Tíminn - 22.04.1971, Page 6
6
TIMINN
FIMMTUDAGUR 22. apríl 1971
Hver er réttur aldraðra og
öryrkja í nútíma þjóðfélagi?
Brot úr Svaðaþætti og Arnórs kerlingarnefs
„Á þeim sama tíma, sem nú
er áður frá sagt, var það dæmt
á samkvámu af héraðsmönnum,
ok fyrir sakir hallæris ok svá
mikils sultar, sem á lá, var lof-
at at gefa upp fátæka menn,
gamla, ok veita enga hjálp, svá
þeim, er lama váru eða að
nokkru vanheilir, ok eigi
skyldi herbergja þá. En þá
gnúði á inn snarpasti vetur
með hríðum ok gnístandi veðr-
um.
Þá var mestur höfðingi út
um sveitina Arnór kerlingar-
nef, er bjó á Miklabæ í Ós-
Jandshlíð.
En er Arnór kom heim af
samkvámu þessi, þá gekk fyrir
hann móðir hans, dóttir Refs
á Barði, ok ásakaði hann mjög,
er hann hafði orðið samþykk-
ur svá grimmum dómi. . .
„Nú vit þat fyrir víst“, seg-
ir hún, „þó at þú sjálfur ger-
ir ekki slíka hluti, þá ertu með
engu móti sýkn eða hlutlaus
af þessu glæpafulla manndrápi
þar sem þú ert höfðingi og
formaður annara. . . Arnór
skildi góðfýsi móður sinnar og
tók vel ásakan hennar. — Tók
hann þá þat ráð, at hann sendi
þegar í stað sína menn um ina
næstu bæi at safna saman öllu
því gamalmenni, því er út var
rekið, ok flytja til sín ok lét
næra með allri líkn“.
Síðar mælti Arnór svo á hér-
aðsfundi.
„Skulum vér þar til leggja
allan várn kost ok kvikendi at
veita mönnum lífsbjörg ok
drepa til hjálpar vorum frænd
um farskjóta vára heldur en
láta þá farast af sulti, svá at
engi bóndi skal eftir hafa
meira en tvö hross. — Nú skal
drepa hundana, svá at fáir eða
engir skulu eftir lifa, ok hafa
þá fæðu til lífsnæringar mönn
um, sem áður var vant at gefa
hundunum".
Þá bjó á Svaðastöðum í
Skagafirði Svaði, sá er bærinn
er heitinn eftir. Hann hafði
látið göngumenn og fátæka
taka gröf mikla. Hann byrgði
þá í húsi um nóttina og hugð-
ist drepa þá og urða í gröf-
inni að morgni. „Tók Þorvarð-
ur þá slagbranda frá durum,
en þeir fóru fagnandi _ með
miklum skunda ofan að Ási til
bús hans“.
„En er Svaði varð þessa
varr, varð hann harðla reiður,
brá við skjótt, vápnaði sig og
sína menn, riðu síðan með
miklum skunda eftir flótta-
mönnunum. Vildi hann þá
gjarnan drepa. — En hans
illska ok vándskapur fell hon-
um sjálfum í höfuð, svá at
jafnskjótt, sem hann reið hvatt
hjá gröfinni, fell hann af baki
ok var þegar dauður, er hann
kom á jörð. Ok í þeirri gröf er
hann hafði fyrir búið saklaus-
um mönnum, var hann, sekur
heiðingi, grafinn af sínum
mönnum ok þar með hundur
hans og hestur at fornum sið“.
Okkur er sagt að við búum
í velferðarríki. Vel má vera að
svo sé um hluta þjóðarinnar.
Á undanförnum árum hefur
það opinbera látlaust stolið
með gengisfellingum og hóf-
lausum álögum þeim sjóðum
sem eldri kynslóðin hefur krí-
að saman sér til framfæris í
ellinni. Þetta er fólkið, sem
hefur borið á herðum sér erf-
iði og þunga daganna við
myndun þessa svokallaða vel-
ferðar þjóðfélags. Þessu fólki
hefur verið skammtað úr aski
þeirra allsnægta, sem margir
búa óneitanlega við, kr. 4.900
mánaðarlega. Þetta hækkar
sennilega eitthvað einhvern
tíma, en alla vega verður þá
bitinn magur eftir sem áður.
