Tíminn - 31.10.1970, Side 3
LAUGARDAGUR 31. október 1970
TIMINN
3
ATHUGASEMD LÆKNIS OG VIÐ-
TAL VIÐ MÓÐUR STÚLKUNNAR
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Tíminn skýrði frá því í gær
að 10 ára gömul stúlka, Agústa
Á Pétursdóttir. hafi látizt á
fimmtudagsmorgum, s.l. af völd
um meiðsla er hún hlaut, er
hún rakst á eitt skólasystkina
sinnar í frímínútum í Vogaskóla
s.l. föstudag. Var sagt að hún
hafi verið rannsökuð á slysa-
deild Borgarspítalans og síðan
send heim, og a@ stúlkan hafi
verið flutt á Borgarspítalaun
næsta morgun HE hafi þá verið
meðvitundarlaus.
Þetta er ekki alls kosta rétt.
Rögnvaldur Þorleifsson, læknir
á slysadeild Borgarspítalans,
bað Tírnann áð leiðrétta þá
frásögn, að stúlkan hafi verið
meðvitundarlaus er komið var
með hana á' laugardagsmorg-
un á slysadeildina. Var hún þá
með meðvitund og sagði Rögn-
valdur, að meiðsli hennar hafi
verið rannsökuð nánar. Að rann
sókm lokinni var Agústa flutt á
Landakotsspítala og var hún
enn með meðvitund, er fariö
var með hana þangað.
Þá sagði Rögnvaldur, að
stúlkan hafi ekki verið send
heim að rannsókn lokinni á
föstudag. Heldur hafi hún farið
út án þess að gefa sig fram í
móttöku slysadeildarinnar, en
þar var skilið eftir símanúmer
heima hjá stúlkunni, og átti að
hringja í móður hentiar að
rannsókn lokinni, og ætlaði
hún að sækja stúlkuna.
Lilja Þorbérgsdóttir, móðir
Agústu, sagði Tímanum, að ! ún
hafi fyrst vitað um meiðsli
dóttur sinnar, er hjúkmnarkona
Vogaskóla hringdi i hana og
sagði, að Ágústa hafi meitt sig
í skólanum og ætlaði hún að
fara með barninu á slysadeild-
ina. Nokkru síðar hringdi hjúkr
unarkonan aftur til Lilju og
sagði henni, að hún hefði skilið
telpuna eftir, en látið starfs-
fólk slysadeildarinnar hafa síma
númerið heima hjá Ágústu og
yrði hringt, þegar búið væri að
rannsaka telpuna og ætluðum
við þá að ná í hana, sagði Lilja.
,,En sú hringing kom aldrei.
Við vissum ekki fyrr en Agústa
birtist i dyrunum. Sagðist hún
hafa komið með strætisvagni,
en tekið leið nr. 8 í stað leið
nr. 9. Fór hún því miklu le. i
leið en þurfti, eða niður í bæ
áður en vagninm kom hingað.
Agústa sofnaði nokkru eftir
að hún kom heim og svaf fram
yfir kvöldmatartíma. Um kl.
9 um kvöldið vaknaði hún og
var þá óskaplega illt. Ég hringdi
þá á slysavarðstofuna, því að
ég var hrædd við, hvað barnið
hafði miklar höfuðkvalir. Ég
talaði við sama læknirnn og skoð
að hafði Ágústu um daginn.
Hann sagði mér að gefa barn-
inu magnyl og sjá til. Sagðist
hann hafa samband við okkur
síðar. Sofnaði Agústa, eftir að
hún tók inn magnylið
Um morguninn kl. 9 \. r
Agústa aftur svona slæm. Ég
hringdi þá aftur í slysavarð-
stofuna og talaði þá við ani.an
lækni en þann, sem ég talaði
við kvöldið áður. Hainn sagði.
að ekkert þýddi a@ vera að
þessum símalækningum og
sagði mér að koma strax með
barnið. Ég pantaði bil og var
komin með Ágústu á slysavarð-
stofuna kl. 10. Var þá fyrst
tekin mynd af höfði bErnsins.
Var Ágústa orðin mjög slöpp
og átti bágt með að tala. Það
þreytti hana mikið. Klukkan
hálf tólf var hún flutt á Landa-
kotsspítala. Var Agústa þá enn
með méðvitund en mjög af
henni dregið“.
17. sambands-
ráðsfundur UMFÍ
Sigurjón Jóhannsson
PB—Reykjavík, föstudag.
Á morgun, laugardag, opnar Sig
urjón Jóharmsson, blaðamaður
ljósmyndasýningu að Hverfisgötu
44 (bakhús). Sýningin verður opn
uð kl. 16 á morgun og opin til kl.
22, á sunnudaginn verður hún
opin frá kl. 14 til 22. í næstu viku
verður hún síðan opin frá kl. 17
til 23 daglega, en henni lýkur
sunnudaginn 8. nóv.
