Tíminn - 12.01.1971, Blaðsíða 16
<HHKi
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
Tímamynd Gunnar.
Þriðjudagur 12. janúar 1971.
Skákkeppnin hafin. Dagur berst við Tímann til úrslita:
FYRSTI LEIKUR ER D2 TIL D4
............ ...............
Gunnar Gunnarsson og Trausti Björnsson.
Deilur á fundi Norðurlandaráðs æskunnar um Loftleiðamálið:
Tillaga íslands felkl
með naumum meirihluta
EJ—Reykjavík, mánudag.
Norðurlandaráð æskunnar hélt
sinn fyrsta og síðasta fund
í Stokkhólmi dagana 7.—9. janúar.
Meðal mála, sem rædd voru á
þinginu og ályktað var um, voru
flugumferðarmálin og þá sérstakl.
Loftleiðamálið, sem íslenzku full-
trúarnir á þinginu fluttu sérstaka
tillögu um í upphafi þingsins. Sú
tillaga var að lokum felld með
litlum atkvæðamun, en hins veg
ar samþykkt önnur tillaga, sem
ekki gekk eins langt, en lagði
samt áherzlu á, að SAS, Finn-
air og Loftleiðir fengju að starfa
við sömu skilyrði á Norðurlönd-
um.
Tillaga sú, sem íslenzka sendi
Frá happdrætti
Framsóknarflokksins
Af óviðráðanlegum orsökum
verður ekki unnt að birta vinn-
ingsnúmer happdrættisins fyrr en
á föstudag.
nefndin flutti í upphafi þingsins,
var svohljóðandi:
„iNorðurlandaráð æskunnar
harmar það misrétti gegn íslenzka
flugfélaginu Loftleiðum, sem enda-
lok hinnar stuttu þátttöku íslands
í Skandinavian National Travel
Offices er síðasta dæmið um.
Norðurlandaráð æskunnar skor
ar á skandinavisk yfirvöld að taka
upp nýja og jákvæo'a afstöðu til
óska Islendinga varðandi lending
arréttindi Loftleiða í Skandinavíu,
sem grundvallist á anda norræns
samstarfs og sérstöðu íslands.”
Flutningsmaóur tillögunnar fyrir
hönd íslenzku sendinefndarinnar
var Elías S. Jónsson, Sambandi
ungra framsóknanmanna.
Málið var lagt fyrir 1. nefnd
þingsins, og urðu þar nokkrar um
ræður um hana. Fengu íslending
ar stuðning ýmissa nefndarmanna,
m. a. fulltrúa Finnlands, sem
kölluðu stefnu SAS „flugmála-
imperíá.,isma“! og fulltrúa norskra
hægri manna.
Niðurstaðan í nefndinni varð
sú, að hún samþykkti tillögu ís-
lenzku fulltrúanna ásamt viðbót
artillögu, svohljóðandi:
Norðurlandaráð æskunnar er
andvígt hvers konar misrétti á
sviði flugmála og leggur til, að
sömu meginreglur verði látnar
gilda um alla, sem stunda flug-
umferð.“
Það var síðan ekki fyrr en rétt
áður en tillaga nefndarinnar var
tekin fyrir á almennum fundi
ráðsins á Jaugardaginn, að önnur
tillaga kom fram, og var hún frá
Jon Nálsund, frá ungum jafnaðar
mönnum í Noregi.
Verulegar umræður urðu um
tillögurnar tvær, og vakti þar
mesta athygli sú yfirlýsing Nál-
sunds, að hin góo*u kjör Loftleiða
í Bandaríkjunum væru einskonar
borgun fyrir herstöðina í Kefla-
vík.
Elías Jónsson hafði orð fyrir
fslendingunum í nefnd og á al-
mennum fundi, og mótmælti þess
ari yfirlýsingu Nálsunds sem al-
rangri og órökstuddri, og væri
hon’um skylt að reyna að færa ein
hverjar sönnur á þessa yfirlýsingu
sína, hváð hann ekki gerði.
Atkvæði voru síðan gi;eidd, og
þá fyrst um íslenzku tillöguna eins
og hún kom frá nefndinni, og
var hún felld með tveggja atkvæða
mun. Tillaga Nálsunds var síðan
samþykkt.
