Fréttablaðið - 14.09.2002, Síða 10

Fréttablaðið - 14.09.2002, Síða 10
Fátækt er viðvarandi vandamálí samfélaginu og henni verður aldrei útrýmt. Ekkert samfélag í veröldinni er laust við fátækt. Og ekkert samfélag í sögunni hefur sloppið við fátækt. Við skulum því ekki gæla við þá hug- mynd að okkur tak- ist að útrýma fá- tækt. Enn síður að fátækt sé ekki til í samfélaginu; að þeir sem tali um fátækt séu í raun að tala um eitthvað annað – óreglu, leti, skort á sjálfsbjargar- viðleitni. Það sem við eigum að velta fyr- ir okkur er hvernig við ætlum að taka á fátæktinni. Algengasta við- horfið er að ríkisvaldið og sveitar- félögin eigi að sjá um málið. Stjórnmálamenn hafa plantað þessari hugmynd í okkur. Þeir koma fyrir kosningar og segjast ætla að bæta kjör fólks og útrýma fátækt. En þeir standa ekki við þessi fyrirheit. Ekki frekar en önnur loforð. Helsta einkenni ríkisvalds í höndum stjórnmálamanna er að það skilar ekki þeirri vöru sem það selur. Ríkisvaldið selur okkur öryggi borgaranna en samt eru þeir barðir á götum úti. Ríkisvald- ið selur okkur heilbrigðisþjónustu en rekur samt fárveika og ósjálf- bjarga sjúklinga úr rúmum sínum og út á götu. Ríkisvaldið selur okkur réttlæti en beitir lögreglu og dómsstólum til að hygla sum- um en ofsækja aðra. Ríkisvaldið selur okkur velferð en samt býr fjöldi fólks við sára fátækt; á ekki fyrir mat. Við eigum því ekki að horfa til ríkisvaldsins eða sveitarfélaga ef fátækt í allsnægtarsamfélagi of- býður okkur. Við verðum sjálf að svara þeim tilfinningum sem fá- tæktin vekur með okkur. Það er gott kerfi: Okkur er misboðið og við gerum eitthvað í því. Það er að minnsta kosti betra kerfi en það sem flestir styðja sig við: Okkur ofbýður og við kvörtum yfir því að aðrir geri ekkert í því. Ef okkur er misboðið að búa við allsnægtir meðan meðbræður okkar eiga vart málungi matar getum við gefið af allsnægtum okkar til hjálparstofnana sem þekkja vel hvar neyðin er stærst. Með því að kvarta yfir duglausum stjórnmálamönnum og aumu rík- isvaldi gerum við þeim sem eru hjálparþurfi engan greiða. Þeir mettast ekki á tuði. Stjórnmála- menn græða hins vegar á tuðinu. Það viðheldur þeirri trú að þeir geti leyst málið. Sem þeir hafa fyrir löngu sannað að þeir geta ekki.  10 14. september 2002 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS ERELENT Reykvík- ingar hafa átthagatil- finningu BJÖRG INGVARSDÓTTIR SKRIFAR Ég var að lesa það sem Ingi-björg Sólrún sagði í fyrirlestri sínum um borgina. Hún hóf erindi sitt á því að ræða afstöðu Íslendinga til borgarinnar og sagði hana alla tíð hafa verið sérkennilega Fáir Reyk- víkingar sem hefðu alist upp í borginni virt- ust hafa rótró- na átthagatil- finngu á sama hátt og lands- b y g g ð a f ó l k hefði gagnvart sínum heima- högum, „né finndu þeir til stolts yfir borginni sinni líkt og íbúar gamalla stórborga erlendis hefðu gjarnan.