Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 10
10 10. ágúst 2002 LAUGARDAGUREVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ
STOKKIÐ TIL SIGURS
Svíinn Christian Olsson stekkur hér til sig-
urs í þrístökkskeppninni á Evrópumeistara-
mótinu í frjálsum íþróttum. Hann skaut
þar með Jonathan Edwards frá Bretlandi
ref fyrir rass.
Michael Owen, framherjiLiverpool og enska lands-
liðsins, kvartar undan leikjaálagi
og segir það nauðsynlegt að
fækka leikjum í ensku úrvals-
deildinni. Hann segir að enska
landsliðið hafi dottið út úr heims-
meistaramótinu vegna álags á
leikmenn. England tapaði fyrir
Brasilíu í átta liða úrslitum HM.
„Ég hef enga lausn á málinu
en hana verður að finna,“ sagði
Owen í samtali við The Daily
Mail. „Fólk er að tala um vetrar-
frí en ég er ekki viss um að fé-
lögin sætti sig við að leikmenn
fái frí í viku. Ég myndi samt
reyna forðast svo marga leiki og
létta álagið.“
Fabio Cannavaro, ítalski lands-liðsmaðurinn, hefur skrifað
undir samning við Inter Milan
frá Parma. Fleiri félög voru á
höttunum eftir leikmanninum s.s.
AC Milan og Juventus. Canna-
varo er tæplega þrítugur og hef-
ur verið fastamaður í landsliðinu
á síðustu árum. Óvíst er hvort
brasilíski framherjinn Ronaldo
verði áfram í herbúðum liðsins
en hann hefur lýst því yfir að
hann vilji ganga til liðs við Real
Madrid á Spáni.
FÓTBOLTI
10. umferð Símadeildar
kvenna:
Botnslagur
fyrir norðan
FÓTBOLTI Í kvöld fer fram síðasti
leikur 10. umferðar í Símadeild
kvenna. Sameinað lið
Þórs/KA/KS tekur á móti Grinda-
vík á Akureyrarvelli. Leikurinn
hefst klukkan 14.00. Um sann-
kallaðan botnslag er að ræða en
Grindavíkurstúlkur eru á botni
deildarinnar með þrjú stig, hafa
aðeins unnið einn leik. Norðan-
liðið er sæti ofar með sex stig,
hefur unnið tvo leiki. Bæði lið
þurfa því bæði á sigri að halda í
dag í von um að halda sæti sínu í
úrvalsdeildinni.
FÓTBOLTI Fjórir leikir fara fram í
þrettándu umferð Símadeildar
karla um helgina. Á laugardag
tekur ÍBV á móti Grindavík á Há-
steinsvelli í Eyjum. Eyja-liðið er í
næstneðsta sæti með 12 stig en
Grindavík er í því fjórða með
átján stig. Eyjamenn þurfa að
sigra leikinn til að komast úr fall-
hættu. Grindvíkingar þurfa ein-
nig á sigri að halda til að saxa á
forskot Fylkis og KR. Leikurinn
hefst klukkan 14.00.
Á sunnudag verða þrír leikir á
dagskrá. Stórleikur umferðarinn-
ar verður þegar KA tekur á móti
KR fyrir norðan. KA-menn hafa
komið á óvart í sumar og eru í
þriðja sæti deildarinnar með 19
stig, fimm stigum færri en KR
sem er í öðru sæti. KR-ingar hafa
sýnt mátt sinn og megin en þurfa
nauðsynlega á stigum að halda í
baráttunni við Fylki um toppsæt-
ið. Fylkir heimsækir Fram í
Laugardalinn. Framarar eru í
þriðja neðsta sæti með 13 stig og
töpuðu dýrmætum stigum gegn
FH á fimmtudag. Þeir ætla sér
því sigur á sunnudag. Neðsta lið
deildarinnar, Þór, heimsækir
Keflavík suður með sjó. Þór er
með níu stig í neðsta sætinu og
þarf á stigum að halda til að
halda sér uppi. Leikir sunnudags-
ins hefjast allir klukkan 18.00.