Um sjötugt eiga sem betur fer
sumir íbúð og ef til vill eitt-
hvað í „bók“, en þeir eru marg
ir sem hvorugt eiga. Eiga þeir
að lifa á þessu, svo ekki sé
nú talað um afbreyingu, svo
sem leikhús eða hljómleika
nokkrum sinnum á ári. Verka-
maður býr nú reyndar við svip
aða aðsíöðu með það þegar
hann hefur skilað 10—12
stunda vinnudegi.
Nú eru ýras tízkufyrirbrigði.
Eitt þeirra eru lífeyrissjóðirn-
ir og hefði fyrr mátt vera. En
hvað verður eftir til skipta hjá
öllum þessum sjóðum, sem
hver hefur sína stjórn og
starfslið? Er þetta ekki gró-
andi þjóðlíf? Þarna getur
margt flibbafólk fengið at-
vinnu. Við byggjum bara yfir
þá eins og ^inkana á öðru
hverju gitutiorni. Við fáum
svo Bantunegra á bátana, eða
gefum bara þroskinum og loðn
unni frí.
f lok stríðsins, áður en síld-
arhrotan fyrir austan hófst,
verzlun við Hérað að mestu af
lögð og útgerð búin að vera,
var Seyðfirðingur spurður af
hverju þeir lifðu. „Þeir verzla
hver við annan“, sagði hann.
Þeim gafst þetta vel og
skrimtu þangað til síldin kom.
Nú er okkar þjóðfélag á góðri
leið með að verða stækkuð
mynd af Seyðisfirði eins og
hann var á þeim árum.
Enn eru þó undirstöðu at-
vinnuvegir okkar til sjós og
lands stundaðir af harðfeng-
asta og manndómsmesta hluta
þjóðarinnar og þjóðartekjur
miðað við mannfjölda miklar.
En þegar til skiptanna kemur
fara ekki allir hlutir í rétta
staði.
Sjálfsagt er að styrkja, og
það vel, barnmargar fjölskyld-
ur, en eitthvað er bogið við
það velferðarþjóðfélag, sem tel
ur sig þurfa að greiða hátt
meðlag með fyrsta og öðru
barni, en getur svo ekki hald-
ið lífinu sómasamlega í öryrkj
um og gamalmennum. Laun
þessa fólks (ég segi laun, hér
er — ekki — um styrki að
ræða) frá tryggingum og líf-
eyrissjóðum eiga þegar að
hækka verulega og opinber
gjöld, sem því eru reiknuð frá
þess síðasta starfsári, eiga að
falla niður.
Nú eru mál þessa fólks til
umræðu og ákvarðana á Al-
þingi. Hver verður afstaða
þingmanna og flokka? Það
verður komið í ljós fyrir kosn
ingar.
Hverjir fylgja nú Arnóri og
hverjir falla í gröfina Svaða?
Þegar þingað var f Skagafirði
var hallæri í landi. Er svo nú?
Laugarvegi 126, 26.3 1971.
Þórarinn frá Steintúni.
Sumardaginn fyrsta 1971
Útiskemmtanir:
Kl. 1,45: Skrúðganga barna í Breiðholtshverfi. Lúðra-
sveit verkalýðsins leikur fyrir göngunni, stjórn-
andi Ólafur Kristjánsson. Safnazt verður saman
á Arnarbakka milli Grýtubakka og Ferjubakka.
Gengið vestur og suður Arnarbakka og inn á
íþrótta- og leiksvæði hverfisins.
Kl. 1,15: Skrúðganga barna frá Vogaskóla um Skeiðar-
vog, Langholtsveg, Álfheima, Sólheima að Safn-
aðarheimili Langholtssafnaðar. Lúðrasveit ung-
linga undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen leikur
fyrir skrúðgöngunni.
Kl. 2,15: Skrúðganga barna frá Laugarnesskóla um
Gullteig, Sundlaugaveg, Brúnaveg að Hrafnistu.
