Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 2
Hæstiréttur staðfesti í gærgæsluvaðhaldsúrskurð hér- aðsdóms yfir fimmtugum karl- manni. Maðurinn situr því í gæsluvarðhaldi til 14.ágúst. Hann réðist ásamt tveimur son- um sínum á ungan mann í Vest- urbæ Reykjavíkur í fyrri viku og veittu honum alvarlega áverka. Synirnir sitja einnig í gæsluvarðhaldi. Dómsmálaráðuneytið sagði íbréfitil Flugleiða að mjög mikilvægt væri að hindra komu mótmælenda úr Falun Gong hreyfingunni hingað til lands meðan á heimsókn Kínaforseta stæði. RÚV greindi frá. Ráðu- neytið sagði að þannig væri hægt að spara umstang við að synja fólki um landgöngu og að senda það aftur til síns heima. Svartur listi fylgdi bréfinu og átti lögregla að nota hann þegar fólkið kæmi til landsins. Flug- leiðir fengu listann líka í hend- ur, ásamt tilmælum um að þeim sem á honum væru, yrði synjað um flugfar hingað. Flugleiðir fóru að vilja stjórnvalda. Allsherjarnefnd Alþingisþingaði í gær og ræddi um heimsókn Kínaforseta og Falun Gong. Á fundinn komu fulltrúar lögreglu og fleiri. Skiptar skoð- anir eru um framgöngu stjórn- valda, minnihlutinn telur þau hafa gengið of langt í að vernda Kínaforseta fyrir mótmælum. Formaður Allsherjarnefndar telur að stjórnvöldum beri skylda til að vernda líf og limi erlendra þjóðhöfðingja sem hingað koma en líka virða mannréttindi. Bruni í Skeifunni: Kveikt í á tveimur stöðum LÖGREGLUMÁL Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins var kallað út í tvígang í fyrrinótt vegna bruna á tveimur stöðum í Skeifunni. Stundarfjórðungur leið á milli út- kalla. Talið er að um íkveikjur hafi verið að ræða. Í fyrra skiptið var um að ræða eld á bak við verslunina Everest við Skeifuna. Þar logaði í vöru- brettum og pappa. Ekki var um að ræða samliggjandi eld heldur hafði verið kveikt í á tveimur stöðum. Þegar slökkvistarfi var lokið barst annað útkall. Um var að ræða eld í rusli við suðurgafl hússins að Faxafeni 12. Brást slökkviliðið fljótt við þar sem stutt var á milli staða. Minnstu munaði að illa færi því eldurinn hafði náð að festa sig í gluggaum- búðir en mikill eldsmaður var fyr- ir innan. Þeir sem voru að verki hafa ekki enn fundist. Leikur grunur á að sömu menn hafi verið að verki í báðum tilfellum.  2 10. ágúst 2002 LAUGARDAGUR INNLENT WASHINGTON,AP Sharif Ali, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Írak, segir að Saddam Hussein, forseti lands- ins, hafi engan stuðning á bak við sig heima fyrir. Ali er staddur í Washington þar sem hann mun funda með bandarískum ráða- mönnum um málefni Bandaríkj- anna og Íraks. Ali segir að Íraks- her verði fljótur að gefast upp ráðist Bandaríkjamenn á landið. Samkvæmt skoðanakönnun C B S - s j ó n v a r p s s t ö ð v a r i n n a r styðja tveir þriðju hlutar Banda- ríkjamanna hernaðaraðgerðir gegn Írak. Vilja þeir samt sem áður að Bush, Bandaríkjaforseti, fái samþykki þingsins og banda- manna sinna áður en til árásar kæmi. Bandaríkjamenn telja að Saddam Hussein sé að þróa gjör- eyðingarvopn. Lengi hefur verið á stefnuskrá landsins að steypa hon- um af stóli. Hafa vangaveltur um árásir Bandaríkjamanna á Írak verið háværar upp á síðkastið.  