Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 1
Júlli og kínverski draumurinn bls. 14 ELDSVOÐI Bjargaði listmunum bls. 6 LAUGARDAGUR bls. 22 145. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 10. ágúst 2002 Tónlist 12 Leikhús 14 Myndlist 14 Skemmtanir 14 Bíó 12 Íþróttir 10 Sjónvarp 18 Útvarp 19 KVÖLDIÐ Í KVÖLD Hinsegin dagar GAY PRIDE-GANGA Það verður mikið líf í miðbænum í dag í tilefni Hinsegin daga. Fjörið hefst með Gay Pride göng- unni. Safnast verður saman við Hlemm klukkan 14.00 en gangan legg- ur af stað klukkustund síðar, klukkan 15.00. Gengið verður frá Hlemmi og sem leið liggur niður Laugaveg og í Kvosina. Fjölbreytt skemmti- dagskrá verður síðan langt fram eftir nóttu víðs vegar um borgina. Nóg að gera í boltanum FÓTBOLTI ÍBV og Grindavík mætast í Símadeild karla í dag klukkan 14.00. Á sama tíma mætast Þór/KA/KS og Grindavík á Akureyr- arvelli í Símadeild kvenna. Fjórir leikir fara fram í 1. deild karla. Val- ur og Víkingur eigast við að Hlíðar- enda, Stjarnan og Þróttur í Garða- bæ, Sindri mætir Leiftri/Dalvík á Sindravöllum og Afturelding fær Breiðablik í heimsókn. Allir leikirn- ir hefjast klukkan 20.00. Fjölbreytt dagskrá í Árbæjarsafni ÁRBÆJARSAFN Fjölbreytt dagskrá alla helgina fyrir unga sem aldna. Tónleikar í dag klukkan 14, mjólku- dagur á morgun. Þá verður messa í gömlu safnkirkjunni og síðan sjón- leikurinn Spekúlerað á stórum skala, en þar býður Þorlákur Ó. Johnson gestum upp á skemmtidag- skrá og varpar ljósi á lífið í Reykja- vík á 19. öld. AFMÆLI Æfir bogfimi og rær kanó MYNDLIST Stefnumót og Yfirgrip SÍÐA 12 Sátt við sætið ÍÞRÓTTIR KVIKMYNDIR SÍÐA 10 SPRON „Við höfum aldrei verið í slag um SPRON og því ekki rétt að tala um að einhver hafi sigrað eða tapað. Það má kannski helst segja að stofnfjáreigendur hafi sigrað. Niðurstaðan er sú sem við vildum, stofnfjáreigendur fá nú sann- gjarnt verð,“ segir Pétur Blöndal. Hann ásamt fjórum öðrum eig- endum stofnfjár í SPRON, hafði forgöngu um að kaupa allt stofnfé sjóðsins með fulltingi Búnaðar- bankans. Fimmmenningarnir segja að gangi það eftir að Starfs- mannasjóður SPRON bjóði öllum stofnfjáreigendum að kaupa stofnfé á genginu 5,5 sé tilgangi þeirra náð. Fyrir þeim hafi aldrei vakað annað en að tryggja öllum stofnfjáreigendum í SPRON sem þess óski, sanngjarnt end- urgjald fyrir stofnfé sitt. „Við drögum van- trauststillögu á stjórn SPRON til baka þar sem stjórnin hefur breytt um afstöðu. Þá mælum við með því að stofnfjáreig- endur samþykki á fundin- um á mánudag, fyrirliggj- andi tillögu um breytingu á samþykktum, í því skyni að afnema ákvæðið um hámarkseign eins aðila á stofnfé,“ segir Pétur Blön- dal. Fimmmenningarnir eru því hættir við í bili en segjast munu vekja upp á ný tilboð Búnaðar- bankans ef tilboð Starfsmanna- sjóðsins gangi ekki eftir, einhverra hluta vegna. Stjórn SPRON áréttar í yfirlýsingu í gær af- stöðu sína til viðskipta með stofnfé. Hún leggist ekki gegn þeim að fengnu samþykki Fjár- málaeftirlitsins. Í yfir- lýsingunni segir að fram séu komnar hugmyndir um viðskipti með stofnfé sem jafnframt sé ætlað að tryggja vöxt og við- gang SPRON og áfram- haldandi þjónustu hans sem sjálfstæðs sparisjóðs. Nú sé