Fréttablaðið - 11.09.2002, Qupperneq 7
7MIÐVIKUDAGUR 11. september 2002
Framkvæmdastjórn Evrópu-sambandsins lagði til í gær
að neytendur í Evrópusambands-
ríkjunum fái tveggja vikna frest
til þess að hætta við lánaskuld-
bindingar eftir að samningur er
undirritaður. Þetta á að gilda um
lán til kaupa á neysluvörum, en
tekur þó ekki til lána þar sem
hús eru sett að veði.
Fyrsta hluta réttarhaldannayfir Slobodan Milosevic,
fyrrverandi forseta Júgóslavíu,
lauk í gær. Í fyrsta hlutanum
var fjallað um ákærur á hann
vegna stríðsins í Kosovo. Næst
verður fjallað um stríðið í Bosn-
íu og þar á eftir um stríðið í
Króatíu.
ERLENT
PÓSTÞJÓNUSTA „Ég skil ekki
svona fólk. Þetta var gjöf
handa litlu barni,“ segir Jón
Elías Jónsson á Akranesi sem
á dögunum fékk sendingu frá
tengdaforeldrum sínum í
Portúgal. Í pakkanum var
ýmislegt ætlað eiginkonu
Jóns en að auki gjafir til
tveggja ungra sona þeirra
hjóna; silfurhálsmen frá
ömmu og afa í Portúgal:
„Þegar við opnuðum pakk-
ann sáum við að búið var að stela
öðru silfurhálsmeninu. Barnið
varð mjög dapurt yfir þessu,“ seg-
ir Jón sem þegar sneri sér til Toll-
póststofunnar og kvartaði en
sendingin kom með hraðpósti frá
EMS. Límband hraðsendingarfyr-
irtækisins hafði verið rifið af og
límband frá tollinum komið í
staðinn.
„Það var búið að rífa pakk-
ann upp þegar hann kom
hingað í innsigluðum poka
eins og allur annar póstur,“
segir Einar Halldórsson hjá
Tollpóststofunni. „Það er al-
veg ljóst að hálsmeninu var
stolið erlendis. Við gengum
úr skugga um það og bentum
Jóni á að snúa sér beint til Ís-
landspósts sem ber alla
ábyrgð á þessu og tryggður fyrir,“
segir Einar. „Því miður er alltaf
verið að stela úr sendingum. Það
er alþjóðlegt vandamál póstþjón-
ustunnar,“ segir hann.
Sorg á Akranesi:
Silfurhálsmeni stolið úr pósti
HÁLSMENIÐ VAR GJÖF
Því var stolið erlendis segir Tollpóststofa.
Gengið hagstætt:
Orkuveitan
hagnast
mikið
UPPGJÖR Orkuveita Reykjavíkur
hagnaðist um rúma tvo milljarða á
fyrri hluta ársins. Tekjur fyrirtæk-
isins voru 5,5 milljarðar, en gjöldin
voru 3,7 milljarðar. Handbært fé
frá rekstri voru 2,3 milljarðar. Á
síðasta ári var tap af rekstri fyrir-
tækisins sem skýrðist af gengis-
þróun. Á sama hátt skrifast mikill
hagnaður nú á styrkingu gengis
krónunnar. Árið í ár er fyrsta upp-
gjörsárið eftir að veiturnar á Akra-
nesi og í Borgarbyggð sameinuð-
ust fyrirtækinu.
RAMALLAH, AP Fatah, stjórnmála-
hreyfing Jassers Arafats, sendi
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
árásir á óbreytta ísraelska borg-
ara eru fordæmdar og komið
verði í veg fyrir þær. Í yfirlýsing-
unni var þó gefið í skyn að þetta
ætti eingöngu við um árásir á
óbreytta borgara innan lan-
damæra Ísraels en ekki á Vestur-
bakkanum og Gazaströnd. Í yfir-
lýsingunni segir að árásir á óbreyt-
ta borgara í Ísrael brjóti í bága við
þjóðarhagsmuni Palestínumanna.
