Fréttablaðið - 24.10.2002, Síða 14
14 24. október 2002 FIMMTUDAGUR
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4
ROAD TO PERDITION FORSÝND kl. 8
MR. DEEDS kl. 5.50, 8 og 10.10
WINDTALKERS kl. 8 og 10.50
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
kl. 8.30PAM OG NÓI...
kl. 8 THE GURU
THE BOURNE IDENTITY kl. 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 6 og 10
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.50 VIT429
INSOMNIA kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT444 HAFIÐ kl. 4 og 6
VIT
433
SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427
MAX KLEEBLE´S... kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.10 VIT427
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT 455
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 457
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 458
KVIKMYNDIR
Norður í Kelduhverfi búafrænkurnar Pam og Noi
sem ættaðar eru frá Tælandi.
Heimildamyndin NOI & PAM og
mennirnir þeirra segir sögu
þeirra frá því þær ólust upp í
litlu þorpi þangað til þær, með
millilendingu í Bangkok, eru
komnar norður í Þingeyjar-
sýslu, báðar í sambúð við ís-
lenska menn. Meginþungi
myndarinnar er lýsing á að-
stæðum þeirra þar.
Þetta er heiðarleg og tilgerð-
arlaus mynd, raunsönn lýsing á
aðstæðum þessara tveggja
kvenna. Þarna er hvorki verið
að draga upp glansmynd, né út-
mála aðstæður á neikvæðan
hátt. Myndin er um leið bæði
falleg og skemmtileg. Annað
parið sem fylgst er með virðist
hafa fundið hamingjuna hvort
með öðru en ekki endilega hitt.
Svona er lífið.
Það er alltaf fengur að góð-
um heimildamyndum. Hnökrar
eins og óskýrt hljóð á köflum og
að myndin hefði að ósekju mátt
vera svo sem 10 mínútum styttri
(er 80 mínútur að lengd) verða
léttvægir á móti góðum kostum
myndarinnar.
Steinunn Stefánsdóttir
NOI & PAM OG MENNIRNIR ÞEIRRA:
Heimildamynd eftir Ásthildi Kjartansdóttur
Sannar sögur
að norðan
kl. 5.45, 8 og 10.15HAFIÐ
kl. 6FÁLKAR
KVIKMYNDIR Getur maður sem
hefur þjónað illum öflum sam-
viskulaust í mörg ár öðlast sálu-
hjálp í gegnum son sinn? Þetta er
helsta spurning kvikmyndarinn-
ar „The Road to Perdition“ eftir
leikstjórann Sam Mendes.
Í kvikmyndinni leikur Tom
Hanks leigumorðingjann Michael
Sullivan sem losar írsku mafíuna
við þá sem ógna starfsemi henn-
ar. Hann er gjörsamlega mis-
kunnarlaus í starfi sínu og geng-
ur undir nafninu „Engill Dauð-
ans“. En hann er einnig faðir
tveggja drengja og sýnir þeim
aldrei annað en ástúð og skilning.
Hann er hamingjusamlega giftur
og ekkert virðist honum mikil-
vægara en að synir hans fái gott
uppeldi. Þeir vita því ekkert
hvernig pabbi þeirra vinnur sér
inn fyrir hafragrautnum.
Sullivan er afar náinn yfir-
manni sínum, glæpakónginum
John Rooney (Paul Newman),
sem gekk honum í föðurstað eftir
að hafa bjargað lífi hans á unga
aldri. Heimar Sullivans rekast
svo harkalega á þegar annar son-
ur hans sér til pabba síns í „vinn-
unni“. Árekstur heimanna
tveggja á eftir að hafa afdrifarík-
ar afleiðingar í för með sér. Fyrr
en varir er Sullivan sjálfur kom-
inn með leigumorðingja á hæla
sér. Það er hinn ungi og metnað-
arfulli Harlen Maguire (Jude
Law) sem fær það vafasama hlut-
verk að fella „Engil dauðans“.
Myndin er gerð eftir sam-
nefndri myndasögu Max Allan
Collins og Richard Piers Rayner.
Myndin komst til framleiðslu eft-
ir að leikstjórinn Steven Spiel-
berg kom eintaki af bókinni í
hendurnar á Hanks. Honum leist
svo vel á söguna að hann tók að
sér hlutverkið áður en handrit
myndarinnar var skrifað. Saman
náðu þeir Hanks og Spielberg að
sannfæra Sam Mendes um að
taka að sér leikstjórn. Þeir voru
svo allir á einu máli um að aðeins
einn maður gæti tekið að sér hlut-
verk hins tvíræða undirheima-
kóngs John Rooney. Svo býr hann
líka til ágætis poppkorn!
biggi@frettabladid.is
THE ROAD TO PERDITION
Hanks leikur að mörgu leyti samviskulausari persónu en hann er þekktur fyrir hingað
til. Líklegast ekki kallaður „Engill dauðans“ fyrir ekki neitt.
Á morgun frumsýna Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó Akur-
eyri kvikmyndina „The Road to Perdition“. Myndin er fyrsta mynd
leikstjórans Sam Mendes eftir að hann vann Óskarsverðlaun fyrir
„American Beauty“.
Írska hljómsveitin Ash mun hitaupp fyrir Coldplay á tónleikum
þeirra í Laugardalshöll þann 19.
desember næst-
komandi. Sala
miða hefst mánu-
daginn 18. nóvem-
ber í verslunum
Skífunnar. Miða-
verð í stæði verð-
ur 4400 kr. en
5400 kr. í stúku.
