Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2002, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 07.11.2002, Qupperneq 24
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0 Það er mikil gósentíð heimilda-mynda um þessar mundir. Heim- ildamyndir um listamenn, erlendar konur í íslenskri sveit og stúlku sem tekur þátt í fegurðarsamkeppni, svo bara séu nefndar frumsýningar allra síðustu vikna. Þessar myndir eru að vísu ekki farnar að slá við vinsælum leiknum myndum í aðsókn en ganga þó jafnvel vikum saman í bíó. HEIMILDAMYNDIR dagsins í dag eiga líka fátt sameiginlegt með þeim myndum sem við áður kölluð- um heimildamyndir. Þetta eru ekki lengur fræðslumyndir með þreytu- legum þuli, eins og við munum eftir úr sjónvarpinu, heldur lifandi mynd- ir af alveg sprelllifandi fólki. Stund- um minna þær meira að segja á fjöl- skyldumyndbönd, þar sem persónur myndarinnar eru jafnvel í samræð- um við tökumanninn. OG VITI MENN, þetta viljum við sjá. Því raunveruleikinn er oft bara meira krassandi en skáldskapurinn og hann kemur okkur við. Okkur langar að vita hvað raunverulegt og lifandi fólk er að hugsa og gera og þessu miðlar góð heimildamynd. Þegar vel tekst til þá eru þetta sann- ar myndir og einlægar og maður gengur út glaðari og fróðari en mað- ur kom inn, með raunverulega upp- lifun. ÆVISÖGUR sem lengi hafa notið mikilla vinsælda hér á landi eru að vissu leyti af sama meiði og heim- ildamyndirnar, þó meira í ætt við þessar gömlu með þulunum. Á síð- ustu misserum hefur hins vegar ný bókmenntagrein í þessum raunveru- leikaanda rutt sér til rúms, bækur sem flytja sögur sem áður lifðu bara í munnlegri geymd. Í fyrra voru þjóðsögur úr samtímanum settar í bók, sögur sem ganga manna á milli hafa tilhneigingu til að aukast og breytast í hvert sinn sem þær eru sagðar. Í ár getum við svo lesið af ævintýrum leigubílstjóra sem oft virðast lygilegri en nokkur skáld- skapur. Sömuleiðis eru komnar á stóra bók sögur af upplifun kvenna af fæðingum sínum – og hvað er raunverulegra en koma nýrrar mannveru í heiminn? HEIMILDA- og munnmælabylgjan er rétt að hefjast. Það er tilhlökkun- arefni að fylgjast með því efni sem á eftir að spretta á þessum frjóa akri. Af nógu er að taka.  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Steinunnar Stefánsdóttur af allri innimálningu frá Jotun. 20-40% afsláttur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 19 16 9 1 0/ 20 02 Málningardagar Jotaproff 10 ltr Lita, mála, lakka... Aðeins 4.190 kr. Raunverulegra en skáldskapur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.