Tíminn - 30.12.1970, Side 1
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
!S7
gqjt
FBVSTltOSTUW
FRYSnSKÁPAR
jOAoitewéfg/t- Ax
HAFTJCICMDEILO. HKMWSTIUETI », Sflfl HDM
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
.1
Dómur í
hassmál-
inu felldur
í dag
OÓ—Reykjavxk, þriöjudag.
Á morgun, miðvikudag, verður
felldur dómur yfir íslenzku stúlk-
unni, sem staðin var að því að
reyna að smygla miklu magni af
hassi út úr ísrael fyrir rúmum
mánuði.
Lítið hefur frétzt af réttarhöld-
unum, en þeim er nú lokið. Utan-
ríkisráðuneyti'ð hefur ekki aðrar
fréttir af stúlkunni en þær, að hún
er við góða heilsu. íslenzki ræðis-
maðurinn í Tel-Aviv heimsækir
hana öðru hverju og færir henni
föt og bækur og annað, sem hún
katai að þarfnast í fangelsinu. Ekki
er nofckur leið, að svo stöddu, að
segja um, hve strangan dóm stúlk-
33i Mýtur, en komið hefur fram,
að hún átti ekki sjálf þessi 24,5
kSó af hassi, sem hún gerði til-
raun til að smygia úr landi í ís-
rael, en ákvörðunarstaður stúlk-
unnar var Kaupmann ahöfn. ísra-
elska lögreglan telur, að stúlkan
Viafi verið verkfæri í höndum ann-
arra aðila, sem áttu hassið.
Strax eftir að dómur hefur ver-
ið felfdur á morgun, fær utanrík-
isráðuneytið skeyti um dóminn.
Ríkisstjórnin harmar
dauðadóma á Spáni
og í Sovétríkjunum
EJ—(Reykjavík, þriðjudag.
Ríkisstjórn fslands hefur beint
þeirri eindregnu áskorun til yfir-
valda á Spáni og í Sovétrikjunum,
að dauðadómar þeir sem upp voru
kveðnir á dögunum verði mildað-
ir þannig, að dauðarefsingum
verði ekki framfylgt.
Frá þessu segir í frétt frá rík-j
isstjórninni, sem er svohljóðandi:
„Ríkisstjórn íslands lýsir
áhyggjum sínum yfir dauðadóm-
um þeim, sem nú síðustu dagana
hafa verið kveðnir upp í Sovétrikj
unum og á Spáni, eins og kom-
ið hefur fram heimsfréttunum.
Tekur ríkisstjórnin undir þau
mótmæli, sem fram hafa komið
vegna þessara dóma. Mælir hún
gegn dauðadómum, enda samrým-
nst peir ekki réttarhugmyndum
íslendinga né grundvallarhug-
íjónum mannhelgi. Þeirri ein-
dregnu áskorun er beint til hlut-
aðeigandi valdhafa að milda dóm
ana þannig, að dauðarefsingum
verði ekki framfylgt."
Erlendur kjörinn
„íþróttamaður ársins“
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Þrír áhugasamir flugmenn i
Reykjavík hafa áhuga á að hefja
áætlunarflug til Akrancss og
Borgarness, en á hvorugum þess-
ara staða eru viðunandi flugvellir,
og þyrfti því að byggja þá, áður
en af áætlunarfluginu verður.
Þessir þrír flugmenn hafa rætt
viö bæjaryfirvöld á Akranesi og
einnig við Borgnesinga um þessi
áform sín, en ætlunin er að í ferð
Erlendur Valdimarsson, frjáls-
íþróttamaður úr ÍR, var kjörinn
„íþróttamaðnr ársins 1970“ í skoð-
anakönnun íþróttafréttamanna. —
um yrði tveggja hreyfla flugvél,
sem gæti líklega tekið 4—5 far
þega í ferð.
Að því er Haukur Classen hjá
flugmálastjóra sagði Timanum í
dag, þá hefui’ verkfræðingur flug
málastjórnar farið á báða stað
ina, til að at'huga með flugvallar
stæði. Mun helzt koma til greina
að gera flugbraut á mýrunum
upp af Görðum við Akranes, og
helzt hefur verið bent á mel í
landi Hamars fyrir ofan Borgar
A myndinni sést Sigurður Sigurðs-
son, formaður Samtaka íþrótta-
fréttamanna, afhenda Erlendi sig-
urlaunin. — Sjá nánar á íþrótta-
síðu, bls. 12.
nes, sem flugvallarstæði, en öll
þessi mál eru á athugunarstigi, og
engar áætlanir hafa enn verið
gerðar um flugvallagerð á þess
um stöo'um.
Fyrir nokkrum árum gerði Þyt
ur tilraun með Akranesflug, og
var þá lent á braut sem er nokk
uð fyrir ofan Akranes, og liggur
meðfram sjónum norðanmegin á
skaganum. Hætt var við það
flug af einhverjum orsökum, en
Framhald á bls. 14.
