Fréttablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 4
4 3. september 2002 ÞRIÐJUDAGURSVONA ERUM VIÐ
FÓLKI Í FRAMHALDSNÁMI FJÖLGAR
Í október 2001 voru alls 32.704 nemendur
við nám í framhaldsskólum og háskólum
hér á landi, samkvæmt tölum Hagstofunn-
ar. Þetta er fjölgun um 1.905 nemendur frá
sama tíma árið 2000 eða 6,2%. Nemendur
við nám erlendis voru 1.811 talsins og hef-
ur fjölgað um 6,2% frá haustinu 2000.
INNLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR
INNLENT
FÓLK Í FRAMHALDSNÁMI
2000 2001
30.835 32.740
STJÓRNMÁL Aðstoðarmaður sam-
gönguráðherra vísar á bug þrálát-
um orðrómi þess efnis að Sturla
Böðvarsson hyggist draga sig í
hlé úr stjórnmálum og taka við
starfi Vegamálastjóra: „Þessu
verðum við að svara með stóru
neii,“ segir Jakob Falur Garðar-
son, aðstoðarmaður samgöngu-
ráðherra, en viðurkennir þó að
hafa heyrt þessa getið.
Sama er uppi á teningnum hjá
starfsmönnum Vegagerðarinnar
sem sjá fram á að nýr vegamála-
stjóri verði settur í
embætti þegar Helgi
Hallgrímsson, núver-
andi yfirmaður Vega-
gerðarinnar, verður sjö-
tugur í febrúar á næsta
ári. Horfa menn þar
helst til Jóns Rögn-
valdssonar aðstoðar-
vegamálastjóra til mar-
gra ára.
„Sturla hlyti að hafa
sagt mér þetta ef til
stæði,“ segir Ellert
Kristinsson, náinn
samstarfsmaður ráð-
herrans í Stykkis-
hólmi, þar sem Sturla
Böðvarsson var lengi
bæjastjóri. „Við vor-
um saman í bæjar-
stjórn í 23 ár,“ segir
Ellert.
Þrátt fyrir þetta
gengur illa að jarða
orðróminn á Snæfells-
nesi og er um fátt
meira rætt á heima-
slóðum ráherrans. Líta margir
stuðningsmenn Sturlu svo á að
brotthvarf hans úr stjórnmálum í
stól Vegamálastjóra sé góður
kostur. Allir þingmenn flokksins í
nýju Norðvestur - kjördæmi ætli
að halda áfram og útkoman geti
orðið óljós. Þá er Sturla menntað-
ur byggingatæknifræðingur sem
nýtast mundi honum vel í starfi
Vegamálastjóra auk margra ára
reynslu sem samgönguráðherra
og þar með yfirmaður vegamála í
landinu.
Brotist var inn í tvo bíla íGarðabæ og í nýbyggingu í
Hafnarfirði um helgina. Þá var
tilkynnt um rúðubrot í Hvaleyr-
arskóla þar sem brotin var ein
rúða. Lögreglan í Hafnarfirði
fékk tilkynningu um að ýmsir
hlutir hefðu fundist í ruslatunnu
við bensínstöð í Garðabæ. Við
nánari skoðun kom í ljós að þar
voru flugfarseðlar og ýmsir
aðrir hluti sem stolið hafði ver-
ið af erlendum ferðamönnum á
hóteli í Reykjavík deginum
áður.
Sjónvarvottur sá til nokkurrapilta sem voru að eiga við
eftirlitsmyndavélar við Breið-
holtsskóla snemma á sunnu-
dagsmorgun. Þá var tilkynnt til
lögreglunnar í Reykjavík um að
högg heyrðust koma frá skólan-
um. Gat sjónvarvottur gefið
góða lýsingu á strákunum sem
voru handteknir stuttu síðar í
íbúð skammt frá.
FRAMBOÐ Framámenn í Framsókn-
arflokknum telja öruggt að Hall-
dór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, tilkynni formlega í
næsta mánuði ákvörðun sína um
framboð fyrir flokkinn í öðru
Reykjavíkurkjördæmanna. Kjör-
dæmisþing Framsóknar-
flokksins í Norðaustur-
kjördæmi verður haldið á
Egilsstöðum 18. og 19.
október og þar vænta
menn formlegrar yfirlýs-
ingar formannsins. Við-
mælendur blaðsins sögðu
að hart yrði gengið eftir slíkri yf-
irlýsingu, yrði hún ekki þegar
komin fram.
