Tíminn - 30.12.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.12.1970, Blaðsíða 2
2 TIMINN MIÐVIKUDAGUR 30. desember 1970 Stúlkan heldur á Olympiu-penlngum, sem seldir eru um þessar mundir, vegna Olympiuleikanna, sem haldnir verða í Munchen í Þýzkalandi í ágúst og september 1972 .Undirbúningur að þessum Olympiuleikum er að sjálf- sögðu löngu hafinn, enda má reikna með að margt verði um manninn, og mikið um að vera. Gefnar verða út 4,4 mntjónir aðgöngumiða. Má reikna með að um 1,2 milijónir miðanna verði seldar utan Þýzkalands. HUNDAR ERU MIKÍÐ NOTAÐIR í NÁGRANNALÖNDUNUM VIÐ LEIT AÐ FÍKNIEFNUM BB—Reykjavík, þriðjudag. „ Þremenningarnir, þeir Kristinn Ólafsson fulltrúi iögreglustjóra, Kristján Pétursson deildarstjóri í toUgæzlunni á Keflavíkurflug- velli og Sigurður Sigurðsson varð stjóri í tollgæzlunni í Reykjavík, eru nú komnir til landsins, eftir 3 vikna ferðalag til London, Kaup mannahafnar, Málmeyjar og Osló, er þeir fóru á vegum dómsmála- ráðuneytisins til þess að kynna sér starfsemi löggæzlu og toll- gæzlu í sambandi við fíkniefni og fíknilyf. Á blaðamannafundi sem efnt var til í dag, vegna heimkomu þeirra félaga, kom það fratn, að hundar hafa reynzt mjög vel við leit að þessum efnum, og munu Svíar vera komnir einna lengst í því að þjálfa hunda í þessu skyni. Er álitið að einn hundur vinni á við 60 manns við að leita uppi staði, þar sem þessi efni eru geymd. — Tíminn spurðist fyrir um það hjá Jóni Thors ráðuneyt- isstjóra í dómsmálaráðuneytinu. hvort tollgæzlan hér á landi hefði í hyggju að þjálfa hunda til þess- ara verkefna hér á landi. Sagði Jón að ekki væri grundvöllur fyrir | hendi til þess hérlendis, hins veg- ar væri hugleitt nú, að þjálfa hund og mann erlendis til fíkni- efnaleitar. Þremenningarnir sem utan fóru, telja að í Kaupmannah'öfn séu aðal dreifistöðvar Norðurlanda á hassi og skyldum efnum. Sögðu þeir að Danir hefðu hingað til verið frem ur slakir við að koma í ve2 fyrir að þessi efni kæmust inn í land- ið, en nú hefðu þeir í huga að gera átak í þeim efnum, enda er eitur- lyfjavandamálið í Danmörku orð- ið mjög mikið, eins og flestir munu kannast við. Löggæzlan og tollgæzlan í þeim löndum, sem þeir Kristinn, Kristján og Ólafur heimsóttu, hef ur lagt ríka áherzlu á það að fá stuðning almennings við að ljóstra upp um eiturlyfjalbrot, og mun al- menningur í Svíþjóð, Noregi og Bretlandi hafa komið mjög til móts við lög- og tollgæzlu. T.d. hefur stuðningur almennings í London verið mjög þýðingarmik- ill. f Danmörku mun almenning- ur ekki vera eins áhugasamur viS að hjálpa lög- og tollgæzlu að koma í veg fyrir smygl á fíkni- efnum og neyzlu þeirra. f Osló vinna nú 30 manns við að koma í veg fyrir smygl á fíkni- efnum til landsins, og eru þessir menn sérstaklega þjálfaðir til þeirra verkefna. Norðmenn hafa hingað til verið að mestu lausir við eiturlyfjavandamáliS, en hins vegar virðast þeir nú meir ugg- andi en áður, að eiturbylgjan skelli yfir. Mun það vera álit manna er að þessum málum starfa hér, að fslendingar standi enn framar Norðmönnum