Tíminn - 30.12.1970, Page 8
3
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 30. desember 1970
Hallirnar
fyrrir híiðum
Munchenar
Ein hallanna, Neuschwanstein í Bayern
Þa8 þykir óhngsandi, að
nokkur gestur komi í opinbera
heimsókn til sambandslýðveldis
ins Þýzkalands, án þess að
hann sæki heim „milljónaþorp-
ið“ Munchen f Bajarálandi.
Sú borg á sér langa sögu.
Hún er ekki aðeins höfuðborg
Bajaralands, eins þýzku fríríkj-
anna, heldur er hún og vett-
vangur Olympíuleikanna 1972,
og sá skemmtiferðamaður
finnst varla, sem lætur undir
höfuð leggjast að fara þangað
til að skoða borgina og hall-
irnar í grennd við hana. Bygg-
ingaminjar borgarinnar og ná-
grennis, svo og það mikla
safn listaverka, sem þar er
varðveitt, eiga rætur sínar að
rekja til sama uppruna og þeir
rómantísku draumar, sem nú
eru gleymdir en almennt eru
taldir einkenni þýzkrar hallar-
dýrðar.
Það voru þjóófhöfðingjar hins
núverandi suðræna, þýzka sam-
bandslands, fyrst hertogar og
síðan konungar frá 1806, sem
gáfu söfnunar- og sköpunar-
gleði sinni lausan tauminn og
hikuðu efcki við að seilast djúpt
f vasa þegna sinna, ef þeim
bauð svo við að horfa. Og þá
óraði vitanlega efcki fyrir því,
að það, sem þeir byggðu og
söfnuðu að sér, mundi er fram
liðu stundir, verða ein helzta
gjaldeyrislind þýzku þjóðarinn-
ar.
700 ARA SAGA.
Það var Ludwig n, hertogi
af Bajaralandi, sem gerði borg-
ina á bökkum Isarfljóts að að-
setri Wittelsbach-ættarinnar fyr
ir 700 áirum, en síðan 1506 hef-
ur hún einnig verið höfuð'borg
Bajaralands. Hún varð brátt
mesta listaborg Þýzkalands, og
eiga haliarbyggingarnar þar
ekki hvað sízt þátt í þeirri þró-
un. Þannig risu á skömmum
tíma þrjár hallir í Sehleiss-
heim, skamrnt frá borginni og
i grenrnl -?ð P '•■’vurmýrar. Að
visu var hin eizta, miki? bv-a-
ing I stól endiurrei I • : ->
eyðilögð í lok striðsxus 1945,
en eftir er smáhöllin „Glað-
heimar“, Lustheim, sem reist
var ári?' lb»4 og er fræg fyrir
nutruiaiverk sín, svo og „Nýja
höllin“, sem svo er nefnd. Hún
var fullgerð árið 1704 í mild-
um, ítölskum síðbarokstíl, en
þar er hio’ ómetanlega mál-
verkasafn Bajaralands varð-
veitt í dásamlega fögrum söl-
sumarsetur
HÖFÐINGJANNA.
„Dísahöll”, sem er undursam-
lega fagur gimsteinn á sviði
byggingarlistar, er reist í sam-
nefndu hverfi borgarinnar,
Nymphenburg, en þar gerðu
kjörfurstar og konungar sér
sumaraðsetur á tímabilinu frá
1663 til 1728. Stendur höllin í
fögrum skemmtigarði, en höf-
uðdjásn hans er höllin Amali-
enburg, ssm reist er í rokoko-
hii-ðstíl. Meðal ómetanlegra
verðmæta þar er hið fræga
málverkasöfn Ludwigs I Bajara
konungs, en þau málverk eru
einvörðungu af fögrum konum.
Þar er og postulínsverksmiðja,
sem stofnuð var fyrir rúmum
tveim öldum, árió' 1747. Það
var raunar Ludwig I konungur,
sem sveipaði höfuðborg sína
hinum klassísk-rómantíska bíæ,
sem vfiv henni hefur verig frá
árinu 1825.