13. umferð Símadeildar:
KA fær KR í heimsókn
FÓTBOLTI Arsenal og Liverpool
mætast á sunnudaginn kemur í
keppni um Samfélagsskjöldinn.
Leikurinn markar upphafið á nýju
keppnistímabili í ensku úrvals-
deildinni. Arsenal hampaði bæði
enska meistaratitlinum og bikarn-
um á síðasta ári. Liverpool varð í
öðru sæti í deildinni og öðlast því
rétt á að spila um skjöldinn.
Gerard Houllier, stjóri Liver-
pool, segist vilja byrja tímabilið á
sigri. „Þetta er ekki vináttuleikur.
Það er engin vinátta þegar þú spil-
ar við Arsenal og Manchester
United.“
Hvorugir stjóranna geta stillt
upp sínu sterkasta liði. Francis
Jeffers, Robert Pires, Fredrik Lj-
ungberg og Giovanni van Bronck-
horst verða ekki í leikmannahópi
Arsenal né Nígeríumaðurinn
Kanu. Liverpool mun þó væntan-
lega stilla upp Senegalanum El-
Hadji Diouf og tékkneska leik-
manninum Milos Baros. Gregory
Vignal og Djimi Traore munu
væntanlega styrkja vörn Bítla-
borgarliðsins. Leikurinn hefst
klukkan 12.30.
Samfélagsskjöldurinn:
Enska boltinn byrjar
að rúlla á sunnudag
Íslandsmótið í golfi:
Örn og
Ólöf í efstu
sætum
GOLF Örn Ævar Hjartarson,
Golfklúbbi Suðurnesja og nú-
verandi Íslandsmeistari í
golfi, hefur eins högga for-
ystu á Íslandsmótinu í golfi
eftir tvo daga. Örn Ævar
lék á 69 höggum í gær og er
samtals á fimm höggum
undir pari. Ottó Sigurðsson
úr GKG, lék á 68 höggum í
gær og er samtals á fjórum
höggum undir pari. Styrmir Guð-
mundsson og Björgvin Sigur-
bergsson, báðir úr GK, er tveimur
höggum undir pari líkt og Sigurð-
ur Pétursson, úr GR, og Sigurpáll
Geir Sveinsson, GA.
Ólöf María Jónsdóttir, Golf-
klúbbnum Keili, er með örugga
forystu í kvennaflokki. Ólöf Mar-
ía lék á 58 höggum í gær hefur
samtals leikið á 127
höggum, tveimur
höggum undir
pari vallarins.
Herborg Arn-
ardóttir, úr
GR, er á fjór-
um höggum
yfir pari og
Ragnhi ldur
Sigurðardótt-
ir, GR, er tíu
höggum yfir
pari.
FRJÁLSAR Þórey Edda Elísdóttir,
frjálsíþróttakona úr FH, náði ell-
efta sæti í stangastökkskeppni á
Evrópumeistaramótinu í frjálsum
íþróttum sem fram fer í München
í Þýskalandi. Þórey Edda stökk
yfir 4.20 metra í fyrstu tilraun en
felldi 4,30 metra þrívegis og var
því úr leik. Svetlana Feofanova
frá Rússlandi bar sigur úr býtum
í stangastökkskeppninni þegar
hún stökk, 4.60 metra. Feofanova
fór yfir allar hæðirnar í fyrstu til-
raun. Í öðru sæti varð Jelena Isin-
bajeva, einnig frá Rússlandi, en
hún fór yfir 4.55 metra en felldi
4,60 metra þrívegis. Yvonne
Buschbaum, frá Þýskalandi, varð
í þriðja sæti með því að stökkva
yfir 4.50 metra. Hún gat þó ekki
beitt sér að fullu þar sem hún rif-
beinsbrotnaði í einu stökkinu.