hvað þetta áhrærir. Löggæzlan hér og tollgæzlan leggur á þaS mikla áherzlu, að al- menningur veiti þessum stofcun- um rika aðstoð til að koma í veg fyrir að slíkt ástand skapist hér á landi sem nú ríkir t.d. í Dan- mörku og Svíþjóð vegna mikillar neyzlu fíkniefna o.g lyfja. — Hér er ekki aðeins um vandamál lög- gæzlu og tollgæzlu að ræða, held ur hvers einstaklings í landinu, segja forsvarsmenn þessara stofn- ana hér á landi. Á blaðamannafundinum í dag lýstu þremenningarnir því óhugn- anlega ástandi sem t.d. ríkir í Kaupmannahöfn, þar sem ung- menni hafapt við í hörmúlegum hí- býlum eSa ganga um strætin — stöðugt undir áhrifum eitur- lyfja. Þá var á það minnzt á blaðamannafundinum. að sú skoð- un sem á sumum stöðum virðist ríkjandi, að t.d. hass sé.ekki vana bindandi og mun „heilsusam. legra“ en Hiengi, væri ekki rótt. Sannazt hefði, að þeir sem nota hass verða t.d. áhugalitlir um at- vinnu sína, og fara oft að nota hættulegri eiturlyf, eins og hero- ín. Enn sem komið er hefur lög- gæzlan og tollgæzlan hér orðið lítið vör við tilraunir til að smygla fíkniefnum til landsins svo og neyzlu á þeim hérlendis. Að lokum skal þess getið að lög gæzlan hérléndis og tollgæzlan munu á næstunni efna til nám- skeiSa, þar sem viðkomandi mönn um verður kennt að þekkja fíkni- efni frá öðrum efnum, og þannig koma í veg fyrir að fíkniefni kom ist inn í landið. Þá hefur tollgæzl- an í huga að efla tækjabúnað sinn til leitar á umræddum efn- um. Láki í skýjaborpm Ný skáldsaga eftir Orm í Hól Út er komin ný skáldsaga eft ir höfund, sem aðeins lætur uppi dulnefni sitt, Ormur í Hól. Skáldsagan nefnist hins vegar Láki í skýjaborgum, og á titilsííAx segir, að hér sé um að iræða skáldsögu í gamni og alvöru, útgefandi er höfund urinn sjálfur. Láki í skýjaborgum er 256 bls. að stœrð og skiptist í 20 kafla, sem bera nöfn eins og Utgerðarkróníka, Með skáldum í rakarastólnum, Kynorkúbank inn og Hrakningar í Bratta- múla, svo nokkuð sé nefnt. Þá eru allmargar teikningar í bók inni, en ekki er frá því skýrt, hvort þæir eru eftir Orm í Hól, eða einhvern annan lista mann. Ag lokuim má geta þess, að nokkuð er af skáldskap í bundnu máli í þessari nýút- komnu skáldsögu. Hundrað félagsmenn eru í íslendingafelaginu í London Hinn 28. nóvember síðast liðinn var haldinn aðalfundur Félags ís- lendinga í London í Danska Klúbbnum við Knightsbridge. í upphafi fundar minntist for- maður látins félaga Páls Aðal- steinssonair frá Grimsby, sem fórst af slysförum 22. nóv. s.l. Fundarmenn vottuðu hinum látna virðingu sína með því að rísa úr sætum. Starfsemi félagsins síðasta starfsár var aó'allega fólgin í að sjá um samkomur félagsmanna, sem í samræmi við tilgang félags ins miða að því, að auka viðkynn ingu íslendinga og annanra félags manna í Bretlandi og treysta tengslin við ættjörðina. Almennar skemmtanir voru haldnar fjórum sinnum á árinu, 1. desemberfagnaður 1969, þonra- blót í marz, sumarfagnaður í apríl og lýðveldisfagnaður 17. júní. Gestir á þessum samkomum voru 50—100 manns í hvert sinn. Skemmtanir voru