Það varð siður höfðingjanna
á dögum Ludwigs I konungs —■
?m steypt var af stóli í febrú-
airbyltingunni 1848 vegna ást-
xrævintýra sinna með skozku
dansmeynni Lolu Montez —
að reisa hallir í nálægum hlíð-
um Alpafjalla, þar sem lands-
lag er mjög tilbreytingarríkt.
Sjálfur lét hann reisa Hohen-
schwangau. Á fögrum tindi milli
Alpavatns og Svanavatns (Alp-
seee, Schwansee) í Allau er
kastalinn Sohwanstein, Svana-
steinn, sem fyrst var í eigu
Welfa, en síðan Staufa, fornra
höfðingjaætta á þessum slóð-
um. Hertogar Bajarax-lands
slóu eign sinni á þessa höll ár-
ið 1567, en hún lenti síðan í
niðurníðslu og var loks seld til
niðurrifs fyrir aðeins 200 gyll-
ini í byrjun 19. aldar. Hún var
hins vegar enduirreist og mynd-
skreytt síðar og unnu það verk
ýmsir helztu listamenn þeirra
tíma.
EFTHtLÍKING AF
HÖLLINNI í VERSÖLUM.
Hin nýja Hohenschwanau-
höll varð síðar eftirlætisathvarf
Ludwigs II, Bajarakonungs, sem
varð maður mjög hamingju-
samuir, en haliir landsins eru
einmitt nátengdar nafni hans.
Hann lét til dæmis reisa höll-
ina Herrenchiemsee á stærstu
eyjunni í Chiemsee, og er hún
eftirlíking af höllinni í Versöl-
um, þó í mjög smáum stíl sé.
Skreyting hallarinnar, sem er
yfirmáta ríkuleg, svo og lista-
safn það, sem ber nafn Lud-
wigs II, lýsa vel lifnaðarhátt-
um og listaverkasmekk einvald
ans, sem drekkti sér í Starn-
bergvatni í geðveikikasti.
Sá hörmulegi atburÓ*ur gerð-
ið árið 1886, en nokkru áður
eða 1869 hafði hann látið reisa
höll — Linderhof — í nýroko-
kostíl ofarlega í Ammerdal,
skammt frá Benedikttínaklaustr
inu Ettal. Mörgum mun finn-
ast, að þessi fagra höll eigi
ekki heima í hinu ósnortna um-
hverfi dalsins, en hún er samt
tjáning hins sterka, róman-
tíska hugsunarháttar ' þeirra
tíma. Þessi áhrif verða fyr-
sterkari, þegar menn virða fyr-
ir sér aðalbyggingaverk kon-
ungs, sem hann hóf raunar að
reisa um svipað leyti, en það
er hin nýrómantska höll Nau-
schwanstein, sem er skammt
frá Hohenschwangau.
ÚR HUGARHEIMI
RICHARDS WAGNERS.
Þessi hvíta marmarahöll með
hinum duttlungafullu línum
sínum og háfjöll Bajaralands
og Tyrols að baksviði er eins
og steinrunninn draumheimur
úr hugarfylgsnum Richards
Wagners, sem var náinn vinur
konungs. Söguhetjuir þær, sem
eru fyrii-myndir innanhúss-
skrautsins, eru fengnar að láni
úr óperum hans.
/
Nú eru liðin rúm 80 ár, síð-
an Ludwig konungur andaðist
með voveiflegum hætti, og enn
er draumahöllin hans ákvörðun
arstaður geysilegs fjölda ferða-
manna, sem leita hugfróunar í
hinni þýzku, rómantísku bygg-
ingarstefnu og minnast hins ein-
mana konungs, sem fjallabúar
syngja enn um við angurvær-
an undirleik gítaranna.
um.
SANDVIK
snjónaglar
Sniónegldir hjólbarðar veita öryggi
í snjó og hólku.
Lótið okkur athuga gömlu hjólbarðana
yðar og negla þó upp.
Góð þjónustá — Vanir menn
-Rúmgott athafnasvæði fyrir alla bíla.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. - Sími 30501. — Reykjavík.