Á sýningunni eru milli 40 og 50
17. Sambandsráðsfundur Ung-
mennafélags fslands var hald-
inn í félagsheimilinu, Stapa s.l.
sunnudag. Á Sambandsráðsfundi
eiga sæti formenn allra Héraðs-
sambanda og félaga sem hafa
beina aðild að UMFÍ, og er hann
haldinn annað hvort ár. Mættir
voru fulltrúar frá 18 sambands-
aðilum auk gesta en meðal þeirra
var Þorsteinn Einarsson. íþrf. rík
isin, fundinn sátu alls um 40
manns.
Að þessu sinni var fundurinn
með nokkuð breyttu fyrirkomu-
lagi frá fyrri fundum, bæði hvað
dagskrá snerti, meðferð mála, og
myndir, sem Sigurjón hefur tekið
á árunum frá 1957 til 1970. Um
helmingur myndanna er úr starfi
fréttamanns hjá dagblaði, en Sig-
urjón hefur verið blaðamaður um
margra ára skeið, og gert mjög
mikið að því að taka myndir. Hinn
helmingur myndanna er landslags-
myndir. Allar myndirnar eru til
sölu, og er verð þeirra frá 1500
til 8000 krónur. Þær eru í stærð-
unum30 x40 — 50x60,
stóð auk þess aðeins einn dag að
þessu sinni, } stað tveggja áður.
Hafsteinn Þorvaldsson. formað-
ur Ungmennafélags ísTands setti
fundinn og flutti skýrslu stjórnar.
í skýrslunni kom fram að mörg
mál eru á döfinni hjá UMFÍ og
gert hefur verið stórátak á ár-
inu til þess að hrinda mörgum
þeinra í framkvæmd, þannig hafa
samtökin nú leigt sér vistlegt
skrifstofuhúsnæði að Klapparstíg
16 og ráðið til sín framkvæmda-
stjóra og skrifstofustúlku.
Erindrekstur hefur verið meiri
á þessu ári en oftast áður og
mikið samband haft við aðildarfé-
lögin og þeim veitt margskonar
fyrirgreiðsla af hálfu skrifstof-
unnnar, þá hafa tvö ný héraðs-
sambönd hafið starfsemi sína á
þessu ári, og eitt nýtt ungmenna-
félag verið stofnað.
Á þessu síðasta starfsári hófst
nýr og merkur þáttur í starfsemi
UMFÍ en það er rekstur Félags-
málaskóla UMFÍ, hóf hann starf-
semi sína á síðastliðnum vetri
og heppnuðust fyrstu námskeið
hans prýðiiega vel. aðalkennari
skólans er Sigurfinnur Sigurðs-
son, Selfossi.
Skinfaxi, félagsri.t UMFÍ hefur
nú komið út í rúm 60 ár, er blað-
ið gefið út 6 sinnum á ári, 32
síður hvert blað, kaupendum
fjölgar stöðugt, og vai samþykkt
að gera enn stórátak í þá átt að
útbreiða blaðið. Ritstjóri Skin-
faxa er Eysteinn Þorvaidsson.
Þá kom þáð' einníg fram í
skýrslu formannsins að merkur
áfangi níðist í framkvæmdum
UMFÍ í Þrastaskógi, er íokið var
við að l'eggja grasþökur á íþrótta-
völlinn þar nú í haust, var það
starf að miklu leyti unnið í sjálf-
boðavinnu og kostuðu því fram-
kvæmdirnar ótrúlega lítið fé.
Þá skýrði formaður frá hinum
nýja samningi við Getraunir, sem
hefur verulega fjárhagslega þýð-
ingu fyrir UMFÍ, og færði þakk-
ir öllum þeim aðilum sem áttu
hlut að máli.
Að lokum sagði formaðurinn
að eitt af framtíðarverkefnum
UMFÍ hlyti að verða stóraukið
landnám, Ungmennafélagshreyf-
ingarinnar í þéttbýlinu
Þá las Gunnar Sveinsson gjald-
keri UMFÍ upp reikning og skýrði
þá, en UMFÍ er mjög bröngur
stakkur skorinn fjárhagslega.
Urðu miklar umræður síðar á
fundinum um fjármál hreyfing-
arinnar.
Þessu næst voru fluttar fram-
söguræður um hin ýmsu mál sem
Fratnhald á bls. 14
Aðalbjörg Guðmundsdóttir formaður Bjarkar
- félags Framsóknarkvenna í Keflavík
Sýnir Ijósmyndir
að Hverfisgötu 44
ISL. RITHOFUNDAR SENDA
SOLZHENITSYN KVEÐJO
Á fundi sinum þann 15. októ-
ber s.l. samþykkti Rithöfundafélag
íslands að senda Alexander Solz-
henitsyn svofellda kveðju: „Rit-
höfundafélag íslands sendir yður
kveðjur og hamingjuóskir í til-
efni Nóbelsverðlaunanna og lýsir
ánægju sinni yfir því, að bók-
menntaafiNik yðar hafa hlotið
verðskuldaða viðurkenningu. Við
vottum yðar þakklæti og virðingu
fyrir baráttu yðar í þágu frjálsr-
ar listar og vonum eindregið, að
þér getið átt þess kost að veita
verðlaununum viðtöku í Stokk-
hólma.“
(Frá Rithöfundafélagi íslands).
