Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 8
8 TÓNLIST Það var stemning og stuð þegar hljómsveitin Jak- obínarína spilaði fyrir gesti á sveittum Grand- rokk-tónleikum á miðvikudagskvöld Airwaves- hátíðarinnar. Líflegt rokk og frískleg spilagleði heillaði viðstadda upp úr skónum og margir halda því fram að þetta hafi verið bestu tónleikar hátíðinnar. Jakobínarína kom, sá og sigraði og hefur í kjölfarið fengið afar jákvæða athygli, hér- lendis sem erlendis. Eftir að hafa unnið Músíktil- raunir og svo Airwaves sama ár, er erfitt annað en spyrja sig hvað sé næst á dagskrá hjá drengj- unum. Framtíðin er að minnsta kosti þeirra. Þessa dagana er nóg að gerast hjá Jakobínarínu en fyrir utan að vera á fullu að æfa nýtt efni eru þeir hlaupandi út um allan bæ að spila á tón- leikum. Það er erfitt að neita því að þeir séu að upplifa draum flestra unglinga, því hvað getur verið svalara en vera í heitustu rokkhljómsveit landsins og í efsta bekk í gaggó á sama tíma. Geta drengirnir verið annað en aðalnúmerin í skólanum? „Það er reyndar kosinn best klæddi nemandi skólans. Sá aðili er alltaf aðalnúmerið,“ segja þeir en bæta svo við að Sigurður trommari hafi verið valinn bjartasta vonin í fyrra. „Það eru miklar vonir bundnar við trommarann okkar í Ás- landsskóla.“ Jakobínarína fæddist í desember á síðasta ári og hefur verið mjög hávær frá fæðingu. „Við vorum eitthvað að stússast og prófa okkur áfram í ein- hverjum bílskúrsböndum,“ segja þeir um fortíð bandsins en þeir höfðu prófað ýmsa músík og ým- is nöfn eins og Lufthansa, Banderaz, Jólasveinn- inn, Leppalúði og fleiri. Í desember komu þeir á endanum fram undir nafninu Jakobínarína. Nýj- asti meðlimurinn er gítarleikarinn Heimir Gestur Eggertsson en hann kom í bandið, úr hljómsveit- inni Lödusport, mánuði eftir Músíktilraunirnar. Hið sérkennilega nafn hljómsveitarinnar er feng- ið úr sögu sem Hallberg Daði Hallbergsson, hinn gítarleikarinn, skrifaði í íslenskutíma en í þeirri sögu kemur fyrir persóna sem heitir Jakobínarína Freyr. „Okkur fannst þessi saga svo ógeðslega fyndin. Þannig að fullt nafn hljómsveitarinnar er í rauninni Jakobínarína Freyr, þ.e.a.s. ef hún væri einstaklingur.“ Plata næsta sumar Eftir tónleikana örlagaríku á Airwaves fóru hjólin að snúast fyrir alvöru hjá bandinu. „Við erum farnir að fá smákeim af bransanum en bara ljúfan keim. Við höfum alla vega ekki lent í verri hliðum bransans fram til þessa.“ Þeir voru varla búnir að stíga af sviðinu þegar kallarnir í 12 tónum komu að máli við þá og buðu þeim samning. „Þetta eru ótrúlega fínir gaurar þarna hjá 12 tónum, engir miklir bransagaurar, bara gaurar sem hafa áhuga á tónlist.“ Samningurinn felur í sér tvær plötur og mun sú fyrri að öllum líkindum koma út næsta sumar. „Við ætlum ekkert að flýta okkur með plötuna, heldur semja lögin þangað til við erum pottþéttir með þau. Þetta á að vera rosagóð plata, heilsteypt og flott.“ Fram til þessa hefur ekkert lag frá þeim fengið að hljóma á öldum ljósvakans en þeir lofa aftur á móti einu fullkláruðu lagi eftir helgina sem kemst þá vonandi fljótlega í spilun. Þangað til er hægt að hlusta og njóta fjögurra laga sem er að finna á síðu þeirra stráka á myspace.com/jakobinarina og eru þau hreint út sagt stórkostlegt. Undirritaður er sérstaklega hrifinn af laginu „His Lyrics are Disastrous“ sem kemur manni í stuð á mánudags- morgnum jafnt sem föstudagskvöldum. Einnig er væntanlegt myndband frá þeim sem þeir unnu sér inn við sigurinn á Músíktilraunum en það mun vera við lagið „I gotta date with my television“ sem einnig má nálgast á fyrrnefndri síðu. Djeikóbænaræna Á svo ekki að trylla lýðinn líka í útlöndum? „Jújú. Við förum líklega til Noregs í febrúar og spilum þar á festivali.“ Þeir eru að tala um festivalið By:Larm en þangað hafa íslensku böndin Gho- stigital, Tenderfoot og Jan Mayen áður heimsótt. „Svo förum við að öllum líkindum til Texas á Southbysouthwest-festivalið í mars á næsta ári. Það verður örugglega rosa gaman.“ Þeir eru nú þegar búnir að krækja sér í metnaðarfullan vel- unnara í Bandaríkjunum. „Við erum komin með hálfgerðan umboðsmann þar. Hann ætlar að koma einhverju smá „buzz“ í kringum tónleikana okkar í Texas.“ Jakobínarína hefur líka eignast annan áhrifaríkan aðdáanda frá Ameríku en hann heitir David Fricke og er einn af ritstjórum tónlistartímaritsins Rolling Stone og er auk þess einn mikilvægasti tónlistargagnrýnandi heimsins í dag. Hann var einn þeirra sem heilluðust upp úr skónum yfir spilamennsku strákanna á Grandrokk og ætlar hann að birta grein um þá sem á eftir að prýða einhverja síðuna í tímaritinu Rolling Stone. Hvernig gengur útlendingum að bera fram nafn bandsins? „Bara vel. David Fricke sagði við okkur (með bandarískum hreim), „great name guys. Djeikóbænaræna, I like it.“ Þeir leggja áherslu á að nafnið leiki við tunguna. „Giorgio, ítalskur umboðsmaður sem var þarna líka, hann sagði að nafnið væri mjög ítalskt út af í-unum í því. Það hefði þess vegna svona latino-blæ yfir sér. Þannig að nafnið virðist höfðar til margra.“ Jakobínarína mun svo spila fyrir háskólanema og fleiri áhugasama í Stúdentakjallaranum í kvöld, 3. nóvember. JAKOBÍNARÍNA Á SÍÐUM ROLLING STONE Texti Þormóður Dagsson Mynd Árni Torfason Fullt nafn hljómsveitarinnar er í rauninni Jakobínarína Freyr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.