Fréttablaðið - 24.08.2002, Qupperneq 6
6 24. ágúst 2002 LAUGARDAGURSPURNING DAGSINS
Hefur þú grillað hrefnukjöt
í sumar?
Nei.
Þorleifur Jónsson
ÚTFLUTNINGUR Hlutfall sjávarút-
vegs í úrflutningstekjum þjóðar-
innar var kominn niður undir 40%
á síðasta ári. Hlutur stóriðju var
kominn í 14,6% af útflutningi
vöru og þjónustu. Útflutningur
þjónustu aflar yfir 35% af gjald-
eyristekjum þjóðarinnar. Hlutur
sjávarútvegsins í útflutningstekj-
um þjóðarinnar hefur farið minnk-
andi á síðustu 10 árum. 1992 var
hlutur sjávarútvegsins 57,5%.
Hlutur hans hefur lækkað jafnt og
þétt var kominn niður í 49% árið
1997. Á þriðja áratug síðustu aldar
var hlutur sjávarútvegsins tæp
90%, en hlutfallið fram til 1992 var
milli 60 og 70%. Ástæður lækkandi
hlutfalls sjávarútvegsins eru ekki
minnkandi tekjur af honum. Aðrar
greinar hafa verið að vaxa mun
hraðar og hlutur þeirra í gjaldeyr-
isöflun með.
Hlutur stóriðjunnar stóð nokk-
uð í stað fram til ársins 200 þá uxu
útflutningstekjur sem hlutfall
allra útflutningstekna úr 8,7% í
12%. Hlutfallið nú er talið nálægt
15%, en mun fara verulega vax-
andi gangi áform um stóriðju eftir.
Tekjur af þjónustu hafa undan-
farin ár vaxið úr 27,8 % í 35,3% .
Ferðaþjónustan á stærstan þátt í
þeirri aukningu. Tekjur af sam-
göngum er sá þáttur ferðaþjónust-
unnar sem hafa vaxið mest.
Aðrar framleiðslu- og iðnaðar-
greinar hafa vaxið á undanförnum
árum. Innan þess geira hefur lyfja-
útflutningur vaxið mikið á allra
síðustu árum. Árið 1998 var verð-
mæti lyfja í útflutningi 383 millj-
ónir. Ári síðar var verðmætið kom-
ið í 502 milljónir. Árið 2000 var yfir
100% aukning og þá var verðmæt-
ið komið í 1180 milljónir. í fyrra
voru útflutningstekjur af lyfjum
þrír og hálfur milljarður. Í ár
stefnir enn í verulega aukningu.
Útflutningsverðmætið er komið í
fjóra milljarða, en var einn millj-
arður á sama tíma í fyrra.
Ef heldur fram sem horfir stytt-
ist í að sjávarafurðir verði ekki
lengur stærsta uppspretta gjald-
eyris fyrir þjóðarbúið.
haflidi@frettabladid.is
Hlutfall sjávar-
útvegs minnkandi
Hlutfall sjávarútvegs í útflutningi vöru og þjónustu stefnir niður fyrir 40%. Var að jafnaði milli 60
og 70% síðustu áratugi 20. aldar. Lyfjaútflutningur er sá útflutningur sem hefur vaxið hraðast.
Tíföld aukning á fjórum árum.
VÆGIÐ MINNKAR
Sjávarútvegurinn hefur lengst af verið aðal uppspretta gjaldeyristekna Íslendinga. Það
kann að vera að breytast því aðrar gjaldeyrisskapandi greinar vaxa hraðar.
HLUTUR SJÁVARÚTVEGS
Í GJALDEYRISÖFLUM
1990 - 2000
1990 55,9%
1991 58,3%
1992 57,5%
1993 55%
1994 53,9%
1995 52%
1996 52,4%
1997 49%
1998 48,7%
1999 46,1%
2000 41,3%
STJÓRNMÁL „Það liggur fyrir að það
verður að fara fram kosning sem
nær að minnsta kosti til allra fé-
lagsmanna. Það er það lágmark
sem lög fulltrúaráðs flokksins
kveða á um. Það er ekki búið að
taka ákvörðun um hvort sá hópur
verði útvíkkaður,“ segir Páll Hall-
dórsson, formaður kjördæmaráðs
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Samfylkingin virðist komin
einna lengst í undirbúningi, enda
við það miðað að framboðslistar í
öllum kjördæmum liggi fyrir eigi
síðar en 1. desember. Þótt Reykja-
vík hafi verið skipt í 2 kjördæmi
starfar aðeins eitt kjördæmaráð
af hálfu Samfylkingarinnar í
borginni. Ráðið mun á næstunni
þinga um fyrirkomulagið, meðal
annars um tilmæli framkvæmda-
stjórnar flokksins.
