Fréttablaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 20
Allir þessir sjónvarpsþættir semkenndir eru við raunveruleik- ann fara alveg óstjórnlega í taug- arnar á mér, aðal- lega vegna þess að ég stend bjarg- fastur í þeirri trú að fólk sé aldrei það sjálft fyrir framan kvik- myndatökuvél og þessi svokallaði raunveruleiki geti því aldrei orðið neitt nema sýnd- arraunveruleiki í besta falli. Konan mín er farin að fylgjast með þessu Survivor-dóti og í kjöl- farið er ég að skilja hvernig má hafa gaman að þessu. Maður velur sér þann bjána sem fer minnst í taugarnar á manni, heldur með hon- um og vonar að hann vinni. Ég vel auðvitað sætustu stelpuna, sem er líka iðulega mesta tíkin og á því alltaf góða sigurmöguleika. Sá sýnishorn úr þætti sem heitir Temptation Island þegar ég var að pirrast yfir Survivor um daginn. Það er þáttur sem er meira að mínu skapi og ég sagði konunni minni að ég ætlaði að fara á þessa eyju og slappa af með margarítur í heitum potti með sjö allsberum undirfata- módelum á meðan hún fylgdist með örlögum asnanna í Survivor. Runnu á mig tvær grímur þegar hún benti mér á að maður verður að taka mak- ann með á freistingaeyjuna og hún myndi því stíga trylltan dans í tunglskininu með sjö sólbökuðum tröllköllum á meðan. Er ekki allt í lagi? Hver lætur sér detta svona dellu í hug? Þetta er asnalegra en Survivor. Sá samt glitta í eitt brjóst og hálfa rasskinn í sýnishorninu þannig að það má kannski horfa á þetta, það er að segja ef raunveru- leikinn og myndavélin komast alla leið.  24. október 2002 FIMMTUDAGUR BÍÓMYNDIR SJÓNVARPIÐ 7.00 70 mínútur 15.03 Fréttir 16.00 Pikk TV 17.02 Pikk TV 18.00 Fréttir 20.00 Íslenski Popp listinn 22.00 Fréttir 22.03 70 mínútur 23.30 Rugl.is finnst raunveruleikasjónvarpsþættir bjánalegir en er þó ekki bjargfastari en svo í trúnni að hann ætlar að fara að fylgjast með Temptation Island. Þórarinn Þórarinsson 20 Einn á eyju freistinganna Við tækið „Runnu á mig tvær grímur þeg- ar hún benti mér á að maður verður að taka makann með á freistingaeyjuna og hún myndi því stíga trylltan dans í tunglskin- inu með sjö sól- bökuðum tröll- köllum.“ SKJÁR EINN POPPTÍVÍ 16.00 Trial and Errors (Svik og prettir) 18.00 Chances Are (Lífið er lott- erí) 20.00 Dungeons & Dragons (Drekar og dyflissur) 22.00 Hard Times (Hörkunagli) 0.00 Black Dog (Svarti hundur- inn) 2.00 Hard Times (Hörkunagli) 4.00 Go (Farðu!) BÍÓRÁSIN OMEGA 17.00 Muzik.is 18.00 Fólk - með Sirrý (e) 19.00 Will & Grace (e) 19.30 Everybody Loves Raymond (e) 20.00 Malcolm in the middle 20.30 According to Jim 20.55 Haukur í horni 21.00 The King of Queens 21.30 The Drew Carey Show 22.00 Temptation Island Ein paradísin tekur við af annarri og nú flykkjast pör- in til Ástralíu þar sem þeir- ra bíður hópur sjóðheitra fressa og læða enda fengi- tíminn hafinn og tekur hann ekki endi fyrr en tek- ist hefur að sundra pörun- um eða styrkja samband þeirra. 