Lúðrasveitin Svanur undir stjóm Jóns Sigurðs-
sonar leikur fyrir skrúðgöngunni.
Kl. 2,15: Skrúðganga barna frá Hvassaleitisskóla um
Stóragerði, Heiðagerði, Grensásveg, Hæðargarð
að Réttarholtsskóla. Skólahljómsveit Mosfellssveit
ar leikur fyrir skrúðgöngunni. Birgir Sveinsson
stjórnar.
Kl. 2,30: Skúðganga barna frá Vesturbæjarskólanum
við öldugötu eftir Hofsvallagötu, Nesvegi um
Hagatorg að Háskólabíói. Lúðrasveit unglinga
undir stjórn Páls Pampichler leikur fyrir göng-
unni.
Kl. 3.00: Skrúðganga barna frá Árbæiarsafni eftir
Rofabæ að barnaskólanum við Rofabæ.
Lúðrasveit verkalvðsins leikur fvrir skrúðgöng-
unni. Ólafur Kristjánsson stjórnar.
Inniskemmtanir:
Austurbæjarbíó kl. 3. Fóstrufélag fslands sér um
skemmtunina, sem einkum er ætluð 2ja til 7 ára
bömum.
Aðgöngumiðar eru seldir í bíóinu frá kl. 4—9
seinasta vetrardag og frá kl. 2 sumardaginn
fyrsta.
Leikvangurinn í Breiðholtshverfi kl. 1,45. íþróttafélag
Reykjavíkur og Sumargjöf sjá um skemmtunina.
Safnaðarheimili Langholtssafnaðar kl. 2. Aðgöngumið-
ar í Safnaðarheimilinu frá kl. 4—6 seinasta vetrar-
dag og frá kl. 1 sumardaginn fyrsta.
Álftamýrarskólinn kl. 3. Aðgöngumiðar í Álftamýrar-
skóla frá kl. 4—6 seinasta vetrardag og frá kl.
1 sumardaginn fyrsta.
Háskólabíó kl. 3. Aðgöngumiðar seldir í húsinu sjálfu
frá kl. 4—9 seinasta vetrardag og frá kl. 2 sumar-
daginn fyrsta.
Réttarholtsskólinn kl. 3. Safnaðarfélög Bústaðasóknar
og Sumargjöf sjá um skemmtunina. Aðgöngumið-
ar seldir í húsinu sjálfu frá kl. 4—6 seinasta vetr-
ardag og frá kl. 1 á sumardaginn fyrsta.
Laugarásbíó kl. 3. Aðgöngumiðasala í bíóinu frá kl.
4—9 seinasta vetrardag og frá kl. 2 sumardaginn
fyrsta.
Árborg kl. 4. (Leikskólinn Hlaðbær 17) Framfarafé-
lag Árbæjar- og Seláshverfis og Sumargjöf sjá
um skemmtunina.
Aðgöngumiðar seldir í Árborg frá 4—6 seinasta
vetrardag og frá kl. 1 sumardaginn fyrsta.
Þjóðleikhúsið kl. 3. Litli Kláus og Stóri Kláus.
Aðgöngumiðar á venjulegum tíma í Þjóðleikhús-
inu. Venjulegt verð.
Ríkisútvarpið kl. 5. Barnatími á vegum Sumargjafar.
Kvikmyndasýningar: í Nýja bíói kl. 3 og kl. 5.
Aðgöngumiðar á venjulegum tíma í bíóinu.
Ðreifing og sala:
Merkjasala: Frá kl. 10—2 á sumardaginn fyrsta verð-
ur merkjum félagsins dreift til sölubarna á eftir-
töldum stöðum: Melaskóla, Vesturbæjarskóla við
Öldugötu, Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla, Álfta-
mýrarskóla, Hvassaleitisskóla, Breiðagerðisskóla,
Vogaskóla, Langholtsskóla, Laugalækjarskóla, Ár-
bæjarskóla, ísaksskóla, Leikvallarskýli við Sæ-
viðarsund, Breiðholtsskóla.
Sölulaun merkja eru 10%. M^rkin kosta kr. 30.00.
Aðgöngumiðar að inniskemmtunum kosta 75,00 kr.