Fréttablaðið - 03.01.2003, Page 14

Fréttablaðið - 03.01.2003, Page 14
14 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR SLÆM LENDING Þýski skíðastökkvarinn Sven Hannawald klórar sér í rassinum eftir að hann lenti illa á móti sem haldið var í Þýskalandi í fyrra- dag. Primoz Peterke frá Slóveníu vann mótið. MOLAR ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.30 Sýn Trans World Sport 19.30 Sýn Gillette-sportpakkinn Gerard Houllier: Litlir möguleikar á titlinum FÓTBOLTI Gerard Houllier, knatt- spyrnustjóri Liverpool, segir að lið sitt eigi litla möguleika á að vinna enska meistaratitilinn á þessari leiktíð. „Það verður erfitt að ná Arsenal, sem eru 12 stigum á und- an okkur núna,“ sagði Houllier eft- ir 1:0 tap gegn Newcastle í fyrra- kvöld. „Maður veit samt aldrei hvað gerist í fótbolta en ég viður- kenni að þetta verður erfitt.“ Liverpool hefur ekki sigrað í síðustu 10 deildarleikjum. Houllier telur þó að enn sé von um að forða liðinu frá frekari vonbrigðum. „Við höfum getuna til að koma okk- ur út úr þessari hrinu. Það vantaði nokkra leikmenn í dag [í fyrra- kvöld] en við höfum mannskapinn til að snúa hlutunum okkur í vil.“ Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, var himinlifandi eftir 3:2 sigur á Chelsea í fyrra- dag. „Við unnum leikinn á hugar- farinu. Það er gaman að vinna leiki eins og þennan þegar þú ert þreyttur. Það er merki um andleg- an styrk leikmanna,“ sagði Wenger. „Ég veit að við getum unnið titilinn en við þurfum að ná stöðugleikanum aftur. Að mínu mati er liðið aftur komið á beinu brautina.“ ■ BARÁTTA Það var hart barist í leik Arsenal og Liverpool 29. desember. Patrick Vieira, til vinstri, á hér í höggi við Steven Gerrard, leikmann Liverpool. Martin Keown, varnarmaður Arsenal, fylgist með. Leikurinn endaði með jafntefli, 1:1. Yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar Táningurinn James Milner stal senunni í ensku knattspyrnunni um jól. Skoraði tvö mörk og varð yngstur allra til að skora í deildinni. Knattspyrnustjórar lofa leikmanninn, sem verður 17 ára á morgun. FÓTBOLTI Terry Venables, knatt- spyrnustjóri Leeds United, fékk óvæntan glaðning um jólin þegar táningurinn James Milner skoraði tvö mörk fyrir liðið, það fyrra í 2- 1 sigri á Sunderland og það síðara í 2-0 sigri gegn Chelsea. Milner varð þar með yngstur allra leik- manna til að skora í ensku úrvals- deildinni, aðeins 16 ára og 355 daga gamall. „Ég er mjög ánægður með sig- urinn. Við lékum góðan fótbolta og liðið lék sem heild,“ sagði Venables eftir leikinn gegn Chel- sea. „Að auki fylgdi lítil sæt saga leiknum. Hún fjallar um ungan dreng sem heitir James Milner.“ Markið sem Milner skoraði gegn Chelsea var ekki af verri endanum. Hægrifótarskot af átján metra færi, framhjá Ed de Goey markverði og í netið. Milner er fæddur í Horsforth og verður 17 ára á morgun, 4. janúar. Hann hóf ferill sinn með Westbrook Juniors og var uppgötvaður af út- sendurum frá Leeds. Hann hefur alltaf verið mikill stuðningsmaður liðsins. Þegar hann var yngri vann hann fyrir sér sem boltastrákur á Elland Road og fékk fyrir vikið frítt inn á leiki. Hann hefur leikið með öllum yngri liðum Leeds sem og U- 17 ára landsliði Englands. Milner varð næstyngsti leik- maður sögunnar til að leika í úr- valsdeildinni þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Jason Wilcox í 4-3 sigri gegn West Ham í nóvem- ber. Þá var hann 16 ára og 309 daga gamall. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, hefur einnig lofað frammistöðu Milners. „Hann er stórkostlegur leikmaður. Hann er fljótur, snjall, er jafnfættur og klár í kollinum,“ sagði hinn ítalski knatt- spyrnustjóri. „Við þurfum að leyfa honum að þroskast og leyfa Terry að meðhöndla hann.