Stjórn kjördæmasambands
Framsóknarmanna í Norðaustur-
kjördæmi þingaði á Kleifum í
Ólafsfirði um helgina og ræddi
meðal annars vinnubrögð við
framboðsmál til Alþingis í hinu
nýja kjördæmi. Skipuð var sér-
stök framboðsnefnd og er henni
ætlað að vinna tillögur um aðferð
við uppstillingu fyrir kjördæmis-
þingið á Egilsstöðum í október.
Eftir að Halldór Ásgrímsson,
formaður flokksins hefur flutt
sig um set til Reykjavíkur
standa eftir tveir ráðherr-
ar í kjördæminu, þau Val-
gerður Sverrisdóttir iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra
og Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðherra. Þau munu
án nokkurs vafa skipa tvö efstu
sæti listans. Nafn Þórarins E.
Sveinssonar, fyrrverandi sam-
lagsstjóra KEA á Akureyri hefur
þráfaldlega komið upp þegar
rætt er um nýja frambjóðendur
en hann ku sækjast eftir þriðja
sætinu.
Þórarinn er nýr í lands-
málapólitík en síður en svo ný-
græðingur í stjórnmálum. Hann
tók virkan þátt í bæjarmálum á
Akureyri um margra ára skeið en
hefur staðið á hliðarlínunni síð-
ustu árin.
Framsóknarflokkurinn á nú
tvo þingmenn í Austurlandskjör-
dæmi og 1 í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
Níu kjördæmakjörnir þing-
menn verða í nýju Norðaustur-
kjördæmi, auk eins landskjörins
þingmanns. Framsóknarmenn
telja ekki óraunhæft að ná inn
þremur þingmönnum, gæla jafn-
vel við 4 þingmenn.
Stefnt er að endanlegum frá-
gangi framboðslista Framsóknar-
flokksins í Norðausturkjördæmi
á aukakjördæmisþingi sem hald-
ið verður á Akureyri í lok janúar.
the@frettabladid.is
Fimm þjónustuíbúðir fyriraldraða voru teknar í notkun á
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Tjörn á Þingeyri við hátíðlega at-
höfn í fyrradag. Íbúðirnar eru
ætlaðar eldri borgurum sem geta
séð um sig sjálfir en geta ef þeir
vilja nýtt sér ákveðna þjónustu
innanhúss, svo sem með því að
kaupa mat og þvotta. bb.is
Starfsmenn Ísafjarðarbæjarvoru á vakt í fyrrinótt og
fylgdust með gangi mála í hlíðum
ofan byggðar á Ísafirði, en tölu-
verð hætta var talinn á aurskrið-
um. Lögð áhersla á að gæta þess
að skurðir sem gerðir hafa verið
ofan byggðarinnar til að taka við
aur og flóðvatni héldust hreinir.
Ekki er vitað um neinar aurskrið-
ur sem heitið geti eða neitt tjón
af völdum vatnsveðursins á Ísa-
firði. bb.is
Íþróttanefnd ríkisins fór í skoð-unar- og kynnisferð um þétt-
býliskjarnana á norðanverðum
Vestfjörðum fyrir stuttu. Í tilefni
af ferðinni styrkti nefndin átta
íþróttafélög á svæðinu um alls
1.750 þúsundir króna. bb.is
Lögreglan á Selfossi þurfti aðhafa afskipti af börnum sem
voru að klifra í Ölfusárbrú í síð-
ustu viku. Dagskráin
Heilbrigðiseftirlit Vesturlandshefur gert athugasemdir við
öryggismál gæsluvallarins við
Háholt á Akranesi. Bæjarráð
Akraness hefur tekið málið til
umfjöllunar og hefur því verið
vísað áfram til tækni- og um-
hverfissviðs sem mun gera tillög-
ur til úrbóta. Í bréfi heilbrigðis-
eftirlitsins eru gerðar athuga-
semdir við millibil millitrappa í
kastala og farið er fram á að
skipt verði um vegasalt, undirlag
hjá leiktækjum lagfært, endar á
boltum í girðingu slípaðir niður
og smábarnasalerni sett upp.
skessuhorn.is
Mikil umferðarteppa var ígærmorgun við aðalhlið
Keflavíkurflugvallar í kjölfar
þess að Grænáshliðið var lokað
vegna frídags hjá Varnarliðs-
mönnum. Bílalest náði um tíma
langt út á Reykjanesbrautina.
WASHINGTON, AP Múslimar í Banda-
ríkjunum eru staðráðnir í að láta
ekki sitt eftir liggja við minning-
arathafnir þann 11. september
næstkomandi.
