Fréttablaðið - 03.01.2003, Síða 2
2 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
DÓMSMÁL
Gaui litli er kunnur líkamsræktarfrömuður og
hefur hjálpað mörgum, jafnt ungum sem öldnum,
í baráttu sinni við aukakílóin.
Líkamsræktarfrömuður eins og ég gerir
þetta að breyttum lífsstíl en ekki að öfgum.
Hann lifir sín jól eins og hver annar. Hins
vegar hefðu skammtarnir á árum áður verið
stærri og öfgakenndari. Það að ég hafi
saknað einhvers og ekki fengið get ég ekki
sagt. Að öllu jöfnu kem ég vel undan jólum.
SPURNING DAGSINS
Borðaðir þú mikið
yfir hátíðarnar?
BJÖRGUN Sökkva á átta
tönkum á laugardag að
skipinu Guðrúnu Gísla-
dóttur sem liggur á sjávar-
botni við Noreg.
Að sögn Hauks Guð-
mundssonar hjá Íshúsi
Njarðvíkur tafðist verkið
um jólin vegna vandamála
tengdum því að stýra tönk-
unum rétt að skipinu.
„Við gátum ekki komið
tönkunum láréttum niður
eins og við vildum. Nú er
búið að rétta það af og það
er verið að gera tilraunir núna
með niðursetningu á þeim,“ seg-
ir Haukur.
Haukur segir að verkið sé nú
hálfnað. Íslenskir iðnaðar- og
tæknimenn hafi ásamt norskum
köfurum lokið við að búa
skipið undir að verða lyft
með því að tryggja lokanir
og koma fyrir dælubúnaði.
Auk tankanna verður dælt
um 700 rúmmetrum af
lofti í birgðarými og not-
aðar verða stórar gúmmí-
blöðrur við stefni skips-
ins.
„Það líða einhverjir
dagar þar til skipið hefur
verið rétt við. Á meðan
verðum við að vera með
heilmikinn viðbúnað. Um
leið og við höfum reist skipið sjá-
um við hvenær við getum klárað
verkið,“ segir Haukur. ■
Björgun Guðrúnar Gísladóttur af hafsbotni við Noreg:
Sökkva á lofttönkum að skipinu
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Á STRANDSTAÐ
Togarinn Guðrún Gísladóttir sökk skömmu eftir að hafa strand-
að á skeri og liggur á um 40 metra dýpi.
DÆMDUR FYRIR LOFTBYSSU Piltur
var sekur fundinn en annar sýkn-
aður í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir brot á vopnalögum með því
að hafa loftbyssu undir höndum.
SÝKNUÐ AF BORÐABITI Kona hef-
ur verið sýknuð af ákæru um að
hafa truflað störf slökkviliðs og
lögreglu á vettvangi með því að
bíta þrisvar í gulan öryggisborða
sem komið hafði verið upp við
veitingastaðinn Ítalíu þegar þar
kom upp eldur í fyrrasumar.
FANGELSI FYRIR LÍKAMSÁRÁS Sí-
brotamaður um sextugt hefur ver-
ið dæmdur í þriggja ára fangelsi
fyrir líkamsárás á þroskahefta
konu.
LONDON, AP Vopnaður maður hefur
haft annan mann í gíslingu í íbúð í
London í rúma viku. Lögreglan hef-
ur setið um íbúðina frá því á annan
í jólum. Rúmlega fjörutíu manns í
nærliggjandi húsum hafa verið
innikróaðir allan tímann og fá til
sín matarpakka reglulega.
Á miðvikudagskvöld heyrðust
skothvellir úr íbúðinni. Fáeinum
klukkustundum áður hafði gíslinn
talað við lögregluna í síma og sagt
að ekkert amaði að sér. Lögreglan
segist sannfærð um að báðir menn-
irnir í íbúðinni séu enn ómeiddir.
Umsátrið hófst á annan í jólum
þegar maður hrópaði á lögreglu-
þjóna út um glugga á íbúðinni.
Hann veifaði jafnframt byssu
sinni að lögreglunni. Lögreglu-
þjónarnir voru staddir fyrir utan
húsið til þess að fjarlægja þar bif-
reið.
Þegar reynt var að ráðast til inn-
göngu í íbúðina skaut maðurinn að
lögreglunni. Í kjölfarið var nær-
liggjandi götum lokað og nágrann-
ar látnir yfirgefa íbúðir sínar.
Enn eru þó 43 nágrannar
innikróaðir í íbúðum sínum. Sér-
sveitir lögreglunnar fara reglulega
með matarpakka til þeirra. Sextán
aðrir nágrannar hafa fengið bráða-
birgðahúsnæði þangað til umsátr-
inu lýkur. ■
Vopnaður maður með gísl í London:
Umsátur lögreglu
hefur staðið í rúma viku
ANNRÍKI Í LUNDÚNUM
Meðan Lundúnabúar flykkjast flestir hverjir á útsölur þurfa rúmlega fjörutíu manns að hír-
ast innikróaðir heima hjá sér vegna umsáturs sem staðið hefur frá því á annan í jólum.