“ Ég er fædd og uppalin í Reykjavík og mótmæli þessu al- gjörlega. Eftir að hafa búið er- lendis í 40 ár fannst mér ekki koma annað til greina en að setj- ast að í Reykjavík. Borginni, sem vissulega hefur breyst frá mínum sokkabandsárum og sannarlega til batnaðar. Allur þessi gróður sem gleður augað allstaðar. Borg- in sem hefur átt hug minn allan, borgin við hafið, með útsýni til Esjunnar og Snæfellsjökuls. Er hægt annað en að vera stolt- ur? Ég er auðvitað fædd og uppal- in í Austurbænum. Ég fékk alltaf heimþrá í desember og var þá alltaf með hugann við Laugaveg- inn. En Ingibjörg ætti að spyrja fólk úr Vesturbænum hvort það hafi ekki átthagatilfinningu. Með bestu kveðjum. HUGEFLI Þriðjudaginn 17. sept. kl. 19:00 • Eflt eigin getu og hæfileika og fjölgað tækifærum í þínu lífi. • Aukið persónulega auðlegð og velgengni í leik og starfi. • Losnað við takmarkandi hömlur og hindranir. • Aukið sjálfsöryggi, ákveðni og viljastyrk. • Losnað við fíknir og slæma ávana. • Fyrirbyggt streitu, kvíða og áhyggjur. Með Hugefli getur þú m.a.: “Ég er öruggari með sjálfa mig og rólegri við vissar kringumstæður. Hugurinn hefur opnast fyrir möguleikum til að ná langþráðu markmiði.” --María. “Í fyrsta skipti í mörg ár er eitthvað að ganga hjá mér.” --Íris Arthúrsdóttir. Námskeiðið verður haldið á hverju þriðjudagskvöldi í 3 vikur og byggist á fyrirlestrum, könnunum, æfingum og raunhæfum verkefnum. Ítarleg námsgögn og geisladiskur fylgja. Leiðbeinandi er Garðar Garðarsson PNLP. í síma 898 3199 ( 899 7716 á kvöldin ) www.gardar.com Skráðu þig núna A U Ð V E L D A Ð U Þ É R L Í F I Ð Hafnarstjóri gagnrýnir Sturlu Kominn tími til að samgönguráðherra hætti afskiptum af fjármálum Reykjavíkurhafnar segir hafnarstjóri. Ráðherra segist vera að boða hið gagnstæða. Reykjavíkurhöfn sé hægt og bítandi að draga viðskipti til sín frá fiskihöfnunum. Hafnarstjóri vísar því á bug . HAFNARMÁL Hannes Valdimars- son, hafnarstjóri Reykjavíkur- hafnar, gagnrýnir Sturlu Böðv- arsson samgönguráðherra harð- lega. Hannes segir að kominn sé tími til þess að samgönguráð- herra hætti afskiptum af gjald- skrá og þar með fjármálum Reykjavíkurhafnar. „Slík miðstýring samræmist ekki nútíma viðskiptaháttum og er óþekkt í nágrannalöndum okk- ar í Evrópu,“ segir Hannes í Fréttablaði Reykjavíkurhafnar. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra segist ekki alveg vita hvernig skilja beri þessi ummæli Hannesar. Sturla segist alveg sammála því að samgönguráð- herra eigi að hætta afskiptum af gjaldskránni. Í nýjum hafnalög- um, sem lögð hafi verið fyrir Al- þingi í vor, sé ákvæði um að gjaldskráin verði gefin frjáls. Sturla segir að tekjur flestra fiskihafna standi ekki undir rek- stri þeirra, en Reykjavíkurhöfn hafi þar sérstöðu. Sú sérstaða sé m. a. fólgin í því að höfnin njóti tekna af stórum hluta útflutnings og nær öllum sérvöruinnflutn- ingi til landsins og geti því nýtt styrk sinn til þess að keppa við fiskihafnir sem hafi enga mögu- leika í þeirri ójöfnu samkeppni. Ráðherra segir að nýju hafnalög- unum sé ætlað að skakka þennan ójafna leik, sem að öllu óbreyttu dragi viðskipti hægt og bítandi frá fiskihöfnunum til stóru hafn- anna á höfuðborgarsvæðinu. Sturla segist vilja að fiskihafn- irnar fái meira svigrúm til að auka tekjur sínar af sjávarútveg- inum. Það muni taka einhvern tíma en Reykjavíkurhöfn verði að taka tillit til þessa vandamáls og lækka vörugjöldin. Þannig sé hægt að hækka aflagjöld til fiski- hafna og þar með tekjur þeirra. Hannes vísar því á bug að Reykjavíkurhöfn sé ógn við aðr- ar hafnir landsins og segir að