Tíminn - 22.04.1971, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.04.1971, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 22. aprfl 1971 TÍMINN Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framtovæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Jón Helgason, Indriði G. Þorsteinsson og Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Rit- stjómarskrifstofur í Edduhúsinu, símar 18300 — 18306. Skrií- stofur Bamikastræti 7. — Afgreiðslusimi 12323. Auglýsingasimi: 19523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 195,00 á mánuði. innanlands. í lausasölu kr. 12,00 eint. — Prentsm. Edda hf. Órofa samstaða um stjórnmálayfirlýsingu í ræðu sinni við setningu 15. flokksþings Framsóknar- flokksins, sagði Ólafur Jóhannesson, formaður flokksins, m.a.: „Andstæðingar Framsóknarmanna gera sér um þessar mundir tíðrætt um klofning í Framsóknarflokknum. Það er þeirra draumur, sem sumpart á rætur í eigin heimilis- böli. Það mun sjást á þessu flokksþingi, hvort þessi óska- draumur andstæðinganna rætist. Ég hygg, að þeir eigi eftir að vakna upp við vondan draum. Ég hygg, að þeir eigi eftir að verða fyrir sárum vonbrigðum að þessu leyti. Ég held, að það eigi eftir að koma í ljós á þessu flokks- þingi, að Framsóknarflokkurinn hefur sjaldan verið sam- hentari og samstilltari en einmitt nú“. Þessi spá Ólafs Jóhannessonar rættist svo sannarlega á flokksþinginu, og er t.d. hæpið að samstaða hafi nokkru sinni verið meiri á fyrri flokksþingum Framsóknar- manna um stjórnmálayfirlýsingu flokksins. Stjómmála- yfirlýsingin, sem birt var hér í blaðinu í gær, var sam- þykkt með öllum atkvæðum í stjómmálanefnd flokks- þingsins og samhljóða atkvæðum á allsherjarfundi þingsins. í stjómmálayfirlýsingunni var höfuðáherzlan lögð á landhelgismálið. Þannig setti flokksþingið það efst á blað, að íslendingar segi nú þegar upp landhelgissamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja og færi fiskveiðilandhelg- ina út í 50 sjómílur eigi síðar en 1. september 1972. Til að árétta enn frekar, hve mikinn þunga flokkurinn legði á landhelgismálið, lýsti flokksþingið yfir, að við mynd- un ríkisstjórnar myndi flokkurinn leggja höfuðáherzlu á uppsögn landhelgissamninganna og útfærslu í 50 míl- ur, en jafnframt vinna að því að móta sameiginlegt stjórnmálaafl þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis. Þá lagði flokkurinn áherzlu á að landsbyggðarmálin yrðu tekin nýjum og fastari tökum. Atvinnulífið yrði eflt með skipulagshyggju og áætlanagerð undir forystu ríkis- valdsins í samstarfi við samtök atvinnulífsins. Öllum þegnum þjóðarinnar yrðu tryggð mannsæmandi lífskjör og allt tryggingakerfið endurskoðað í því skyni og að- staða þegnanna 1 heilsugæzlu og heilbrigðismálum jöfnuð. Samstarf samvinnuhreyfingar og verkalýðshreyfing- ar skal eflt og náið samstarf haft við þessar félagsmála- hreyfingar. Stuðlað verði að endurmati lífsgæða og bættri aðstöðu einstaklingsins til að njóta hreins og fag- ors umhverfis án mengunar og til frjálsrar hugsunar og sköpunar án þvingunar hins gegndarlausa efnahagskapp- hlaups vélmenningarinnar. Stefna íslands í utanríkismálum verði sjálfstæðari og einbeittari en verið hefur og við það miðuð að tryggja sjálfstæði og fullveldi