Fréttablaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 13
13LAUGARDAGUR 10. ágúst 2002
MEN IN BLACK 2 kl. 6.30, 8.30 og 10.30 SPIDERMAN - 2 FYRIR 1 kl. 5.30
UNFAITHFUL kl. 8 og 10.40Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 11.30
Sýnd kl. 6.30, 8. 30 og 10.30
KRINGLUNNI 4-6, SÍMI 588 0800 www.samfilm.is
BAD COMPANY kl. 10 VIT394
SCOOBY DOO kl. 2 og 4 VIT398
MR. BONES kl. 5.50 og 8 VIT415
Sýnd kl. 1, 2, 3, 4 og 5 m/ísl. tali VIT 418
Sýnd kl. 6, 7, 8, 9, 10 og 11 VIT 417
SÍMI 553 2075
MEN IN BLACK 2 kl. 4, 6, 8 og 10FRUMSÝNIND kl.4, 7 og 10 (Powersýning)
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10
Breski leikarinn Robert Car-lyle, sem margir þekkja úr
myndunum Trainspotting og The
Full Monty, hefur ráðið sig til
þess að leika Hitler. Um er að
ræða sjónvarpsþáttaröð er BBC
er að framleiða um þýska ein-
ræðisherrann. Myndin mun hefj-
ast við lok fyrri heimstyrjaldar-
innar og mun fjalla um leið
Hitlers til valda. Myndinni verð-
ur leikstýrt af Michael Radford
sem gerði ítölsku myndina „Il
Postino“.
Leikstjórinn Steven Spielberg,sem hefur sagt að hann ætl-
aði að taka allar sínar myndir á
filmu, sagði
nýlega í viðtali
að ef félagi
hans og skap-
ari Stjörnu-
stríðsheima
George Lucas
vildi að fjórða
Indiana Jones
myndin yrði
unnin stafrænt
myndi hann
glaður gera slíkt. Hann og Lucas
hafa gert allar Indiana Jones
myndirnar saman. Spielberg hef-
ur leikstýrt en George Lucas
hefur samið sögurnar. Vinnu-
háttum verður eins háttað í
væntanlegu ævintýri um forn-
leifafræðinginn fjöruga. Spiel-
berg segist Lucas sinn besta vin
og að hann myndi gera allt sem
hann bæði sig um.
Af tilefni þess að fjörtíu árverða liðin í október frá því
að Bítlarnir áttu sinn fyrsta
slagara ætlar plötufyrirtæki
þeirra
Parlophone
að gefa út
safnplötu.
Lagið „Love
me Do“ fór á
topp breska
sölulistans
árið 1962.
Platan á að
vera tvöföld
og mun inni-
halda um 50
lög. Ekki verður farið eftir því
hvaða lög voru vinsælust heldur
á að safna saman bestu lögunum
í þeirri von að útkoman verði
„Bítlaplatan“ með stóru upp-
hrópunarmerki.
Lögreglan í Beverly Hillshverfi Los Angeles borgar
hefur gefið út handtökuskipun á
Vince Neil, söngvara hljómsveit-
arinnar Mötley Crue. Hann er
sagður hafa ráðist á upptöku-
stjóra á næturklúbb einum þar í
bæ. Maðurinn sem kærði Neil
segist ekki þekkja hann neitt og
að árásin hafi verið af ástæðu-
lausu. Umboðsmaður Neil segir
ákæruna fáránlega og að hann
sé viss um að henni verði vísað
frá eftir að málið hafi verið
rannsakað almennilega. Þetta er
líklegast í fyrsta skiptið í lengri
tíma sem einhver annar liðsmað-
ur sveitarinnar en Tommy Lee
kemst í fréttirnar fyrir óliðleg-
heit og skrípaleik.
Dagskrá Hinsegin daga
Það verður mikið líf í miðbænum í dag. Fjörið heldur áfram fram á kvöld og margir
skemmtistaðir með sérstaka dagskrá í tilefni dagsins.
HLEMMUR -
GAY PRIDE GANGA
15:00
Dagskráin hefst formlega á því að fólk
safnast saman á Rauðarársstíg við
Hlemm. Fólk er hvatt til þess að mæta í
síðasta lagi klukkan 14 en gleðigangan
leggur af stað klukkustund síðar. Gengið
verður eftir Laugarvegi og niður í Kvosina.
