Fréttablaðið - 07.11.2002, Page 6
6 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.17 0.06%
Sterlingspund 135.88 -0.29%
Dönsk króna 11.69 -0.52%
Evra 86.88 -0.50%
Gengisvístala krónu 130,08 -0,12%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 259
Velta 3.651 milljónir
ICEX-15 1.308 -0,64%
MESTU VIÐSKIPTI
Hampiðjan hf. 98.378.364
Búnaðarbanki Íslands hf. 82.433.719
Íslandsbanki hf. 77.270.400
MESTA HÆKKUN
Íslandssími hf. 4,48%
Skýrr hf. 3,77%
Bakkavör Group hf. 2,73%
MESTA LÆKKUN
Íslenska Járnblendifélagið hf. -21,43%
Hampiðjan hf. -4,65%
Baugur Group hf. -3,03%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8709,2 0,40%
Nsdaq*: 1406 0,30%
FTSE: 4124,6 -0,50%
DAX: 3376,7 0,80%
Nikkei: 8953,3 0,20%
S&P*: 918,6 0,30%
VILL RÚV Á SUÐURLAND Ísólfur
Gylfi Pálmason, Framsóknar-
flokki, hvatti Tómas Inga Olrich
menntamálaráðherra til að beita
sér fyrir því að sett yrði upp sér-
stök starfsstöð Ríkisútvarpsins í
nýju Suðurkjördæmi.
LÖNG BIÐ EFTIR MENNINGAR-
HÚSUM Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna, lýsti
furðu sinni á miklum drætti á því
að menningarhús á landsbyggð-
inni risu, tæp fjögur ár væru lið-
in frá því húsunum var lofað án
þess að eitt einasta þeirra væri
risið. Menntamálaráðherra sagði
málið komið í gang, bygging hús-
anna hefði þó alltaf verið tengd
sölu ríkiseigna.
TALSMAÐUR
Talsmaður indónesísku lögreglunnar,
Prasetyo að nafni, ræðir við fréttamenn í
Jakarta í gær. Rannsókn á sprengingunni
stendur yfir.
Sprengingin á Balí:
Tíu manns
yfirheyrðir
JAKARTA, INDÓNESÍU, AP Að minnsta
kosti tíu manns hafa verið yfir-
heyrðir hjá lögreglunni á
Indónesíu vegna sprengingarinn-
ar á Balí í síðasta mánuði sem
varð rúmlega 180 manns að bana.
Á meðal þeirra eru tveir menn
sem handteknir voru í fyrradag.
Komið hefur í ljós að annar mann-
anna, sem handtekinn var með
fölsuð skilríki, átti engan þátt í
sprengingunni.
Um 120 lögreglumenn hafa
tekið þátt í rannsókn málsins und-
anfarnar vikur. Enginn hefur enn
lýst ábyrgð á verknaðinum á
hendur sér.
TVEIR ÍSRAELAR SKOTNIR
Palestínskur vígamaður skaut tvo
Ísraelsmenn til bana í byggð gyð-
inga á Gaza-svæðinu. Ísrael-
arnir voru að störfum í gróður-
húsi þegar skotárásin átti sér
stað.
PITT SAGÐI AF SÉR Harvey Pitt,
yfirmaður Fjármálaeftirlitsstofn-
unar Bandaríkjanna, hefur sagt
af sér. Pitt tók við starfinu fyrir
aðeins einu ári síðan en hefur
verið harðlega gagnrýndur fyrir
meðhöndlun sína á þeim fjár-
málahneykslum sem gengið hafa
yfir bandarískt viðskiptalíf und-
anfarið ár.
ÓVISSA Í TYRKLANDI Enn ríkir
mikil óvissa í Tyrklandi um hver
verði næsti forsætisráðherra
landsins. Kosningum þar í landi
lauk fyrir þremur dögum síðan.
Samkvæmt stjórnarskránni má
sigurvegari kosninganna, Recep
Tayyip Erdogan, leiðtogi Réttlæt-
is- og þróunarflokksins, ekki
gegna starfinu.