“ Milner fagnar 17 ára afmæli sínu á morgun með því að gera nýj- an samning við Leeds. Nýi samn- ingurinn tryggir honum 800 pund á viku, rúmar 100 þúsund krónur, í stað þeirra 80 punda sem hann fékk áður. ■ JAMES MILNER Þykir einnig liðtækur í krikket og sló 132 heimavallarhlaup fyrir Horsforth krikketfélagið síðasta sumar. Landsliðshópurinn í handbolta: Fækkað um fjóra HANDBOLTI Guðmundur Guð- mundsson, þjálfari karlalands- liðsins í handbolta, hefur fækk- að um fjóra leikmenn í lands- liðshópnum. Guðmundur hafði valið 26 leikmenn til undirbúnings fyrir heimsmeistaramótið í Portúgal sem hefst í lok mánaðarins. Þeir sem detta út úr hópnum nú eru Alexander Arnarson, HK, Einar Hólmgeirsson, ÍR, Bjarni Fritz- son, ÍR og Jónatan Magnússon, KA. Guðmundur mun fækka enn í landsliðshópnum um miðjan mánuðinn en alls fara 16 leik- menn til Portúgals. Íslenska landsliðið mætir því slóvenska í þremur vináttuleikj- um og verður fyrsti leikurinn á laugardag, sá næsti á sunnudag en sá þriðji á þriðjudag. Slóvenar hafa verið að styrkj- ast á síðustu mánuðum og sigr- uðu meðal annars á sterku móti í Frakklandi fyrir skömmu. ■ LOGI GEIRSSON Er enn inni í myndinni hjá landsliðsþjálfaranum fyrir heimsmeistaramótið. Þrátt fyrir ung- an aldur skoraði Logi sjö mörk í sínum fyrsta landsleik þegar liðið mætti úrvalsliði HSÍ. AP /M YN D AP/M YN D BUTLER Caron Butler, leikmaður Miami Heat (til vinstri), reynir körfuskot í leik gegn Cleveland Cavaliers sem háður var á dög- unum. Butler skoraði 25 stig fyrir Heat í fyrrakvöld. NBA-deildin: Áttundi tap- leikurinn í röð KÖRFUBOLTI Kurt Thomas skoraði 26 stig og tók 14 fráköst þegar New York Knicks vann Toronto Raptors 95:75 í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrakvöld. Þetta var áttundi tapleikur Raptors í röð og jafnframt 15. tap- leikurinn í síðustu 17 leikjum liðs- ins. „Eins og staðan er núna verða allir að standa sig,“ sagði Lenny Wilkens, þjálfari Raptors, eftir leikinn. „Þegar menn eru ekki að standa sig lendum við í vandræð- um.“ Miami Heat vann Atlanta ör- ugglega, 107:73, í hinum leiknum sem háður var í fyrrakvöld. Caron Butler var stigahæstur í liði Heat með 25 stig. Þetta var sjöundi sig- urleikur liðsins í síðustu níu leikj- um. ■ AP/M YN D Frakkinn Christophe Dugarryer á leið til enska úrvalsdeild- arliðsins Birmingham City frá franska félaginu Bordeaux. Dugarry vann heimsmeistaratitil- inn með franska landsliðinu árið 1998 og Evrópumeistaratitilinn tveimur árum síðar. Birmingham er í 16. sæti ensku deildarinnar og hefur aðeins unnið einn leik af síðustu sjö. Tyrkneska liðið Fenerbachehefur áhuga á að fá framherj- ann Sergei Rebrov, leikmann Tottenham, til liðs við sig. Um lánssamning yrði að ræða. Rebrov hefur verið meira og minna úti í kuldanum síðan hann gekk til liðs við Lundúnafélagið fyrir tveimur og hálfu ári. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Arsenal og Tottenham: Spila ekki heimaleiki á Wembley FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam- bandið hefur lýst því yfir að Tottenham og Arsenal fái ekki að nota nýja Wembley-leikvanginn sem heimavöll. Síðustu mánuði hafa vanga- veltur verið uppi um hvort Lund- únaliðin gætu nýtt völlinn undir heimaleiki þegar hann verður til- búinn árið 2005 en nú er ljóst að svo verður ekki. Ástæðan er sú, að sögn yfirmanns knattspyrnu- sambandsins, að bresk yfirvöld telja að völlurinn myndi verða illa úti af ágangi en ýmiss konar við- burðir fara fram á vellinum, svo sem krikket- og knattspyrnuleikir auk tónleikahalds. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.