Eftir árásirnar á New York og
Washington birtu leiðtogar músli-
ma í Bandaríkjunum fjölmargar
yfirlýsingar þar sem þeir for-
dæmdu árásirnar og lýstu samúð
sinni með fórnarlömbum þeirra.
Engu að síður segjast þeir hafa
orðið varir við það undanfarna
mánuði, að margir nágrannar
þeirra haldi að bandarískir
múslimar hafi lítið sem ekkert
gert.
„Það er ekki pólitísk yfirlýsing
að segjast hafa samúð með þeim
sem létust 11. september. Það er
mannúðaryfirlýsing,“ segir Mo-
hammad Choudry, einn þeirra
sem ætlar að taka þátt í minning-
arathöfnum.
Awatef Aqeal, kennari við há-
skóla í Florida, segist þó hafa
meiri áhyggjur af öryggi barna
sinna þann 11. september heldur
en nokkru öðru. Hún býr í Tampa,
þar sem lögreglan kom fyrir
stuttu upp um áform um að
sprengja upp moskur og aðrar
byggingar múslima.
STURLA BÖÐVARSSON
Vill halda áfram.
Ráðherra vísar þrálátum orðrómi á bug:
Sturla ekki vegamálastjóri
FRÁ ÁRSÞINGI MÚSLIMA Í BANDARÍKJUNUM
Ársþinginu lauk á mánudaginn með hvatningu til múslima í Bandaríkjunum til þess að
taka þátt í minningarathöfnum þann 11. september. Á myndinni sést Ingrid Mattson,
varaforseti Félags múslima í Norður-Ameríku, flytja ávarp sitt.
Múslimar í Bandaríkjunum:
Óttast 11. september
AP
/S
U
SA
N
W
AL
SH
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Flokksfélagar vænta yfirlýsingar frá formanni sínum 18. október
Halldór Ásgrímsson
til Reykjavíkur
Framsóknarmenn telja öruggt að Halldór flytji sig til Reykjavíkur og
vænta formlegrar yfirlýsingar frá honum á kjördæmisþingi á Egilsstöð-
um 18. október. Líklegast að stillt verði upp á lista flokksins í Norðaustur-
kjördæmi. Þórarinn E. Sveinsson, fyrrverandi samlagsstjóri á Akureyri
sækist eftir 3. sætinu á eftir Jóni Kristjánssyni og Valgerði Sverrisdóttur.
Þau munu án
nokkurs vafa
skipa tvö efstu
sæti listans.
Vestfirðingar:
Vilja rann-
sókn á kvóta-
kerfinu
SJÁVARÚTVEGUR Fjórðungsþing
Vestfirðinga krefst tafarlausrar
rannsóknar á því hvað hafi farið
úrskeiðis eða hvort niðurstöður
fiskifræðinga um ástand helstu
fiskistofna séu rangar. Ályktun
þessa efnis var samþykkt um
helgina og hefur verið kynnt þing-
mönnum og sjávarútvegsráð-
herra. Þingið telur ljóst eftir 18
ára reynslu, að meginmarkmið
laga um stjórn fiskveiða hafi eng-
an veginn náðst, ekki hafi tekist
að stuðla að verndun og hag-
kvæmri nýtingu fiskistofnanna og
tryggja með því trausta atvinnu
og byggð í landinu. Verndun fiski-
stofna hafi algerlega mistekist, ef
marka megi niðurstöður fiski-
fræðinga, og árangursleysi fisk-
veiðistjórnunarinnar hafi dregið
máttinn úr sjávarbyggðum lands-
ins.
„Byggð á Vestfjörðum stendur
og fellur með þeim arði sem við
höfum af því að geta sótt þessi ná-
lægu fiskimið okkar. Það verður
að meta sérstöðu okkar og ætla
okkur stærri hluta af þeirri köku
sem til skiptanna er,“ segir Ólafur
Kristjánsson, fráfarandi formað-
ur Fjórðungssambands Vestfirð-
inga.
Fimmtán ára ökumaður tor-færuhjóls lær- og úlnliðs-
brotnaði þegar hann féll af hjóli
sínu á mótorkrosskeppni sem
haldin var á Selfossi á laugardag.
Ökumaðurinn var fluttur á slysa-
deild Landspítala í Fossvogi.
Annar ungur maður handarbrotn-
aði utan við félagsheimilið Borg í
Grímsnesi er hann féll í götuna
eftir, að því talið er, að hafa verið
skallaður að loknu skólaballi sem
þar var haldið um helgina.