Fréttablaðið - 03.01.2003, Side 18

Fréttablaðið - 03.01.2003, Side 18
FUNDIR 9.00 XI. Vísindaráðstefna lækna-, tannlækna- og lyfjafræðideildar Háskóla Íslands verður haldin í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16, hefst í dag en henni lýkur á morg- un, 4. janúar, klukkan 16.45. Á ráðstefnunni verða flutt 95 erindi og kynnt 173 veggspjöld, auk þess sem gestafyrirlesarar flytja erindi. 15.00 Rannsóknarráðstefna Reykjavík- urakademíunnar verður haldin í JL-húsinu, Hringbraut 121, 4. hæð. Leitast verður við að svara spurningum um hvert stefni í málefnum háskóla á Íslandi. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra setur ráðstefnuna, sem áætlað er að ljúki klukkan 17.30. SKEMMTANIR Unglingahljómsveitin POPS leikur fyrir dansi á Kringlukránni. LEIKHÚS 20.00 Halti Billi eftir Martin McDonagh er sýnt á Stóra sviði Þjóðleik- hússins. Nokkur sæti laus. 20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Uppselt. 20.00 Jón og Hólmfríður eftir Gabor Rassov er sýnt á Nýja sviði Borg- arleikhússins. Fáar sýningar eftir. 20.00 Rómeó og Júlía í samstarfi við Vesturport er sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Uppselt. 20.00 Hversdagslegt kraftaverk eftir Évgení Schwarz er sýnt hjá Leik- félagi Akureyrar. 21.00 Beyglur eru sýndar í Iðnó. SÝNINGAR Samspil nefnist samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur, Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur og Þorgerðar Sigurðar- dóttur sem stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin stendur til 5. janúar. Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning- una Án samhengis - allt að klámi í Café Presto Hlíðasmára 15, Kópavogi. Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á árinu 2000. Sýningin stendur út janúar 2003 og er opin á opnunartíma Café Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo nærri í Reykjavíkurakademíunni, gangi 4. hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9 til 17 og stendur til 31. janúar. Sýning á útsaumuðum frummyndum Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar Jólasveinarnir 13 stendur yfir í Bóka- safni Kópavogs. Sýningin er opin á opn- unartíma safnsins og lýkur 6. janúar. Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg skartgripaverslunarinnar Mariellu á Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til 5. janúar. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýningin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur sýningu á verkum sínum í Kaffitári, Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn- inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms- kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall- grímskirkju og stendur til loka febrúar- mánaðar. Sýningin Heimkoman eða: heimurinn samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin samanstendur af málverkum og ljós- myndum danska myndlistarmannsins Martins Bigum frá árunum 1997-2002. Í Hafnarborg stendur yfir sýningin “Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning með þátttöku erlendra listamanna sem hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista- manna búsettra erlendis. Sýningin stendur til 22. febrúar. Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýndar verða myndskreytingar úr nýút- komnum barnabókum. Sýningunni lýkur 6. janúar 2003. Hildur Margrétardóttir myndlistarkona sýnir nokkur óhlutbundin málverk á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan- úar. Sýningin Milli goðsagnar og veruleika er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í Amman og er ætlað að varpa ljósi á heim araba. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja- víkurminningar en myndirnar tók Guð- mundur um miðja síðustu öld í Reykja- vík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um og endurvekur draumsýnina um hið full- komna samfélag. Hún leggur fram hug- mynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells- nesi. Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of my Vanity“ sem útleggst á íslensku „Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið svokallaða IVD (intensive vanity dis- order) eða hégómaröskun en það heil- kenni verður æ algengara meðal þeirra sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa. Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn- ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa- vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs- son. Stærsta sýning á íslenskri samtímalist stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning- in árin 1980-2000. Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn- ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor- ræna húsinu. Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil- is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir eru velkomnir. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýn- ingu á íslensku landslagi unnið í gler í Galleríi Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafnarborg. Sýning á bútasaumsverkum eftir 10 konur stendur nú yfir í Garðabergi, fé- lagsmiðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí i8, Klapparstíg 33. Meðal annars eru verk eftir Eggert Pétursson, Rögnu Ró- bertsdóttur, Þór Vigfússon, Kristján Guðmundsson, Sigurð Guðmundsson, Roni Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg Guðna og Tony Cragg til sýnis og sölu. Opið er fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl.13 til 17 eða eftir samkomulagi. 18 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR hvað? hvar? hvenær? Pops í sveiflu á Kringlukránni: 68-kynslóðina þyrstir alltaf í gömlu meistarana DANSLEIKIR Hin sögufræga ung- lingahljómsveit Pops, sem und- anfarinn áratug hefur skemmt gestum á nýársfagnaði 68-kyn- slóðarinnar við mikinn orðstír, blæs til dansleikjahalds á Kringlukránni í kvöld og á morgun. „Þetta er í annað skipti sem við spilum á Kringlukránni fyrstu helgina á nýju ári,“ segir Pétur Kristjánsson söngvari og hlær þegar hann er spurður hvort ekki megi merkja þreytu- merki á hljómsveitarmeðlim- um. „Nei, nei, nei, við erum sí- ungir og höfum ofboðslega gaman af þessu. Hljómsveitin er, ef eitthvað, betri en í fyrra. Við spiluðum nefnilega á þorra- blóti í Orlando í mars og það eimir enn eftir af því. Við bara teljum í og byrjum.“ Pétur segir aðsókn að dans- leikjum hljómsveitarinnar gríð- arlega góða og greinilegt að 68- kynslóðina þyrsti alltaf í gömlu meistarana. „Við erum með alla smellina með Bítlunum, Stones, Kinks, Small Faces og því liði. Og í tilefni af því að Stones gaf nýlega út fyrstu alvöru safn- plötuna sína erum við búnir að bæta við heilmiklu af góðu Stones-efni.“ Hljómsveitin hefur verið eins mönnuð frá upphafi. „Þetta eru Óttar Felix, Birgir Hrafns, Ólafur Sigurðsson, Jón Ólafs, Tryggvi Hubner og ég. Trommarinn okkar kemur alltaf frá Danmörku til að taka þátt og við æfum mjög stíft milli jóla og nýars og látum engan bilbug á okkur finna. Við ábyrgjumst al- veg brjálað stuð, og ekki bara fyrir 68-kynslóðina heldur ungt fólk á öllum aldri,“ segir Pétur að lokum. Dansleikirnir verða sem fyrr segir í kvöld á og morgun, laug- ardag, á Kringlukránni. ■ Reykjavíkurakademían: Kallað eftir um- ræðu um háskóla RANNSÓKNASTEFNA Þróun háskóla- mála á Íslandi verður rædd á þriðju rannsóknarstefnu Reykjavíkurakademíunnar í dag en þar verður meðal annars tekist á við spurningar um hvert stefni í málefnum háskóla, hvort rétt sé að fjölga háskólum jafn mikið og raun ber vitni eða hvort með því sé verið að dreifa takmörkuðum fjármunum og kröftum of mikið. „Við reynum að halda rannsóknarstefnurnar árlega og tökum þá venjulega á málum sem snerta háskólasam- félagið í heild,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir, formaður stjórnar Reykjavíkurakademí- unnar. Á fyrstu rannsóknarstefn- unni var fjallað um hnattrænt rannsóknarsamfélag, ekki síst með tilliti til internetsins. Í fyrra voru breytingar á RANNÍS ræddar og í ár er kom- ið að stefnunni í uppbyggingu háskóla á Íslandi. „Fram til 1971 var Háskóli Íslands eini skólinn sem útskrifaði nemendur á há- skólastigi. Árið 2000 voru há- skólarnir orðnir átta, þannig að breytingarnar eru miklar. Þessi fjölgun menntafólks er jákvæð en við viljum skoða hvort ekki megi hlúa betur að því og virkja kraftinn sem býr í þessum fjölda með auknum framlögum til rannsókna og starfsuppbygg- ingar. Umræðan um þessi mál hefur ekki verið nógu breið og það er á reiki hvort einhver markviss stefna sé rekin í mál- efnum háskóla hérlendis, þannig að það má segja að við séum að kalla eftir umræðum um málið.“ Stefán Arngrímsson, pró- fessor við Háskóla Íslands, Ólafur Proppé, rektor Kenn- araháskóla Íslands, og Ari Ed- wald, formaður Samtaka at- vinnulífsins, flytja erindi og Erna Indriðadóttir fréttamað- ur stjórnar síðan pallborðsum- ræðum þar sem Ólafur Örn Haraldsson, varaformaður menntamálanefndar Alþingis, Kolbrún Halldórsdóttir, full- trúi VG í menntamálanefnd, Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís- lands, og Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í menntamála- ráðuneytinu, ræða stefnuna í háskólamálum út frá ýmsum sjónarhornum. ■ STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR „Þarna er reynt að skapa umræðuvettvang um rannsóknir á Íslandi, forsendur fyrir virku fræðastarfi á Íslandi og skoðað hvað íslenskt rannsóknaumhverfi hefur að bjóða vísindamönnum og hvað vísindamenn hafa að bjóða því.“ UNGLINGAHLJÓMSVEITIN POPS Hljómsveitarmeðlimir eru engir unglingar lengur, en hafa aldrei verið betri, að sögn Péturs Kristjánssonar, söngvara sveitarinnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.