Fréttablaðið - 24.08.2002, Síða 14

Fréttablaðið - 24.08.2002, Síða 14
14 24. ágúst 2002 LAUGARDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Caroline Corr, trommuleikariírsku systkinasveitarinnar The Corrs, gifti sig á Majorca á fimmtudag. Eiginmaðurinn heitir Frank Woods og starfar hann í fasteignarbraski. Brúðurin mætti í kirkjuna í Rolls Royce sem bróðir hennar keyrði. Á meðal brúðkaups- gesta voru þeir Bono og The Edge, enda er ekk- ert fjör í því að halda brúðkaup fyrir fræga fólkið ef þá vantar. Leikarinn Ralph Fiennes segirað myndin „Red Dragon“, sem verður sú þriðja þar sem leikar- inn Anthony Hopkins leikur mannætuna Hannibal Lecter, verði mun líkari „Silence of the Lambs“ en nokkurn tímann „Hannibal“. Hann segir hana vera mun meiri sál- fræðitrylli en sjónræna, sem mörgum finnst líklegast ánægju- legt eftir opinskáan hrylling síð- ustu myndar. Ásamt Hopkins og Fiennes leika í myndinni Edward Norton og Phillip Seymour Hoffman. Myndin verður frum- sýnd í Bandaríkjunum í október. Vandræði hljómsveitarinnarThe Hives halda stöðugt áfram. Nú fullyrða liðsmenn sveitarinnar að fyrrum plötufyrir- tæki þeirra Burning Heart hafi engan rétt á næstu breiðskífu sveitarinnar. Fyrirtækið heldur því fram að sveitin hafi skuldað sér eina plötu til viðbótar þegar þeir skrifuðu undir nýjan samn- ing við plöturisann Universal. Þeir segjast alltaf hafa verið stolt- ir af því að vera útgefendur sveit- arinnar en nú neyðist þeir til að lögsækja þá til að vernda réttindi sín. Lagadeilan gæti hugsanlega stöðvað alla plötuútgáfu sveitar- innar um ófyrirsjáanlega framtíð. Við skulum þó vona að sænsku piltarnir láti þetta ekki of mikið á sig fá og verði í hörku stuði þegar þeir koma hingað til lands í októ- ber að leika á Airwaveshátíðinni. TÓNLIST Nú þegar ættu lands- menn að vera byrjaðir að raula með „In my Place“ nýjasta smá- skífulagi Íslandsvinanna í Cold- play. Vingjarnlegi og ofvirki söngvarinn með hvolpaaugun segir að nýjasta breiðskífa þeir- ra, „A Rush of Blood to the Head“ sem kemur út formlega á mánudag, sé það besta sem þeir félagar hafi mögulega getað sett saman á þeim tíma sem þeir höfðu til verksins. Oft er sagt að hljómsveitir hafi um 6 ár að gera sína fyrstu plötu og svo 6 mánuði að gera plötu númer tvö. Útgefendur sveitarinnar höfðu verið að von- ast eftir því að „Parachutes“ myndi seljast í um 50 þúsund eintökum en öllum að óvörum sigruðu blíðir tónar sveitarinnar nokkur milljón pör af eyrum um allan heim. Álagið að fylgja slíkri velgengni eftir hlýtur því að vera gífurlegt og flestir spyr- ja sig líklegast hvort sveitin geti mögulega staðist væntingar. Í viðtölum virðast liðsmenn þó óvenjulega rólegir og fullir af sjálfstrausti. Titill plötunnar vísar til þess sem gerist sjálfkrafa og án greinilegra orsaka. Eins konar óður til hugtaksins „Carpe Diem“ sem hvetur menn til að grípa andartakið og nýta sér það til fullnustu. Liðsmenn sveitar- innar segja þetta lýsandi yfir það hvernig lög þeirra fæðast. Eitt andartak kemur laglína upp í kollinn á Chris Martin, söngv- ara og höfuðpaur. Hinir liðs- menn grípa hana á lofti og láta hana örva sitt hugarflug og reyna að tjá í gegnum hljóðfæri sín þær tilfinningar sem hún vekur. Þannig sé nýja platan unninn og segjast liðsmenn allir standa og falla með útkomunni. Lögin eru 11 og ættu glöggir hlustendur að kannast við nokk- ur þeirra þar sem sveitin lék þau á eftirminnilegum tónleikum sínum í Laugardalshöll fyrir ári. Í tilefni útgáfu plötunnar ætl- ar verslun Skífunnar á Laugar- veginum að opna eftir miðnætti á sunnudagskvöld í klukkustund til þess að hörðustu aðdáendur Coldplay geti tryggt sér eintak fyrstir. biggi@frettabladid.is THE SWEETEST THING kl. 8 og 10 MEN IN BLACK 2 kl. 2, 4 og 6 STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 2, 4 og 6 STÚART LITLI 2 m/ens. tali 2, 4, 6 og 8 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 8, 10 og 11 Powersýning kl. 2 og 4FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4, 6 og 8CLOCKSTOPPERS VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 2, 4 og 6 ABOUT A BOY kl. 6, 8 og 10.05 HJÁLP ÉG ER FISKUR kl. 2 MOTHMAN PROPHECIES 8 og 10.20 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.30 kl. 10NOVOCAINE SCOOBY DOO kl. 2, 4 og 6 VIT398 EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417 SUM OF ALL FEARS 5.30, 8 og 10.30 VIT420 MR. BONES kl. 8 og 10.10 VIT415 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali 2, 4 og 6 VIT418 VILLTI FOLINN m/ísl. tali 2 og 3.45 VIT410 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 VIT 426 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 422 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT 423 COLDPLAY Eyddu sjö mánuðum í upptökur á plötunni og segjast ekki geta hugsað sér að renna henni á fóninn í bráð. Að fanga andartakið Fyrsta breiðskífa bresku sveitarinnar Coldplay vann hylli margra hér á landi með vingjarnlegum laglínum og lögum sem særa ekki blygðunarkennd neins. Nú er komið að annarri plötunni, „A Rush of Blood to the Head“, sem kemur í búðir á mánudag. KVIKMYNDIR Kvikmyndafyrirtækið 20th Century Fox hefur ákveðið að endurgera bresku myndina „Fever Pitch“ sem gerð var eftir metsölu- bók rithöfundarins Nick Hornby. Þetta er gert í kjölfar gífurlegra vinsælda myndarinnar „About a Boy“ sem einnig er eftir sögu Hornby. Þriðja myndin sem gerð hefur verið eftir sögu hans var hin bráðskemmtilega „High Fidelity“. Sagan „Fever Pitch“, og breska kvikmyndaútgáfan, fjallar um æstan aðdáanda fótboltaliðsins Arsenal og árekstra áhugamáls hans og ástarinnar. Það kemur lík- legast fáum á óvart að bandarísku framleiðendum fannst knatt- spyrna ekki nægilega söluvæn íþrótt í heimalandi sínu og hefur henni því verið skipt út fyrir hafn- arbolta. Aðalpersónan verður því æstur aðdáandi Red Sox. Knatt- spyrna hefur greinilega ekki náð fótfestu í Bandaríkjunum þrátt fyrir ágætis gengi þeirra í heims- meistarakeppninni síðast. Það var leikarinn Colin Firth, sem margir muna eftir úr kvik- myndinni um Brigdet Jones, sem fór með aðalhlutverkið í hinni upp- haflegu „Fever Pitch“ árið 1997.  Bandarísk endurútgáfa „Fever Pitch“: Fótbolti út fyrir hafnarbolta COLIN FIRTH Sést hér (til vinstri) í nýjustu mynd sinni „The Importance of Being Ernest. Hann kemur líklegast ekkert nærri bandarískri endurgerð „Fever Pitch“. BRITNEY SPEARS Segir að foreldrar sínir hefðu átt að skilja fyrir 10 árum. Vonandi eru þau sammála því. Britney Spears: Ánægð með skilnað for- eldra sinna FÓLK Poppdúkkan Britney Spears segist vera himinlifandi yfir því að foreldrar hennar hafi ákveðið að skilja. Að hennar mati hefðu þau átt að gera það fyrir mörgum árum. Vangaveltur hafa verið um það hvort stúlkan hafi verið nærri taugaáfalli á síðustu mánuðum en hún hefur nýlega tilkynnt að hún ætli sér að taka langt frí frá skemmtanaiðnaðinum. Hún neitar því og segir loksins vera komin yfir sambandslit sitt og söngvar- ans Justin Timberlake úr stráka- sveitinni NSync. Hún segist þó ótt- ast að fjölmiðlar skerði frelsi hennar sem manneskju. Hún sé eins og allar aðrar stúlkur á sínum aldri. Hún reyki, drekki og skemmti sér. „Góðu stúlku“- ímyndin er því formlega farin í hundanna.  Jennifer Aniston: Bjargar mannslífi FÓLK Leikkonan Jennifer Aniston, sem leikur Rachel í „Friends“, kom kafnandi manni til bjargar á veitingastað í Los Angeles á fimmtudag. Stúlkan sá hvar stóð í manninum og reis úr sæti sínu og náði bitanum úr hálsi hans með „Heimlich“ aðferðinni. Vitni segja að Aniston hafi án efa bjargað lífi mannsins þar sem hann var að verða blár í framan af súrefnisleysi. Vinur leikkonunnar greindi frá því að stúlkan hefði lært skyndi- hjálp fyrir mörgum árum en hefði ekki þurft að styðjast við hana þar til nú. Við getum verið viss um það að veitingahúsgesturinn hef- ur ekki kvartað yfir því. Jennifer er því svo sannarlega vinur í raun. 

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.