Fréttablaðið - 07.11.2002, Page 13
13FIMMTUDAGUR 7. nóvember 2002
fiakkargjör›arhátí› Gauja litla
í Loftkastalanum sunnudaginn 10. nóvember kl. 17:00
Gaui litli mun í máli og myndum rekja sögu sína sí›ustu 6 árin
og uppl‡sa margt sem ekki hefur liti› dagsins ljós til flessa.
Gaui litli mun láta allt flakka og fletta ofan af Vambarpúkanum.
Fjölbreytt dagskrá
Tískus‡ning
Naglasnyrtikynning
Árangurskynning
Kynning á n‡jungum næstu námskei›a
Léttar veitingar
Allir gestir ver›a leystir út me› gjöfum
Frítt inn fyrir alla á me›an húsrúm leyfir.
Komi› og veri› me› og taki› me› ykkur gesti !
Skráning er hafin á hinum vinsælu 8 vikna unglinganámskei›um Gauja litla.
N‡ unglinganámskei› a› hefjast
Eitt ver› á öll námskei› 14.500 kr. fram í janúar 2003.
Skráning og uppl‡singar í síma 561 8585
FÓTBOLTI Michael Owen, leikmaður
Liverpool, lofar frammistöðu tán-
ingsins Wayne Rooney hjá Everton
og segist hlakka til að leika með
honum í enska landsliðinu. „Roon-
ey er frábær leikmaður. Hann var
hetja í heimabæ sínum en nú vita
allir á Englandi hver hann er.
Næsta skref er að kynna hann fyr-
ir alþjóð,“ sagði Owen um táning-
inn snjalla. „Ég held að leiðin liggi
bara upp á við hjá honum. En hann
verður að fara varlega því leik-
menn koma og fara og það er erfitt
að vera meðal þeirra bestu.“
Líklegt þykir að Sven-Göran
Eriksson, landsliðsþjálfari Eng-
lands, muni velja Rooney í lands-
liðshópinn fyrir leiki gegn Dönum
og Áströlum í febrúar.
Að undanförnu hefur Rooney,
sem er 17 ára, verið líkt við Owen
enda sló sá síðarnefndi í gegn þeg-
ar hann var á aldur við Rooney.
Rooney hefur sannarlega slegið í
gegn í ensku úrvalsdeildinni. Hann
hefur tvívegis skorað sigurmark
liðsins, gegn Leeds og Arsenal, og
fyrir vikið er Everton komið í
toppbaráttuna.
Michael Owen:
Lofar frammi-
stöðu Rooney
WAYNE ROONEY
Er hetja hjá stuðningsmönnum Everton.
Líklegt þykir að hann verði kallaður í
landsliðshóp Englands í febrúar.
FÓTBOLTI Jason McAteer, leikmað-
ur Sunderland, segir að Roy
Keane, fyrirliði Manchester
United, eigi að gleyma því liðna
og snúa aftur í írska landsliðið.
Keane neitaði að leika undir
stjórn Mick McCarthy landsliðs-
þjálfara og hætti við þátttöku á
heimsmeistaramótinu í Suður-
Kóreu og Japan fyrr á þessu ári.
Eftir að McCarthy sagði upp
starfi sínu á þriðjudag lýsti Mc-
Ateer því yfir að Keane væri vel-
kominn aftur í landsliðshópinn.
McAteer og Keane lentu í
ágúst síðastliðnum í harðri rimmu
þegar Sunderland og Manchester
United léku í úrvalsdeildinni, en
þau samskipti enduðu með því að
Keane gaf þeim fyrrnefnda oln-
bogaskot í andlitið. McAteer seg-
ist ekki vera fúll út í landsliðsfyr-
irliðann fyrrverandi.
„Ég er mikill aðdáandi Roy
Keane. Hann er leikmaður í
heimsklassa og við högnumst á
því að hafa hann í liðinu. Það hef-
ur gengið á ýmsu milli okkar en
þrátt fyrir það líkar mér vel við
hann. Það sem fór okkar á milli er
bara hluti af leiknum.“
McAteer lét þó ýmis orð falla í
garð Keane eftir leikinn og sagð-
ist meðal annars frekar kaupa sér
geisladisk fyrir börn en að lesa
nýútkomna ævisögu Keane. Hann
sagði einnig að Keane hefði rifið
höfuðið af sér ef dómarinn hefði
ekki gengið á milli.
Jason McAteer:
Fyrirgefur landsliðsfyrirliðanum
Í HARÐRI RIMMU
Jason McAteer og Roy Keane áttu í harðri rimmu í úrvalsdeildinni fyrr á þessu ári. Sá fyrr-
nefndi hefur þó fyrirgefið fyrirliðanum.
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Herrasloppar stuttir og síðir
Sendum
í póstkröfu!
Gullbrá snyrtivöruverslun
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Sími 5624217