Tíminn - 22.04.1971, Page 15
FHHMTUDAGUR 22. apríl 1971
TÍMINN
15
Hættuleið til Korinthu.
Á frummálinu „La route de
Corinth".
Leikstjóri: Claude Chabrol.
Handrit: D. Boulenger.
Kvikmyndari: J. Rabier.
Tónlist: P. Zucca.
Frönsk frá 1968.
Sýningarstaður: Hafnarbíó.
Milli þess að gera hálistræn-
ar myndir bregður Chabrol sér
í afþreyingarmyndir eins og
„Le tigre aime la chair frai-
che“, „Marie — Chantal contre
le docteur Kah“, „Le tigre se
parfume á la dynamite". Hættu
leið til Korinthu er ein slík,
bráðfjörug og fyndin, þrátt
fyrir efni, sem er keimlíkt
þúsundum annarra mynda af
sama tagi.
Dularfull öfl geta lamað rad-
arkerfi NATO í Grikklandi með
Á myndinni sést Claude Chabrol sem Alkibiades í bráðfynd-
inni mynd eftir hann sjálfan, „Hættuleg leið til Korinthu“.
útbúnaði, sem er falinn í litl-
um svörtum öskjum. Það kemst
upp um peyjana, þegar sjón-
hverfingamaðurinn Sókrates er
gripinn. Leyniþjónustan ræður
Robert Ford (Christian Mar-
quand) til að upplýsa leyndar-
dóminn. Hann er drepinn, þeg
ar hann hefur komizt að hinu
sanna. Ekkja hans (Jean Se-
berg) ásamt hjálparmanni
hans (Michel Bouquet) ráða
gátuna, eftir mörg lífshættuleg
augnablik.
Forkostulegar persónur
skreyta myndina, morðingjar í
þjónustu Khalibes, sem gengur
eins og dama og skreytir sig
með rauðu og Alkibiades, upp-
Ijóstrarinn, sem Claude Cha-
brol leikur sjálfur.
Þetta margþvælda efni öðlast
hér nýjan glans hjá Chabrol,
þó að sum atriðin minni helzt
á bernskuskeið kvikmynda, t. d.
brögð stúlkunnar, og önnur
séu fengin að láni, t. d. atriðið
við kirkjudyrnar (frá Wadja,
„Aska og demantar11). Kvik-
myndatakan er fjölbreytileg,
það sama má segja um tón-
listina.
Þó að myndin sé tekin í
Grikklandi, er hún mjög frönsk,
t. d. þegar foringinn (Maurice
Ronet) býður frú Ford út. Jafn
vel í svona afþreyingarmynd
dylst ekki hæfileiki Chabrols
í upphafi skyldi
endírinn skoða”
SISS.IUT.EIK.
til að sýna það, sem vekur
áhuga, og lionum fyrirgefst
þessi sjálfsagði endir svona
myndar, þar sem hann hefur
lag á að gera það skemmtilega,
sem hann sýnir.
Einlægir aðdáendur hans
sem alvarlegs listamanns geta
haft gaman af uppátækjum
hans í „Hættuleg leið til Kor-
inthu“.
BÆNDUR
KAUPFÉLÖG
Þeir sem ætla sér að panta ull-
arballa, hausapoka og kartöflu-
poka hjá okkur, þurfa að senda
pantanir sínar fyrir 15. maí
1971, þar sem afgreiðslufrestur
á efni getur verið allt að 5
mánuðir til okkar. Athugið að
mjög takmarkaðar birgðir eru
til af hey-yfirbreiðsluefni og
pokum fyrir kál og fl.
Pokagerðin, Hveragerði
Sími 99-4287.
1x2 ^ 1 x 2
(14. leikvika — leikir 10. og 12. apríl 1971)
ÚrslitaröSin: 121 — 2x2 — 2x1 — xlx
1. vinningur: (10 réitir) kr. 53.500,00
nr. 37487 * nr. 68059 (Reykjavík)
— 44015 (Reykjavík) — 69418 (Reykjavík)
— 60687 (Kópavogur) — 69807 (Reykjavík)
2. vinningur: (9 réttir) kr. 2.800,00
nr. 2091 nr. 21583 nr. 37491* nr. 63416
— 3147 — 23110 — 38697 — 64721
— 5823 — 23163 — 39760 — 67030*
— 8538 — 26509 — 40943 — 69211
— 11545 — 27891 — 43724 — 69312
— 15024 — 32639 — 44835 — 69412
— 16656 — 34316 — 45395 — 70497
— 17885* — 34326 — 49363 — 72358
— 17893 — 34427* — 50522 — 73106
— 18383 — 35035 — 60015 — 74120
— 19471 — 37027 — 60610 — 74463
— 21191 — 37480 — 61479 — 74572
* nafnlaus
Kærufrestur er til 3. maí. Vinningsupphæðir geta
lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar
fyrir 14. leikviku verða póstlagðir eftir 4. maí. Hand-
hafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiSstöðin — REYKJAVÍK
^Fataverzlun ffölskyldunnar
j-
y/
Ifí \
1 | 1
1 i Ú ,'•1