Tíminn - 12.01.1971, Side 3
MGGö.roDAGUR 12. Janúar 1971
TIMINN
BARNAKENNARAR MINNAST 50
ÁRA AFMÆLIS SAMTAKA SINNA
EB—Reykjavík, mánudag.
Samband ísl. barnakennara á 50
ára afmæli 17. júní n. k. VerSur
sambandið og fulltrúum frá kenn-
afmælisins minnzt með sérstöku
væntanlega verður haldið einhvern
tíma í júnímánuði. Þá verður í
tilefni afmælisins gefið út afmæl-
isrit, sem greina mun frá starfi
sambandsins og fl. því viðkom-
andi. Einnig er ráðgert að fræðslu
mál verði sérstaklega á dagskrá í
fjölmiðlum landsins, komið verði
upp sameiginlegum skólasýningum
á hverju félagssvæði S.Í.B., aug-
lýst eftir tillögum um merki fyrir
sambandið og fulltrúum frá kenn-
arasamböndum Norðurlanda boðið
til afmælishátíðarinnar.
Afmælisnefnd S.Í.B. sem skip
uð var af sambandsstjórninni í
júlí 1968, boðaði í dag frétta-
menn á sinn fund og skýrði þeim
frá störfum sínum og hugmynd
um. Form. nefndarinnar er Skúli
Þorsteinsson, sem jafnframt er
formaður S.Í.B. Auk hans eiga
sæti í nefndinni þau Friðbjörg
Haraldsdóttir, Marinó Stefánsson,
Haukur Helgason, og Kristján Sig
tryggsson. Starfsmaó'ur sambands
ins, Svavar Helgason, starfar með
nefndinnii.
Á sambandssvæði S.I.B. hafa
verið kosnair sérstakar afmælis-
nefndir, og eru helztu verkefni
þeirra að ákveða sýningastaði fyr-
ir skólasýningarnar, hafa umsjón
með því að koma upp sýningum
frá starfi skóianna, en þar er t.
d. átt við skólavinnu og skemmti-
atriði nemenda, kennslutæki og
myndir frá skólastarfinu, sjá um
fræðsluerindi í sambandi vió’ sýn
ingar og leita eftir fjárstyrk frá
sýslu- og bæjarfélögum vegna sýn
inganna. — Sýningarnar eru fyrst
og fremst miðaður við nemendur
barnaskóla, en þó telja aðstandend
ur eðlilegt, að nemendur unglinga
skólanna séu með, þar sem ungl
ingadeildir starfa í bamaskólum og
undir sömu stjórn. — Tekið var
sérstaklega fram á fundinum með
fréttamönnum, aó' afmælisnefndir
svæðasambandanna eigi að hafa
frjálsar hendur um undirbúning
allan og framkvæmd í sambandi
við afmælið, innan þess ramma,
sem verkefnið ákveður. Efcki er
talið nauðsynlegt, að sýningarnar
séu samtímis á sambandssvæðun
um. Skúli Þorsteinsson bryddi á
því á fundinum, að heppilegt væri
aó' hafa sýningar 1. maí, þar sem
fólk gæti „slappað af“ eftir fcröfu
göngurnar.
Skúli sagði að sambandið hefði
haft samband við forráðamenn
fjölmiðlanna í landinu um að hafa
fræðslumál sérstafclega á dagskrá
í fjölmiðlunum. Hefur þeirri um-
leitan verið vel tekið, og í ráði
að hafa t. d. þætti um þessi má:
Opinn fundur
um verkalýðs-
mál
f kvöld, þriðjudag, 12. jan. kl.
20.30, verður opinn fundur um
| verkalýðsmál að
fff Hringbraut 30.
i Er hér um að
p ræða undirbún-
ingsfund að ráð.
stefnu, sem FUF
l " efnir til um verka
lýðsmál og á að
' standa dagana
30. og 31. janúar næstkomandi.
Frummælandi á fundinum á þriðju
daginn verður Baldur Óskarsson.
í blöðunum, sem ákveðnir aðilar
sjá um.
A afmælisþinginu verður fjall
að um eitt sérstakt atriði í fræðslu
málunum, en ekki er enn búið að
ákveða, hvaða atriði venður tekið
fyrir.
Ýmsar breytingar hafa átt sér
stað á skipulagi og starfsháttum
Sambands íslenzkra barnakenn-
ara á liðnum árum, en hér skal
getið að nokkru skipulags og
starfshátta, sem nú eru í gildi.
Stjórn sambandsins skipa sjö
menn kjörnir á fulltrúaþingum til
tveggja ára í senn og fimm til
vara. Stjórninni til aðstoðar starfa
2 fastar nefndir, uppeldismála-
nefnd og launamálanefnd.
Landinu er skipt í 10 kjörsvæði.
