Fréttablaðið - 03.01.2003, Side 30
30 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
DÝRT
Ljósmóðir
nýrra tíma
Hulda Jensdóttir var á nýársdag sæmd riddarakrossi fyrir ljósmóður-
störf. Hún var brautryðjandi í fæðingarhjálp á Íslandi en uppskar í
upphafi litlar þakkir fyrir hluti sem í dag þykja sjálfsagðir.
LJÓSMÓÐIR „Ég horfði á systur
mína eignast dóttur í heimahúsi
norður í landi. Það var slíkt und-
ur veraldar og stórkostleg upp-
lifun að það varð ekki aftur snú-
ið,“ segir Hulda Jensdóttir um þá
ákvörðun sína að leggja ljósmóð-
urfræði fyrir sig.
Hulda fæddist á bænum
Kollsá í Norður-Ísafjarðarsýslu
1925. „Þegar ég var átta ára flutti
ég með móður minni til Akureyr-
ar þar sem ég ólst upp og gekk í
skóla. Þaðan lá leiðin í Ljós-
mæðraskólann í Reykjavík en að
honum loknum fór ég til útlanda í
nokkur ár.“ Hulda sótti ýmis
námskeið erlendis og lærði með-
al annars slökun í Danmörku auk
þess sem hún kynntist fleiri nýj-
um straumum í fæðingarhjálp.
Hún kom víða við og starfaði
meðal annars á sjúkrahúsum í
Stokkhólmi og Tromsö.
„Þegar ég kom heim byrjaði
ég með námskeið fyrir væntan-
lega foreldra. Þetta þekktist ekki
þá og vakti litla hrifningu fag-
fólks í upphafi og frá því að ég
byrjaði með foreldranámskeiðin
liðu rúmlega tuttugu ár þar til
Landspítalinn byrjaði að bjóða
upp á slíkt.“ Það uppátæki Huldu
að bjóða feðrum að vera við-
staddir fæðingu barna sinna
vakti ekki síður úlfúð. „Ég tók á
móti börnum í heimahúsum og
byrjaði þá að hvetja feðurna til
að vera viðstadda og hélt því svo
áfram á Fæðingarheimili
Reykjavíkur og þar leyfði ég líka
eldri börnum að koma í heimsókn
og setti saman fjölskyldutíma.
Þetta þótti ganga þvert á allt sið-
gæði þessa tíma og bréfaskriftir
frá þessum árum sýna að það
mátti litlu muna að ég yrði hand-
tekin fyrir þessar breytingar.“
Árið 1959 höfðu kvenfélaga-
samtök í Reykjavík frumkvæði
að stofnun Fæðingarheimilis
Reykjavíkur og Hulda var ráðin
til að koma því á laggirnar. Hulda
hefur verið virk í félagsmálum,
ekki síst á samstarfsvettvangi
ljósmæðra. „Ég er líka mikil
áhugamanneskja um náttúru-
lækningar, sat í stjórn Náttúru-
lækningafélags Íslands um ára-
bil og var formaður Náttúru-
lækningafélags Reykjavíkur.“
Svo afrekaði ég það nú að sitja á
Alþingi en ég var varaþingmaður
Borgaraflokksins á sínum tíma.“
thorarinn@frettabladid.is
FÓLK Í FRÉTTUM
PERSÓNAN
25 ÁRA „Það verður ekki lítið stuð,
svona síðasti afmælisdagurinn. Ég
verð 25 á morgun og þá er þetta
búið,“ segir Vilhelm Anton Jóns-
son, dagskrárgerðarmaður og liðs-
maður Naglbítanna, grafalvarleg-
ur í bragði.
Vilhelm segist nýbyrjaður að
halda upp á afmælin sín. „Ég tók
tíu ára skeið sem ég hélt ekkert
upp á það. Þetta er líka alveg fer-
legur tími til að eiga afmæli. Við
þessi vörutalningabörn verðum að
sætta okkur við ýmislegt, eins og
þegar ég var lítill, þá fékk ég alltaf
afmælisgjöf með jólapökkunum.
Það er auðvitað hálf hallærislegt
að hægt sé að setja tvo merkimiða
á einn kassa og kalla það tvær
gjafir,“ segir Vilhelm sár.