Aðalfundur „Bjarkar", félags
framsóknarkvenna í Keflavík, var
haldinn föstudaginn 9. október
s.l. Á fundinum fóru fram venju-
leg aðalfundarstörf, kosið var í
stjórn félagsins, i nefndir, kosnir
fulltrúar á kjördæmisþing og í
fulltrúaráð framsóknarfélaganna í
Keflavík.
Frú Auðbjörg Guðmundsdóttir
var kjörinn formaður félagsins í
stað frú Þuríðar Vilhelmsdóttur
er baðst undan endurkosningu.
Aðrar í stjórn eru: Guðbjörg Þor-
valdsdóttir, Oddný B. Mattadótt-
ir, Jóhanna Jónsdóttir og Margrét
Haraldsdóttir, er kom í stað Jónu
Hjaltadóttur, sem baðst undan
endurkjöri. í varastjórn eiga sæti:
Sveinsina Frímannsdóttir og Matt-
hildur Magnúsdóttir.
Félagið hóf vetrarstarfsemi sína
i Aðalveri 18. október tneð þriggja
kvölda keppni í Framsóknarvist,
sem var mjög fjölsótt.
Áformuð eru hannyrðakvöld á
vegum félagsins í húsakynrum
Vörubílastöðvar Keflavíkur og
leiðbeinandi verður frú Soffía Þor
kelsdóttir.
Margt fleira hafa framsóknar-
konur í Keflavík á prjónunum,
sem ekki er tímabært að segja frá
að svo stöddu.
AVIDA
Bi
10% aukning
þjóðartekna
í ræðu, sem Gylfj Þ. Gísla-
son, viðskiptamálaráðherra,
flutti á aðalfundi Verzlunar-
ráðs íslands í gær, kom meðal
Iannars fram, að þjóðartekjur
íslendinga hafa aukizt um 10%
á þessu ári. Hækkun þjóðar-
teknanna hafa orðið mun meiri
en aukning þjóðarframleiðsl-
unnar vegna þess að verðlag út
flutningsafurða héfur hækkað
mjög verulega. Verðhækkun á
hraðfrystum fiski á erlendum
mörkuðum hófst í fyrra og hélt
áfram að aukast á fyrri hluta
ársins 1970. Verð hefur einnig
hækkað á öðrum fiskafurðum.
Meðalverðhækkun á fiskafurð-
um milli áranna 1969 og 1970
er talin nema um 16%, en ef
borinn er saman útflutningur
sjávarafurða fyrri hluta ársins
1969 og fyrri hluta ársins 1970
kemur í ljós, að hann jókst um
16% að magni en hvorki meira
né minna en 40% að verðmætt.
1 % af aukningu
þjóðarframleiðslunn-
ar vegna áls og
kísilgúrs
Um hlutdeild áls og kísilgúrs
í aukningu þjóðarframleiðsl-
unnar sagði Gylfi m.a.:
„Hagstæðustu ár undanfar-
ins áratugs hafa verið 1966 og
árið 1970. En það er athyglis-
vert. að hlutdeild iðnaðar í
þjóðarframleiðslunni hefur vax-
ið, en hlutdeild fiskveiða og
H fiskvinnslu minnkað. Um það
0 bil 1% af aukningu þjóðarfram-
ji leiffslunnar milli áranna 1969—
1970 á rót sína að rekja til hinn-
j ar nýju framleiðslu áls og kísil
y gúrs. Þá skiptir það og máli í
j bessu sambandi, að landbúnaðar
■ framleiffslan hefur átt í sérstök
um erfiðleikum vegna óhag-
■3 stæðs veðurfars og Heklugoss-
ins fyrr á þessu ári. Sjávarvöru
i framleiðslan mun líkle' i vaxa
i um 9% milli áranna 1969 og
1970 En hún er engu að síður
talsvert lægri en hún var 1965
og 1966. Hins vegar hefur auk-
in áherzla á þorskveiðar stuðl-
að að betri nýtingu á afkasta-
getu frystihúsanna."
6% hækkun verðlags
í næsta mánuði
Um hækkun verðlagsins
sagði Gylfi:
.,En verðlag hefur hækkað
nokkuð síðan kaupgjald var á-
kveðið síðast eða 1. sept. sl.
Vandinn er fólginn í því að
snúa dýrtíðarhjólinu til baka
sem því nemur, er það hefur
Isnúizt áfram síðan 1. ágúst. en
við verðlagið þá var kaup-
greiðsluvísitalan 1. sept. miðuð.
Það verður auðvitað ekki gert
nema gripið sé til sérstakra ráð-
stafana, og þær ráðstafanir
kosta fé. En með hliðsjón af
því, að aliar stéttir og allir at-
vinnuvegir ásamt ríkissjóði
hafa. þegar öll kurl koma til
grafar, hag af því, að verðVdg-
an sé stöðvuð, ætti að geta fund
izt skynsamleg lausn á þessu
máli. Ef ekkert er að gert,
mundi verðlag í nóvember lík-
Fracnhald á bls. 14.