Fréttablaðið - 14.09.2002, Síða 4
4 14. september 2002 LAUGARDAGUR
ÁSLANDSSKÓLI „Við komumst ekki
langt á meðan stjórnendur Ás-
landsskóla mæta ekki á boðaðan
fund,“ sagði Lúðvík Geirsson bæj-
arstjóri í Hafnarfirði eftir að ljóst
var að Íslensku menntasamtökin
mættu ekki á fund með bæjaryfir-
völdum og fræðslustjóra í gær-
morgun. Íslensku menntasamtök-
in höfðu verið boðuð á fund kl.
10.30 en enginn frá þeim lét hvor-
ki heyra frá sér né sjá til sín. Boð-
um var því komið í annað sinn til
þeirra um að mæta á fund klukk-
an 13.00 en fulltrúar skólans
mættu ekki heldur þá.
Í millitíðinni var fundur með
foreldraráði Áslandsskóla og eftir
hann voru menn á einu máli um að
brýnt væri að leysa þann ágrein-
ing sem uppi væri í skólanum.
„Vilji foreldra er að koma
skólastarfinu í skikkanlegt horf
og þeir gera þá kröfu til okkar að
við tökum á málinu. Eins og mál
standa nú sé ég ekki að annað
liggi fyrir en breytt rekstrar-
form,“ sagði Lúðvík eftir fund
með foreldrum. Hann sagði að á
fundi með öllum foreldrum í skól-
anum síðar um daginn myndu
bæjaryfirvöld hlusta eftir vilja
þeirra í þessu máli. „Við vitum
ekkert hvað Íslensku menntasam-
tökin hafa fram að færa og það
getur allt eins verið að þau vilji
slíta þessu samstarfi,“ sagði Lúð-
vík klukkan liðlega 13.00 í gær.
LÚÐVÍK GEIRSSON BÆJARSTJÓRI FUNDAR MEÐ FRÆÐSLUYFIRVÖLDUM Í GÆR
Lúðvík sagðist ekki sjá neina lausn í sjónmáli en rætt var hvort samningi við Íslensku
menntasamtökin yrði sagt upp.
Lúðvík Geirsson um deiluna Í Áslandsskóla:
Sýnist að breyta verði rekstrarforminu
HLUTI FORELDRARÁÐS
ÁSLANDSSKÓLA
Eftir fund með bæjarstjóra og fræðsluyfir-
völdum sögðust foreldrar hafa lagt að bæj-
arstjóra að leysa ágreiningsmálin í skólan-
um.
Foreldraráð Áslandsskóla
Undanfarin
vika algjör-
lega óásætt-
anleg
ÁSLANDSSKÓLI „Það er alveg ljóst að
þessi undanfarna vika í skóla-
starfinu hefur verið óásættan-
leg,“ sagði María Gylfadóttir for-
maður foreldraráðs Áslandsskóla
eftir að foreldraráð hafði fundað
með bæjarstjóra og fræðsluyfir-
völdum í gærmorgun. Hún sagði
bæjaryfirvöld hafa boðað til fund-
arins og það væri þeirra að ræða
efni hans. Hún sagði að heim með
börnunum færu bréf til foreldr-
anna þar sem sjónarmið foreldra-
ráðs kæmu fram. „Við höfum ver-
ið ánægð með margt í þessum
skóla en sættum okkur ekki við
þetta ástand sem nú ríkir.“
Fræðslustjóri í
Hafnarfirði:
Þarf ekki
að taka lang-
an tíma
ÁSLANDSSKÓLI Það þarf ekki að taka
langan tíma að ganga þannig frá
hnútum að skólastarf í Áslands-
skóla geti hafist með eðlilegum
hætti að nýju þó að samningum
verði sagt upp við Íslensku
menntasamtökin,“ sagði Magnús
Baldursson fræðslustjóri á
fræðsluskrifstofu Hafnarfjarðar
aðspurður um hvað tæki við ef
samningum yrði sagt upp. Hann
sagði samninga vera uppsegjan-
lega með sex mánaða fyrirvara en
í alvarlegu tilfelli sem þessu þá
yrði að grípa til aðgerað strax.
„Það er ekki viðundandi að skóla-
starfi sé komið í slíkt uppnám og
það er okkar skylda að gera leysa
það mál.“
MAGNÚS BALDURSSON
Hann sagðist telja að hægt væri að koma
skólastarfi á að nýju með skjótum hætti
þó að samningum við Íslensku mennta-
samtökin verði sagt upp.
ÁSLANDSSKÓLI „Síminn hefur ekki
stoppað í allan dag og hingað
hringja foreldrar sem eru ugg-
andi um hag barna sinna og spyr-
ja hvað sé á seyði,“ segir Ingi-
björg Einarsdóttir rekstrarstjóri
Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar í
gær. Hún segir Skólaskrifstofu
hafa beðið eftir gögnum sem
stjórnendur Áslandsskóla áttu að
skila fyrir síðustu helgi en þau
hafi ekki borist enn. „Við vitum í
sjálfu sér mjög lítið um daglegan
gang mála í skólanum því við rek-
um hann ekki eins og aðra skóla.“
Hún segir rekstur Áslandsskóla
vera á höndum Íslensku Mennta-
samtakanna en á ábyrgð skólayf-
irvalda og beri þeim að fylgjast
með að skólastarf fari fram í sam-
ræmi við lög og reglur.
INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR Á SKÓLA-
SKRIFSTOFU HAFNARFJARÐAR
Foreldrar hafa verið uggandi um hag barna
sinna og mikið hringt á Skólaskrifstofu til
að spyrjast fyrir.
Ágreiningurinn í
Áslandsskóla:
Síminn
stoppaði
ekki
Formaður Samtaka gegn fátækt:
Leigjendur mjög
kvíðnir
FÉLAGSMÁL Sigrún Ármanns Reyn-
isdóttir, formaður Samtaka gegn
fátækt, sagði það mjög slæm tíð-
indi ef borgaryfirvöld myndu
ákveða að hækka leigu á félagsleg-
um íbúðum um 12%. Það yrði til
þess að auka mikið á erfiðleika
margra.
„Það fólk sem þarna leigir er
bláfátækt og ég er ansi hrædd um
að þetta myndi leiða til meiri van-
skila, sem þó eru töluverð fyrir hjá
Félagsbústöðum,“ sagði Sigrún Ár-
manns. „Sumt af þessu fólki hefur
vart ofan í sig að borða allan mán-
uðinn og nær engan veginn endun-
um saman. Það er ekkert til lengur
hjá þessu fátæka fólki. Það er ekki
hægt að fara lengra ofan í vasana
hjá því, þeir fyrir löngu orðnir
gjörsamlega tómir.“
Sigrún Ármanns sagði að fólk
sem frétt hefði af þessum áform-
um borgaryfirvalda væri mjög
kvíðið. Það væri hreinlega á
barmi örvæntingar og reyndi að
fleyta sér áfram á dýrum yfir-
dráttalánum.
FÉLAGSMÁL Stjórn Félagsbústaða
hefur óskað eftir því við borgar-
yfirvöld að leiga á félagslegu hús-
næði verði hækkuð um 12%.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
félagsmálaráðs, sagði að ráðið
hefði ekki tekið afstöðu til erindis
Félagsbústaða. Ekki væri enn ljóst
hvenær það yrði gert.
Björk sagði að ástæða þess að
farið væri fram á hækkun leigunn-
ar væri að Íbúða-
lánasjóður hefði
hækkað vexti á
lánum sem veitt
væru félögum sem
væru að byggja fé-
lagslegt leiguhús-
næði. Í fyrra hefðu
vextirnir verið hækkaðir úr 1% í
3,5%. Hún sagði að það væri alveg
ljóst að það yrði að eiga sér stað
einhver hækkun á leigunni ef rík-
isvaldið myndi ekki lækka þessi
vexti. Langstærsti hluti af kostn-
aði Félagsbústaða væru vaxta-
greiðslur vegna þessara lána.
„Við verðum að skoða mjög
gaumgæfilega hvaða áhrif þessi
hækkun hefur á þá einstaklinga
sem leigir hjá Félagsbústöðum
áður en við tökum afstöðu til máls-
ins,“ sagði Björk. „Það er samt al-
veg skýrt að eitthvað verður að
gera. Við getum ekki rekið Félags-
bústaði áfram með því tapi sem
orðið hefur vegna þessarar vaxta-
hækkunar.“
Björk sagði að vissulega myndi
12% hækkun geta haft slæm áhrif á
kjör þeirra sem byggju í félagslegu
leiguhúsnæði. Hún sagði að kjör
þeirra sem byggju í nýjasta hús-
næðinu myndu þó e. t. v. ekki ver-
sna jafnmikið þar sem stefnt væri
að því að jafna út leiguverðið. Hing-
að til hefði það verið bundið kaup-
verði íbúða og því hefði leiga þeirra
íbúða sem Félagsbústaðir hefðu
keypt allra síðustu ár verið hærri
en sambærilegra íbúða sem keypt-
ar hefðu verið áður.
„Við erum að leita leiða til þess
að þetta bitni sem minnst á þeim
sem búa við hvað kröppust kjör.
Þess vegna er ég ekki tilbúin að
segja hvort leigan verði hækkuð
eða hvenær ákvörðun verður tek-
in.“
trausti@frettabladid.is
LEIGUVERÐ Í REYKJAVÍK HÆKKAR
Björk Vilhelmsdóttir, formaður félagsmálaráðs, sagði að ástæða þess að farið væri fram á hækkun leigunnar væri að Íbúðalánasjóður
hefði hækkað vexti á lánum sem veitt væru félögum sem væru að byggja félagslegt leiguhúsnæði.
Vilja hækka leigu félags-
legra íbúða um 12 prósent
Stjórn Félagsbústaða vill hækka leigu á félagslegu húsnæði. Borgaryfirvöld hafa ekki tekið
afstöðu til erindisins. Formaður félagsmálaráðs segir að ef ríkisvaldið lækki ekki vexti á
lánum til Félagsbústaða megi reikna með að leigan verði hækkuð.
Það er samt
alveg skýrt að
eitthvað verð-
ur að gera.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
45,1%
Ætlar ekki 35,2%
Ætlar þú í leikhús í vetur?
Spurning dagsins í dag:
Er rétt að einkavæða grunnskólana?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
1 til 3 sinnum
12,7%
3 til 5 sinnum 7,0%
Fimm sinnum +
LEIKHÚS
Meira en þriðjungur
lesenda ætlar ekki
í leikhús í vetur.