Fréttablaðið - 24.08.2002, Page 1
bls. 22
MYNDLIST
Plötunni
snúið við
bls. 16
LAUGARDAGUR
bls. 6
157. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 24. ágúst 2002
Tónlist 14
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Kvikmynda-
skólinn tíu ára
AFMÆLI Í tilefni af tíu ára afmælis
Kvikmyndaskóla Íslands verður
opið hús í skólanum frá 13-16 í dag.
Skólinn er fluttur í gamla sjón-
varpshúsið að Laugavegi 176.
Ávörp, ný námsskrá og sýnishorn
úr kvikmyndum nemenda verða á
dagsskránni auk þess sem gestum
verða boðnar kaffiveitingar.
Loðdýra-
bændur funda
AÐALFUNDUR Samband íslenskra
loðdýrabænda heldur aðalfund í
Árnesi í Gnúpverjahreppi. Fundur-
inn hefst kl. 10.00 og eru venjuleg
aðalfundarstörf á dagsskránni.
Keflvíska innrásin
TÓNLEIKAR Keflvískar hljómsveitir
leika á Grand rokk í kvöld. Þær
sveitir sem koma fram eru Fálkar,
Gálan, KlassArt, Silfurfálkinn og
keflvíski rokkkóngurinn Rúnar Júl-
íusson.
Tveir leikir
í Símadeild
FÓTBOLTI Þór sækir ÍBV heim í leik
dagsins í Símadeild karla. FH halda
norður yfir heiðar og leika við
Þór/KA/KS í Símadeild kvenna.
Báðir leikirnir hefjast klukkan
14.00.
SKÓLI
Veit aldrei
hver er á bak
við stýrið
FRAMBOÐ
Samfylkingin
komin lengst
KOSTAR MINNA
ÍÞRÓTTIR
Að fanga
andartakið
SÍÐA 14
Alger óvissa
um framtíð
Ronaldo
SÍÐA 12
TÓNLIST
SJÁVARÚTVEGUR Eignabreytingar
innan sjávarútvegsins undan-
farna daga benda til þess að frek-
ari sameininga sé að vænta í
greininni. Fjórar
blokkir sem saman-
lagt myndu ráða
yfir um það bil
helmingi aflaheim-
ilda, eru líklegasta
niðurstaðan úr inn-
byrðis venslum
stærstu sjávarút-
vegsfyrirtækjanna.
Samherji, Eimskipafélagið,
Grandi og Afl fjárfestingarfélag
munu verða í lykilstöðu í væntan-
legu sameiningarferli.
Grandi seldi á dögunum 20%
hlut í Þormóði ramma. Kaupandi
var Afl sem hefur staðið í umtals-
verðum fjárfestingum í sjávarút-
vegi. Þorsteinn Vilhelmsson fyrr-
verandi eigandi í Samherja á 20%
í Afli. Flest bendir til þess að sala
Granda beinist að því að nota
fjármunina til að kaupa hlut
Burðaráss í Haraldi Böðvarssyni
á Akranesi. Orðrómur er um að
ekki hafi verið ráðið í stól for-
stjóra af þessum sökum. Sé þetta
rétt er talið líklegt að Haraldur
Sturlaugsson, forstjóri Haraldar
Böðvarssonar setjist í forstjóra-
stól í sameinuðu fyrirtæki.
Samherji náði fyrir skemmstu
nokkuð óvænt undirtökum í Síld-
arvinnslunni og þar með í SR-
mjöli. Burðarás, dótturfélag Eim-
skipafélagsins, missti við það tök
í þessum fyrirtækjum. Samherji
og Fjörður, fjárfestingafélag í
ráðandi eigu Þorsteins Más Bald-
vinssonar keypti samtals tæp
10% í viðbót. Þar með hefur Sam-
herji öll tök í báðum þessum fyr-
irtækjum. Þau tök verða vart lin-
uð í bráð. Þorsteinn Már Bald-
vinsson hefur lýst því að miklir
hagræðingarmöguleikar séu í
mjölvinnslu hér á landi. Hann
hefur kallað eftir fækkun verk-
smiðja. Auk þessa hefur Sam-
herji uppi áform um þátttöku í
fiskeldi. Tök á fóðurbirgjum eru
kostur í þeirri grein og hafa
norsk fiskeldisfyrirtæki verið að
fjárfesta í mjölvinnslu.
Samherji er langstærst út-
gerðarfyrirtæki landsins. Við
sameiningu Haraldar Böðvars-
sonar og Granda yrði til fyrir-
tæki sem slagaði hátt í Samherja
hvað varðar aflaheimildir og
veltu.
haflidi@frettabladid.is
ÞRÁTT FYRIR VÆTUTÍÐ HEFUR VERIÐ MARGT FERÐAMANNA Á TJALDSTÆÐINU I LAUGARDAL. Ekki er annað að sjá en
erlendu ferðamennirnir láti veðrið ekki trufla geð sitt. Eins og allir vita hefur víðar rignt en í Reykjavík. Reyndar má segja að rigning
hér sé hégómi einn miðað við það sem verið hefur annars staðar.