í þeirri tillögu er hvatt til
nánari samræmingar á stefnu
Noró'urlanda í flugumferðarmálum
Framhald á bls. 14
IGÞ-Reykjavík, mánudag.
Þá er blaðaskákkeppnin hafin.
Fyrsti leikurinn í skákkeppni Tím-
ans var ieikinn á ritstjómarskrif
stofu blaðsins í dag. Keppendurn
ir frá Taflfélagi Reykjavíkur, þeir
Gunnar Gunnarsson og Trausti
Björnsson, léku ósköp venjulegan
opnunarleik, eða d2 til d4, léku
sem sagt fram drottningarpeðinu.
Þeir Jóliann Snorrason og Margeir
Steingrímsson í Skákfélagi Akur-
eyrar leika á morgun.
Þá hefur orðið að samkomulagi
milli ritstjóra Timans og ritstjóra
Dags, aó' skák þcirra fjórmenning
anna verði jafnfram.t keppnisskák
milli Tímans og Dags. Mun Tim
inn að sjálfsögðu leggja kapp á
að sitt lið vinni skákina, en um
það verður þó a'ð fara sem
vill. Norðanmennirnir eru harðir
skákmenn og ekki gott að segja til
um úrslitin. Við munum segja nán
ar frá þeim Jóhanni og Margeiri
á morgun, en Dagur hefur, þrátt
fyrir keppnisskap, lofað að senda
okkur mynd af þeim er þeir
leika sinn fyrsta leik.
Þcir Gunnar Gunnarsson og
Trausti Bjömsson eru báðir kunn
ir taflmenn, en svo er um alla
í þessari skákkeppni. Þetta eiu
allt gamalreyndir menn og harðir
keppinautar. Hugsa eflaust marg
ir gott til þessarar keppni nú
mitt í skammdeginu, enda geta
menn leikið sér að því að tefla
hana til enda á einni kvöldstund,
eftir að línurnar fara að skýrast
hjá keppendum.
Þeir Gunnnar og Trausti hafa
báðir keppt í olympíuliði íslands.
Trausti keppti í ísrael haustið
1964, þá á 2. borði. Hann tók
fyrst þátt í skákkeppni árið 1959
og hefur einu sinni orÓ*ið skák
meistari Taflfélags Reykjavíkur.
Framhald í ‘-Ir i
Hæðarstýrið
skemmdist á
á Gljáfaxa
Grænlandi
KJ-
-Reykjavík, mánudag.
Það óhapp vDdi til við Dane-
borg á Grænlandi í kvöld, að1
hundasleða var ekið á hæðarstýri
Gljáfaxa, sem var nýlentur á
Eftir hádegi barst skeyti til
F.'ugfélagsins um, að ná þyrfti í
slasaðan mann til Danaborgar 1
Grænlandi. Er sá maður kalinn á
höndum og fótum og liggur mikið
ísnum, til að taka þar mann er; við að koma honum á sjúkrahús
sem fyrst. Verður hann fluttur til
Reykjavíkur. Gljáfaxi, sem er
DC-3 flugvél, lagó'i af stað kl. 3.
Er fimm klukkustunda flug til
Danaborgar. Átti flugvélin að
lenda fyrst í Meistaravík og halda
þaðan áfram norður.
hafði kalið. Viðgerðarmenn fóru
með hinni Douglas flugvél Flug-
félagsins tjl Grænlands í kvöld,
og var sú vél væntanleg aftur
hingað til lands með sjúklinginn
í fyrramálið. í Daneborg er nú
33 stiga frost.
Hornfirðingar, aðkomufólk
Sameiginlegur kynningarfundur og árshátíð Framsóknarf élags. Sjálfstæðisfélaga og Alþýðubandalagsfélagsíns í Aust-
ur-Skaftafellssýslu verður haldinn í Sindrabæ, laugardaginn 16. janúar, og hefst stundvíslega kl. 20:30.
Dagskrá; 1. Ómar Ragnarsson skemmtir. 2. Flokkana kynna: Einar Ágústsson, Ellert Schram og Lúðvík Jósepsson.
3. Fjörva tríóið úr Reykjavík leikur fyrir dansi. — Mætið stundvíslega. — Nefndin.
Einar Lúðvík Ellert