Hann segist þó vera ljónhepp-
inn með vini og kunningja. „Þeir
meira að segja hringdu í mig núna
til að athuga með afmælisplönin.
Það vekur upp vonir um að fólk
hafa farið og keypt pakka tíman-
lega. Ég er til dæmis þegar búinn
að fá pakka sem ég þreifaði í bak
og fyrir og finn ekki betur en þetta
sé kjöthitamælirinn sem var efst-
ur á óskalistanum.“
Blaðamanni þykja kjöthitamæl-
ar ekki dæmigerð óskagjöf handa
25 ára strák og lætur í ljós að
kannski sé Vilhelm orðinn fjör-
gamall eftir allt saman. „Já, já,“
segir hann. „Ég fæ orðið ofsalega
ábyrgar gjafir, fékk líka borvéla-
sett frá mömmu í jólagjöf.“
Afmælisgestir Vilhelms geta al-
veg eins átt von á að vera boðið
sushi í veislunni. „Ég var að eign-
ast æðislegan sushi-hníf og langar
að bjóða upp á sushi. Það er að
segja ef ég þori. Ég hef nefnilega
aldrei „eldað“ sushi áður.“
Annars leggst árið alveg sér-
staklega vel í Vilhelm, sem hyggur
á plötuútgáfu með Naglbítunum og
áframhaldandi dagskrárgerð.
„Þetta verður örugglega þræl-
magnað ár,“ segir Vilhelm – hikar –
og bætir við: „Ef guð lofar.“ ■
Vilhelm Anton Jónsson dagskrárgerðar-
maður er einn þeirra sem eiga afmæli í
byrjun janúar. Hann hefur þurft að þola
ýmislegt varðandi afmælin sín en reynir þó
að bera sig þó karlmannlega.
Afmæli
Svikin vörutalningabörn
TÍMAMÓT
Sigmundur Ernir Rúnarsson seg-ist ekki vera á förum úr rit-
stjórastóli DV þrátt fyrir þrálátan
orðróm þess efnis. Sagan segir að
Sigmundur ætli að snúa aftur á
gamlar slóðir og taka upp frétta-
lestur á Stöð 2. Að sögn Sigmundar
er allt þetta úr lausu lofti gripið.
Það vakti athygli að í KryddsíldStöðvar 2 á gamlársdag var
stutt í kveikiþræði Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra. Gamanmál
hafa venjulega verið á hraðbergi í
þessum þætti. Að þessu sinni var
andi Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur svífandi yfir borðum í bland
við kryddsíldarskýið. Davíð lenti í
hörkuátökum við Össur Skarphéð-
insson, formann Samfylkingar, sem
fagnaði komu Ingibjargar Sólrúnar
og lýsti því hve óttinn hjá hinum
formönnunum væri áberandi. Dav-
íð sagðist ekki sjá hverju koma
borgarstjórans inn í landsmálin
breytti en Össur var snöggur til
svars og sagði að til dæmis gæti sú
staða breytt því þannig að Davíð
yrði ekki ráðherra. Heimildir
herma að eftir að slökkt var á sjón-
varpsvélunum hafi formennirnir
tveir hnakkrifist í 20 mínútur.
Ekki ber öllum heimildum samanum hver hafi í raun átt hug-
myndina að því að gera Þórólf
Árnason að borgarstjóra í Reykja-
vík. Eitt er þó víst og það er að
upphafið má rekja til samkvæmis
sem haldið var í höfuðstöðvum
Marels á Þorláksmessu. Þar var
Benedikt Sveinsson, stjórnarfor-
maður Íslands, mættur og einnig
Þórólfur, sem er gamall starfsmað-
ur Marels. Benedikt spurði þar
Þórólf hvort hann væri búinn að
finna sér nýtt starf eftir brott-
hvarfið frá Tali og svaraði Þórólfur
að svo væri ekki. Spurði Benedikt
þá hvers vegna hann gerðist ekki
borgarstjóri í Reykjavík. Þó spurt
væri í hálfkæringi gekk þetta allt
eftir og enginn mun hafa orðið jafn
hissa og Benedikt Sveinsson.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Össur
Skarphéðinsson er ekki barnabarn Njáls
á Bergþórshvoli.