ERLENT
INNLENT
VILJA VEGRIÐ Á GEMLUFALLS-
HEIÐI Um átta hundruð manns
hafa skrifað nafn sitt á undir-
skriftalista þar sem farið er fram
á að sett verði upp vegrið á
Gemlufallsheiði vegna slysa-
hættu. Forsvarsmönnum Vega-
gerðarinnar á Ísafirði hefur verið
afhentur listinn. bb.is
Lestarslys í Frakklandi:
Tólf fórust og níu slösuðust
NANCY, FRAKKLANDI, AP Tólf manns
fórust og níu slösuðust þegar eld-
ur kom upp í miðnæturhraðlest
sem var á leið í gegnum borgina
Nancy í Frakklandi. Talið er að
bilun tengd rafmagni í hitunar-
kerfi lestarinnar hafi valdið slys-
inu. 150 farþegar voru um borð í
lestinni, sem var á leið til Austur-
ríkis þegar atvikið átti sér stað.
Sex karlar, fimm konur og eitt
barn fórust, flest af völdum reyk-
eitrunar. Að sögn þýska utanrík-
isráðuneytisins voru fjórir hinna
látnu Þjóðverjar. Hinir slösuðu,
fjórir Þjóðverjar, tveir Bretar og
tveir Frakkar, eru ekki taldir í
lífshættu.
Mannskæð lestarslys eru fá-
tíð í Frakklandi. Lestakerfi
landsins er talið eitt það besta í
heiminum og margar aðrar þjóð-
ir hafa tekið það sér til fyrir-
myndar.
AP
/M
YN
D
SLÖKKVISTARF
Slökkviliðsmenn að störfum við lestina í Frakklandi í gær. Lestakerfi Frakklands
hefur löngum verið talið eitt það besta í heiminum.
AP
/M
YN
D
BÖRN Mál tengd drengnum sem
tekinn var með 13 grömm af
kannabisefnum við sjoppu á
Blönduósi í fyrradag hafa ekki
áður komið inn á
borð Barnavernd-
arstofu. Bragi Guð-
brandsson, for-
stjóri stofnunarinn-
ar, segir að líklega
verði sótt um með-
ferðarvistun fyrir
hann, en hann dvel-
ur nú á lokaðri
deild á meðferðar-
heimilinu Stuðlum.
„Til þess að geta
sótt um meðferð
fyrir barn þarf
samþykki forsjáraðila, foreldra,“
segir Bragi. „Það þekkist að þetta
samþykki fáist ekki, en það er
fátítt. Meginreglan er sú að for-
eldrum er umhugað um að koma
börnunum sínum í meðferð, en ef
það er verulegur vandi hjá foreld-
unum og þeir kannski í neyslu
hafa þeir neitað því. Þá stendur
barnaverndarnefnd frammi fyrir
því að láta annað hvort kyrrt
liggja í bili og fylgjast með eða að
fara út í sviptingarúrskurð.“
Á Stuðlum er meðal annars
neyðarvistun, þar sem hægt er að
vista börn fyrirvaralaust að
beiðni barnaverndarnefnda eða
lögreglu. Hægt er að halda barni
þar í allt að 14 daga. Á þeim tíma
á viðkomandi barnaverndarnefnd
að vera búin að gera áætlun um
það hvernig best sé að koma barn-
inu til hjálpar. Það getur verið
sent á meðferðarstofnun eða heim
til sín, þar sem það fær þá stuðn-
ing frá ráðgjöfum eða sálfræðing-
um.
Bragi segir að margar ástæður
geti legið að baki vanda barna
sem lendi í álíka ógöngum og
þessi 13 ára drengur hafi gert.
„Þó vandinn birtist í vímuefna-
neyslu er ekki þar með sagt að
hún sé raunverulega aðalvanda-
málið. Margs konar önnur atriði
geta komið til. Barnið getur gre-
inst með athyglisbresti, ofvirkni
eða misþroska. Það getur hafa
sætt kynferðisofbeldi og þá er
neyslan bara aðferð til að deyfa
sársaukann. Þá geta einnig verið
mikil vandamál inni á heimilinu.“
Bragi segir að þegar um sé að
ræða börn í vanda sé auðvitað
æskilegast að reyna að leysa
vandann án þess að þurfa að grípa
til róttækra aðgerða eins og lang-
tímameðferðar á stofnun. Barna-
verndarnefnd beri alltaf að beita
vægustu úrræðum sem líklegt
þykir að dugi. Stundum sé vand-
inn hins vegar svo stór að ekkert
annað úrræði sé til en að senda
barnið í langtímameðferð eða svo-
kallað enduruppeldi.