einnig haldnar, sem sérstaklega voru ætlaðar ís- lenzkum unglingum í London, þar var dansað eftir hljómlist af ís- lenzkum og erlendum hljómplöt um, einnig lágu frammi íslenzk dagblöó' og tímarit, sem Flug félag íslands hefur lánað, ungling um til lestrar. Þá hefur félagið einnig séð um upptöku á jólakveðjum til flutn ings í Ríkisútvarpinu og haldið jólatrésskemmtanir fyrir börn og gesti félagsmanna. Nokkrar félagskonur hafa heim sótt fslendinga, sem legið hafa á sjúkrahúsum í London, en tölu GÓÐ KIRKJUSÓKN Á NORDFIRDI UM JÓLIN Greiðfært fyrir NorðfirSinga upp á Hérað ÞO—Neskaupstað, þriðjudag. Jólin í Neskaupstað hafa verið mjög róleg og góð eftir því. Veðrió' hefur verið svo gott, að elztu menn muna vart annað eins. Þó b.vrjaði aðeins að snjóa á sunnudagskvöldið, en í gær var súld. Þrjú stór jólatré hafa verið sett upp hér í bænum. Þar af er eitt gjöf frá vinabæ Nes- kaupstaðar í Svíþjóð, sem er Eskilstuna. Er þetta í fyrsta skipti sem Neskaupstaður fær gefið jólatré frá vinabæ sínum Norðurlöndum. Nori.'firðingar sóttu mikið kirkju um jólin og á hið góða veður vafalaust sinn stóra þátt í því. í gær hélt kvenfélagið Nanna sínar árlegu jólatrésskemmtan ir fyrir hörn. Um áramótin verða nokkrar brennur í Norðfirði að vanda. íþróttafélagið Þróttur sér um þá stærstu. eins og undanfarin ár, og er sú brenna beint á móti bænum og blasir því vel við bæ.jarbúum, þegar eldur verður tendraöúr þar að kvöldi 31. desember. Fært er yfir Oddsskarð, og því greið leið fyrir Norðfirð inga upp á Hérað. nema hvað hálka er á veginum. Séra Guðmundur Þorsteinsson prestur í Arbæjarsókn 20. desember s. 1. fór fram prests kosning í Árbæjarprestakalli, en atkvæði voru talin á biskupsskrif stofunni á aðfangadag. Umsækjend ur voru_ tveir, séra Guðmundur Óskar Ólafsson farprestur þjóð kirkjunnar og séra Guðmundur Þorsteinsson, sóknarprestur á Hvanneyri. Á kjörskrá í prestakallinu voru 1,982, atkvæði greiddu 1.195. Sr. Guðmundur Þorsteinsson hlaut 621 atkvæði og séra Guðmundur Óskar Ólafsson 566 atkvæði. Ó- gildir seðlar voru 2, en auðl. 6. Kosningin var því lögmæt og séra Guc'mundur Þorsteinsson kjörinn sóknarprestur í prestakallinu. Emb ættið verður veitt frá 1. janúar 1971. verð aukning hefur orðið á því upn á síðkastið að hingag sé leit a'ð læknishjáfpar. Aðstoð við sjúkl- inga er greinilega miki,ð nauðsynja- mál, einkum þeim, sem hafa tak- markað vald á enskri tungu. Fé- lagið hyggst auka þessa starf- semi eftir getu og lætur þess 1 getið til lækna og þeirra annarra, sem vildu um hana vita. í Félagi fslendinga í London eru um 100 félagar. Stjórn félags iiis skipa: Ólafur Guðmundsson, formaður Helgi Valdimarsson, varaform. Valgerður Hallgrímsd. West, rit- ari, Stephen Williams, gjald- keri, Páll Bjarnason, meðstjóm- andi. Að loknum aðalfundi var sýnd kvikmynd „This is Iceland", sem Loftleiðir lánuö'u, síðan skemmtu gestir sér við söng og dans til kl. 1 eftir miðnætti. Utanáskrift félagsins er: 56/58 High Street, j Ewell, Epsom, Surrey.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.