Tíminn - 23.03.1971, Qupperneq 8
20
ÞRIÐJUDAGUR 23. marz 1971
TIMINN
THOMAS DUKE:
NINETTE
43
unsólin kastaði seislum sínum
inn ytfir rúmið, og var sem
Maríus sæti ’parna í rúminu í ein-
hverjum óraunveruiegum bjarma.
Yfirvaraskeggið var ekki lengur
með hinn skæra, rauða lit, nú var
það dautt og dofið. Það var eins
og að hann væri allur að leysast
upp.
— Svona, nú skaltu leggja þig
út af, sagði Hardy um leið og
hann lagaði koddana og lét hann
falla hægt aftur á bak.
Mardíus horfði á hann með
þakfclæti í augum, um leið og
hann greip hin fimm spil, sem
enn lágu ofan á teppinu. Hann
hélt þeim ofur lítið frá sér og
skoðaði þau nákvæmléga ennþá
einu sinni.
—• Hver f jandinn gengur að ykk
ur ætlið þið ekki að spila meira?
Larsen skipstjóri horfði hneyksl-
aður á þá. — Ég verð þó að
minnsta kosti að fá eitthvert smá-
tækifæri til þess að ná hefndum,
sagði hann æstur.
— Haltu kjafti sagði Hardy og
hcngdi spjaldið á sinn stáð.
Larsen skipstjóri reis upp til
hálfs. Hann var ekki alveg viss
um að hann hefði heyrt rétt. Svo
leit hann til Maríusar dálítið
vandræðalega. Ilann á með opin
augun og hreyfði varirnar eins o.g
hann væri að tala við sjálfan sig.
Það leið skuggi yfir andlitið. hann
sneri sér að Hardy.
— Hvað var það, vinur minn,
spurði Hardy og laut niður að
honum til að heyra betur.
— Þrátt fyrir allt fékk ég aldrei
að sigla fyrir konunginn, stundi
hann upp, - en, andlitið upp-
ijómaðist, — ég fékk „stright
flush“ í spaða.
Hann lyftist í rúminu, líkaminn
spenntist eins og stálfjöður sem
snöggvast. En svo féll hann nið-
ur í rúmið aftur, án þess að
gefa nokkurt hljóð frá sér.
Það fór svo lítið fyrir þessu, að
hvorki Hardy né Larsen gátu átt-
að sig í fljótu bragði á því, sem
gerzt hafði. Sólargeislinn féll á
andlitið, svo sigurhrósið í dráttun
um við munninn kom greinilega í
ljós. í hægri hendinni héll hann
enn á hinum fimm spaðaspilum.
Hardy gekk hægt út að glugg-
anum og dró gluggatjöldin fyrir.
Síðan tók hann spilin gætilega úr
hendi hins liðna manns. Larsen
skipstjóri vissi ekki, hverju hann
átti að trúa. Hann starði á and-
litið á Maríusi, svo kipptist hann
til og fór að sjúga þumalfingur-
inn ákaflega. Svo féll hann alveg
saman.
— Bara að ég hefði vitað það,
kjökraði hann. Hann kastaði sér á
hné við hliðina á rúminu, og hinn
sveri líkami skalf.
— Þetta var ekki mér að kenna,
kveinaði hann og ryikkti í rúmið.
Hardy laut niður að hinum látna
og dró lakið yfir andlit hans. Síð-
an leit hann til Larsens þar sem
hann kraup við rúmið, ræskti sig
og sagði:
— Reyndu að brölta á fætur,
þitt eigingjarna svín, um leið og
hann teygði sig í bjölluna.
Larsen reis á fætur og vissi
auðsjáanlega ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Svo þurrkaði hann
sér í framan með jakkaerminni. og
læðupokaðist út um dyrnar.
Hin aldna hújrkunarkona kom
að vörum 9pori.
— Herrarnir eru komnir fram-
yfir tímann, sagði hún þurrlega.
Hún gekk að rúminu og dró lak-
ið af andliti Maríusar, um leið
og hún tók á slagæðinni.
— Við áttum ekki von á þessu
fyrr en í kvöld. Með snöggu
handtaki dró hún. lakið aftur yfir
andlit Maríusar. og hvarf út um
dyrnar.
Hardy gekk að afturgaíli rúms-
ins og sagði upphátt:
— Vertu sæll. gamli drengur.
Þetta var sagt í anda Maríusar.
Hann hataði allan tilfinninga-
þvætting. Uti á ganginum beið
Larsen skipstjóri. Án þess að
segja nokkurt aukatekið orð,
gengu þeir hlið við hlið niður
stigann. Við útidyrnar stóð dyra-
vörðurinn, og horfði með opinn
munninn á Larsen sem auðmjúk-
ur gekk á eftir Hardy. Gat þetta
virkilega verið sami maðurinn og
brjálæðingurinn, sem gengið hafði
inn á sjúkrahúsið fyrir klukku-
stund síðan?