22.50 Jay Leno 23.40 Law & Order (e) 0.30 Muzik.is Sjá nánar á www.s1.is 16.45 Handboltakvöld Endur- sýndur þáttur frá miðviku- dagskvöldi. 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Stundin okkar Endursýnd- ur þáttur frá sunnudegi. 18.30 Horfin þjóð (Greenland’s Lost Civilization)Heimildar- mynd um hina fornu byggð Íslendinga á Græn- landi. 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.05 Líf og læknisfræði (6:6) 20.35 Nigella (4:10) (Nigella Bites) 21.05 Kviðdómurinn (1:6) (The Jury) 22.00 Tíufréttir 22.20 Beðmál í borginni (5:18) (Sex and the City)Banda- rísk þáttaröð um blaða- konuna Carrie og vinkonur hennar í New York. 22.50 Svona var það (5:27) (That 70’s Show) 23.15 Soprano-fjölskyldan (1:13) (The Sopranos III) e. 0.05 Kastljósið Endursýndur. 0.25 Dagskrárlok STÖÐ 2 KVIKMYND KL. 22 BANEITRAÐUR Baneitraður, eða Lethal Vows, er spennumynd frá árinu 1999. Undanfarin 15 ár hafa reynst Ellen Farris erfið. Hún hefur m.a. barist við veikindi en læknar hennar hafa lítið sem ekkert get- að aðhafst. Þegar eiginkona fyrr- verandi mannsins hennar sýnir sömu einkenni og hún renna tvær grímur á Ellen. Getur verið að eiginmaðurinn eigi sök á öllu saman? Aðalhlutverk leika John Ritter, Marg Helgenberger og Megan Gallagher en leikstjóri er Paul Schneider. Myndin er bönn- uð börnum. SJÓNVARPIÐ ÞÁTTUR KL. 23.10 SOPRANO-FJÖLSKYLDAN Þjóðin bíður í ofvæni eftir að fá að sjá íslensku flugfreyjurnar slá sér upp með bófunum í glæpaflokki Tonys Sopranos en það verður ekki strax. Nýjasta syrpan í myndaflokknum um Soprano-fjölskylduna verður tekin til sýningar eftir áramót. Til að létta hinum fjölmörgu aðdá- endum þáttanna biðina verður síðasta syrpa endursýnd seint á fimmtudagskvöldum. 20.00 Bíórásin Dungeons & Dragons (Drekar og dyflissur) 21.00 Sýn Fimmtudagur (Thursday) 22.00 Stöð 2 Baneitraður (Lethal Vows) 22.00 Bíórásin Hard Times (Hörkunagli) 23.30 Stöð 2 Illur ásetningur (Cruel In- tentions) 0.00 Bíórásin Black Dog (Svarti hundurinn) 1.05 Stöð 2 Mystery í Alaska (Mystery, Alaska) 2.00 Bíórásin Hard Times (Hörkunagli) 4.00 Bíórásin Go (Farðu!) STÖÐ 2 6.58 Ísland í bítið 9.00 Bold and the Beautiful 9.20 Í fínu formi 9.35 Oprah Winfrey 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours 12.25 Í fínu formi 12.40 Mystery, Alaska (Mystery í Alaska)Aðalhlutverk: Russell Crowe, Hank Az- aria, Mary McCormack, Burt Reynolds. Leikstjóri: Jay Roach. 1999. 14.35 Chicago Hope (19:24) 15.15 Dawson’s Creek (8:23) 16.00 Barnatími Stöðvar 2 17.20 Neighbours 17.45 Ally McBeal (2:21) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland í dag 19.30 Andrea 20.00 The Agency (8:22) 20.50 Panorama 20.55 Fréttir 21.00 Rejseholdet (28:30) 21.55 Fréttir 22.00 Lethal Vows (Baneitrað- ur)Aðalhlutverk: John Ritt- er. Leikstjóri: Paul Schneider. 1999. Bönnuð börnum. 23.30 Cruel Intentions (Illur ásetningur)Aðalhlutverk: Sarah Michelle Gellar. Leikstjóri: Roger Kumble. 1999. Bönnuð börnum. 