Fréttablaðið - 24.10.2002, Qupperneq 1
bls. 22
AFMÆLI
Barn og
bikar í
afmælisgjöf
bls. 22
FIMMTUDAGUR
bls. 12
209. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 24. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Intersport-deildin
KÖRFUKNATTLEIKUR Fjórir leikir fara
fram í Intersport-deildinni í kvöld.
Haukar og Keflavík eigast við á Ás-
völlum, Tindastóll og Skallagrímur
leika á Sauðárkróki og Snæfell og
Grindavík leika í Hólminum. Valur
og Breiðablik leika loks í Valsheim-
ilinu. Allir leikirnir hefjast kl. 19.15
Framboðsfrestur
rennur út
PRÓFKJÖR Framboðsfrestur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík rennur út síðdegis í dag.
Prófkjörið fer fram 22. og 23. nóv-
ember. Allir þingmenn Reykjavík-
urkjördæmis hafa gefið kost á sér.
PERSÓNAN
Mikilvægt að
hittast og
tala saman
ÍÞRÓTTIR
Margmiðlun
auðveldar
undirbúninginn
Byggðu á þínum tíma
Grafarvogi
Vestur í bæ
Kópavogi
Ármúla
LEIKHÚSIÐ UMKRINGT Allt tiltækt lögreglulið í Moskvu var kallað út í gærkvöld. Sérsveit lögreglunnar umkringdi húsið. Gíslatöku-
mennirnir slepptu í gærkvöld 18 börnum en ríflega 600 gíslar voru enn í haldi.
AP
M
YN
D
REKSTUR „Sparisjóður Hafnarfjarð-
ar hefur óskað eftir að Byrgið
verði tekið til gjaldþrotaskipta
vegna tæplega fjögurra milljóna
króna skuldar,“ sagði Guðmundur
Jónsson forstöðumaður Byrgisins.
Búið er að skipa skiptastjóra í
búinu. Von er á honum í Byrgið í
dag. Guðmundur segir kröfuna
vera vegna víxils sem Sparisjóð-
urinn keypti af Íslenskri miðlun,
sem er gjaldþrota. Hann segir
Sparisjóðinn hafa verið stóran
hluthafa í Íslenskri miðlun en fyr-
irtækið vann að fjársöfnun fyrir
Byrgið. Tólf milljónir söfnuðust
og af þeim skiluðu sex sér strax.
Þóknun Íslenskrar miðlunar var
2,1 milljón. Það er krafan sem
Sparisjóðurinn reynir nú að fá
með gjaldþrotakröfu á Byrgið.
Athafnamennirnir Jóhannes
Jónsson í Bónus og Jakúp Purkhus
í Rúmfatalagernum hafa tryggt
rekstur Byrgisins næstu tvo mán-
uði og hefur skiptastjóri fallist á
að þiggja framlag þeirra. „Við
hringdum í Sparisjóðinn og óskuð-
um þess að gjaldþrotabeiðnin yrði
dregin til baka ef við greiddum
skuldina. Því var neitað og sagt að
þetta væri of seint. Okkur var vís-
að á lögfræðing Sparisjóðsins.“
Áttatíu manns eru í Byrginu. Þeir
eru öruggir um vist þar áfram
þann tíma sem rekstur er tryggur.
Ekki náðist í fulltrúa Spari-
sjóðsins né lögmannsins í gær-
kvöldi.
Sparisjóður Hafnarfjarðar:
Óska eftir gjaldþroti Byrgisins
EIGÐ'ANN
EÐA LEIGÐ'ANN
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
80
9
1
0/
20
02
Film-djamm
TÓNLEIKAR Trúbadorinn Jojo efnir til
tónleika í kvöld ásamt Aðalgötu-
strákunum. Tónleikarnir verða
teknir upp og marka lok á tökum
heimildamyndar sem Sigurður
Snæberg er að vinna um Jojo og
forvitnilegt líf hans. Heimilda-
myndin um Jojo verður á dagskrá
Sjónvarpsins í janúar næstkom-
andi. Tónleikarnir verða á Grand
Rokk við Smiðjustíg og hefjast
klukkan 21.30.
Konur og
kosningar
RÁÐSTEFNA Arna Schram blaðamað-
ur og Rósa Erlingsdóttir jafnréttis-
fulltrúi eru meðal fyrirlesara á ráð-
stefnu Kvenréttindafélagsins um
konur og alþingiskosningar. Á ráð-
stefnunni verður fjallað um ímynd
kvenna í stjórnmálum og hvernig
hún gagnast í prófkjörum. Hún
hefst kl. 20 og fer fram í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
Leikhús í Moskvu hertekið:
700 manns í
gíslingu
AP MOSKVA Fjörutíu vopnaðir
Tsjetsjenar réðust inn í leikhús í
Moskvu í gærkvöld og tóku 700
manns í gíslingu. Allt tiltækt lið lög-
reglu var kvatt til og sérsveit um-
kringdi húsið. Tsjetsenarnir hótuðu
að sprengja leikhúsið í loft upp ef
lögregla reyndi inngöngu og sögð-
ust drepa tíu gísla fyrir hvern gísla-
tökumann sem særðist. Þeir krefj-
ast þess að Rússar hverfi með her
sinn tafarlaust frá Tsjetsjeníu.
