Fréttablaðið - 24.08.2002, Side 19
19LAUGARDAGUR 24. ágúst 2002
Freestyle og Streetjass
Jassballett
Modern
Söngleikjadans
Birnu Björns
561 3535
Innritun í síma
564 4050
og
Kennt í Þrekhúsinu
Fyrir krakka á öllum aldri
Frostaskjóli 6 Dalsmára 9-11
og Sporthúsinu
ansstúdíóD
Ve
rk
sm
ið
ja
n
/ Á
gú
st
a
S.
G.
MÁLVERKASTULDUR 16. aldar málverk
eftir feneyska meistarann Titian,
sem var stolið úr Longleat-setrinu
í Wiltshire í janúar 1995, er nú
komið í leitirnar. Málverkið
fannst óskemmt í innkaupapoka,
en þó án rammans. Málverkið er
metið á fimm milljónir punda og
var í eigu markgreifans af Bath,
eiganda Longleat. „Ég bíð eftir að
sjá það með eigin augum áður en
ég verð of spenntur eða geri
nokkrar ráðstafanir,“ segir mark-
greifinn, en málverkið fannst eft-
ir langa leit sem stjórnað var af
fyrrum rannsóknarlögreglumanni
hjá Scotland Yard, Charles Hill.
„Þetta er ákaflega ánægjulegt,“
segir umsjónarmaður Longleat-
setursins, Tim Moore. „Hill var
reyndar alltaf sannfærður um að
leit hans bæri árangur. Við erum
mjög þakklátir fyrir hans frá-
bæra starf.“
Málverkið verður nú fært til
skoðunar og lagfært eins og með
þarf. Á málverkinu, sem ber nafn-
ið „Áð á flótta til Egyptalands“,
má sjá Jósef og Maríu mey sem
faðmar að sér Jesúbarnið. Mark-
greifinn af Bath keypti málverkið
árið 1978.
MÁLVERKIÐ
Er metið á fimm milljónir punda.
Stolið meistaraverk:
Fannst í innkaupapoka
Bíræfnir þjófar í
Dickens House:
Stálu frum-
útgáfum um
hábjartan
dag
STULDUR Þremur fyrstu útgáfunum
af Jólasögu Dickens, The
Christmas Carol, var stolið úr
Dickens House Museum í London
á fimmtudag. Þjófarnir skáru
bækurnar lausar úr lokuðum gler-
skáp og gengu óáreittir út úr safn-
inu með feng sinn. Þjófnaðurinn
mun hafa átt sér stað milli klukk-
an 15 og 17, þegar gestir eru
margir á staðnum. Bækurnar eru
metnar á 20.000-30.000 pund hver.
„Það er dapurlegt og jafnframt
kaldhæðnislegt, að þetta er bók
Dickens um góðvild til allra
manna,“ sagði forstjóri safnsins,
Andrew Xavier. „Það er líka sorg-
legt að nú verðum við að taka í
burtu verðmætustu hlutina á
safninu meðan hugað er að hert-
um öryggisráðstöfunum.“
Þjófarnir höfðu einnig gert til-
raun til að ná út úr glerskáp ein-
tökum af „The Picwick Papers, en
ekki haft erindi sem erfiði. Safnið
er við Doughty Street í Blooms-
bury, þar sem Dickens bjó á árun-
um 1837-1839. Þar skrifaði hann
meðal annars fyrstu sögu sína í
fullri lengd, The Picwick Papers,
og söguna um Oliver Tvist.
BÍÓ Það er ekki á hverjum degi
sem Íslendingum gefst kostur á
að fara í bílabíó. Í fyrrakvöld
gafst íbúum höfuðborgarsvæðis-
ins kostur á að sjá hina gömlu og
góðu íslensku bíómynd, Sódómu
Reykjavík, í bílabíói í Kópavogin-
um. Greinilegt var á viðtökunum
að mikill áhugi er hér fyrir bíla-
bíói.
Rúmlega 200 bílar komust fyr-
ir en að sögn forráðamanna
Toyota - betri notaðra bíla taldist
þeim til að hátt í 300 bílar hefðu
orðið frá að hverfa. Nokkur um-
ferðarteppa myndaðist því.
Áhorfendur hlustuðu á hljóðið
í gegnum bílútvarpstæki sín en
það var sent út á sérstakri FM
tíðni.
Bílabíóið var haldið í tilefni af
bíódögum sem Toyota - betri not-
aðir bílar, stendur fyrir um þess-
ar mundir.
Bílabíó í Kópavogi:
Fjöldi varð frá að hverfa
BÍLABÍÓ Í KÓPAVOGI
Í fyrrakvöld stóð Toyota - betri notaðir bílar fyrir bílabíói við húsakynni sín.
Kvöldskóli
BHS
Innritun í kvöldskóla Borgarholtskóla
verður eftirfarandi daga:
föstudaginn 23. ágúst frá 17 – 19
miðvikudaginn 28. ágúst frá 10 – 16
laugardaginn 24. ágúst frá 10 – 13
fimmtudaginn 29. ágúst frá 10 – 16
mánudaginn 26. ágúst frá 10 – 16
föstudaginn 30. ágúst frá 17 – 19
þriðjudaginn 27. ágúst frá 10 – 16
laugardaginn 31. ágúst frá 10 – 13
Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir almennt bóknám og málmiðn-
greinar:
DAN – 102 EFM –102 GRT - 103
ENS - 102 CAD –113 GRT - 203
ENS - 202 GÆV-102 MÆM-101
ÍSL - 102 ITM - 114 ITM- 213
STÆ – 102 VFR- 102 TTÖ - 102
TÖL – 102 ITB- allir áfangar
Einnig eru kenndar allar suðugreinar, ss. MIG/MAG, TIG, log og
rafsuða.
Námið er ætlað málm- og véltækninemum en einnig eru almenn-
ar greinar opnar öllum sem vilja hefja framhaldsskólanám. Þeim
sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum gefst hér einnig
kostur á að bæta sig.
Upphaf kennslu:
mánudaginn 2. september ( frá kl. - 1810 – 2230 )
Lok kennslu:
laugardaginn 7. desmber
Ath: Ofantaldir áfangar geta fallið niður náist ekki nægur fjöldi í
hópa.
Innritunargjald verður kr. 14.000 og til viðbótar kr. 1250 á bók-
lega einingu og kr. 2500 á einingu í verklegum áföngum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu: www.bhs.is