Fréttablaðið - 10.08.2002, Side 14
14 10. ágúst 2002 LAUGARDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
HINSEGIN DAGAR
14.00 Gay Pride-ganga . Safnast saman
á Rauðarárstíg klukkan 14. Gang-
an leggur af stað klukkan 15.
16.15 Hinsegin hátíð á Ingólfstorgi.
Heimir Már Pétursson fram-
kvæmdastjóri ávarpar samkom-
una. Síðan stígur á svið Ungfrú
Öskjuhlíð og kynnir skemmti-
krafta dagsins, Jade Esteban
Estrada, Helgu Möller, Rottweiler-
hundana, Rokkslæðuna, Stero
Total, Stuðmenn, Jón Ólafsson og
ýmsa fleiri að ógleymdum drottn-
ingum dagsins.
23.00 Spotlight Hinsegin dansleikur
23.00 Nasa Hinsegin hátíðardansleikur
23.00 22 við Laugarveg Hinsegin hátíð-
ardansleikur.
SKEMMTANIR
Players, Kópavogi. Hljómsveitin Land og
Synir leika.
Kaffisetrið Thai Night, lifandi tælensk
tónlist og karaoke. Opið til kl. 03.
22.30 Gamla-Borg í Grímsnesi Sveiflu-
kvartett á Gömlu-Borg.
23.00 Víkurröst, Dalvík Hljómsveitinn 17
vélar. Með Hljómsveitinni stígur
einnig á stokk stórsöngvarinn
Björgvin Halldórsson og tekur
nokkur af sínum þekktustu lög-
um.
TÓNLEIKAR
12.00 Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju.
Hinn heimsþekkti organisti Susan
Landale leikur fjögur verk. Kvöld-
tónleikar klukkan 20 á sunnudag.
Susan Landale leikur.
16.00 Jómfrúin Tríó Björns Thorodd-
sens. Með Birni leika Jón Rafns-
son á kontrabassa og Ingvi Rafn
Ingvason á trommur. Leikið verð-
ur utandyra ef veður leyfir, að-
gangur er ókeypis.
14.00. Árbæjarsafn Hrafn Ásgeirsson,
spilar á saxafón, og Davíð Þór
Jónsson á píanó og rafhljóð, sem
gleðja gesti safnsins. Verkin sem
þeir félagar leika eru byggð á
spuna, sum hver jasskennd. Tón-
leikarnir eru í húsinu Lækjargötu
4 í Árbæjarsafni.
OPNANIR
16.00 í dag klukkan 16 verður opnuð í
Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5
sýningin „Úr fórum gengins
listamans“ Á sýningunni verða
verk Jóhannesar Jóhannessonar
(1921-1998), vatnslitamyndir,
pastel og teikningar.
15.00 Í dag klukkan 15 verða opnaðar
tvær myndlistarsýningar í Gerðar-
safni. Önnur í Austur- og Vestursal
safnsins ber heiti Stefnumót. Á
henni eru málverk eftir Jóhannes
Jóhannesson listmálara og högg-
myndir og glergluggar Gerðar
Helgadóttur myndhöggvara. Hin
sýningin sem er á neðri hæð
safnsins heitir Yfirgrip. Á henni
eru eldri og nýrri verk eftir Val-
gerði Hafstað listmálara. Sýning-
arnar standa til og með sunnu-
dagsins 8. september. Listasafn
Kópavogs er opið alla daga nema
mánudaga frá 11-17.
FERÐIR
11.00 Skoðunarferð um Grasagarð
Reykjavíkur. Ingunn J. Óskarsdóttir
garðyrkjufræðingur gengur með
fólki um garðinn og skoðaðar
verða plöntur sem blómstra gul-
um blómum. Mæting er í Lysti-
húsinu sem stendur við garðskál-
ann og er aðgangur ókeypis.
14.00 Alviðra Krakkadagur. Guðjón
Magnússon náttúruunnandi og
fræðslufulltrúi Landgræðslu ríkis-
ins stýrir dagskrá. Á dagskrá
verða skemmtilegir náttúruleikir
og verkefni og boðið verður uppá
kakó og kleinur. Þátttökugjald er
500 kr.
ÓPERA
21.00 Borgarleikhús. Frumsýning á óper-
unni Didó og Eneas eftir Henry
Purcell.
LEIKHÚS
20.30 Light Nights í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum. Miðasala við inn-
ganginn og í upplýsingaþjónustu
ferðamála í Bankastræti.
20.30 Sunnudagur. The Saga of
Gudrídur. Sýnt í Skemmtihúsinu,
Laufásvegi 22. Miðasala við inn-
ganginn og í upplýsingaþjónustu
ferðamála í Bankastræti.
21.00 Ragnarök í Smiðjunni, Sölvhóls-
götu 13.