Stjórinn sjálfur, BruceSpringsteen, gefur í næsta
mánuði út fyrstu smáskífu sína í
fimm ár. Þar
verður að finna
lagið „Lonesome
Day,“ sem tekið
er af breiðskíf-
unni „The Ris-
ing,“ sem samin
var í kjölfar
hryðjuverka-
árásanna á
Bandaríkin. Síðasta smáskífa
kappans hét „Secret Garden“ og
hljómaði það lag í kvikmyndinni
„Jerry Maguire“ með Tom Cruise
í aðalhlutverki. „Stjórinn“ er um
þessar mundir að ljúka tónleika-
ferð sinni um Evrópu.
Útgefendur í Bandaríkjunumeru farnir að undirbúa útgáfu
á nýrri bók um Guðföðurinn. Út-
gáfufyrirtækið Random House
hefur fengið leyfi fjölskyldu
Mario Puzo, sem skrifaði upphaf-
legu sögurnar, fyrir því að fá
annan rithöfund til að gefa Cor-
leone-fjölskyldunni nýtt líf. Kvik-
myndaframleiðandinn Paramount
Pictures, sem framleiddi allar
þrjár myndirnar um Guðföður-
inn, á útgáfuréttinn á framleiðslu
myndar eftir bókinni. „Það er gíf-
urlegur áhugi á Corleone-fjöl-
skyldunni og þetta er frábært
tækifæri til að segja sögu sem
gæti gerst fyrir, á meðan, eða á
eftir sögunni sem sögð var í
fyrstu bókinni,“ sagði talsmaður
Random House. Tilkynnt verður í
næsta mánuði hver höfundur
nýju bókarinnar er.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Engill dauðans í
fjölskyldudrama
FÓLK Söngvarinn Ozzy Osbourne
sagði í viðtali við Radio Times að
hann hefði gjörsamlega „fríkað“
út þegar hann var kynntur fyrir
Elísabetu Bretlandsdrottningu á
Golden Jubileum-popptónleikun-
um í Buckingham Palace í júní.
„Ég býst við að ég hafi verið al-
gjör innanhússbrandari. Drottn-
ingin talaði við mig en ég man
ekki orð af því sem hún sagði. Sjá-
ið bara myndirnar. Ég er í áfalli,“
segir Osbourne. Hann segist vera
taugaveiklaðasti gæi í heimi. „Ég
fæddist skelfingu lostinn,“ segir
hann.
Osbourne hefur unnið sér ým-
islegt til frægðar, meðal annars
beit hann eitt sinn höfuð af leður-
blöku á tónleikum og kastaði
þvagi á hið fræga Alabama-virki í
Bandaríkjunum, klæddur sem
kvenmaður.
Ozzy Osbourne hitti Bretadrottningu:
Man ekkert
hvað hún sagði
BUCKINGHAM
Eldur kom upp í höllu drottningar í sumar
þegar Golden Jubileum-hátíðin stóð sem
hæst. Ozzy Osbourne fékk að hitta drottn-
inguna og býst við að hafa verið innan-
hússbrandari, svo hallærislegur var hann.
DÓMAR Í ERLENDUM
MIÐLUM:
Internet Movie Database - 8.1 af 10
(139. sæti yfir bestu myndir allra tíma)
Rotten tomatoes - 82 % = Fresh
Ebert & Roeper - tveir þumlar upp
MARTIN
Chris Martin var í skýjunum á tónleikunum
í Lundúnum.
Söngvari Coldplay:
Tileinkaði
Paltrow lag
TÓNLIST Chris Martin, söngvari Ís-
landsvinanna í Coldplay, tileink-
aði leikkonunni og vinkonu sinni
Gwyneth Paltrow lagið vinsæla
„In my Place“ á tónleikum í Lund-
únum fyrir skömmu. Var Paltrow
á meðal tónleikagesta. Martin,
sem tileinkaði móður sinni einnig
nokkur lög á tónleikunum, var í
afar góðu skapi því skömmu áður
hlaut Coldplay Q-verðlaunin fyrir
bestu breiðskífu ársins, „A Rush
of Blood to the Head.“
Unglist í Tjarnarbíói í
kvöld:
Keppt
í leiklist
UNGLIST Einn af nýjum dag-
skrárliðum Unglistar, listahátíðar
ungs fólks sem Hitt húsið heldur
árlega, er keppnin „Leiktu betur“.
Í Tjarnarbíó í kvöld takast nem-
endur úr 12 framhaldsskólum höf-
uðborgarsvæðisins á í leikrænni
tjáningu.
Svipuð keppni hafur áður verið
haldin í Iðnó, og kallaðist þá
„Leikhússport“, auk þess sem
margir muna eftir sjónvarpsþætt-
inum „Stutt í spunann“. Þetta mun
þó vera í fyrsta skiptið sem fram-
haldsskólanemendur leiða saman
leikhesta sína.
Leikararnir ungu þurfa á ör-
stuttum tíma að túlka persónur úr
söngleikjum, ballet, óperu og
splatter án æfingar. Þetta verður
aðeins fyrsta keppnin af mörgum
því liðin ætla eftir jól að keppa í
hverri viku.
Keppnin fer þannig fram að
tvö lið keppa í einu og skorar ann-
að liðið á andstæðinginn að fara
með ákveðinn spuna. Liðunum til
stuðnings leikur Pálmi Sigur-
hjartarson, tónlistarstjóri keppn-
innar, undir á hljómborð. Stjórn-
andi keppninnar heitir Jón Gunn-
ar Þórðarson.
Keppnin hefst stundvíslega kl.
20, aðgangur er ókeypis.