Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 6
6 10. ágúst 2002 LAUGARDAGURSPURNING DAGSINS
Hver ræður heima hjá þér?
Mamma.
Árný Eir Kristjánsdóttir
BRUNI Eiríkur Þorláksson, for-
stöðumaður Listasafns Reykjavík-
ur, sagðist ekki vita hvert fjár-
hagslegt tjón safnsins væri vegna
brunans í Fákafeni 9. Mestu skipti
að flest listaverkanna hefðu bjarg-
ast. Safnið er með 50 verk í geym-
slu í kjallaranum en í heildina á
Reykjavíkurborg 10.000 listaverk.
Vatnshæðin í kjallaranum í
Fákafeni 9 var um hálfur metri
þegar slökkviliðið var búið að
slökkva eldinn.
„Þetta er eitthvert milljóna tjón
en það er ekkert til samanburðar
við það tjón sem önnur fyrirtæki
hérna hafa orðið fyrir,“ sagði Ei-
ríkur. „Í heildina kemur þetta mun
betur út heldur en maður gat ótt-
ast. Það sem helst er ónýtt er
bókalager safnsins, umbúðakassar,
málverk og viðkvæmari verk sem
hafa verið unnin úr pappír. Ef
þessi verk hafa ekki orðið fyrir
vatnstjóni gæti verið hægt að bjar-
ga þeim. Verk Ásmundar og önnur
stór listaverk hafa orðið fyrir
vatns og sótskemmdum en það eru
hlutir sem hægt er að hreinsa og
laga að mestu leyti.“
Eiríkur sagði að í kjallaranum
hefði einnig verði mikið af göml-
um húsgögnum Ásmundar og
vinnutæki sem hann hefði átt.
Hann sagðist telja að allt þetta
væri óskemmt.
Geymsla Listasafns Reykjavíkur:
Hægt að hreinsa
og laga verkin
LISTAVERK
Hægt er að hreinsa og laga stærri listaverk sem skemmdust vegna sóts og vatns.
Borgarbyggð:
Úrskurður
ráðuneytis
kærður
KOSNINGAR Óðinn Sigþórsson, íbúi í
Borgarbyggð, hefur kært úrskurð
félagsmálaráðuneytisins að ógilda
sveitarstjórnarkosningarnar og
láta kjósa að nýju. Þann 31. júlí
úrskurðaði félagsmálaráðuneytið
að bæjarstjórnarkosningarnar í
Borgarbyggð skyldu endurteknar
vegna alvarlegra hnökra á fram-
kvæmd kosninganna. Deilt hafði
verið um hvaða atkvæði skyldu
gild.
Óðinn, sem er formaður stjórn-
ar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Borgarbyggð, kærir í eigin
nafni en ekki í nafni flokksins.
Hann ætlar að láta reyna á það
hvort úrskurður ráðuneytisins er
lögmætur. Ekki liggur fyrir
hvenær kosið verður aftur eða
hvort kæran hefur áhrif á fyrir-
hugaðar kosningar.
BRUNI Um sjö tonn af kolsýru frá
fyrirtækinu Ísaga voru notuð í bar-
áttunni við eldinn í kjallara
Fákafens 9 á miðvikudaginn. Hrólf-
ur Jónsson, slökkviliðsstjóri
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
sagði vel hugsanlegt að hún hefði
bjargað þeim listmunum sem voru í
kjallaranum.
Geir Þórarinn Zoéga, fram-
kvæmdastjóri Ísaga, býr skammt
frá Fákafeni og þegar hann sá að-
stæður ákvað hann að bjóða
slökkviliðinu kolsýruna. Hún eyðir
súrefninu en eldurinn þarf súrefni
til að loga.
„Ég bauð þeim bara aðstoð
mína,“ sagði Geir Þórarinn. „Ég
sagðist vera með sjö tonn af kol-
sýru á tanki og spurði hvort þeir
vildu hana.“ Hrólfur sagðist hafa
hugsað aðeins málið enda þótt hug-
myndin róttæk.
„Ég ákvað síðan að slá til,“ sagði
Hrólfur. „Það er ljóst að veggirnir
voru búnir að gefa sig inni þar sem
listmunirnir voru og maður spyr
sig að því hvort kolsýran hafi gert
gæfumuninn og bjargað þessum
listmunum. Við vitum auðvitað ekk-
ert um það en einhverra hluta
vegna brunnu þeir ekki þrátt fyrir
að veggirnir væru búnir að gefa
sig.“
BAUÐ AÐSTOÐ
Geir Þórarinn Zoéga, framkvæmdastjóri Ísaga, sendi tankbíl með sjö tonn af kolsýru í
Fákafenið.
Bauð sjö tonn af kolsýru:
Bjargaði hugsanlega
listmununum
BRUNI Enn er óljóst hver upptök
eldsins í kjallara Fákafens 9 voru.
Tæknideild lögreglunnar hóf
rannsókn sína í gær og þegar
blaðamaður spurði hana um elds-
upptökin sagði hún: „Við stöndum
ráðþrota.“ Lögreglan gerir ráð
fyrir að rannsóknin geti tekið
nokkra daga. Mikið tjón varð í eld-
inum og að sögn Erlends Fjeld-
sted, hjá Tryggingamiðstöðinni,
nemur það hundruðum milljóna
króna.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram
að kjallarinn hefði verið innrétt-
aður án samþykkis byggingaryf-
irvalda eða Eldvarnareftirlitsins.
Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins, sagði að þrátt fyrir þetta
hefðu brunavarnir verið ágætar.