Mælst er til þess að raðað verði
á framboðslista í þremur umferð-
um. Með tilnefningu, þá prófkjöri
meðal flokksfélaga og er kjör-
dæmisráðum í sjálfsvald sett um
hve mörg sæti þau láta kjósa. Nið-
urstaðan úr prófkjörinu verður
bindandi. Valnefnd mun síðan
ljúka endanlegri gerð framboðs-
lista.
Skipan á framboðslista:
Samfylkingin komin
lengst í undirbúningi
ÞINGMENN SAMFYLKINGARINNAR
Skýrist brátt hverjir af sitjandi þingmön-
num komast gegnum prófkjör flokksins
Kópavogur:
Brotist inn
í tíu bíla
LÖGREGLA Brostist var inn í tíu bíla
miðsvæðis í Kópavogi í fyrrinótt.
Hliðarrúður höfðu verið brotn-
ar úr bílunum. Úr hverjum og ein-
um þeirra var stolið hljómflutn-
ingstækjum auk geisladiska og
annars smálegs. Tjón á bílunum
var töluvert og verðmæti þýfisins
er nokkuð. Þá var einnig brotist
inn í atvinnuhúsnæði og stolið
rafsuðutækjum.
Lögreglan í Kópavogi er að
rannsaka þessi mál. Allar upplýs-
ingar frá almenningi er sagðar vel
þegnar og þeir sem búa yfir
upplýsingum eru beðnir að hafa
samband við lögregluna.
STOFNFJÁREIGENDUR Persónuvernd
hefur kveðið upp úrskurð um að
Oddi Ingimarssyni hafi sem
stofnfjáreiganda í SPRON verið
heimilt að lesa inn á segulband
nöfn og heimilisföng stofnfjár-
eiganda í stofnfjáreigendaskrá
SPRON. Markmið hans var að
hafa samband við aðra stofnfjár-
eigendur og freista þess að boða
þá til fundar og gera þeim grein
fyrir viðhorfum hans og hóps
stofnfjárfesta um kaup og kjör á
stofnhlutum. Persónuvernd telur
að Oddi og félögum hans, sem
ábyrgðaraðilum gagnavinnslunn-
ar, hafi verið heimilt að fá Búnað-
arbanka Íslands sem vinnsluaðila
til að aðstoða þá við framkvæmd-
ina.
Bandarísk herskip:
Landhelgis-
gæslan sér
um öryggis-
gæslu
HERSKIP Landhelgisgæslan mun
sjá um öryggisgæslu á sjó vegna
komu þriggja bandarískra her-
skipa, USS Carr, USS Arleigh
Burke og USS Porter sem eru
væntanleg til Reykjavíkur sein-
na í dag. Þau munu liggja við
akkeri á ytri höfninni fram á
mánudag. Í tilkynningu til sjó-
farenda á hafnarsvæði Reykja-
víkur sem gefin er út af Land-
helgisgæslu Íslands og Reykja-
víkurhöfn segir að sjófarendum
sé óheimilt að sigla nær skipun-
um en sem nemur 100 metra
fjarlægð.
Stofnfjáreigandi SPRON:
Mátti lesa inn á segulband
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
Heimilt var að lesa nöfnin inn
á segulband.
Handskorin massíf hús-
gögn, sófasett, barir, inn-
skotsborð, kistur, rococco
stólar.
ÓTRÚLEGT TÆKIFÆRI AÐ EIGN-
AST EKTA PELSA, LEÐURVÖR-
UR, RÚMTEPPI, PÚÐAVER, DAG-
DÚKA, LJÓS O G GJAFAVÖRUR
Á HÁLFVIRÐI.
Opið virka daga 11-18 laugard 11-15
SPRENGITILBOÐ
V/BREYTINGA
50%
afsláttur
AF ÖLLU Í BÚÐINNI
SIGURSTJARNA
Bláu húsi Fákafeni s. 588-4545