Söfn
Árbæjarsafn. Fjölbreytt dagskrá alla helg-
ina fyrir unga sem aldna. Tónleikar í dag
klukkan 14, mjólkudagur á morgun. Þá
verður messa í gömlu safnkirkjunni og
síðan sjónleikurinn Spekúlerað á stórum
skala, en þar býður Þorlákur Ó. Johnson
gestum upp á skemmtidagskrá og varp-
ar ljósi á lífið í Reykjavík á 19. öld. Hús-
freyjan í Árbæ býður gestum og gang-
andi upp á nýbakaðar lummur. Á bað-
stofuloftinu verður spunnið og saumaðir
roðskór. Í Dillonshúsi er boðið upp á
heimilislegt kaffihlaðborð.
LAUGARDAGURINN
10. ÁGÚST
MYNDLIST Í dag verða opnaðar
tvær sýningar í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni. Á neðri hæð
safnsins er sýning á verkum Val-
gerðar Hafstað sem nefnist Yfir-
grip. Á henni eru eldri og nýrri
verk eftir Valgerði. „Ég er með
myndir þarna allt frá árinu 1950,
en meirihluti verkanna er frá
síðastliðnum 10-15 árum,“ segir
Valgerður. „Sumar myndanna á
sýningunni hafa ekki verðið til
sýnis áður.“ Valgerður hefur
málað óhlutbundin verk síðar
hún kynntist abstraktlistinni í
París á sjötta áratugnum. „Þar
sýndum við einu sinni saman ég
og Gerður Helgadóttir, þá ungar
listaspírur í útlöndum,“ segir
hún hlæjandi. Valgerður, sem er
71 árs, bjó lengi í París en býr nú
í New York og líkar vel. „Ég er
að kenna bæði teiknun og málun
á veturna,“ segir hún, „en við
eigum ennþá gamla heimilið
okkar í Frakklandi og förum
þangað og endurnýjum kraftana
á sumrin.“ Eiginmaður Valgerð-
ar er André Enarg, listmálari, en
hann hefur í tvígang sýnt verk
sín á Íslandi.
Í Austur- og Vestursal Gerð-
arsafns verður opnuð sýning á
málverkum eftir Jóhannes Jó-
hannesson listmálara og höggg-
myndum og glergluggum eftir
Gerði Helgadóttur myndhöggv-
ara, undir yfirskriftinni Stefnu-
mót. Jóhannes og Gerður stund-
uðu bæði nám í París upp úr 1950
og gengu til liðs við abstraktlist-
ina þó viðfangsefni þeirra væru
æði ólík. Á sýningunni lýkur
stefnumóti verka þessara tvegg-
ja ólíku listamanna árið 1975,
þegar Gerður lést fyrir aldur
fram. Yngsta verk Jóhannesar á
sýningunni er málað árið 1998.
Um þær mundir var hann að
undirbúa einkasýningu í Austur-
sal Gerðarsafns. Hann þekkti
salinn vel, hafði sett þar upp sýn-
ingu árið 1996 á verkum eftir
góðvin sinn Sigurð Sigurðsson
listamálara sem lést nokkrum
mánuðum síðar. Tæpum tveimur
árum eftir lát Sigurðar var Jó-
hannes sjálfur allur og sárt til
þess að vita að honum skyldi
ekki endast aldur til að halda
fyrirhugaða sýningu. Í tengslum
við sýninguna kemur út bók um
verk Jóhannesar sem heitir Jó-
hannes Jóhannesson – Leikur
forms og lita. Bókin er ríkulega
myndskreytt, og þar rakin ævi-
atriði listamannsins.
Sýningarnar standa til og með
sunnudagsins 8. september.
Listasafn Kópavogs er opið alla
daga nema mánudaga frá 11-17.
edda@frettabladid.is
Stefnumót og Yfir-
grip í Gerðarsafni
Á tveimur sýningum sem verða opnaðar í Gerðarsafni í dag eru eldri
og nýrri verk Valgerðar Hafstað, málverk eftir Jóhannes Jóhannesson
og höggmyndir eftir Gerði Helgadóttur.
VALGERÐUR HAFSTAÐ
Býr og starfar í New York og býst ekki við að halda fleiri sýningar á Íslandi.
Theódóra Frímann, hjúkrunarfræðingur.
Ég er að lesa séra Jón Bjarman, Af föngum
og frjálsum mönnum.
ÓPERA Í kvöld verður frumsýnd í
Borgarleikhúsinu óperan Didó og
Eneas eftir Henry Purcell. Það er
Sumaróperan sem stendur að sýn-
ingunni. Guðný Hildur Magnús-
dóttir, aðstoðarframkvæmda-
stjóri sýningarinnar, segir Sumar-
óperuna skemmtilega og spenn-
andi nýjung í íslensku menningar-
lífi. „Hrólfur Sæmundsson fékk
hugmyndina þegar hann bjó í
Bandaríkjunum, en þar tíðkast
svona uppfærslur,“ segir Guðný.