Þegar þeir voru komnir niður
í Allées de la Liberté, stönzuðu
þeir báðir eins og af innri inn-
blæstri.
— Ég geng upp á Weleome Bar
til að segja Sally fréttirnar, sagði
Hardy. Larsen rétti úr sér, það
var eins og hann væri að komast
í sinn gamla ham aftur, en forð-
aðist þó a ð horfa frampn í
Hardy. Hann hálf skammaðist sín
víst fyrir að hafa farið að skæla
uppi á sjúkrahúsinu.
— Samþykkt. Þú getur slegið
þér út í dag, Skilaðu kveðju 'til
Sallyar, og segðu henni að tvö-
þúsund fránkana fái hún á morg-
un.
Hardy stóð kyrr og horfði á
mann valhoppa hægt eftir upp-
fyllingunni. Nú, þegar Maríus var
allur, mundi einmannakenndin
sækja enn meira á hann. Þeir
höfðu haft sinn eigin, skemmti-
lega hátt á því að umgangast
hvor annan. Jæja, það var bezt
að ljúka þessu af, þótt ekki væri
það skemmtilegt. En mundi nú
ekki Sally hafa haft einhverja
óljósa hugmynd um það hvert
stefndi með Marius?
Á Allées de la Liberté var urm-
ull af fólki. sjómenn. skemmtiferða
menn og einstaka innfæddur
Frakki. Það var masað, hlegið og
daðrað. Það var glampandi sól-
:' in svo veðurs vegna gátu menn
notið lífsins fullum fetum. að
var vissulega talsvert öndvert að
flytja
alla þessa lífsgléði. Skyldi Nin-
ette vera hér einhvers staðar á
ferðinni? Hann gekk hægt og
hikandi aþð, sem eftir var leiðar-
innar, og gægist inn um gluggan
áður en hann gekk inn. Jú, þarna
var Ninette á tali við nokkra sjó-
menn.
Hann gekk inn án þess að yrða
á nokkurn mann, og settist við
sama borð og Maríus sat við þegar
liann veiktist. Sally sá hann strax
og gekk til hans. Andlitið var
alveg svipbrigðalaust er hún
mætti augnaráði hans, um leið og
hún settist á móti honum við
borðið.
— Þú þarft ekkert að segja,
mon ami. Það var hringt til mín
úr sjúkrahúsinu fyrir lítilli stundu.
Ég var h.já honum í nótt. Honum
var sjálfum ljóst hvern enda
þetta mundi hafa. Núna langar
mig ekki til að sjá hann, ég vil
minnast hans eins og ég sá hann
í nótt. Sally horfði annars hugar
yfir höfnina. Augu hennar stönz-
uðu við ,,Thermopylai“ meðal
hinna mörgu snekkja. Nú var
eins og rödd hennar kæmi langt
að: — Það gladdi mig sérhvert
sinn, sem hann kom hér inn á
kvöldin. Hann þarfnaðist ást-
úðar, átti enga aðstandendur, og
var svo þakklátur fyrir hvað lítið
sem var. Hann bauðst til þess að
| giftast mér, en það hefði aldrei
j orðið t.il hamingju. Sjómenn eiga
[ ekki að binda sig. Hann gladlist
eins og barn, þó ekki væri nema
sandkaka sem ég rétti honum.
Hún þagnaði, en tók svo aftur til
j máls, daufri röddu:
— í nótt, þegar hann hafði
1 fengið sprautu fékk ég að sitja
hjá honum. Hann lá í leiðslu, og
I ég hélt í hönd hans. Undir morg-
! uninn brá hann blundi. Hann
1 fann að endalokin voru skammt
I undan. Hann sárbændi mig um að
er þriSjudagur 23. marz
Tungl í hásuðri kl. 10.37
Árdegisháflæði í Rvík kl. 03,34
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan i Borgarspítalan-
lun er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasgðra. Sími
81212.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðir fyr-
ir Reykjavík og Kópavog sími
Mænusóttarbólusetning fyrir full-
orðna fer fram í Heilsuverndar
stöð Reykjavíkur á mánudögum
kl. 17—18, Gengið inn frá Bar-
ónsstíg. yfir brúna.
Kvöld- og helgarvörzlu apóteka i
Reykjavík vikuna 20.—26. marz
annast Reykjavíkurapótek og
Borgar-apótek.
Næturvarzla er að Stórholti 1
Næturvörzlu í Keflavík 23. marz
annast Kjartan Ólafsson.
SIGLINGAR
Skipaútgerð rikisins:
Hekla er á Vestfjarðahöfnum á
suðurleið. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 21.00 í kvöld, til
Reykjavíkur. Herðubreið er í
Reykjavík.
