Fréttablaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 24
Ég byrja á að játa að ég er lag-laus. Get ekki haldið lagi og ekki
takti. Mamma mín átti þann draum
þegar ég var snáði að ég yrði jafn-
góður dansari og sá ágæti maður
sem ég er skírður eftir. Hún reyndi
að kenna mér sporin á eldhúsgólfinu
undir súðinni á Krosseyrarveginum.
Í útvarpinu voru leikin danslög á
laugardagskvöldum og þau ætlaði
mamma að nota til að gera mig að
dansara. Hún gafst upp.
ANNAÐ SEM ég á erfitt með að
gleyma eru leikfimitímarnir í skóla.
Flestir hófust á því að okkur var
sagt að ganga í beinni röð - í takt.
Það var mér ofraun. Ekki að ganga í
röð - heldur að vera í takt. Ég vissi
þá að ég átti von á leiftursnöggum
athugasemdum kennarans og á með-
an ég reyndi að hoppa í takt bekkj-
arfélaganna hertist kvíðahnúturinn í
maganum. Ég slapp aldrei. Sigurjón,
vera í takt! Ég heyri þetta enn. En
get brosað innra með mér, ég þarf
ekki að ganga í einfaldri röð og ekki
í takt og ég þarf ekki að dansa, enda
kann ég það ekki.
ÞAÐ ER EKKI nóg að ganga í takt
í leikfimi. Þess er krafist af okkur í
lífinu að vera í takt hvert við annað.
Útvaldir ákveða hver takturinn á að
vera og við hin eigum að fylgja. Á
fjögurra ára fresti kjósum við þá
sem eiga að gefa taktinn, og gera
það. Nú er að heyra á fólki að því
þyki takturinn fast sleginn, stund-
um leiftursnöggt. Fyrir mína parta
verð ég að segja að ekki myndast
lengur hnútur í maganum á mér þó
ég telji mig ekki vera í takt.
ÞAÐ Á blessunarlega við um fleiri.
Sá sem stjórnar dansinum er ekki
alltaf sáttur og notar sínar aðferðir
þegar honum mislíkar við þá sem
ekki ganga í þeim takti sem hann
helst vildi. Í leikfiminni forðum var
kallað leiftursnöggt ef nemendur
héldu ekki takti. Prestur skrifaði
smásögu og með leifturhraða var
hann settur af, rithöfundur skrifaði
eitthvað sem ekki var í takt og hann
var leiftursnöggt kallaður á teppið,
Þjóðhagsstofnun spáði ekki í takt og
leiftursnöggt var hún sett af. Svo
fátt eitt sé nefnt.
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a
K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
0
1
0/
20
02
20 - 30% afsláttur
Hreinlætistækjadagar
Gustavsberg salerni með innbyggðum stút.
19.990 kr.
Verð áður: 24.776 kr.
Gustavsberg handlaug 56x42 sm.
4.770 kr.
Verð áður: 5.964 kr.
Merkur baðtæki.
22.390 kr.
Verð áður: 27.971 kr.
Merkur handlaugartæki.
19.790 kr.
Verð áður: 24.658 kr.
Tradition handlaugartæki.
14.200 kr.
Verð áður: 20.245 kr.
Jupiter baðtæki.
16.530 kr.
Verð áður: 20.663 kr.
Gustavsberg salerni, upphengt.
24.890 kr.
Verð áður: 34.736 kr.
Gustavsberg handlaug í borð 56x40 sm.
11.920 kr.
Verð áður: 14.908 kr.
Að ganga
í takt
Bakþankar
Sigurjóns M. Egilssonar
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg . i s