Tíminn - 30.12.1970, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 30. desember 1970
ÁRAMÚTA-
/ /
BRÉF FRÁ MÁLMEY - BLS. 7
I IÞROTTA
HOLLINNI
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Nemendur MR hafa unnið
af kappi undanfarið við
að skreyta íþróttahöllina í
Laugardal, en þar halda
menntaskólanemendur hátíð
annað kvöld. Á gamlársdags-
kvöld halda síðan háskóla-
stúdentar sína hátíð í húsinu
og standa skreytingarnar þá.
Salurinn er skreyttur myndum
sem að mestu eru teknar úr þjóð-
síjgutn, og á einum vegg er saga
sögð í myndum og máli í þjóð-
sögustíl, en sennilega er sú saga
tilbúin, því ein af höfuðpersónun-
um, sem þar koma fyrir er rektor
FVamhald á bls 14.
OHAGSTÆÐUR
VÖRUSKIPTA-
JÖFNUÐUR í
NÓVEMBER
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Blaðinu hefur borizt yfirlit Hag
stofu íslands um verðmæti út.
flutnings og innflutnings f nóv-
ember 1970, og kemur í ljós, að
vöruskiptajöfnuðurinn var óhag-
stæður í þeim mánuði um 44G.8
miiljónir króna.
í heild hefur vfiruskiptajöfnuð-
urinn verið hagstæður á tímabil-
inu frá janúar til nóvember 1970
um 140 milljónir. Af þeirri tölu
er þó útflutningur á áli og ál-
melmi 1.520.3 milljónir króna,
þannig að sé sá liður ekki tek-
inn með er um mikinn halla á
vöruskiptajöfnuði að ræða.
Þa3 var mikiS um aS vera í Laugardalshöllinni í gær, þegar blaðamaður og Ijósmyndari Tímans litu þar inn, en þó hafði unga fólkið tíma til að setj-
ast upp á pallinn, rétt á meðan myndin var tekin. (Tímamynd GE)
BRENNURNAR
VERÐA 35
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Að minnsta kosti 35 brennur
verða haldnar í Reykjavík á
gamlárskvöld. Eru unglingar
víða um bæinn að hlaða bál-
kesti og nokkra kesti sér borg
in um að hlaöa. Stærsta brenn
an verður á svæðinu milli Há-
teigsvegair og Kringlumýrar-
brautar og er hún á vegum
borgarinnar.
Þar er búið að hlaða köst
sem er um 13 metrar á hæð
og verða settar tólf olíutunnur
á eldiviðinn áður en kveikt
verður í.
Aðrar brennur verða minni,
en áhugasamir unglingair gera
sitt bezta til að þær brennur
verði sem glæsilegastar.
Brennur verða á eftirtöJdum
stöðum:
Borgarbrenna, Miklubraut
— Kringlumýrarbraut. f mýr-
inni norðan Granaskjóls. Við
Kleppsveg 34. Við Baugsnes
17. Austan Kringlumýrarbraut
ar sunnan Laugavegs. Norðan
Árbæjar sunnan Höfðabakka.
Móts við Ægissíðu 56. Við
Gilsárstekk 4. Við Háaleitis-
braut móts við 109—111. Vicí
Dalbraut og Sundlaugaveg.
Vestan Kringlumýrarbrautar
norðan Laugavegs. Við Stóra-
gerði — Brekkugerði. Móts
við Sólheima 24. Engjaveg og
Iloltaveg. Við Bólstaðarhlíð
austan Kennaraskóians. Við
Elliðaárveg móts við Útskála.
Útskálum við Suóúrlandsbraut.
Austan Dælustöðvar H.R. —
Breiðholt. Lauganes móts við
húsið 102. Austan Kleppsveg
ar og sunnan Víðihlíðar. Móts
við Staðabakka 30. Hólma í
EHiðaánum. Við Grundargerði
Móts vig húsiö Sörlaskjól 2.
Norðan Elliöaárvogs móts við
Drekavog. Við Hólsveg og
Austurbrún. Á móts við Ægis
síðu 74. Horni Faxaskjóls og
Sörlasjóls. Grundarland móts
við Hörgsland. Við Sæviðarsund
norðan Kleppsvegar. Við Bæj
arháls móts við Bílasmiðjuna.
ViS Smálönd við Hitaveituveg
Austan Selásbletts 22. Við
Fossvogsblett 52. Við Barða-
vog og Elliðaárvog. Móts við
írabakka 10.
ssm
JÓLATRÉSFAGNAÐURINN
ER í DAG
Jólatrésskemmtun Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður í Súlnasalnum miðviku-
daginn 30. desember og hefst kl. 3. Jólasveinn kemur í heimsókn og skemmtir börn-
unum á ýmsan hátt, veitingar verða bomar fram að vanda, og dans verður stiginn
umhverfis jólatré. í lok jólatrésskemmtunarinnar fá öll börnin jólagjafir, og er um
að velja margs konar skemmtileg leikföng. Einnig fá börnin epli og sælgæti. Að-
göngumiðar eru til sölu í Bankastræti 7, á afgreiðslu Tímans, og einnig á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hringbraut 30 og við innganginn.
Þeir stóftu •'ift breiinuníi sina þessir þrir strákar, stoltir yfir því, sem þeim
hafði tekirt aft draga að trúðu þvi áreiðanlega, að þeirra brenna væri sú
mesta og bezta i Dorginní, (Tímamynd GE)