Fréttablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 13
12 3. september 2002 ÞRIÐJUDAGFÓTBOLTI
BLESSAÐUR
Strípalingur hljóp inn á völlinn í bikarleik
Bayern Munchen og áhugamannaliðsins
SV Werder Bremen. Hér heilsar maðurinn
Oliver Khan fyrirliða Bayern og þýska
landsliðsins.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
FÓTBOLTI Milene Domingues, eigin-
kona Ronaldos, grét í tvær klukku-
stundir eftir að ljóst var að kapp-
inn myndi flytja sig um set til
spænska liðsins Real Madrid. Hún
hefur margoft lýst því yfir að hún
vilji ekki flytja frá Ítalíu en ákvað
þó að flytja með honum að lokum.
Líklegt þykir að hún muni sjálf
reyna fyrir sér í knattspyrnunni
þar í landi en hún hefur gert góða
hluti með ítalska liðinu Fi-
ammamonza. Nú hefur Atletico de
Madrid gert henni tilboð.
„Við munum reyna fá hana til
liðs við okkur. Ég er viss um að hún
muni læra margt hjá okkur
verði fljót að aðlagast lífinu hé
Spáni,“ sagði Lola Herrera, for
kvennadeildar Atletico Madrid
Raffaele Solimeno, þjálfari
ammamonza, segir að stúlkan h
orðið fyrir miklu áfalli þegar lj
var að Ronaldo færi til Madríd
liðsins. „Við töluðum saman og h
sagði mér að það væri ekk
draumalíf að flytjast á milli lan
Hún vill heldur ekki þurfa að æ
alein.“ Þjálfarinn segist einnig
eftir henni sem leikmanni. „Hún
sannur leikmaður sem á eftir
gera góða hluti á Spáni.“
Milene Domingues, eiginkona Ronaldo:
Grét í tvo tíma
út af flutningum
FÓTBOLTI Markahæsti leikmaður
HM í knattspyrnu síðasta sumar,
Brasilíumaðurinn Ronaldo, bætt-
ist á laugardaginn í glansmynda-
safn Evrópumeistara Real Madrid
eftir að hann gerði fjögurra ára
samning við liðið nú um helgina.
Þar hittir hann fyrir hóp stórkost-
legra knattspyrnumanna á borð
við Frakkann Zinedine Zidane,
Portúgalann Luis Figo, Brasilíu-
manninn Roberto Carlos og
heimamanninn, hinn spænska
Raul.
Ronaldo Luiz Nazario de Lima,
eins og Ronaldo heitir réttu nafni,
er 25 ára gamall. Vakti hann fyrst
athygli sem leikmaður brasilíska
félagsins Cruzero, þá 16 ára gam-
all. Bobby Robson, þáverandi
knattspyrnustjóri hjá hollenska
liðinu PSV Eindhoven lokkaði
drenginn þá til sín og fékk honum
stórt hlutverk í framlínu liðsins.
Hjá PSV skoraði Ronaldo 42 mörk
í aðeins 46 leikjum og varð fyrir
vikið eftirsóttur af öllum stærstu
félögum heims. Eftir mikið kapp-
hlaup tókst spænska stórveldinu
Barcelona að klófesta kappann og
þar skoraði hann 47 mörk á fyrsta
og jafnframt eina tímabili sínu
með liðinu. Ronaldo var í kjölfarið
kjörinn leikmaður ársins hjá Al-
þjóða knattspyrnusambandinu,
FIFA, árið 1996.
Næst í röðinni til að njóta
krafta brasilíska undrabarnsins
var ítalska félagið Inter Milan.
Þar stóð hann sig með prýði og
var aftur kjörinn leikmaður árs-
ins hjá FIFA. Ronaldo stóð sig
á HM í Frakklandi árið 1998,
þar til kom að úrslitaleiknum
Frakka þar sem hann var aðe
skugginn af sjálfum sér. Ári sí
meiddist hann illa á hné í leik m
Inter og spilaði ekki að ráði f
en á síðasta heimsmeistaram
Þar fór hann á kostum og vís
öllum gagnrýnisröddum um
hann væri búinn að vera á bug
Áhangendur Real Madrid
næstu fjögur tímabil að nj
snilldartilþrifa kappans og m
þeir búast við sannkallaðri st
stjörnuveislu næstu keppnistím
bil þar sem hver kempan á fæ
annarri á eftir að láta ljós
skína. Hvort liðið nær að ha
stöðu sinni sem besta lið Evróp
hins vegar eftir að koma í ljós
freyr@frettablad
Nýjasta glans-
myndin í safni
Real Madrid
Brasilíumaðurinn Ronaldo kynntur sem ný
leikmaður liðsins í gær. Klæðist treyju núme
11. Stórstjörnuveisla framundan á Santiago
Bernabeu-leikvanginum í Madrid.