„Ég er bæði sátt og ósátt með
árangurinn,“ sagði Þórey Edda að
keppni lokinni. „Ég er sátt með að
hafa komist í úrslit og með ellefta
sætið en ég er ekki sátt með 4,20
metra. Ég hefði viljað fara
hærra.“ Þórey Edda segist hafa
stefnt að 4,40 metrum og segir að
æfingar fyrir mót hefðu gengið
vel. „Ég veit ég á meira inni.“ Það
verður nóg að gera hjá Þórey
Eddu í ágúst. Það eitt að hún hafi
komist í úrslit opnar fyrir mót
víða um heim. „Ég hef ekki fengið
nein mót hingað til svo ég er fegin
því. Það er bikarmót heima, síðan
eru mót í Belgrad, Póllandi og
Gautaborg.“
„Ég er mjög ósáttur með ár-
angurinn fyrir hennar hönd. Ég
veit hún getur miklu meira en ég
er sáttur við að hún skyldi komast
í úrslit,“ sagði Vésteinn Haf-
steinsson, landsliðsþjálfari, þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær
um árangur Þóreyjar Eddu. Vé-
steinn segir að ákveðin tækniat-
riði hafi verið að flækjast fyrir
Þórey Eddu. „Hún fór nógu hátt
en kom alltaf niður á ránna þar
sem hún var of nálægt henni.“ Vé-
steinn segist þó sáttur við árangur
íslensku keppendanna á Evrópu-
mótinu. „Þjálfarar og íþrótta-
menn vilja alltaf meira en ég get
ekki annað en verið sáttur. Ég fer
út með þrjá keppendur og tveir
eru í baráttunni. Það er ágætis út-
koma, jafnvel betra en við höfum
verið að gera oft áður.“
kristjan@frettabladid.is
Sátt með sætið en ekki stökkin
Þórey Edda Elísdóttir varð ellefta í stangastökki á Evrópumeistaramótinu. Svetlana Feafanova
frá Rússlandi sigraði örugglega. Vill alltaf meira segir landsliðsþjálfarinn.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
12.35 RÚV
Þýska stálið
13.00 RÚV
Evrópumótið í frjálsum íþróttum
13.25 RÚV
Þýski fótboltinn
14.00 Hásteinsvöllur
Símadeild karla ÍBV - Grindavík
14.00 Akureyrarvöllur
Símadeild kvenna Þór/KA/KS -
Grindavík
14.00 Hlíðarendi
1. deild karla Valur - Víkingur R.
14.00 Stjörnuvöllur
1. deild karla Stjarnan - Þrótt. R.
14.00 Sindravellir
1. deild karla Sindri - Leift-
ur/Dalvík
14.00 Varmávöllur
1. deild karla Afturelding -
Breiðablik
15.00 Sýn
Landsmótið í golfi
15.20 RÚV
Evrópumótið í frjálsum íþróttum
17.30 Sýn
Toppleikir Man. U. - Liverpool
22.50 Sýn
Hnefaleikar - Castillo - Maywe-
ather
ÍÞRÓTTIR SUNNUDAG
10.50 RÚV
Evrópumótið í frjálsum íþróttum
12.30 Sýn
Community Shield 2002
13.45 Stöð 2
Mótorsport (e)
15.00 Sýn
Landsmótið í golfi
17.00 RÚV
Markaregn
18.00 Akureyrarvöllur
Símadeild karla KA - KR
18.00 Keflavíkurvöllur
Símadeild karla Keflavík - Þór A.
18.00 Laugardalsvöllur
Símadeild karla Fram - Fylkir
18.00 Sýn
Golfmót í Bandaríkjunum
21.40 RÚV
Helgarsportið
21.55 RÚV
Fótboltakvöld
KR-INGAR
KR-ingar heimsækja KA-menn fyrir norðan
á sunnudag.
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Stangastökkskona úr FH náði sér ekki á
strik í keppninni og felldi 4,30 metra.
SIGURVEGARINN
Svetlana Feafanova, frá Rússlandi, sést hér í sigurstökkinu en hún fór yfir 4,60 metra í fyrstu tilraun.