Fréttablaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 4
4 24. október 2002 FIMMTUDAGUR
Skólaskipið Dröfn:
Grunnskóla-
nemar læra
SJÓMENNSKA Skólaskipið Dröfn mun
líkt og undanfarin ár fara með elstu
bekki grunnskóla í kennsluferðir.
Fiskifélag Íslands hefur umsjón
með ferðunum í samstarfi við Haf-
rannsóknastofnun. Markmiðið er
að kynna nemendum mikilvægi
fiskveiða og tekur hver ferð um
þrjá tíma. Með í ferð er fiskifræð-
ingur sem fræðir nemendur um líf-
verur sem koma upp úr sjónum.
Eftir að lokið er ferð með nem-
endur af höfuðborgarsvæðinu held-
ur Dröfnin í hringferð um landið og
kemur við á sem flestum höfnum
og fer þaðan með nemendur af
landsbyggðinni.
Hagnaður Landsbanka
fyrstu níu mánuðina:
Tvöfaldast
milli ára
VIÐSKIPTI Hagnaður Landsbanka
Íslands hf. fyrir skatta nam
1.863 milljónum króna fyrstu níu
mánuði ársins, samanborið við
927 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Aukningin er 936 milljón-
ir milli ára eða ríflega 100%. Að
teknu tilliti til skatta nam hagn-
aðurinn 1.489 milljónum saman-
borið við 677 milljónir á sama
tímabili í fyrra. Hagstæðari
gengisþróun og söluhagnaður af
eignarhlut í VÍS skýra viðsnún-
inginn. Í tilkynningu frá Lands-
bankanum segir að afkoma
bankans fyrstu níu mánuði árs-
ins sé við neðri mörk endurnýj-
aðra arðsemismarkmiða til
lengri tíma. Bankinn telji ekki
ástæðu til að endurskoða arð-
semismarkmið bankans fyrir
árið í heild, en þau gera ráð fyr-
ir 12-15% arðsemi eigin fjár eft-
ir skatta. Bankinn gerir þó ráð
fyrir að arðsemi ársins 2002
verði við efri mörk áætlunar.
HÓTANIR Margir bankamenn þora
ekki lengur að láta nafnspjöld sín
liggja frammi á vinnustað þar
sem þeir óttast hótanir viðskipa-
vina þegar heim er komið að
kvöldi. Á nafnspjöldunum eru oft
upplýsingar um einkasíma banka-
mannana og það eru þau númer
sem menn vilja ekki lengur að séu
í fórum ákveðinna viðskiptavina
bankanna. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í niðurstöðum
könnunar sem gerð var á högum
bankamanna fyrir Samband ís-
lenskra bankamanna.
„Þarna eiga í hlut viðskiptavin-
ir bankanna sem búnir eru að
klúðra fjármálum sínum og láta
það bitna á þjónustufulltrúum og
öðrum sem hafa með mál þeirra
að gera í bönkunum. Þetta er nátt-
úrulega ólíðandi þar sem það er
ekki starfsmannanna að ákveða
hvort um frekari fyrirgreiðslu
verði að ræða heldur koma skip-
anir þar að lútandi að ofan,“ segir
Friðbert Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna,
um ótta skjólstæðinga sinna. „Það
þýðir ekkert að skjóta sendiboð-
ann,“ segir hann.
Dæmi eru þess að bankamenn
hafi fengið hótanir símleiðis á
heimili sín að loknum vinnudegi.
Að sögn Friðberts bregður fólki
við slíkt: „Þetta er alveg nýtt fyr-
irbæri. Heyrði fyrst af þessu fyr-
ir þremur árum eða svo,“ segir
hann. „Við þurfum að ræða þetta
við stjórnendur bankanna. Þetta
vandamál er ekki hægt að leggja
beint á starfsfólkið.“
Könnun sýnir ótta við viðskiptavini:
Bankamenn fela
nafnspjöldin sín
Í BANKA
Þýðir ekki að skjóta sendiboðann þegar
menn hafa klúðrað fjármálum sínum.