kominn grundvöllur til að ná þeim markmiðum. the@frettabladid.is Átökunum um SPRON lokið í bili Fimmmenningar draga vantrauststillögu á stjórn til baka. Sigur stofn- fjáreigenda segir Pétur Blöndal, fá nú sanngjarnt verð fyrir hlut sinn. LÖGREGLUMÁL „Mér finnst undar- legt hvernig fjórtán kör af þorski geta horfið sporlaust. Ég hef trú á því að þau séu einhver staðar nærri,“ segir Daði Þorkelsson, lögreglumaður í Bolungarvík, um hvarf fyrrgreindra kara. Eigandi aflans hafði landað honum í Bol- ungarvík í byrjun síðasta mánað- ar og hann vigtaður á hafnarvog. Að því búnu hélt eigandinn á brott í þeirri trú að væntanlegur kaup- andi myndi sækja hann innan tíð- ar. Þegar greiðsla fyrir aflann barst síðan ekki fór eigandi að spyrjast fyrir. Kemur í ljós að væntanlegur kaupandi segist aldrei hafa fengið aflann. Því hef- ur eigandinn kært hann fyrir þjófnað. Daði segir söluandvirði aflans vera 650 þúsund krónur. Hann teljir líklegt að um mistök eða misskilning í söluferlinu sé að ræða. Málið sé enn óupplýst en vonir standi til að það leysist fljót- lega.  Bolungarvík: Fjórtán kör af þorski horfin LÖGREGLURANNSÓKN HAFIN Óljóst er hver upptök eldsins í kjallara Fákafens 9 voru. Tæknideild lögreglunnar hóf rannsókn sína í gær og er gert ráð fyrir að hún geti tekið nokkra daga. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 39 ára á virkum dögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 21,6% D V 70.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu á virkum dögum? 51,7% 61,9% FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI BONNER Robert Bonner, yfirmaður tollayfirvalda í Bandaríkjunum, sagðist aldrei áður hafa séð jafn stórt samsæri foreldra í einu máli. Barnaklámhringur upprættur: Foreldrar misnotuðu börnin sín WASHINGTON,AP Tuttugu meðlimir í alþjóðlegum barnaklámhring, þar af tveir Danir, hafa verið handtekn- ir í Bandaríkjunum og í Evrópu. Í klámhringnum voru meðal annars foreldrar sem misnotuðu börn sín kynferðislega og sendu nektar- myndir af þeim á Netið. Auk Dananna tveggja hafa tíu Bandaríkjamenn og átta aðrir Evr- ópubúar hafa einnig verið hand- teknir. Einn Bandaríkjamannanna hefur þegar játað sekt sína. Hefur hann verið dæmdur í 20 ára fang- elsi. Annar landi hans framdi sjálfsvíg skömmu eftir handtök- una. 45 börn, þar á meðal 37 í Banda- ríkjunum, á aldrinum tveggja til fjórtán ára, voru misnotuð af með- limum klámhringsins. Hafa þau verið færð í hendur ábyrgra skyld- menna. 80% barnanna voru misnot- uð af sínum eigin foreldrum. Rannsóknin hófst í nóvember á síðasta ári þegar danska lögreglan óskaði eftir aðstoð tollgæslunnar vegna barnaklámhrings. Teygði sú rannsókn anga sína víðsvegar um heiminn.  PÉTUR BLÖNDAL Hættir við í bili. Vor- um ekki í slag um Spron. REYKJAVÍK Breytileg átt, 3-5 m/s. Skýjað með köflum og smáskúrir. Hiti 9 til 14 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-5 Skýjað 9 Akureyri 1-3 Hálfskýjað 10 Egilsstaðir 1-3 Hálfskýjað 10 Vestmannaeyjar 1-3 Hálfskýjað 12 + + + + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜ ➜ ➜ SELJANDI KÆRIR KAUPANDA Undarlegt að kör hverfi segir lögreglan.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.