EINKAVÆÐING Síðasta samningalot-
an um sölu Landsbankans var
snörp. Samson hafði sterka stöðu
á lokasprettinum.
Almennt telja
menn að einkavæð-
ingarnefnd hafi
verið mjög áfram
um að málinu yrði
lokið fyrir áramót.
Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráð-
herra gerir ekki
mikið úr þeim
þrýstingi. „Það var ekkert úrslita-
atriði, en auðvitað var skemmti-
legra að ljúka málinu fyrir ára-
mót.“
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins tafði það niðurstöðuna að
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu hafði ekki skýrt umboð til að
segja af eða á um nýjar tillögur.
Þegar lagaðar voru fram nýjar
hugmyndir að lausn þurfti að
fresta fundum svo menn gætu
borið saman bækur sínar.
Áreiðanleikakönnun mat eignir
bankans lægri en bankinn sjálfur.
Lækkun á gengi bankans var
aldrei uppi á borðinu. Mat manna
var að slíkt væri pólitískt ómögu-
legt. Niðurstaðan var sú að taka
ákveðnar kröfur bankans út fyrir
sviga. Kröfurnar voru látnar
mynda vísitölu sem fékk gildið
100. Lækki vísitalan kemur lækk-
unin fram sem afsláttur á verði
bankans. Lokaumræðan fólst í því
að ákveða hvaða kröfur í eigna-
safni bankans ættu að vera í
stokknum sem ríkið ábyrgðist.
Niðurstaðan var sú að ríkið tók á
sig ábyrgðir sem gætu numið 700
milljónum. Fari þær kröfur á
versta veg þýðir það ríflega 6%
afslátt á verði bankans. Gengið á
bankanum yrði samkvæmt því ná-
lægt lokagengi bankans um ára-
mót, sem var 3,65. Sú lækkun
verður að teljast vel ásættanleg
fyrir kaupandann, þar sem venja
er að töluvert yfirverð sé greitt
fyrir svo stóran hlut. Samson
skuldbatt sig einhliða til að auka
hlutafé bankans sem nemur af-
slættinum að lokinni síðustu
greiðslu fyrir bankann.
Samson ehf. greiðir ellefu-
hundruð milljónum minna fyrir
bankann en upphaflega var gert
ráð fyrir. Ástæðan er að þeir
kaupa bankann í dollurum. Krón-
an hefur styrkst verulega gagn-
vart dollar frá því að verðið var
ákveðið. Breytingarnar hafa þó
minni áhrif en ætla má í fyrstu.
Fyrir Samson breytir þetta engu
þar sem peningarnir sem nota á til
að greiða fyrir bankann eru í doll-
urum. Valgerður segir að gengis-
breytingin hafi lítil sem engin
áhrif á ríkissjóð. Dollarana eigi að
nota til að greiða erlendar skuldir.
„Þessir peningar koma því í raun
aldrei inn í landið.“
haflidi@frettabladid.is
Nefndin hafði
óskýrt umboð
Einkavæðingarnefnd hafði ekki fullt umboð til að taka ákvarðanir um
sölu Landsbankans. Nýjar hugmyndir að lausn kölluðu á frestun fund-
ar. Kröfur sem kaupendur efuðust um voru teknar út fyrir. Fari þær á
versta veg er kaupgengi kjölfestuhluta nálægt markaðsgengi bankans.
FENGU LÆKKUN
Séu efasemdir Samsonar ehf. um sumar kröfur Landsbankans á rökum reistar lækkar verð
fyrir hlut ríkisins í Landsbankanum. Fari þær á versta veg er gengið fyrir hlut ríkisins ná-
lægt markaðsgengi bankans.
Lækkun á
gengi bankans
var aldrei uppi
á borðinu.
Mat manna
var að slíkt
væri pólitískt
ómögulegt.
LESBÍUR MEÐ ÁRAMÓTABARN
Fyrsta barn ársins í Maryland-
fylki í Bandaríkjunum fæddist
eina mínútu eftir miðnætti á
nýársnótt. Samkynhneigðar mæð-
ur stúlkubarnsins höfðu skömmu
áður flutt til fylkisins frá Virgin-
íu, þar sem réttindi samkyn-
hneigðra eru minni og ættleiðing-
arréttur takmarkaður.
Náttúruvernd:
Breyta skógi
í mýrafen
FORSINARD, SKOTLANDI. AP. Skoskir
náttúruverndarsinnar hafa unnið
að því undanfarið að rífa upp þús-
undir trjáa í skosku hálöndunum
og hafa fengið til þess um 360
milljóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu.