trausti@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Gera má ráð
fyrir að kostnaður vegna
prófkjörsbaráttu fram-
bjóðanda sem vill hafa
mikið við og stefnir á eitt-
hvert af efstu sætum
flokkana sé á bilinu 2-3
milljónir króna:
„Þessi kostnaður á
ekki við um alla en gæti
hæglega verið réttur hjá
þeim sem mest í
leggja,“ segir Halldór Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri auglýs-
ingastofunnar Hvíta hússins, en
Halldór gjörþekkir auglýsinga-
mennsku sem fylgir kosningum og
hefur ráðlagt frambjóðendum í
þeim efnum um árabil. „Hins veg-
ar er það
þannig að í pólitík mega hlutirnir
helst ekki kosta neitt.
Menn virkja vini og
vandamenn mikið til
verka,“ segir hann.
Frambjóðendur sem
tóku þátt í prófkjörum
fyrir síðustu Alþingis-
kosningar eru margir
hverjir að ljúka greiðsl-
um á lánum sem þeir
tóku þá. Og nú þarf að
byrja upp á nýtt. Ef
frambjóðandi tekur óverðtryggt
neytendalán á tólf prósenta vöxt-
um til að fjármagna kosningabar-
áttu sína þarf hann að greiða tæp-
ar 80 þúsund krónur á mánuði út
allt kjörtímabilið ef miðað er við
jafnar greiðslur: „Þetta getur ver-
ið þungur baggi fyrir venjulegan
launamann,“ segir Halldór.
PRÓFKJÖR
Kostnaður getur verið
þungur baggi fyrir
venjulegan launamann.
Prófkjörsbarátta á 3 milljónir króna:
80 þúsund á mánuði
allt kjörtímabilið
BÖRN Í VANDA
Á Stuðlum er meðal annars neyðarvistun, þar sem hægt er að vista börn fyrirvaralaust að
beiðni barnaverndarnefnda eða lögreglu. Hægt er að halda barni þar í allt að 14 daga. Á
þeim tíma á viðkomandi barnaverndarnefnd að vera búin að gera áætlun um það hvernig
best sé að koma barninu til hjálpar.
Samþykkja ekki
alltaf meðferð barna
„Barnið getur
greinst með
athyglisbresti,
ofvirkni eða
misþroska.
Það getur hafa
sætt kynferðis-
ofbeldi og þá
er neyslan
bara aðferð til
að deyfa sárs-
aukann.“
Dómsmálaráðherra:
Engar
leyni-
löggur
ALÞINGI Engin áform eru uppi um
að setja á fót leynilögreglu að er-
lendri fyrirmynd, sagði Sólveig
Pétursdóttir dómsmálaráðherra í
fyrirspurnatíma á Alþingi.
Ögmundur Jónasson, Vinstri-
grænum, spurðist fyrir um fyrir-
ætlanir stjórnvalda. Hann lýsti
efasemdum um ágæti þess að
stjórnvöld gætu fylgst of náið
með þegnunum, slíkar heimildir
hefðu víða verið misnotaðar.
Sólveig sagði að nú þegar
væru heimildir til að hafa eftirlit
með fólki. Skýrari ramma skorti
þó um starfsemina og hvernig
skyldi haga eftirliti með slíkri
starfsemi.
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 22.
1.
2.
3.
Fjármál Raufarhafnarhrepps hafa
verið til umfjöllunar. Hvað heitir
núverandi sveitarstjóri?
Hvað heitir húsið sem
Kári Stefánsson hefur keypt?
Hversu mikið er talið að S-hópur-
inn borgi fyrir væntanlegan hlut í
Búnaðarbankanum?
Barnaverndaryfirvöld þurfa samþykki foreldra til þess að senda börn á
meðferðarstofnun. Forstjóri Barnaverndarstofu segir dæmi um að for-
eldrar neiti. Vímuefnaneysla barna sé ekki alltaf aðalvandamálið.
Jóhanna í forystusæti
Jóhanna nær árangri!
Sími: 690-6666, 864-6700
Jóhanna Sigurðardóttir er
einstæður stjórnmála-
maður. Hún hefur ótrauð
staðið vörð um grund-
vallargildi velferðarsam-
félagsins, kjarna jafnaðar-
stefnunnar. Hún nýtur
fádæma vinsælda og
trausts, enda hafa fáir
stjórnmálamenn staðið
vaktina betur í þágu
íslensks almennings.