MENNTUN Verið er að leggja loka-
hönd á samning á milli mennta-
málaráðuneytisins og Menntafé-
lagsins um leigu á Sjómannaskól-
anum og rekstri hans til fimm ára
í senn. Í Sjómanna-
skólanum eru sem
kunnugt er reknir
Stýrimannaskólinn
og Vélskólinn. Að
baki Menntafé-
laginu standa
Landssamband ís-
lenskra útvegs-
manna, kaupskipa-
útgerðir í landinu
og Samband orku-
veitna.
„Hugmyndin er
að stofna félag um rekstur skól-
ans og reka hann síðan í samráði
við hagsmunasamtökin sem eiga
aðild að málinu,“ segir Jón
Sigurðsson, stjórnarformaður
Byggðastofnunar, sem unnið hef-
ur að undirbúningi málsins fyrir
tilstilli Björns Bjarnasonar, fyrr-
verandi menntamálaráðherra.
„Með þessu erum við í raun að
gera þjónustusamning við ríkið og
breyta ríkisstofnun í þjónustu-
stofnun,“ segir Jón Sigurðsson
sem gerir ráð fyrir að nýtt fyrir-
komulag á rekstri Sjómannaskól-
ans geti komið til framkvæmda
strax á næsta skólaári. Jón telur
einnig líklegt að samfara breyt-
ingunum verði skipt um stjórn-
endur í skólunum sem um ræðir.
Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólameistari Stýrimannaskólans,
hefur lýst áhyggjum sínum vegna
dræmrar aðsóknar að skóla sínum
á undanförnum árum. Þar eru nú
70 nemendur í stýrimannanámi en
þyrftu að vera um 100 talsins til
að viðhalda stéttinni að mati
skólameistarans. Þó hefur ein-
hver fjölgun orðið frá árinu þar á
undan. Guðjón Ármann telur að
stýrimannastarfið sé ekki lengur í
tísku og því viðhorfi þurfi að
breyta. Að því stefnir einmitt
Menntafélagið með því að yfir-
taka Sjómannaskólann: „Að
tengja námið sem best við þá
hagsmuni sem um er að ræða,“
eins og Jón Sigurðsson orðar það.
eir@frettabladid.is
Sjómannaskólinn
einkavæddur
Reksturinn leigður út til hagsmunasamtaka í fimm ár í senn. Samning-
ar við menntamálaráðuneytið á lokastigi. Skipt um stjórnendur.
SJÓMANNASKÓLINN
Verið er að breyta ríkisstofnun í þjónustustofnun að sögn Jons sigurðssonar.
„Hugmyndin
er að stofna
félag um
rekstur skól-
ans og reka
hann síðan í
samráði við
hagsmuna-
samtökin sem
eiga aðild að
málinu.“
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Hvalveiðimál komin í skrýtinn búning, býst
við líflegri umræðu um þau á þingi.
Frjálslyndi flokkurinn:
Aukin pressa
ALÞINGI „Upphaf þingsins hefur
verið nokkuð hefðbundið, það hef-
ur mikið verið rætt um stjórnar-
andstöðumál. Þegar leið að kjör-
dæmahléi fóru að tínast inn mál
frá ríkisstjórninni. Ætli það verði
ekki meiri pressa á mál ríkis-
stjórnarinnar fram að jólum,“
segir Guðjón A. Kristjánsson,
þingflokksformaður Frjálslynda
flokksins.
Guðjón segir fjárlögin munu
setja talsverðan svip á umræðuna
fram að jólum, sem og einkavæð-
ingin, sem honum sýnist einkenn-
ast af helmingaskiptum. Mikil-
væg mál hafi verið rædd og bíði
frekari afgreiðslu, svo sem vöru-
verð og flutningsgjöld auk lífeyr-
isréttinda sjómanna.
