Fréttablaðið - 11.09.2002, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. september 2002
INNBROT Innbrotum fjölgaði í um-
dæmi lögreglustjórans í Reykja-
vík árið 2001. Þetta kemur fram í
ársskýrslu lögreglustjórans sem
nýlega kom út. Þar kemur fram að
tilkynnt innbrot voru 1.875 sem er
töluverð fjölgun frá árinu á undan
þegar þau voru 1.536 talsins.
Langflest innbrotanna voru fram-
in í miðbænum eða í hverfi 101.
Næst á eftir kemur svæðið 108
Bústaða- og Múlahverfi og þá 110
sem er Árbæjarhverfi. Fæst voru
innbrotin á Kjalarnesi og í Graf-
arholti.
Þegar litið er til þess hvers
konar innbrot voru algengust
kemur í ljós að innbrot í bíla voru
algengust eða 41%. Þá koma inn-
brot inn á heimili um 20%, innbrot
í verslanir 14% og innbrot í fyrir-
tæki 8%.
Árið 2001 var tilkynnt um 156
innbrot að meðaltali í hverjum
mánuði á móti 130 árinu á undan
og er það 20% aukning milli ára.
Fæstar tilkynningar bárust í febr-
úar en flestar í september eða um
10% tilkynntra innbrota. Hlut-
fallslega voru flest innbrot til-
kynnt á mánudögum og fimmtu-
dögum en fæst á sunnudögum.
Kemur þessi dreifing ekki á óvart
þar sem líklegt er að mörg innbrot
í fyrirtæki og bíla uppgötvist ekki
fyrr en eftir helgar þegar fólk
kemur aftur til vinnu. Hið sama
má segja um innbrot í heimahús
sem er líklegra að eigi sér stað
þegar íbúar eru að heiman og er
það oftar en ekki um helgar.
Af þeim 1.875 innbrotum sem
tilkynnt var um voru 322 einstak-
lingar kærðir. Karlar eru í mikl-
um meirihluta eða 88%. Hjá kon-
um og körlum var um helmingur
kærðra 20 ára eða yngri og um
fjórðungur var á aldrinum 21-30
ára. Þá vekur athygli að í aldurs-
flokknum 31-40 ára eru konur í
meirihluta eða 21% á móti 9%
karla.
MIÐBÆR REYKJAVÍKUR
Algengast er að innbrot séu framin í miðbænum.
HLUTFALLSLEG SKIPTING TILKYNNTRA
INNBROTA EFTIR VETTVANGI:
Árið 2001 voru um 20% innbrota tilkynnt í hverfi 101 en
um 11% í hverfum 105, 108, 109 og 112:
101: 19,5
103: 1,3
104: 8,2
105: 10,5
107: 4,8
108: 11,4
109: 10,7
110: 10,1
111: 6,1
112: 11,0
113: 0,3
116: 0,2
170: 1,5
270: 4,3
Tíðni innbrota
hæst í hverfi 101
Innbrotum fjölgar í Reykjavík. Innbrot í bíla eru algengust. Innbrotum
fjölgar um fimmtung milli áranna 2000 og 2001. Tilkynnt var um flest
innbrot í sepember en fæst í febrúar.
NOREGUR Annar hver Norðmaður
er neikvæðari í garð Bandaríkja-
manna nú en fyrir ári.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun Aftenposten. Þátttak-
endur voru spurðir hvort viðhorf
þeirra í garð Bandaríkjanna
hefði breyst undanfarið ár. 48%
sögðu að það væri neikvæðara en
áður, en 5% jákvæðara. 54%
sögðu að viðhorf þeirra í garð
stefnu Bandaríkjanna í Samein-
uðu þjóðunum væri neikvæð, 9%
jákvæð. 32% sögðu að viðhorf
þeirra í garð stefnu Bandaríkja-
manna innan Atlantshafsbanda-
lagið væru neikvæð, 20% já-
kvæð. 49,9% eru neikvæð í garð
stefnu Bandaríkjamanna í utan-
ríkismálum. 74% telja að Banda-
ríkjamenn eigi ekki að ráðast inn
í Írak. Þessar niðurstöður eru í
samræmi við niðurstöður skoð-
anakannana í öðrum Evrópuríkj-
um.
Geir Lundestad, prófessor í
sögu, segir í samtali við Aften-
posten að varasamt sé að fullyrða
of mikið í kjölfar skoðanakönn-
unarinnar. Stöðugar sveiflur séu
á viðhorfi Norðmanna í garð
Bandaríkjanna. Rannsóknir hans
sýni þó að Bandaríkjamenn og
íbúar Vestur-Evrópu hafi fjar-
lægst undanfarið.
Viðhorf Norðmanna til Bandaríkjanna:
Neikvæðari en fyrr
GEORG W. BUSH
Ekki ýkja vinsæll í Noregi.
KJARAMÁL „Ástæða þess að ekki er
búið að ljúka máli sjómanna á ís-
rækjuskipum Þormóðs Ramma -
Sæbergs á Siglufirði er afar ein-
föld. Alþýðusambandið hefur fyr-
ir hönd Sjómannasambands Ís-
lands höfðað dómsmál vegna laga-
setningar á kjaradeilu sjómanna
og útgerðarmana í fyrra. Þeir
telja að gerðardómurinn sem
kveðinn var upp 30. júní í fyrra og
Félagsdómur staðfesti í júlí síð-
astliðnum, standist ekki ákvæði
stjórnarskrár. ASÍ vill fá gerðar-
dómnum hnekkt og það er stutt í
að Hæstiréttur kveði upp sinn
dóm,“ segir Friðrik Arngrímsson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna.
Hann segir furðu sæta að Vaka
á Siglufirði skuli eitt verkalýðsfé-
laga sjá ástæðu til að ganga fram
með þessum hætti og það þegar
skýring liggur fyrir.
„Nú bíðum við eftir lögfræði-
áliti frá Samtökum atvinnulífsins.
Það á meðal annars að varpa bet-
ur ljósi á það hvort greiðslurnar
verði greiddar með fyrirvara um
niðurstöður ASÍ-málsins eða með
öðrum hætti,“ segir Friðrik Arn-
grímsson.
Framkvæmdastjóri LÍÚ:
Höfum útskýrt drátt á upp-
gjöri við rækjusjómenn
Kolmunnaveiðin:
Kvótinn
langt
kominn
KOLMUNNAVEIÐI Aðeins er rúmlega
fimmtungur útgefins kolmunna-
kvóta Íslendinga óveiddur. Afli ís-
lensku skipanna er kominn í 221
þúsund tonn það sem af er vertíð-
inni. Auk þess hafa erlendu skipin
landað hátt í 7 þúsund tonnum hér.
Nú á eftir að veiða rúmlega 67 þús-
und tonn af heildarkvótanum. Sem
fyrr hafa bræðslurnar á Austfjörð-
um vinninginn hvað magn snertir.
Mestu hefur verið landað á Eski-
firði, rúmlega 46 þúsund tonnum,
45 þúsund tonnum í Neskaupstað og
44 þúsund tonnum á Seyðisfirði.