Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 6
6
TÍSKA
Þrátt fyrir að London sé þekkt fyrir að vera ein af
tískuborgum heimsins er ekki þar með sagt að allir
fari nákvæmlega eftir því sem tískufrömuðir segja.
Í borg sem í búa um 8 milljónir íbúa er að sjálf-
sögðu mikil fjölbreytni í fatastíl og oft og tíðum
leggur fólk ýmislegt á sig til að skera sig úr fjöldan-
um en þó má alltaf sjá einhverjar línur sem ná yfir
flesta.
Ef mannfjöldinn er skoðaður vekja gallabuxur í öll-
um stærðum og gerðum sérstaklega athygli og eru
greinilega inni. Hvort sem það eru hiphop-
gallabuxur sem ná niður fyrir rass, klassískar, eilítið
útvíðar gallabuxur eða þá níðþröngar gulrótar-
gallabuxur ofan í stígvél eða við háhælaða skó. Það
er varla að það sjáist fólk í öðru heldur en gallabux-
um. Ef eitthvað annað er þá eru það helst hnésíð
víð pils eða klukkupils, til dæmis úr sléttu flaueli í
alls konar mynstrum og litum. Sígaunapilsin, sem
voru rosa „heit“ í sumar, eru á hraðri leið út en í
staðinn eru hnébuxur geysilega vinsælar og má sjá
sig alveg í sessi enn þá. Svartur er þó alltaf klass-
ískur og má sjá fólk blanda sinnepsgulum, fjólu-
bláum, appelsínugulum, bláum, blágrænum,
mosagrænum, vínrauðum og gylltu við hann en
það eru einmitt litir haustsins og vetrarins 2005–6.
Vegna hitans er fólk enn röltandi um á peysunum
eða að strákarnir henda yfir sig klassískum jakka-
fatajakka og stelpurnar litlum aðskornum jökkum
eða vestum en í vetur eiga leðurjakkar og pelsar að
taka völdin.
Til að toppa útlitið sjást margir karlmenn labba um
með „Godfather“ hatta úr grófum efnum eða six-
pensara. Konur eru oft líka með þannig höfuðföt
eða setja á sig hálsmen með stórum sem smáum
kúlum og eru með stórar töskur sem geta tekið alla
búslóðina. Bæði kynin eru svo með slæður og
trefla í öllum stærðum og gerðum, jafnt mjóa sem
breiða, langa eða stutta en helst eitthvað skraut-
lega, svona til að setja punktinn yfir i-ið.
margar konur í hnébuxum við háhælaða skó,
strigaskó eða stígvél.
Þægilegur hversdagsfatnaður er mest í tísku og eru
þverröndóttir bolir og peysur áberandi hjá báðum
kynjunum. Strákarnir eru helst í bolum með alls
kyns myndum og slagorðum og konur sjást mikið í
hnepptum peysum, stuttum eða mjaðmasíðum
sem eru oft teknar saman með breiðum borðum
eða þá opnar með rúnuðum köntum. Og þegar
þær fara á barina eða klúbbana sést að undir peys-
unum eru hlýrabolir með pallíettum eða skraut-
legir glimmerbolir. Pinnahælarnir eru að víkja fyrir
skóm með aðeins lægri og breiðari hælum eins og
frá 1960 og jafnvel skóm með fylltum botnum. Og
fyrir karlkynið eru þægilegir sportlegir skór, striga-
skór eða jafnvel kúreka- og mótorhjólastígvél helst
áberandi.
Svart er vetrarliturinn 2005/6 en þar sem hitamæl-
arnir sýna enn 15 gráður í London og sumarið því
ekki búið þá virðist hann ekki vera farinn að festa
GÖTUTÍSKAN Í LONDON
1 2 3
4 5 6
1.
Gallabuxur ofan í
stígvél er málið og
stórir, litríkir treflar.
2.
Bolir með myndum
og slagorðum ásamt
gallabuxum er hið
týpíska strákaútlit.
Takið eftir skónum,
appelsínugulu húf-
unni og stóru tösk-
unni.
3.
Þröngur svartur jakki
og svört opin peysa
en kryddað með
sinnepsgulri tösku.
4.
Það er gott að skera
sig aðeins úr fjöldan-
um og vekja athygli
með skemmtilegum
stíl.
5.
Það eru ekki bara
strákarnir sem fara í
boli með slagorðum.
Og gott er að setja
upp hatt til að nýta
fylgihluti tískunnar.
6.
Afslappaða útlitið er
áberandi. Takið eftir
hvítu opnu peysunni
með borða til að
skreyta og mjóa lit-
ríka treflinum - smá
atriðin setja punktinn
yfir i-ið.
Umsjón
Laila Pétursdóttir
MÓDEL GÖTUNNAR
Að skera sig úr fjöldanum