Skipadeild S.f.S.:
Arnarfell fer væntanlega í dag frá
Huil til Reykjavíkur. Jökulfell er
væntanlegt til New Bedíord á
tnorgun. Dísarfell er væntanlegt til
Ventspiis í dag. Fer þaðan til
Gdynia og Svendborgar. Litlafell
fór í gær frá Faxaflóa til Akur-
eyrar. Helgafell fór"20. þ. m. frá
Setubal til Fáskrúðsfjarðar. Stapa-
fell er í olíuflutningum á Faxa-
flóa. Mælifell kemur til Gufuness
í dag. Freyfaxi er á Akureyri. Sixt-
us er í Þorlákshöfn. Birthe Dania
fór væntanlega í gær frá Liibeck
til Svendborgar.
FÉLAGSLlF
Félagsstarf eldri borgara
í Tónabæ.
A morgun, miðvikudag, verður op-
ið hús frá kl. 1,30 til 5,30 e. h.
Dagskrá: Spilað, teflt, lesið, bóka-
útlán, upplýsingaþjónusta, kaffi-
veitingar og hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar leikur fyrir dansi.
Félagsstarf eldri borgara í Tónabæ
Þriðjudaginn 23. marz hefst handa-
vinna og föndur kl. 2 e.h Miðviku
daginn 24. marz verður opið hús
og meðal annars mup hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar leika fyrir
dansi.
Óháði söfnuðurinn.
Félagsvist vérður sþiluð næstkom-
andi fimmtudagskvöld kl. 8,30 (25.
marz), í Kirkjubæ. Góð verðlaun.
Kaffiveitingar. Takið með ykkur
gesti. — Kirkjukórinn.
Ferðafélagsferðir.
Páskaferðir:
2 Þórsmerkurferðir, 5 daga og
3 daga Hagavatnsferð (ef fært
verður).
Ferðafélag íslands
SÖFN OG SÝNINGAR
Is.enzka dýrasafnið
er opið alla daga frá kl 1 tL' 6 1
Brpiðfirðin°abúð
ORÐSENDING
Minn ingarspjöld Flugbjörgunar-
sveitarinnar eru sela á eftir.töldum
stöðum: Bókabúð Braga Brynjólfs-
sonar, Minningabúðinni, Laugavegi
56; Sigurði Þorsteinssyni, sími
32060; Sigurði Waage, sími 34527;
Magnúsi Þórarinssyni, sími 37407;
Stefáni Bjarnasyni, sími 37392.
Minningarspjtjld tii styrktar heyrn
ardaufum börnum fást ð eftirtöld
um stöðum;
Domuj M?dica
Verzl Egili Jaeobseu,
Hárareið lustoÞ irbE.jar
H ;vrnleysingiaskólanum.
Hevrnarhiálp Ineólfsstrætl 16
Minningarspjöld Geðverndar-
félags íslands
eru afgreidd á eftirtöldum stöðum:
Verzlun Magnúsar Benjaminsson-
ar Veltusundi 3, Mai-kaðinum Hafn
arstræti 11 og Laugaveg 3. Minn-
ingabúðinni Laugavegi 56.
Minningarkort
Styrktarfélags vangefinna
fást í Bókabúð Æskunnar, Bóka-
verzlun Snæbjarnar, verzi. Hlin,
Skólavörðustíg 18, Minningabúð.
inni, Laugavegi 56, ve- >
biómið, Rofabæ 7 og skriístofu fé-
lagsins, Laugavegi 11, sími 15941.
Frá Gcðvernd.
M U N I Ð frímerkjasöfnun Geð-
verndar — Pósthólf 1308
11100.
Sjúkrabifreið í IlafnarfircTi sími
51336.
Almennar npplýsingar um lækna-
þjónuslu í borginni eru gefnar i
símsvara Læknafélags Reykjavík
ur, sími 18888.
Fæðingarheimilið í Kópavogi,
HUðarvegi 40, sími 42644.
Tannlæknavakt er i Heilsuverndar-
stöðinni, þar sem Slysavarðstoí-
an var, og er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 5—6 e. h. — Sími
22411.
Kópavogs Apótek er opið virka
daga kl. 9—19, Laugardaga k’. 9
—14, helgidaga kl. 13—15.
Keflavíkur Apótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl.
9—14, helgidaga kl. 13—15.
Apótek Hafnarfjarðar er opið alla
virka dagc frá kl. 9—7, á laugar-
dögum kl. 9—2 og á sunnudög-
utn og öðrum helgidögum er op-
’ð frá kl. 2—4.
— Komdu, Childs! Hlauptu!
þeim við efnið. — Fljótir í
Haldið
— Er
allt í lagi með þig, Childs? — Já, en við
vcrðum að ganga frá þeini öllum, ef þetta
á ekki að komast upp.