Leiðtogi írösku stjórnarandstöðunnar: Saddam hefur engan stuðning heima fyrir EINSTAKLINGSÞJÓNUSTA „Þetta var allt í gamni gert og tilgangurinn að sjá hverjar viðtökurnar yrðu,“ segir ungur reykvíkingur sem í fyrrakvöld opnaði vefsíðu á slóð- inni horuhus.com. Til að byrja með áttu starfs- menn að vera fáir en þeir áttu að geta sinnt flestum þörfum við- skiptavina. Sex stúlkur og einn ungur maður áttu að þjóna. Upp- lýsingar um greiðslufyrirkomu- lag og hvernig hlutirnir gengju fyrir sig áttu að fást með því að senda póst á tilgreint netfang. Þá var ennfremur hægt að sækja um starf hjá fyrirtækinu, hálft eða hlutastarf. Síðan var sett upp klukkan níu í fyrrakvöld en lokað tæpum sólarhring síðar síðar. Engu að síður sóttu tólf um starf og níu karlmenn óskuðu eftir þjónustu. „Athygli okkar var vakin á þessu og við erum að skoða málið,“ segir Hörður Jóhannesson, yfir- lögregluþjónn í Reykjavík. Óvíst er hvort og þá hver eftir- mál þessa gráa gamans verða fyr- ir vefsmiðinn unga.  Hóruhús á Netinu vakti mikil viðbrögð: Allt í gamni gert segir vefsmiðurinn Michael Bloomberg, borgar-stjóri í New York, ætlar að leggja til að reykingar á börum og á veitingastöðum í borginni verði bannaðar. Málið verður lagt fyrir borgarráð í næstu viku. Verði til- laga borgarstjórans samþykkt þurfa þeir 13 þúsund staðir þar sem enn er leyfilegt að reykja að breyta umgengnisreglum sínum. Hingað til hafa reykingar aðeins verið bannaðar á stöðum sem hafa færri en 35 sæti. Að minnsta kosti 19 manns létulífið í Rússlandi í gær í einum verstu flóðum sem gengið hafa yfir Evrópu undanfarna áratugi. Tugir þorpsbúa þurftu að klifra upp á húsþök sín er þeir biðu eftir aðstoð björgunarmanna. UMHVERFISMÁL „Mér líst ekki vel á hugmyndir um skipakirkjugarð, tel þetta sístu leiðina sem fara á við förgun úreltra skipa. Ísland hefur verið í fararbroddi varðandi varnir gegn meng- un sjávar. Það er mikið hagsmuna- mál fyrir okkur að við verndum þá ímynd. Við verðum því að skoða allar aðrar leiðir,“ segir Siv Friðleifsdóttir, u m h v e r f i s r á ð - herra. Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti þingmaður Vestfjarða, vill að heimilt verði að sökkva ónýtum skipum í sæ, á sérstökum svæðum, til ársloka 2004. Hann ætlar í haust að leggja fram á Alþingi frumvarp þess efnis. Einar segir þessi skip vera mikið vandamál í höfnum landsins. Samkvæmt athugun sem gerð var í lok ársins 2000 kom í ljós að 158 verkefnalaus skip lágu í höfn- um landsins. Talið var að í þessum skipum væru um 70 þúsund tonn af járni „Þetta er mik- ið áhugamál sveitarstjórnar- manna og hafnar- stjóra. Það eru fjölmörg verk- efnalaus skip í höfnum landsins og þau taka upp dýrmætt legu- pláss. Skipin eru sem betur fer ekki öll í reiði- leysi en mörg eru það því miður,“ segir Einar. Svokallaður OSPAR-samning- ur, um verndun Norðaustur-Atl- antshafsins, heimilar varp skipa í hafið til ársloka 2004 en Alþingi felldi þá heimild brott við stað- festingu samningsins. „Ef af yrði, þyrfti að fjarlægja öll mengandi efni úr skipunum og velja staðsetningu með tilliti til þess að ekki stafi