„Við skoðuðum húsið í maí og
þá mátum við ástandið þannig að
ekki væri lífshætta á ferðum,“
sagði Hrólfur. „Við þannig að- stæður gerum við athugasemdir
en stöðvum ekki rekstur í húsum
eða neitt í þá veru. Við gerðum
kröfu um að teikningum yrði skil-
að, en þegar bruninn varð hafði
eigandinn enn frest til að skila
þeim inn. Þegar hann er búinn að
skila inn teikningum getum við
gert kröfu um úrbætur. Ég vil
ekki fullyrða nokkuð um það
hvort hann hefði getað fundið ein-
hvern brunahönnuð sem hefði
getað reiknað út að brunavarnirn-
ar væru í lagi. En væntanlega
hefði frekari skoðun leitt til þess
að bæta hefði þurft brunavarnirn-
ar. Hugsanlega voru reyklúgur of
litlar miðað við mögulegt brunaá-
lag í húsinu.“
Hrólfur sagði að aðstæður í
Fákafeni hefðu verið mjög erfið-
ar. Reykkafarar hefðu átt erfitt
með að athafna sig enda hitinn lík-
lega um 1.000 gráður á celsíus
efst í húsinu við loftið.
„Við fórum hér í að gera hluti
sem við höfum aldrei gert áður.
Það að grafa sig niður og brjóta
sig inn í hús er eitthvað sem ég
hef aldrei gert á þeim 22 árum
sem ég hef verið í þessu. Einn af
mínum starfsmönnum fékk þessa
hugmynd og ég tók nú ekki vel í
hana fyrst en eftir smá tíma hugs-
aði ég með mér að þetta væri bara
ansi góð hugmynd. Við brutum því
þrjú göt á kjallarann til að dæla
inn vatni, froðu og kolsýru.“
Hrólfur sagði að húsið væri
heilt en væntanlega myndi þurfa
að skipta um eitthvað af gólfplöt-
unum eða endurstyrkja burðar-
virki þeirra.
trausti@frettabladid.is
LAGER
Miklar skemmdir urðu á lager fyrirtækisins
Betra bak. Froða var enn á gólfinu í hádeg-
inu í gær.
Upptök eldsins í
Fákafeni ókunn
Tæknideild lögreglunnar hóf í gær að rannsaka hver voru upptök eldsins.
Slökkviliðsstjórinn segir að aðstæður hafi verið erfiðar. Hitinn 1.000 gráður
á celsíus. Húsið heilt en styrkja þarf gólf eða burðarvirki.
SÓTUG LISTAVERK
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, segir að bjarga megi flestum
listaverkum Ásmundar Sveinssonar, en verk sem voru unnin úr pappa og bókalager safns-
ins er líklega ónýtur.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN
Hrólfur Jónsson gengur út úr geymslu
Listasafns Reykjavíkur.
Þormóður rammi:
706 milljón
króna
hagnaður
UPPGJÖR Þormóður rammi - Sæberg
hf. var rekinn með 760 milljón
króna hagnaði á fyrri helmingiÝ
ársins 2002. Þetta er talsvert betri
afkoma en á sama tímabili árið áður
en þá var félagið rekið með 458
milljón króna tapi. Í tilkynningu
segir bætta afkomu megi að mestu
rekja til gengishagnaðar af skuld-
um félagsins vegna styrkingar ís-
lensku krónunar.
Rekstrartekjur á tímabilinu
námu 2.624 milljónum króna og
höfðu hækkað um ríflega 9% frá
sama tímabili í fyrra. Rekstrar-
gjöld hækkuðu um 8% milli ára og
námu 1.906 milljónum króna. Verg-
ur hagnaður var 718 milljónir
króna, eða 27,4%, en var 638 millj-
ónir króna, eða 26,6%, á fyrri helm-
ingi síðasta árs.
Hraðfrystihúsið -
Gunnvör hf:
Hagnaður
474 milljónir
UPPGJÖR Hraðfrystihúsið - Gunn-
vör hf. var rekið með 474 milljóna
króna hagnaði á fyrstu sex mánuð-
um ársins 2002, samanborið við
178 milljón króna tap á sama tíma-
bili 2001.Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsgjöld jókst um 29% á
milli ára, úr 419 milljónum árið
2001 í 540 milljónir króna. Veltufé
frá rekstri nam 405 milljónum
króna á tímabilinu, samanborið við
257 milljónir króna á sama tímabili
árið áður, og jókst því um tæp
58%. Hagnaður félagsins fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði er 540
milljónir króna eða 30,5% af
rekstrartekjum samanborið við
419 milljónir króna og 30,9% árið
áður.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85,64 -0,12%
Sterlingspund 130.98 -0.09%
Dönsk króna 11.21 0.37%
Evra 83.22 0.35%
Gengisvísitala krónu 125,57 0,002%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 239
Velta 4.647.389
ICEX-15 1.258 -0,41%
Mestu viðskipti
Húsasmiðjan 413.680.000
Baugur hf. 78.897.000
Landsbanki Íslands 37.533.000
Mesta hækkun
Eimskip 2,0%
Sæplast 1,5%
SÍF 1,2%
Mesta lækkun
SR-Mjöl -6,1%
Össur hf. -3,1%
Tryggingamiðstöðin -1,9%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
Dow Jones* 8,758.54 0.53 %
Nasdaq* 1,316.81 0.29%
FTSE 100 4,322,4 ,9%
DAX 3760,9 2,2%
Nikkei 9.999,8 2,0%
S&P 500 913,7 0,9%