Jafnframt voru í fyrsta sinn nefnd-
ar siðferðilegar ástæður fyrir því
að snúast gegn ofbeldi.
Fatah, hreyfing Arafats:
Fordæmir
árásir
á óbreytta
borgara
AP
/M
YN
D
JASSER ARAFAT
Hreyfing Arafats, Fatah, hefur oft verið sökuð um að styðja hryðjuverk.
Könnun á ríkisábyrgð til deCODE:
Enn hefur
ekkert breyst
RÍKISÁBYRGÐ „Markaðsverð fyrir-
tækisins og mannahald er ekki til
meðferðar í þessum hluta ferlis-
ins,“ segir Geir H. Haarde, fjár-
málaráðherra, um hvaða áhrif
verðfall hlutabréfa í deCODE og
fréttir af uppsögnum starfs-
manna Íslenskrar erfðagreining-
ar hafi á könnun á því hvort fyrir-
tækinu verði veitt ríkisábyrgð
vegna uppbyggingar lyfjaþróun-
arfyrirtækis.
„Ríkisábyrgðarmálið er í sjálf-
stæðum farvegi,“ segir Geir. „Það
er núna til skoðunar hjá eftirlits-
stofnun EFTA á grundvelli þeirra
reglna sem þar gilda. Þeir hafa
sent eftir ýtarlegum gögnum. Síð-
an munu þeir taka sér tvo mánuði
til að komast að niðurstöðu um
hvort þetta samrýmist reglum
EES um opinbera aðstoð við rann-
sóknir og þróun.“ Geir segir að
enn hafi ekkert breyst frá því
hafist var handa við að kanna
hvort veita beri deCODE ríkisá-
byrgð. Ekki verði tekin ákvörðun
um hvort ábyrgðin verði veitt
fyrr en fengist hafi staðfesting á
því að hún standist reglur sem
um slíka aðstoð gildir. Þá verði
aðrir þættir málsins teknir til
skoðunar.
Niðurstaða Eftirlitsstofnunar
EFTA liggur væntanlega ekki
fyrir fyrr en í fyrsta lagi seinni
hluta nóvembermánaðar. Það get-
ur þó tafist þar sem stofnunin
hefur tveggja mánaða frest frá
því hún telur sjálf að hún hafi
fengið nægar upplýsingar.
Frá því ríkisstjórnin lagði
fram frumvarp sitt um að veita
fjármálaráðherra leyfi til að veita
deCODE ríkisábyrgð hefur verð-
mæti hlutabréfa í félaginu fallið
um nær 60%. Úr 26 milljörðum í
10,7 milljarða. Eignir eru þó tals-
vert meiri. Þá hefur Íslensk
erfðagreining gripið til uppsagna
um tvenn síðustu mánaðamót hið
minnsta.
GEIR H. HAARDE
Enn hefur ekkert gerst sem breytir athug-
un stjórnvalda á því hvort deCODE verði
veitt ríkisábyrgð vegna uppbyggingar lyfja-
þróunarfyrirtækis hér á landi.
FJÖLMIÐLAR Breska stórblaðið Gu-
ardian hefur sýnt gagnrýni sem
fram hefur komið með viðskipti
með hlutabréf deCODE áhuga og
hyggst fjalla um málið á næstu
dögum. Hefur blaðamaðurinn
James Moore, sem sérhæfir sig í
fréttum af vísindum, fengið send-
ar fréttir Fréttablaðsins af fjár-
hagsörðugleikum einstaklinga
sem keyptu í félaginu á háu gengi
og sitja nú uppi með nær því verð-
laus bréf. Þá hefur Guardian ein-
nig áhuga á að fjalla um ríkisá-
byrgðina sem heimilt er að veita
deCODE. James Moore hefur ver-
ið í sambandi við ýmsa aðila hér á
landi og viðað að sér miklu magni
upplýsinga sem eiga að verða
uppistaðan í fréttum blaðsins um
málefni deCODE og umdeild við-
skipti með hlutabréf í félaginu.
Hlutabréfaviðskipti og deCODE:
Guardian
sýnir áhuga