landsins. Stuðlað verði að sáttum og langþráðum friði í heiminum með auknum kjmnum milli þjóða og almennri afvopnun, sem geri hernaðar- bandalög óþörf. íslendingar séu aðilar að Nato að óbreyttum aðstæðum, en minnt á þann fyrirvara, sem gerður var, er íslendingar gerðust aðilar Nato. í sam- ræmi við hann vill Framsóknarflokkurinn vinna að því, að varnarliðið hverfi úr landi í áföngum. Ennfremur er sú stefna flokksins enn ítrekuð, að ísland gangi ekki í Efnahagshandalag Evrópu, en leiti sérstakra samninga við bandalagið um gagnkvæm rétt- indi í tolla- og viðskiptamálum. — TK JOSEPH ALSOP: Er skammt í það að tími störborganna sé úr sögunni? Hin risavöxnu vandamál milljónaborganna eru nær óleysanleg Frá New York skattstofninum, heldur hitt, að í þeim er ekki lifandi. „EITT get ég þó fullyrt“, sagði Henry Ford fyrsti skömmu eftir 1920. „Stórborg- irnar eru búnar að vera.“ Borgarstjórar sátu ráðstefnu í Washington í lok marz, og að henni lokinni virðist allt eins líklegt, að Henry Ford kunni að hafa haft lög að mæla. Ef til vill eru borgimar búnar að vera sem lífvænleg samfélagsfyrir- bæri, það er að segja, að enginn skynsamur maður óski eftir að eiga heima í þeim. Enginn af- neitar því, að miklar og merki- legar samfélagsstofnanir líði undir lok. Brezka heimsveldið er til dæmis liðið undir lok og fjölskyldubúið, sem var hyrning arsteinn hins gamla, bandaríska samfélags, er sem óðast að syngja sitt síðasta. Stórborgim- ar eru einnig á grafarbakkanum, ef marka má orð borgarstjór- anna á fyrrnefndri ráðstefnu. HENRY Ford var með bílinn sinn, „gamla ford“, í huga, þeg- ar hann setti fram hrakspá sína. Hann hafði á réttu að standa að því leyti, að bíllinn var ein- mitt upphaf þeirrar framvindu, sem kann að ríða stórborgunum að fullu. Undangengin tíu ár hefir tvennt snúizt eindregið á sveif með honum og hraðað framvindunni, eða annars vegar hinn mikli búferlaflutningur fá- tækra og ómenntaðra negra norður á bóginn og hins vegar heroínið. Hnignun stórborganna hófst einmitt sama áratuginn og Henry Ford setti fram hrakspá sína. Fáeinir borgarbúar eða nánar tiltekið þeir, sem voru nægilega efnaðir til þess að eignast bíla, uppgötvuðu ein- mitt á þessum árum, hve á- nægjulegt getur verið að eiga heimili innan um skóg og engi og aka þaðan til vinnu sinnar í borginni. Sveitaþorp skammt frá borgunum tóku síðar að breytast í svefnherbergjahverfi. Stóru húsin frá þessu tíma- skeiði standa víða enn í út- borgunum, sem næstar eru stór borgunum, og eru mörg þeirra svipdimm og dapurleg leiguhús. Þetta var fyrsti, mjói vísirinn að þeirri rýrnun skattstofnsins, sem veldur mestu um áhyggjur borgarstjóranna, er sátu ráð- stefnuna í Washington í marz- lok. SKATTSTOFNINN rýrnar uggvænlega þegar hinir efnaðri flytja á burt en fátæklingarnir eru kyrrir. Æ fleiri fátækling- ar þurfa á æ meiri félagslegri aðstoð og öðrum fjárhagsstuðn- ingi að halda, og hinir ríku, sem eiga að leggja fram fé til þess- arar aðstoðar með skattgjöldum sínum, verða jafnframt færri og færri. Afleiðingarnar eru fyrir- sjáanlegar og óumflýjanlegar. Um þetta voru borgarstjórarnir nálega samdóma, en við skulura láta John Lindsay borgarstjóra í New York fá orðið fyrir þeirra hönd: „Tekjuhallinn í New York er nú 300 milljónir dala og við gerum ráð fyrir að hann verði einn milljarður dala næsta ár. Ég geí satt að segja ékki kom- ið auga á, hvernig við stórborg- arbúar eigum að rétta úr kútn- um í tæka tíð, jafnvel þótt vald- hafarnir í Washington rétti okk ur hjálparhönd.