. Sr. Jón Thorar-
ensen.
Seltjai-narnes. Bai-nasamkoma í
Iþróttahúsi Seltjarnai-ness kl.
10.30. Sr. Frank M. Hal.’dói-sson.
Æskulýðsstarf Neskirkju. Fund-
ir fyrir pilta 13 ára og eldri í fé-
lagsheimili Neskirkju mánudags-
kvöld kl. 8.30. Opið hús frá kl. 8.
Sr. Frank M. Ha.'ldói-sson.
SIGLINGAR
Skipadeiid S.Í.S.:
Arnarfel! er væntanlegt til Akur-
eyrar í dag frá Skagasti'önd. Jök-
ulfel,’ fór í gær frá Svendborg til
Islands. Dísarfell er í Gd.vnia. Tátla
fe!l er á Akureyri. Helgafe.'l er á
Akureyri. Stapafell er í olíuflutn-
ingum á Faxaflóa. Mælife.'I losar í
Ho'.landi. Cool Girl fór 7. þ. m. frá
Sauðárkróki til London og Bremer
iiaven. Elsc Lindinger er í Þorláks-
höfn. Gt'aeia lestar á Norðúrlands-
höfnum. Keppo er á Hvms-
tanga.
FLU G AÆTLANIR
Loftleiðir hf.:
Snorri Þorfinnsson er væntanleg-
ur frá New York kl. 09:00. Fer ti!
Luxemborgar kl. 009:45. Er vænt-
anlegur til baka frá Luxemborg
kl. 18:00. Fer til New York k»\
19:00.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá New York kl. 08:30. Fer ti!
Osióar, Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar kl. 09:30. Er væntan-
legur til baka k,\ 00:30. Fer til
New York kl. 01:30.
Flugfélag íslands hf.:
Millilandaflug:
Gullfaxi fór til Lundúna kl. 08:00
í morgun og er væntanlegur það-
an aftur til Kef.'avíkur kl. 14:15.
Vélin fer til Kaupmannahafnar og
Oslóar kl. 15:15 í dag og er vænt-
anleg aftur til Kef'.avíkur kl. 23:05
í kvö.'d.
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar á mánudagsmorgun
kl. 08:30.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga ti? Ak-
ureyrar (2 ferðir), til Vestmanna-
eyja (2 ferðir) til ísafjai'ðar,
Ilornafjarðar og Egilsstaða.
Á moi-gun er áætlað að fijúga ti!
Akureyi'ar (2 fei'ðir), til Raufar-
hafnar, Þói'shafnar, Vestmanna-
eyja og ísafjai'ðar.
ORÐSENDING
Minningarspjöld Flugbjörgunar-
sveitarinnar eru seld á eftirtöld-
um stöðum:
Bókabúð Braga Brynjólfssonar,
Minningarbúðinni, Laugavegi. Sie
Þorsteinssyni. sími 32060; Sigurði
Waage, súni 34527: Stefáni Bjarna-
syni, sími 37392: Magnúsi Þórar-
inssyni, sími 37407.
Lárétt:
1) Hárleysi. 5) Ómarga. 7) Öfug
röð. 9) Hár. 11) Siár. 13) Ötul.
14) Skraf. 16) Þyngdarein. 17)
Lanir. 19) Skvisa.
Krossgáta
Nr. 642
Lóði'étt: 1) Hindra. 2) Burt.
3) Læsing. 4) Gljái. 6)
Fi’jótra. 8) Stóra. 10) Krók.
12) Þrusk. 15) Litu. ' 18)
Fréttastofmm.
Ráðning á gátu nr. 641.
Lárétt: 1) Þui’sar. 5) Rok.
7) GF 9) Skel. 11) Nef. 13)
Slá. 14) Anis. 16) TT. 17)
Rætur. 19) Angora.
Lóðrétt: 1) Þagnar. 2) ItR.
3) SOS. 4) Akks. 6) Slátra.
8) Fen. 10) Elstur. 12) Firn.
15) Þæg. 18) Tó.