INGÓLFSTORG -
HINSEGIN HÁTÍÐ 16:15
Hátíðin hefst á ávarpi frá Heimi Má Pét-
urssyni framkvæmdastjóra.
Eftir það stelur kynnir dagsins, Ungfrú
Öskjuhlíð senunni.
Fram koma: Jade Esteban Estrada, Helga
Möller,
X Rottweiler hundar, Rokkslæðan,
rokksveitin Stereo Total frá Frakklandi,
Stuðmenn, Jón Ólafsson og drottningar
allra kynja.
GAUKUR Á STÖNG - BALL
23:30
Sálin Hans Jóns Míns leikur fyrir dansi.
Hljómsveitin Útrás sér um upphitun.
1500 kr. inn.
LA
U
G
A
VE
G
U
R
A
U
ST
U
R
ST
R
Æ
TI
H
A
FN
A
R
ST
R
Æ
TI
LÆKJARGATA
H
VE
R
FI
SG
AT
A
KAFFI 22 - DANSLEIKUR
23:00
Andrea Jónsdóttir og Dj Benni leika tón-
list af plötum.
Karaoke kerfi verður á staðnum.
Salurinn skreyttur.
Karlþjónar í dragi en kvenþjónar í jakka-
fötum.
500 kr. inn
NASA - DANSLEIKUR
23:00
Dj Páll Óskar og dragdrottningar.
Miðaverð 1.000 kr.
SPOTLIGHT - DANSLEIKUR
23:00
Miðaverð 1.000 kr. (til styrktar GAY
PRIDE).
Upphitun fyrir kvöldið hefst eftir hátíðar-
höldin á Ingólfstorgi.
Spotlight opnar kl.17:00
GRANDROKK - TÓNLEIKAR
00:00
Hljómsveitin Botnleðja leikur.
500 kr. inn
SIRKUS -
TÓNLEIKAR Í BAKGARÐI
17:00
Hljómsveitirnar Kimono, Hudson Wayne
og Kafka leika.
Aðgangur ókeypis.
TÓNLIST Hljómsveitin Stereo Total
er gáfumannapoppsveit sem star-
far í Berlín þrátt fyrir að liðsmenn
komi víða að. Hún hefur gefið út
fimm breiðskífur frá árinu '95 og er
þekkt fyrir frumlega, fjöruga og
fagra tóna.
„Við spilum oft á Gay Pride há-
tíðum,“ segir söngkonan, gítarleik-
arinn og trommarinn Francoise
Cactus líflega með sterkum frönsk-
um hreim. Slíkt myndi líklegast
þykja fullkomlega eðlilegt, nema
hvað að enginn liðsmaður er sam-
kynhneigður. „Þegar við byrjuðum
lékum við aðallega á „gay“ klúbb-
um. Tónn sveitarinnar þótti mjög
undarlegur í Þýskalandi á tímum
teknó og grunge. Fólkið sem fattaði
okkur virtist allt vera samkyn-
hneigt,“ segir hún og hlær.
Lög Stereo Total eru flest í líf-
legri kantinum en hún hefur einnig
getið sér gott orð fyrir að bregða
gömlum lögum í undarlega bún-
inga.
„Ég ætla að reyna að syngja eitt
lag á íslensku. Ég fékk vin minn,
Jón Atlason, til þess að þýða einn
texta. Hann reyndi að útskýra fyrir
mér framburðinn en hann er rosa-
lega flókinn. Úff, þetta verður
erfitt! Ég efast um að neinn muni
skilja mig.“
Sveitin er búin að vera hér í viku
og því haft tíma til þess að skoða
Gullfoss, Geysi, Bláa Lónið og lítið
álfaþorp? „En þvílík synd, ég er
ekki enn búin að sjá neinn álf.“
Hmm, ætli hún sjái ekki glás af
þeim í dag?
Stereo Total leikur á Ingólfs-
torgi, hátíðarhöldin hefjast þar kl.
16:15.
STEREO TOTAL
Francoise segir sveitina aðallega ætla að leika sín eigin lög en sagði þó að Bítlarnir ættu
það til að kíkja í heimsókn.
Hljómsveitin Stereo Total leikur á Ingólfstorgi í dag:
Eru engir álfar á Íslandi?