málið snúist fyrst og fremst um hagkvæmni inn- og útflytjenda. Í Fréttablaði Reykjavíkurhafnar segist Hannes vera ósáttur við að með nýjum hafnalögum eigi að skekkja samkeppnisstöðu Reykjavíkurhafnar, enn frekar en nú þegar sé gert. Hannes telur það alvarlegt mál að ætla að hrófla við hagkvæmninni með lagasetningu eða öðrum aðgerð- um. trausti@frettabladid.is REYKJAVÍKURHÖFN Hannes Valdimarsson hafnarstjóri segir eðlilegt að umsvif Reykjavíkurhafnar hafi aukist, þar sem hún sé við þéttbýlasta stað landsins. Hann vísar því á bug að Reykjavíkurhöfn sé ógn við aðrar hafnir landsins Vill breyttan rekstur RÚV: RÚV verði fjármagnað af fjárlögum ÚTVARPIÐ „Ég endurflyt tillögu mína um Ríkisútvarpið þegar þing kemur saman. Skoðanakönnun RÚV sýnir að þar hef ég haft alveg rétt fyrir mér,“ segir Sverrir Her- mannsson, for- maður Frjálslynda flokksins. Síðasta vetur flutti Sverrir þingsályktunartil- lögu þess efnis að Alþingi skipaði nefnd með fulltrú- um allra þing- flokka um til að semja frumvarp um breyttan rekst- ur RÚV. Sverrir vill að frumvarpið verði innan þess ramma að rekstur RÚV verði fjármagnaður af fjár- lögum. Enn fremur verði 15 manna útvarpsráð skipað fulltrúum menningar-, lista,- og fræðslu- stofnana og samtaka.  SVERRIR HER- MANNSSON Vill að starfsfólk og útvarpsráð velji útvarpsstjóra í sameiningu. Áfrýjunarréttur í Pakistankomst í gær að þeirri niður- stöðu að Benazir Bhutto, fyrrver- andi forsætisráðherra landsins, fái ekki að bjóða fram í þingkosning- unum í næsta mánuði. Bhutto hyg- gst áfrýja málinu til hæstaréttar. Sendiráð Bandaríkjanna í Suð-austur-Asíu voru lokuð í gær, fjórða daginn í röð, af ótta við hryðjuverk í tengslum við 11. sept- ember. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það, hvenær sendiráðin verði opnuð á ný. Nærri 450 Suður-Kóreubúarhéldu norður yfir landamærin til Norður-Kóreu í gær til þess að heimsækja ættingja sína, sem þeir hafa ekki séð í hálfa öld. Margir Suður-Kóreubúanna eru komnir yfir sextugt, sumir í hjólastólum. Þetta er í fimmta sinn sem ætt- ingjar hittast frá því söguleg sam- þykkt var gerð um það árið 2000. Vinnumálastofnun: Um 3.400 atvinnu- lausir ATVINNA Alls voru 74.765 atvinnu- leysisdagar skráðir á landinu öllu í ágúst. Þetta jafngildir því að 3.404 manns hafi að meðaltali verið á at- vinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,2% af áætl- un Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í ágúst 2002. Í júlí voru skráðir 81.118 at- vinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.530 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum.  Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert bréf sé ekki lengra en sem nemur hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að senda bréfin í tölvupósti, rit- stjorn@frettabladid.is, hringja í síma 515 7500, faxa í síma 515 7506 eða senda bréf á Fréttablaðið, Þverholti 9, 105 Reykjavík. LESENDABRÉF Fátæktin er á okkar ábyrgð „Ríkisvaldið selur okkur velferð en samt býr fjöldi fólks við sára fátækt; á ekki fyrir mat.“ skrifar um fátækt í allsnægtarsamfélag- inu okkar og getuleysi ríkisvaldsins til að fást við hana. Mín skoðun Gunnar Smári Egilsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.