hætta af flök- unum,“ segir Einar Guðfinnsson. „Meginreglan er sú að menn bera almennt ábyrgð á eigum sín- um. Það þýðir ekki að binda skip- in við bryggju og varpa ábyrgð- inni yfir á aðra. Stærsta vanda- málið við úreldingu þessara skipa er kostnaður, sérstaklega þegar menn finna ekki eigendur að skipunum. Það eru betri lausn- ir en að sökkva þeim og ég tel rétt að Umhverfisstofnun, sem tekur til starfa um áramót, í sam- ráði við sveitarfélög og hags- munaaðila, geri tillögu að lausn og áætlun um kostnað,“ segir Siv Friðleifsdóttir. Hugnast ekki skipakirkjugarður Umhverfisráðherra vill ekki sökkva skipum í hafið. Þingmaður Vestfjarða leggur það til á þingi í haust. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Afkoma er 21 sinnu betri í ár en á sama tíma í fyrra. Búnaðarbanki Íslands hf: 1.261 millj- ón króna hagnaður AFKOMA Hagnaður Búnaðarbanka Íslands hf. fyrri hluta ársins 2002 var 1529 milljónir króna fyrir skatta en 1261 milljón að teknu til- liti til reiknaðra skatta. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnað- urinn 57 milljónir að teknu tilliti til skatta. Hagnaður er því rúm- lega 2000% betri í ár en í fyrra. Hreinar vaxtatekjur námu 3.145 milljónum til samanburðar við 2.797 milljónir á fyrri árs- helmingi síðastliðins árs. Arðsemi eiginfjár var 25,3% fyrir skatta en 20,6% eftir reikn- aða skatta. Starfsemi Búnaðarbankans í Lúxemborg hefur farið vel af stað á árinu og eru rekstrartekjur og afkoma yfir áætlun. Á miðju síð- asta ári tók bankinn alfarið yfir rekstur Lýsingar hf. en fyrir átti bankinn 40% hlut í félaginu. Rekstur Lýsingar hefur gengið mjög vel það sem af er ári og var hagnaður 183 milljónir fyrir skat- ta, fyrstu sex mánuði ársins. Eigið fé bankans er nú um 13,7 milljarðar og útgáfa víkjandi lána um 5,5 milljarðar. Eiginfjárhlut- fall er 10,2%.  Hornstrandir: Ólöglegt net LÖGREGLA Lögreglan á Ísafirði fór í eftirlitsferð með þyrlu Landhelgis- gæslunnar um Hornstrandir í gær. Lagt var hald á eitt ólöglegt net í friðlandinu á Hornströndum. Netið var með ólöglega möskvastærð, ómerkt og ekki landfast. Lögregl- an gerir þetta árlega og er þá að kanna hvort netalagnir séu sam- kvæmt gildandi lögum og reglu- gerðum. Einnig voru gerðar athuga- semdir við vélknúin ökutæki, en akstur er óheimill í friðlandinu. Náttúruvernd ríkisins getur þó veitt leyfi fyrir því að sumardval- argestir í friðlandinu noti t.d. fjór- hjól og dráttarvélar við sérstakar aðstæður.  Á BLAÐAMANNAFUNDI Sharif Ali Bin Hussein, leiðtogi írösku stjórnarandstöðunnar, á blaðamannafundi í gær. Hann telur að Saddam Hussein hafi engan stuðning á meðal almennings heima fyrir. AP/M YN D ALLT Í PLATI Búið að loka umdeildri vefsíðu sem fal- bauð þjónustu sex kvenna og eins manns. ÁTAK TIL HREINSUNAR Í HÖFNUM. Að minnsta kosti 150 skip liggja í höfnum landsins, mörg í reiðileysi og valda sjónmengun, auk þess að taka upp dýrmætt legupláss. Meginreglan er sú að menn bera almennt ábyrgð á eigum sínum SIV FRIÐLEIFS- DÓTTIR Skipakirkjugarður er sísta leiðin og rétt að skoða allar aðrar lausnir. ERLENT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.