Stjórn fcennarafélaga á hverju
kjörsvæði er tengiliður milli sam-
bandsstj'órnar og hinna einstöku
Framhald á bls. 14
Nýlega hefur veriS stofnaS áhugamannafélag um skokk
alla vlrka daga í Laugardalslaug M. 12,10 til 12,30 til hl
þriSjudögum og fimmtudögum hittast þeir einnlg kl. 17
tekin á æfingu þeirra sl. laugardag. Formaður félagsin
kemur Páll S. Pálsson, þá Leifur Sveinsson, Ólafur Ka
Gunnarsson, Guðmundur Karlsson og Jón P. Jónsson, Þe
lestina, en siást elekl á myndinni. AS lokum skal þess
ardalshöll, og aS stjórn félagsins skipa, auk Gunnlaugs
Karisson og Leifur Sveinsson.
og sund. Nefnist félagiS „Ka-skot'. Hittast Ka-sko menn
aupa og sunds, einnig laugardaga kl. 11,30 til 12 og á
,40 til 18. — Þessi mynd af þeim Ka-sko mönnum var
s, dr. Gunnlaugur ÞórSarson, skokkar fremstur, næstur
rlsson, Björn Hermannsson, Theodór Jónasson, Kristinn
ir Sveinbjörn Dagfinnsson og Hermann Björnsson ráku
getiS, að „Ka-sko" tekur á móti nýjum félögum í Laug-
, þau SigríSur Ólafsdóttir, Páll S. Pálsson, GuSmundur
(Tímamynd GE)
Auglýsingastofan
Argus
hefur flutt i nýtt og
rúmgott húsnæði:
Bolholt 6
(suðausturhlið)
Nýtt símanúmer:
85566
Nýtt pósthólf: 5133
argus<<£>
Auglýsingateiknun, Kvikmyndagcrð
Auglýsingaþjónusta
Bragð er að
þá barnið finnur
Styrmir Gunnarsson ritar at-
hyglisverða „Rabb“.grein í
Lesbók Mbl. sl. sunudag. Fjall-
ar hann þar um meðferð meiri-
hluta Alþingis á tillögu þeirri,
sem Jón Kjartansson og Einar
Ágústsson, þingmenn Fram-
sóknarflokksins, fluttu við 3ju
umræðu fjárlaga fyrir 1971,
skömmu fyrir jól, um 3 milljón
króna viðbótarfjárveitingu til
Kleppsspítala. Minnir hann á
fyrirheit, sem Jóhann Haf-
stein gaf sem heilbrigðis-
ismálaráðherra, en Eggert G.
Þorsteinsson, sem við embætti
heilbrigðismálaráðherra tók
fyrir einu ári, hefur ekki efnt.
Styrmir segir:
„Það er rétt að stjórnarvöld
hafa gert sér grein fyrir þcim
mikla vanda, sem hér er á ferð
inni. Jóhanu Hafstein, sem var
heilbrigðismálaráðherra þar tU
fyrir einu ári, lýsti því yfir
hvað eftir annað, að hann teldi,
að bygging nýs geðsjúkrahúss
á Landspítalalóðinni yrði að
njóta forgangs umfram aðrar
framkvæmdir f heilbrigðismál-
um.“
Aðeins eitt dæmi
af mörgum
Niðurlag greinar Styrmis er
svohljóðandi:
„Hið alvarlegasta við af.
greiðlsu meirihluta Alþingis á
tillögu þeirra Jóns Kjartansson
ar og Einars Ágústssonar er þó
ef til vill það, að þingmenn
virtust algjörlega sinnulausir
um það. Enginn kvaddi sér
hljóðs til þess að ræða það eft-
ir ræðu Jóns Kjartanssonar.
Enginn þeirra, sem atkvæði
greiddu gegn tillögunni um
aukna fjárveitingu til Klepps.
spítalans sá ástæðu til að gera
grein fyrir atkvæði sínu eins
og þingmenn jafnan gera, ef
þeir í sjálfu sér eru fylgjandi
máli en telja slg ekki geta
fylgt því af einhverjum öðrum
ástæðum. Nú má vel vera, að
til séu einhverjar eðlilegar
skýringar á því, að þessi litla
tillaga, sem hér hefur verið
gerð að umtalsefni fékk ekki
jákvæðari afgreiðslu. Vel get-
ur verið að fjárveitinganefnd
hafi rannsakað þetta mál gaum
gæfilega og að lokinni þeirri
rannsókn komizt að þeirri nið-
urstöðu, að það væri engin
lausn á vandamálum Klepps-
spítalans að veita honum þetta
aukna fé, eða að fjárveitinga-
nefnd hyggist beita sér fyrir
myndarlegii úrlausn fyrir spít-
alann síðar. Hafi málið fengið
slíka meðferð kom það ekki
fram við þriðju umræðu fjár-
Iaga en ekki efast ég um, að
Morgunblaðið mundi ljá skýr.
ingu af hálfu einhvers nefndar-
manns í fjárveitinganefnd rúm,
ef svo bæri undir.
En mestu skiptir þó, að al-
þingismenn geri sér grein fyr-
ir þvi, að sá þáttur hcilbrif'svis-
mála, sem hér hefur verið drep
ið á, er í hneykslanlegu ásig.
komulagi. Það er skylda Alþing
is, að taka þessi mál til um-
ræðu og koma fram úrbótum.
Framhald á bls. 14.