“ VÆRI vandi stórborganna ein vörðungu fjárhagslegur, mætti leysa hann með tvennu móti. önnur leiðin er að afnema hin meira og minna óraunhæfu landamæri milli stórborga og útborga og leggja á skatta í einu lagi á mjög stóru svæði. Þetta er skynsamlegt í augum allra, nema þeirra, sem í útborgunum búa, en þeir telja skatta sína orðna óhæfilega háa og eru því hatrammir andstæðingar allrar stækkunar skattsvæða. Atkvæða fylgið er diýgra í útborgunum en annars staðar og það er stjórnmálamönnum mætavel ljóst. Samríkisstjórninni er því önn- ur leið farsælli, og hefir hún í för með sér minna stjórnmála- tjón. Hún er að láta útborgir hvítu mannanna umhverfis stór- borgirnar í friði og leggja fram nægilega fjárhagsaðstoð úr hin- um sameiginlegu sjóðum. Þetta verður greinilega gert með ein- hverjum hætti, hvort sem farið verður að óskum Richards Nix- on forseta eða Wilburs Mills um einstök atriði framkvæmdar- innar þegar til kastanna kemur. En er þá unnt að gera ráð fyrir að þessi úrræði komi að haldi? „í bili“ og „að vissu marki“ virðist vcra hið eðlilega og rétta svar. Efalítið tekst samrík- isstjórninni með einhverjum hætti að láta stórborgirnar skrimmta. En þar með er ekki sagt, að Henry Ford hafi haft á röngu að standa á sinni tíð. Stórborgirnar kunna að vera „búnar að vera“. Meginmeinið er þó ckki, að þær hafi glatað TRJÁGRÓÐUR og grænar grundir ráða ekki framar mestu um, að þeir, sem efni hafa á, flytja frá stórborgunum. Margir flytja beinlínis af ótta. Ótti þeirra stafar blátt áfram af stöð ugum og örum flutningum fá- tækra negra úr Suðurríkjunum til borganna í Norðurfylkjunum. Því var lýst fyrir skömmu, að opinber könn- im hefði leitt í ljós, að „negrar eru tíu til átján sinnum oftar handteknir en hvítir menn fyrir alvarleg ofbeldisverk, og að því er unglinga varðar eru handtök- ur negra fyrir þessa glæpi allt að tuttugu sinnum tíðari en handtökur hvítra manna.“ Erf- itt er að komast hjá því að líkj- ast George Wallace þegar um þetta er skrifað. Öllum félags- fræðingum kemur saman um, að tölurnar lýsi ekki arftekinni glæpahneigð, heldur fátækt, misrétti og menntunarskorti, og nú megi fremur en nokkru sinni fyrr kenna um heroínneyzlu- faraldrinum í fátækrahverfum stórborganna, og hann sé orsök að minnsta kosti annarrar hvorr ar handtöku í stórborgunum. Félagsfræðin ein hrekkur þó skammt til að bæta hið mikla mein, sem breiðist óðfluga út. Nýjar skýrslur um mannfjölda segja uggvænlega sögu. Síðast- liðin tíu ár hefir hvítum íbúum í Manhattan fækkað um 15%, 18% í Chicago, tæp 30% í De- troit, 36% í Newark og nálega 40 % í Washington. Negrum í stórborgunum fjölgaði að sama skapi og cins hvítum íbúum út- borganna. Fyrirsjáanlegt er, að negrar verða í yfirgnæfandi meirihluta í stórborgunum að tíu árum liðnum. Sumar borg- irnar verða nálega alsvartar og miðstétt þar næsta fámenn eða nálega engin, og eru Newark og Washington á góðri leið. F'ramhald á bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.