1.05 Mystery, Alaska (Mystery í Alaska) Sjá að ofan. 3.00 Ally McBeal (2:21) 3.40 Ísland í dag 4.05 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí SÝN 18.30 Heimsfótbolti með West Union 19.00 Pacific Blue (13:35) (Kyrra- hafslöggur) 20.00 Sky Action Video (1:12) (Hasar úr lofti) 21.00 Thursday (Fimmtudag- ur)Eiturlyfjasali í Los Ang- eles ákveður að snúa baki við glæpaheiminum og flytur til Houston, giftist og fer að vinna sem fast- eignasali. En gamlir kunn- ingjar koma brátt í heim- sókn og fyrr en varir er friðurinn úti. Aðalhlutverk: Thomas Jane, Aaron Eck- hart, Paulina Porizkova, Mickey Rourke. Leikstjóri: Skip Woods. 1998. Strang- lega bönnuð börnum. 22.30 HM 2002 (Spánn - Slóven- ía) 0.30 Sky Action Video (1:12) (Hasar úr lofti) 1.15 Dagskrárlok og skjáleikur 19.30 Adrian Rogers 20.00 Kvöldljós 21.00 Bænastund 21.30 Joyce Meyer 22.00 Benny Hinn 22.30 Joyce Meyer 23.00 Robert Schuller 16.00 Barnatími Stöðvar 2 Ævintýri Jonna Quests, Með Afa 18.00 Sjónvarpið Stundin okkar FYRIR BÖRNIN Á Breiðbandinu má finna 28 er- lendar sjónvarpsstöðvar sem seldar eru í áskrift og þar af eru 6 Norðurlandastöðvar. Að auki sendir Breiðbandið út flestar ís- lensku útvarpsrásirnar ásamt 10 erlendum tónlistarrásum með mismunandi tónlistarstefnum. LJÓÐ Ingibjörg Haraldsdóttir, rit- höfundur og þýðandi, varð sextíu ára 21. október og þann sama dag kom út hjá Máli og menningu ljóðabók hennar Hvar sem ég verð. Þetta er sjötta bók Ingi- bjargar og fyrsta ljóðabók hennar í átta ár en hún sendi síðast frá sér bókina Höfuð konunnar, sem hlaut góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Ljóðin í bókinni eru ort allt frá því Höfuð konunnar kom út til dagsins í dag. Þetta eru bæði stök ljóð og lengri ljóð, sem mynda saman stutta ljóðabálka sem standa saman og mynda ákveðna heild. Ingibjörg er afkastamikill þýð- andi og hefur verið dugleg við að snúa verkum Dostojefskís á ís- lensku en er ekki að fást við þýð- ingar sem stendur. „Ég ætla að reyna að skrifa svolítið sjálf núna. Ég hef verið að taka saman endur- minningabók og ætla að einbeita mér að henni nú þegar ljóðabókin er komin út. Ég er komin á það virðulegan aldur að það er við hæfi að byrja að rifja upp en ég veit þó ekkert hvort eða hvenær það verður eitthvað úr þessu. Það er svo auðvitað ýmislegt óþýtt og margt sem mig langar að gera í þeim efnum og ég er hvergi nærri hætt.“ Yrkisefni Ingibjargar í Hvar sem ég verð eru hverfulleiki lífs- ins, grimmd þess og óbilgirni, sjálf lífshvötin andspænis tortíming- unni og löngu liðin tíð mitt í þeirri andrá sem var að líða. Það er þó enginn vonleysistónn í skáldinu sjálfu sem er í fullu fjöri og af- skaplega ánægt með lífið og tilver- una á þessum tímamótum.  Hvar sem ég verð Ljóðabók á sextugsafmæli INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR Sló upp veglegri veislu í Gunnarshúsi í til- efni af sextíu ára afmælinu og sendi frá sér nýja ljóðabók á afmælisdaginn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.