Fréttablaðið - 07.11.2002, Page 19
19FIMMTUDAGUR 7. nóvember 2002
SPIELBERG Í HAVANA
Spielberg hefur rætt við Fídel Kastró og
kúbverska listamenn meðan á dvöl hans á
Kúbu hefur staðið.
Spielberg á Kúbu:
Kastró fær
liðsauka
KVIKMYNDAHÁTÍÐ Fídel Kastro hefur
bæst liðsauki í baráttunni fyrir
því að fá viðskiptabann Banda-
ríkjanna á Kúbu fellt niður. Leik-
stjórinn Steven Spielberg setti út
á afstöðu bandarískra stjórn-
valda varðandi viðskiptabannið á
Kúbu. Hann segist fylgjandi því
að banninu verði aflétt.
Spielberg er þessa daganna
staddur í Havana og var við-
staddur frumsýninguna á nýj-
ustu mynd hans, Minority
Report. Samhliða sýningu hennar
er haldin sérstök kvikmyndahá-
tíð bíókónginum til heiðurs. Þar
er verið að sýna átta af myndum
hans og er þetta í fyrsta skipti
sem kúbverskir áhorfendur fá að
líta þær augum. Meðal myndanna
sem eru teknar til sýninga má
nefna ET, Raiders of the Lost Ark
og Jaws.
BASSEM TELLAWI
Ameen Mouzeh hefur í 27 ár haft það
hlutverk að vekja trúaða múslíma í Rama-
dan, hinum helga mánuði múslíma, til að
biðja bænir snemma dags.
AP/M
YN
D
AP/M
YN
D