2. deild Félags
ísl. símamanna
Mðtmælir
kjarasamn-
ingi BSRB
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Stjórn 2. deildar Félags íslenzkra
símamanua hefur sent blaðinu
mótmælayfirlýsingu, þar sem mót
mælt er eindregið kjarasamningi
BSRB og ríkisins, sem gerður var
fyrir jólin. Er mótmælt þar skerð
ingu á ýmsum ákvæðum vakta-
vinnufólks, auk þess sem segir að
fiokkun „starfsmanna í starfs-
greinar okkar er fjarstæða sé
miðað við aðra starfsmenn ríkis-
ins“, og ennfremur að „augljóst er
að stöðugur áróður, hótanir og
það að hafa fulltrúa í samninga-
nefnd eða KjaraHði, nema hvort
tveggja sé, ráða mestu um
flokkun starfsmanna“. Einnig seg
ir, að „hrossakaup sem þessi“ séu
alls ósamboðin samtökum eins og
BSRB, og muni þeir því „endur
skoða afstöðu okkar til BSRB og
okkur nátengdari samtaka“ sam-
tímis sem krafizt er endurskoðun-
ar á flokkun ýmjssa meðlima
deildarinnar.
Mótmælayfirlýsingin fer hér á
eftir í heild:
„Deildarstjórn og starfskjara-
nefnd starfsfólfcs Landssímans við
Fjarsfciptamiðstöðina í Gufunesi
og Rjúpnahæð, svo og við útvarps
stöðina á Vatnsenda, mótmæla ein-
dregið kjarasamningi BSRB og
ríkisins, sem birtur var nú fyrir
jól.
Ekfci verður annað séð, en öðru
starfsfólki en vaktavinnufólki,
hafi verið keyptar kjarabætur á
kostnao' hinna síðarnefndu. T. d.
með lengingu vinnutíma, niður-
fellingu nætur- og helgidagataxta
í aukavinnu o. fl.
Nú verða starfsmenn þessara
stöðva, sem vinna á vinnuvöktum,
að skila 40 stunda vinnuviku, eft
irvinnugreiðsla er ætluð sú sama,
hvort sem unnið er að nóttu eða
degi, helga daga sem rúmhelga,
Þessi árás á vaktavinnufólk er
fáheyrð, sem betur fer, og því
Framhald á bls. 14
Áætlunarfíug frú Rvík til
Akruuess og Borgarness?
ÍSAL-SAMNINGURINN FELLDUR
MEÐ 2JA ATKVÆÐA MUN í HLÍF
— nýr félagsfundur verður haldinn um kjarasamninginn á næstunni
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Þau tíðindi gerðust á félags-
fundj í Verkamannafélagiiiu Hlíf
í Hafnarfirði í gærkvöldi, þegar
lagður var fram nýgerður kjara-
saniningur við íslenzka álfélagið,
að samningurinn var felldur íneð
24 atkvæðum gegn 22. Koni þetta
mjög á óvart, þar sem enginn
fuudarnianna mælti gegn samningn
um á fundinum Samningurinn '
snertir á annað lmndrað félags- ■
nianna Hlífar, og til þess að fá
frani augljósan vilja félagsmanna
verður haldinn annar fundur í ? lítill minnihluti þeirra sem fellt
félaginu um kjarasamninginn viðlhefðu samninginn.
ÍSAL. S Hermann sagði, að þessi úrslit
iíjjhefðu komið mjög á óvart, bæði
Blaðio1 hafði í dag samband viðlvegna þess að í nýja samningnum
Hermánn Guðmundsson, formann™væru mjög merkileg ákvæði, sem
Hlífar, og sagði hann rétt vera,% yrðr til fyrirmyndar vi& samninga
að samningurinn við ÍSAL hefði ggerð við aðra atvinnurekendur á
verið felldur með tveggja atkvæða|næstunni, og eins vegna hins, að
tnun, en alls hefðu 46 greitt at-3á fundinum mælti enginn gegn
kvæði með eða móti eins og at-Skjarasamningnum. Nokkrar fyrir
kvædatölur bera með sér. Sagðilspurnn- bárust, einkum um smærri
Hennann, að samningurinn snertiJatriði, og því almennt við því
kjör á annað handrað félags ®búizt, að samningurinn yrði sam-
manna Hlífar’ og væri það því vþykktur Fleiri félagsmenn Hiífar
sátu fundinn en atkvæðatölur gefa
til kynna, því þeir félagsmenn
sem ekki vinna í Straumsvik en
voru á fundinum töldu ekki rétt
að taka ákvörðun um kjarasamn
ing sem ekki snerti þá beint og
skiluðu því auo'um seðlum.
Hermann sagði, að ákvæði væri
í lögum Hlífar um annan fund í
tilfellum sem þessum, og yrðl
slíkur fundur haldinn, væntanlega
n. k. laugardag, til þess að fá
raunverulegt álit þeirra fjölmörgu
Hlífarfélaga sem vinna í Straums
vík.