RONALDO
Ronaldo brosir breitt á Santiago Berna
leikvanginum í Madrid eftir að hann v
kynntur sem nýr leikmaður Real Mad
Ronaldo mun klæðast treyju númer 11
liðinu. Hann var keyptur fyrir um 3,5 m
arða króna.
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Nýkrýndir bikarmeistar-
ar KR geta tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í kvöld þegar þær
mæta ÍBV í næst síðustu umferð
deildarinnar í Vestmannaeyjum.
KR hefur sex stiga forystu á Val
og nægir því jafntefli í leiknum í
kvöld. Valur mætir Grindavík að
Hlíðarenda og á sigurinn vísan.
Grindavík er í lang neðsta sæti
deildarinnar og er fallið. FH
stúlkur eru í harðri baráttu um að
halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
Hafnarfjarðarliðið fær Breiðablik
í heimsókn. Breiðablik er í þriðja
sæti, tveimur stigum á eftir Val.
Ætli þær sér að ná öðru sætinu
verða þær að vinna í kvöld. Allir
leikirnir hefjast klukkan 18.
Símadeild kvenna:
KR getur
tryggt sér
titilinn
17:00 Helgafellsvöllur
3. deild karla Úrslit
(KFS - Leiknir F.)
17:30 Eskifjarðarvöllur
3. deild karla Úrslit
(Fjarðabyggð - Fjölnir)
17.15 Sýn
Íslensku mörkin
17.45 Sýn
Íþróttir um allan heim
18.00 Hásteinsvöllur
Símadeild kvenna (ÍBV - KR)
18:00 Hlíðarendi
Símadeild kvenna
(Valur - Grindavík)
18:00 Kaplakriki
Símadeild kvenna
(FH - Breiðablik)
18.45 Sýn
Enski boltinn
(Man. Utd. - Middlesbrough)
FÓTBOLTI Fylkismenn lögðu Þórs-
ara að velli á Akureyri í gær-
kvöldi. Theódór Óskarsson skor-
aði eina mark leiksins fyrir að-
komumennina sem komust í efsta
sæti deildarinnar við sigurinn.
Þórsarar horfa hins vegar fram á
það að þurfa að leggja KR og
Grindavík að velli í lokaumferð-
unum til að falla ekki.
KR-ingar sem voru á toppnum
fyrir leikina í gær náðu aðeins jafn-
tefli við lið ÍBV. Eyjamenn, sem
léku sinn fyrsta leik undir stjórn
Hallgríms Heimissonar, komust
yfir á 13. mínútu með marki Gunn-
ars H. Þorvaldssonar. Einar Þór
Daníelsson náði að jafna leikinn
fyrir leikslok en þar við sat.
Markalaus jafntefli voru niður-
staða hinna leikjanna sem leiknir
voru í gær. Liðin í þriðja og fjórða
sæti, Grindavík og KA, gerðu
jafntefli suður með sjó. Í Hafnar-
firðinum tókst hvorki FH-ingum
né Keflvíkingum að bera sigur úr
býtum sem hefði gulltryggt sæti
liðanna í deildinni.
Spennan heldur því áfram
jafnt á toppi deildarinnar sem á
botni. Fylkismenn geta tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í næstu
umferð með sigri á KR í Árbæn-
um. Fjögur lið eru enn í raunveru-
legri fallhættu, ÍBV, Keflavík,
Fram og Þór.
Enn skiptast KR og Fylkir á forystusætinu:
Fylkir skaust á toppinn
HART BARIST Í HAFNARFIRÐI
Þrátt fyrir að hart væri tekist á í leik FH og Keflavíkur tókst hvorugu liðinu að skora
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T