Veður:
Breytt spá
KULDI Hlýrra loft frá Skandinavíu
og Norður-Evrópu sem spáð hafði
verið að gengi yfir landið í dag
breytti um stefnu og lætur fyrir
bragðið á sér standa. Áfram verð-
ur því kalt í lofti og pólvindarnir
samir við sig. Hlýrra loftið, sem
spáð hafði verið, átti að vera það
sama og var í Kaupmannahöfn
fyrir nokkrum dögum en sveigði
af leið sinni hingað til lands og fór
annað.
JERÚSALEM, AP Bandarísk sendi-
nefnd kom til Ísraels í gær til þess
að ræða um nýja friðaráætlun, sem
Bandaríkin ætla að reyna að fá
bæði Palestínumenn og Ísraels-
menn til þess að fallast á. Hvorir
tveggja sögðu áætlunina þó of
óljósa um mörg atriði.
Samkvæmt hugmyndum Banda-
ríkjanna eiga Palestínumenn að
stofna sjálfstætt ríki í þremur
áföngum. Ferli þessu á að ljúka árið
2005. Þessar hugmyndir hafa ekki
verið birtar opinberlega, en nokkur
efnisatriði þeirra hafa orðið heyrin-
kunnug.
Fyrsti áfanginn á að standa frá
því í nóvember á þessu ári þangað
til í apríl á næsta ári. Á þessu tíma-
bili á vopnahlé að komast á, ofbeld-
isverkum að linna og ísraelski her-
inn að fara frá herteknu svæðunum
á Vesturbakkanum og Gaza-strönd.
Ísraelsmenn segja að þeir fái
enga tryggingu fyrir því að Palest-
ínumenn hætti árásum sínum á
Ísraelsmenn.
Í öðrum áfanga, sem stendur frá
maí til desember á næsta ári, verð-
ur Palestínuríki stofnað með bráða-
birgðalandamærum.
Í síðasta áfanga er svo gert ráð
fyrir að samið verði um þau erfiðu
mál, sem ekki hefur tekist að
semja um til þessa, svo sem varan-
leg landamæri, skiptingu Jerúsal-
emborgar, afdrif landnemabyggð-
anna og afdrif palestínskra flótta-
manna.
Fulltrúi Bandaríkjanna til Ísraels:
Kynnir þriggja
þrepa friðartillögur
NÁGRANNAR Í RÚSTUM
Þessir Palestínumenn bjuggu við hliðina á
Shadi Najami, sem týndi lífinu þegar hann
hóf skotárás á Ísraelsmenn fyrr á árinu.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Telur þú að eldvarnir séu í lagi
á þínu heimili ?
Spurning dagsins í dag:
Gekk forsætisráðherra of langt með því
að snupra Hallgrím Helgason fyrir grein
hans um bláu höndina?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
43,7%
56,3%Já
ELDVÖRNUM
ÁBÓTAVANT
Eldvarnir virðast einungis
í lagi á rúmlega helmingi
heimila í landinu. Á fjór-
um af hverjum tíu heim-
ilum er eldvörnum
ábótavant.
Nei
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Afkoma VÍS fyrstu níu
mánuði ársins:
Hagnaður
429 milljónir
VIÐSKIPTI Hagnaður VÍS eftir
skatta fyrstu 9 mánuði ársins nam
429 milljónum króna. Þetta er 90
milljónum króna betri afkoma en á
sama tímabili í fyrra. Fyrir
skatta nam hagnaður af vátrygg-
ingarekstri 316 milljónum og
hagnaður af fjármálarekstri var
252 milljónir. Heildareignir félags-
ins námu í lok september rúmlega
23 milljörðum króna og bókfært
eigið fé var um 4 milljarðar króna.
Rekstraráætlun ársins gerir
ráð fyrir hagnaði að fjárhæð 501
milljónir króna eftir skatta.