Stórútgerðir vilja
meiri sameiningu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
REYKJAVÍK Vestlæg átt
3-8 m/s og skýjað með
köflum. Hiti 7 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-8 Skýjað 11
Akureyri 3-5 Bjart 16
Egilsstaðir 3-5 Skýjað 14
Vestmannaeyjar 3-8 Léttskýjað 12
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
Líklegast er að til verði fjórar megin stoðir sem muni ráða yfir um
helmingi allra aflaheimilda. Samherji, Eimskip, Grandi og Afl fjárfest-
ingafélag í lykilstöðu í greininni.
Þar með hefur
Samherji öll
tök í báðum
þessum fyrir-
tækjum. Þau
tök verða vart
linuð í bráð
VIÐSKIPTI Mikil viðskipti áttu sér
stað í gær með verðtryggð skulda-
bréf, húsbréf og húsnæðisbref.
Verð á verðtryggðum skuldabréf-
um hefur verið að hækka síðustu
daga. Afföll á nýjasta flokki hús-
bréfa, sem er til 40 ára, hafa lækk-
að úr um 12,5% um miðjan júlí í
8,91%. Þetta þýðir að seljendur
húsbréfa eru að fá mun meiri pen-
ing í dag en þeir hefðu fengið fyr-
ir rúmum mánuði síðan.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, sér-
fræðingur hjá greiningu Íslands-
banka, sagði að ástæður fyrir
miklum viðskiptum með verð-
tryggð skuldabréf væru marg-
þættar. Aukin bjartsýni væri með-
al manna um að nettó frumútgáfa
nýrra skuldabréfa yrði minni en
áður hefði verið talið. Í ljósi slakr-
ar ávöxtunar lífeyrissjóðanna
teldu menn að þeir myndu verða
duglegir við að kaupa skuldabréf
á seinni hluta ársins. Erlendir
fjárfestar hefðu verið að kaupa
meira enn menn hefðu þorað að
vona og það tæki kúfinn af fram-
boðinu og yki bjartsýni. Þá hefði,
sú von manna um að Seðlabankinn
myndi lækka vexti enn frekar,
einnig áhrif á viðskipti verð-
tryggðra skuldabréfa.
Seðlabankinn benti á það Pen-
ingamálum að raunvextir verð-
tryggðra skuldabréfa hefðu enn
sem komið væri lítið lækkað og
væru í raun „mjög“ háir í ljósi
efnahagslægðar og óvissu í efna-
hagshorfum.
„Undanfarin misseri hefur
frumútgáfa á skuldabréfamarkaði
verið mjög mikil, sem hefur kom-
ið í veg fyrir að krafan lækkað.“
sagði Guðbjörg.
Mikil viðskipti með verðtryggð skuldabréf:
Afföll húsbréfa eru í níu prósent
ÞINGVELLIR
Bygging sumarhúsa og nýting á Þingvalla-
bænum hafa verið til umræðu.
Uppbygging
og niðurrif
ÞJÓÐGARÐUR Vandræði Þingvalla-
prests og nýbygging sumarhúss á
Þingvöllum hafa verið til umfjöll-
unar í blaðinu. Á bls. 10 í dag er ít-
arleg fréttaskýring um málið.
Þar segir að enginn skipar nú
stöðu Þingvallaprests þó þar sé
settur prestur um stundarsakir.
Prestar sem þar gegndu áður
embætti voru til nokkurs tíma
einnig í embætti þjóðgarðsvarðar.
Þá hafði presturinn tvær af fimm
burstum Þingvallabæjar undir
íbúð og starfsaðstöðu. Nú hefur
prestur aðeins aðgang að salerni
og skrifstofuherbergi í burstinni
næst Þingvallakirkju.
Þjóðkirkjan vill að Þingvalla-
prestur eigi vísan náttstað á Þing-
völlum. Í sumar hefur presturinn
gist á Hótel Valhöll þegar hann
hefur þurft að nátta á staðnum.
Þingvallanefnd hafnaði nýlega
ósk kirkjunnar um að komið yrði
fyrir hjólhýsi eða tjaldi á Þing-
vallatúninu.
Björn Bjarnason vildi ekkert
láta hafa eftir sér um húsbygging-
ar í þjóðgarðinum þegar Frétta-
blaðið leitaði svara hjá honum um
stefnu Þingvallanefndar í þeim
efnum. Hins vegar sagði Össur
Skarphéðinsson alþingismaður,
sem sæti á í Þingvallanefnd, að
nefndin hefði ekki mótað sér þá
stefnu að kaupa upp og fjarlægja
sumarbústaðina inn af Valhöll. „Í
ljósi þeirrar þróunar sem orðið
hefur á verði bústaðana blasir við
að það væri óðs manns æði að
henda fé skattborgaranna í það,“
sagði Össur.
Og víst er að sumarhús í þjóð-
garðinum á Þingvöllum eru ekki
gefin. Til dæmis mun einn bústað-
urinn inn með vatninu nýlega hafa
verið seldur fyrir vel á fjórða tug
milljóna króna.
Nánar á bls. 10
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á virkum dögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
21,6%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á virkum
dögum?
51,7%
61,9%