Skothvellir heyrðust en ekki var
vitað hvort einhver særðist. 18
börn fengu að yfirgefa leikhúsið.
LÖGREGLUMÁL Hópur hluthafa í
tryggingarmiðlunarfyrirtækinu
Ísvá vill að lögregla rannsaki fjár-
reiður félagsins. Þeir undrast að
180 milljóna króna skuld fyrir-
tækisins hafi myndast á aðeins
átján mánuðum.
Óskað hefur verið eftir
gjaldþrotaskiptum á Ísvá.
Fyrirtækið hefur miðlað
innlendum og erlendum
vátryggingum til yfir 20
þúsund viðskiptavina á Ís-
landi. Tryggingarsamning-
ar viðskiptavinanna eru
sagðir vera fullkomlega
öruggir þrátt fyrir gjaldþrotið.
Svanberg Hreinsson, sem er
talsmaður hluthafa sem eiga 35%
í Ísvá og sat áður í stjórn félags-
ins, segir að í árslok ársins 2000
hafi skuldir félagsins aðeins
numið um 5 milljónum króna. Af
óútskýrðum ástæðum nemi skuld-
irnar í dag 180 milljónum. Þetta
hafi gerst þó fyrirtækið hafi að-
eins haft sjö starfsmenn á föstum
launum og að annar venjulegur
kostnaður hafi verið lítill.
Svanberg segir að veru-
lega hafi byrjað að síga á
ógæfuhliðina eftir fram-
kvæmdastjóraskipti í maí í
fyrra. Þá hafi upphafist
valdabarátta sem meðal ann-
ars hafi snúist um stefnu
fyrirtækisins. „Það var lagt
ofurkapp á sem mesta sölu á
kostnað vandaðra vinnubragða,“
segir Svanberg.
Þrátt fyrir að skuldastaða Ís-
vár virðist að mestu eiga sér óljós-
ar orsakir herma óstaðfestar
heimildir þó að stjórnendur fyrir-
tækisins hafi eytt fast að 50 millj-
ónum króna í árangurslaust land-
vinningastarf í Danmörku og Lett-
landi. Stjórnin hafi þó fyrir fram
aðeins samþykkt 2,5 milljóna
króna útgjöld í þessu skyni í
hvoru landanna. Eins hafi menn
innan Ísvár nýtt sér söluþóknana-
kerfið á óeðlilegan máta.
Svanberg segir að svo virðist
sem sumir hafi lifað hátt á kostn-
að eigenda Ísvár: „Það fóru ótrú-
legar upphæðir í risnu hjá stjórn-
endum. Hún var til dæmis fólgin í
hótel- og veitingahúsareikningum
og peningaúttektum, mest í Lett-
landi. Mér virðist sem fram-
kvæmdastjórinn hafi verið með
um eina milljón króna í risnu á
mánuði. Það getur alls ekki talist
eðlilegt.“
Hvorki náðist í Davíð Pitt,
stjórnarformann Ísvár, né Jón
Sigfússon, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
gar@frettabladid.is
Risna forstjórans
var milljón á mánuði
Forstjóri Ísvár er sagður hafa tekið sér eina milljón króna í risnu mánaðarlega. Félagið
jók skuldir sínar um 180 milljónir á átján mánuðum og hefur óskað gjaldþrotaskipta.
Eigendur þriðjungshlutar vilja lögreglurannsókn.
Eins hafi
menn innan
Ísvár nýtt sér
söluþóknana-
kerfið á óeðli-
legan máta.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
49%
76%
ÍSVÁ Á SUÐURLANDSBRAUT
„Það fóru ótrúlegar upphæðir í risnu hjá
stjórnendum. Hún var til dæmis fólgin í
hótel- og veitingahúsareikningum og pen-
ingaúttektum, mest í Lettlandi,“ segir Svan-
berg Hreinsson, hluthafi og fyrrverandi
stjórnarmaður í tryggingarmiðluninni Ísvá.
+
REYKJAVÍK Norðaustlæg átt 8-
13 m/s og bjartviðri.
Hiti 0-4 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Él 0
Akureyri 8-13 Él 0
Egilsstaðir 10-15 Él 0
Vestmannaeyjar 8-13 Léttskýjað 3
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