Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 12
12
VIÐTALIÐ
Kvikmyndagerðamaðurinn Ari Alexander Ergis
Magnússon hefur komið víða við þrátt fyrir að
vera ekki svo gamall. Ungur flæktist hann í tísku-
heiminn sem hárgreiðslumaður og endaði í París
þar sem hann vann fyrir tískuhús á borð við Yves
Saint Laurent og með fyrirsætunni Lindu Evangel-
istu. Hann sagði þó skilið við þann bransann og
settist á skólabekk í Parsons í París en flakkaði til
New York með náminu. Með BFA gráðu í myndlist
snéri hann sér að heimildarmyndagerð. Helsti sam-
starfsmaður hans undanfarin ár er Sigurjón Sig-
hvatsson, aðalframleiðandi Gargandi snilldar,
heimildarmynd Ara Alexander um tónlist á Íslandi.
Gargandi snilld var tilnefnd til Eddunnar fyrr í vik-
unni og í dag heldur Ari Alexander til Los Angeles
til að taka þátt í kvikmyndahátíð American Film
Institute þar sem hann var sérstaklega valinn í hóp
átta ungra áhugaverðra kvikmyndaleikstjóra í Evr-
ópu.
Það er greinilegt að Ari Alexander er með marg-
vísleg verkefni upp á borðinu en hann vill ekki gefa
allt upp. Sum verkefni eru komin í vinnslu en önnur
ekki. Vinnan við kvikmyndagerð er langt ferli og
fjármögnun er erfið. Vinnan við Gargandi snilld
hófst sumarið 2003 þegar Ari hitti Sigurjón Sig-
hvatsson í fyrsta skipti í opnun hjá listamanninum
Matthew Barney. „Hann hafði séð einhverjar
myndir eftir mig og fékk þá flugu í höfuðið að ég
væri rétti maðurinn til að gera þessa mynd. Hann
átti hugmyndina að því að gera mynd um popp-
tónlist og ég hafði áhuga á þessum spurningum;
hver erum við, hvert erum við að fara og hvaðan
komum við.“
Gargandi snilld hefur verið vel tekið og er vinsæl á
erlendum kvikmyndahátíðum.
„Ég reyni að fylgja henni eftir á þessum hátíðum.
Ég er að fara til Los Angeles núna þar sem ég tek
þátt í prógrammi sem heitir „New Faces of Euro-
pean Cinema“ þar sem yngstu kynslóðinni af kvik-
myndagerðarmönnum í Evrópu eru gerð mjög góð
skil. Það er mikill heiður og mjög gaman að taka
þátt í því. Eftir það fer ég til Amsterdam, á einu
stærstu heimildarmynda-kvikmyndahátíð í heim-
inum. Þegar maður kemst inn á svona stórar hátíðir
þá er maður kominn hátt upp fjallið og byggir upp
tengslanet sem er mjög mikilvægt fyrir framtíðina.
Þetta snýst líka um að hitta dreifingaraðila, fram-
leiðendur og blaðamenn.“
Þú er semsagt að fara til Los Angeles til að sigra
Hollywood?
„Vinir mínir hlæja að mér og segja að ég sé á leið-
inni til Hollywood,“ segir Ari og hlær sjálfur. „Ég
geri mér engar væntingar. Ég er að afmeyjast í
þessum heimi og mynda mér skoðanir. Þetta er
bæði spennandi og mjög skemmtilegt.“
Gargandi snilld
„Við byrjuðum strax að vinna myndina. Það var
sjálfgefið að Þór Eldon, mikill vinur minn, væri tón-
listarstjóri myndarinnar sem þróaðist út í að vera
aðstoðarleikstjóri. Björk var þá að fara að halda
tónleika í New York sem voru lokatónleikar hennar
á heimstúr.
Mér fannst lykilatriði að Björk og Sigur Rós væru
með. Það væri ekki hægt að gera mynd um íslenska
popptónlist án þeirra.
Tökur á Gargandi snilld stóðu í eitt og hálft ár og
yfir 250 klukkutímar af efni voru myndaðir. „Ég
ARI ALEXANDER Í BORG ENG
GARGANDI SNILLD TIL HOLLYWOOD
Texti
Hanna Björk
Myndir
Silja Magg
Ég er að afmeyjast í þessum heimi og mynda mér
skoðanir