„Hrólfur er sjálfur í öðru aðal-
hlutverki sýningarinnar og
stjórnaði kórnum til að byrja með,
en svo fengum við til liðs við okk-
ur frábæran stjórnanda frá Wa-
les, Edvard Jones sem starfar í
New York,“ segir hún. „Hann er
hér í sumarfríinu sínu og þarf að
hverfa aftur til sinna starfa í
ágúst. Þess vegna verða aðeins
fimm sýningar á verkinu.“ Magn-
ús Geir Þórðarson leikstýrir og í
aðalhlutverkum eru Ingveldur Ýr,
Hrólfur Sæmundsson, Valgerður
Guðnadóttir og Ásgerður Júníus-
dóttir. „Kórinn var svo valinn úr
fjölda umsækjenda,“ segir Guð-
ný, „en mikil gróska er í sönglífi á
landinu og mikið af hæfu fólki.“
Dido & Eneas hefur verið köll-
uð perla barrokóperanna, tónlist-
in er aðgengileg og falleg og
magnaðar aríur í verkinu. Verkið
er flutt á frummálinu ensku.
Sýningar verða í Borgarleik-
húsinu 10. 11., 15., 16., og 18.
ágúst.
Grasagarðurinn:
Blómstrandi
gul blóm
GÖNGUFERÐ Í dag
klukkan 11 verð-
ur boðið upp á
s k o ð u n a r f e r ð
um Grasagarð
R e y k j a v í k u r.
Ingunn J. Ósk-
arsdóttir garð-
yrkjufræðingur
gengur með
fólki um garðinn
og skoðaðar
verða plöntur
sem blómstra
gulum blómum. Mæting er í Lysti-
húsinu sem stendur við garðskál-
ann og er aðgangur ókeypis.
Bækur:
Bókmenntir
samkynhneigðra
BÆKUR Í tilefni dagsins birtum við
lista yfir vinsælustu bækur meðal
homma og lesbía. Þar er margt
áhugavert að finna og enginn vafi á
að gagnkynhneigðir hefðu gagn og
gaman af að lesa þessar bækur
ekki síður en samkynhneigðir. Í
fimmta sæti listans er t.d. áhuga-
verð bók um samkynhneigð Forn-
Grikkja og í öðru sæti listrænar
ljósmyndir eftir Mapplethorpe,
sem er þekktur fyrir að mynda allt
sem þykir „tabú“. Á listanum eru
líka áhugaverðar skáldsögur um
homma og lesbíur.
DIDÓ OG ENEAS
Mikið er lagt í sýninguna sem verður frum-
sýnd í kvöld. Aðeins verða fimm sýningar á
verkinu.
Borgarleikhús:
Frumsýning Sumar-
óperunnar í kvöld
FÖGUR
BLÓMABREIÐA
Skoðuð verða gul,
blómstrandi blóm í
gönguferðinni í
dag.
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
VINSÆLUSTU HOMMA OG LESBÍU-
BÆKUR Á AMAZON.COM
Dr. Sheila Kirk
FEMINIZING HORMONAL...
Robert Mapplethorpe
PICTURES: ROBERT
Gerri Hill
ONE SUMMER NIGHT
Felice Newman
THE WHOLE LESBIAN SEX...
Andrew Calimach
LOVER’S LEGENDS: THE GAY...
Lacey Leigh
OUT & ABOUT: THE ERMANCIP...
Bill Brent
TOUGH GUYS
Caroline Giorgio
LAGUNA NIGHTS
Karin Kallmaker
SUBSTITUTE FOR LOVE
Moises Kaufman
THE LARAMIE PROJECT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
Ragnarök 2002:
Efniviður
sóttur í Eddu-
kvæði
LEIKLIST Í kvöld klukkan 21 verður
frumsýnd í Smiðjunni, leikhúsi
Listaháskóla Íslands, sýningin
Ragnarök 2002. Verkið er þróunar-
verkefni unnið í leiksmiðju þar
sem þjálfun, markvissar tilraunir
og rannsóknir á efni og formi geta
af sér leiksýningu. Efniviður er að
mestu sóttur í Eddukvæðin, og
skoðaður með aðferðum tilrauna-
leikhússins. Innblástur er sóttur
víða, m. a. í smiðju japanska leik-
húslistamannsins Tadashi Suzuki.
Með því að leiða saman sviðslista-
menn frá Norðurlöndunum, með
ólíkan bakgrunn en sameiginlegan
áhuga á rannsóknum á sviði leik-
listar og menningar, stefnir Lab
Loki að því að þróa nútímalega að-
ferð til að tjá og túlka hinn samnor-
ræna menningararf. Í sýningunni
koma fram Annika Britt Lewis,
Árni Pétur Guðjónsson, Harpa
Arnardóttir, Hedda Sjögren, Ingv-
ar Sigurðsson, Magnús Þór Þor-
bergsson, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Morten Traavik, Rúnar Guðbrands-
son, Ragnheiður Skúladóttir og
Steinunn Knútsdóttir Verkefnið
var styrkt af menntamálaráðuneyt-
inu, Reykjavíkurborg, Listahá-
skóla Íslands og Nordisk Kultur-
ford.