Markmið náttúruverndarsinna
er að breyta Forsinard, sem
stundum hefur verið kallað regn-
skógasvæði Skotlands, í meira
mýrasvæði en nú er. Með því á að
snúa aftur þróun sem hófst fyrir
30 árum þegar fyrirtæki fengu
skattaafslátt til að rækta tré til
skógarhöggs. Náttúruverndar-
sinnar segja að of langt hafi verið
gengið og einstöku landsvæði og
dýralífi þess sé stefnt í hættu. ■
BANVÆNAR HRÍSKÖKUR Þrír jap-
anskir eldri borgarar létust eftir
að hafa kafnað á rískökum þegar
þeir fögnuðu nýja árinu. Svokall-
aðar moochi-kökur eru vinsælar í
áramótafögnuðum en ár hvert
leita nokkrir tugir eldri borgara
læknishjálpar eftir að kökurnar
festast í hálsi þeirra. Tíu voru á
gjörgæsludeild af þeim sökum í
gær.
DREGIÐ ÚR SPENNUNNI Suður-
kóresk stjórnvöld sögðu í gær að
þau myndu gera allt sem í sínu
valdi stendur til að draga úr
spennu vegna kjarnorkuvopna-
áætlunar Norður-Kóreu. Samein-
ingarráðherra Suður-Kóreu sagði
að málið yrði rætt ítarlega á
fundi stjórnvalda ríkjanna
tveggja um miðjan mánuðinn.
Kínverjar hyggjast einnig láta til
sín taka vegna spennunnar sem
upp er komin.
Framseldur frá Hollandi:
Viðriðinn
þrjú fíkni-
efnabrot
FÍKNIEFNI Lögreglan í Reykjavík
færði til landsins í gær karlmann
um þrítugt sem framseldur var
frá Hollandi vegna fíkniefnabrota
hér á landi árið 1998, 1999 og í jan-
úar í fyrra. Maðurinn er grunaður
um að hafa tekið þátt í því að
smygla fimm kílóum af am-
fetamíni og 150 grömmum af
kókaíni til landsins í fyrra. Tvö
eldri fíkniefnamálin tengjast
einnig innflutningi á kókaíni.
Maðurinn hefur verið búsettur
í Þýskalandi en þarlend yfirvöld
hafa ekki fengist til að framselja
hann hingað þar sem hann er með
tvöfaldan ríkisborgararétt, bæði
íslenskan og þýskan. Hins vegar
var fylgst með ferðum mannsins
og var hann handtekinn þegar
hann fór til Hollands í febrúar. Sat
hann í haldi þar til hann var fram-
seldur. ■
ASÍA
BANDARÍKIN
LÖGREGLUFRÉTTIR
AP
/M
YN
D
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
HASSSALI DÆMDUR Rúmlega
tvítugur piltur á Akureyri hefur
verið dæmdur til að greiða 75
þúsund króna sekt fyrir að selja
sautján ára pilti tvö grömm af
hassi á 7 þúsund krónur. Níu
grömm af hassi, kannabisplanta
og reykjarpípur voru gerð upp-
tæk.
BRAUST INN OG BARÐI Tæplega
hálfþrítugur karlmaður á Akur-
eyri hefur verið dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að brjótast inn hjá
öðrum manni, veita honum glóð-
arauga og brjóta gleraugu hans.
Hann á að greiða fórnarlambinu
um 63 þúsund krónur í bætur,
meðal annars vegna skemmda á
hurð og veggklæðningu.
ÞJÓFAR RUFU SKILORÐ Tveir
piltar, 19 og 20 ára gamlir, hafa
verið dæmdir í tveggja og fjög-
urra mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir röð fjölbreytilegra
þjófnaða á Eyjafjarðarsvæðinu
og í Keflavík. Þeir rufu báðir
skilorð áður genginna refsidóma.
Hæstiréttur Íslands:
Staðfesti
gæslu-
varðhald
FÍKNIEFNI Hæstiréttur Íslands stað-
festi dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur sem 20. desember framlengdi
gæsluvarðhald yfir þrítugum karl-
manni til 7. febrúar að kröfu lög-
reglunnar í Reykjavík. Maðurinn er
talinn eiga aðild að innflutningi á
níu hundruð grömmum af am-
fetamíni og um hálfu kílói af hassi.
Auk mannsins eru tveir aðrir
viðriðnir málið. Um er að ræða
Þjóðverja á sextugsaldri og annan
Íslending um þrítugt. Báðir hafa
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til 7. febrúar.
Í dómi Hæstaréttar yfir mannin-
um kemur fram að um alvarlegt
brot sé að ræða. Hinn kærði hafi
áður verið dæmdur í fangelsi vegna
stórfellds fíkniefnabrots og hafi
verið á reynslulausn vegna þess. Þá
segir að ljóst sé að hinn kærði hafi
ekki látið sér þungan refsidóm að
kenningu verða. Skammur tími hafi
liðið frá reynslulausn þar til brota-
starfsemi sú sem um ræðir hófst á
ný. ■