Leiðrétting
VILHELM ANTON JÓNSSON
Deilir afmælisdeginum með vinum sínum
Sölva Blöndal og Úlla Grönvold, sem hann
sendir stuðkveðjur í tilefni dagsins.
LÁRÉTT:
I léleg,
4 peningar,
9 fyrirgefa,
10 iðin,
12 áköfu,
13 ringluð,
15 skaða,
17 fæðir,
19 veðrátta,
20 skraut,
22 píluna,
24 kaldi,
25 muldra,
27 maðks,
29 kynið,
32 ökumann,
34 yfirstétt,
35 miskunninni,
36 eflir,
37 klettanibba.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 krás, 4 hæstur, 9 sneypti, 10 súti, 12 sarg, 13
kraðak, 15 álfs, 17 unir, 19 ari, 20 glögg, 22 ögrir, 24 öln, 25 aska, 27 nagg, 29 tund-
ur, 32 lóru, 34 dýri, 35 umönnun, 36 rómaða, 37 rani. Lóðrétt: 1 kusk, 2 Ásta, 3
sniðug, 4 hyski, 5 æpa, 6 strá, 7 tiglar, 8 rausir, 11 úrilla, 14 anga, 16 friður, 18 röku,
20 göngur, 21 önglum, 23 gandur, 26 stuna, 28 góma, 30 dýna, 31 risi, 33 röð.
KROSSGÁTA
Að fljúga á Saga Class. Farseð-ill til Boston kostar 192.140
krónur. Til Kaupmannahafnar
kostar hann 140.400 krónur og til
London 139.240 krónur. Sætin eru
að vísu stærri og betri og þjónust-
an meiri. Drykkir ókeypis en að
öllu samanlögðu líklega þeir dýr-
ustu í heimi. Verðið á Saga Class
er saga til næsta bæjar.
Icebear.
Sundabraut
Calista Flockhart.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Síminn hringir á heimili hjónasem eiga eitt barn. Barnið
svarar símanum og svarar hvís-
landi. „Halló!“
Hringjandinn spyr: „Já, halló.
Jón heiti ég. Er mamma þín
heima?“ Barnið svarar hvís-
landi: „Já, en hún er upptekin!“
Jón undrast pískrið í barninu en
spyr. „Jæja, er pabbi þinn þá
heima?“ Barnið svarar því ját-
andi en segir: „Hann er líka upp-
tekinn.“ Jón hváir en spyr að
lokum hvort einhver annar sé
heima. „Já,“ segir barnið.
„Slökkviliðið og lögreglan eru
hérna.“
„Slökkviliðið og lögreglan?“
spyr Jón hræddur. „Hvað eru
þau að gera þar?“ Eftir smá
stund svarar barnið: „Leita að
mér.“ ■
HULDA JENSDÓTTIR
„Ég hafði alveg frjálsar hendur og hafði stjórn á öllum þáttum starfseminnar framan af
og rak heimilið nánast eins og mína eigin stofnun þar til það sameinaðist Borgarspítal-
anum. Ég hætti svo 1988 og heimilinu var svo því miður lokað nokkrum árum seinna.“
JARÐARFARIR
13.30 Bergþóra Sigurðardóttir verður
jarðsungin frá Neskirkju.
13.30 Eggert A. Sigurðsson, Miðgarði
10, Keflavík, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
13.30 Guðrún Líney Valgrímsdóttir,
Skjóli, verður jarðsungin frá Graf-
arvogskirkju.
13.30 Hermína Marinósdóttir, síðast í
Aðalstræti 4, Akureyri, verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju.
13.30 Málfríður Erla Lorange, Bláskóg-
um 9, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju.
14.00 Sigmundur Baldvinsson, Borgar-
vegi 35, verður jarðsunginn frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
15.00 Þorsteinn Hákonarson, Brautar-
ási 3, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
LÓÐRÉTT: 1 stigapallur, 2 röng, 3 höfuð, 4 föt, 5 rennsli, 6 eyktamark, 7 báta-
skýli, 8 fræga, 11 rýjur, 14 rúlluðu, 16 strikið, 18 labb, 20 athugum, 21 venju-
leg, 23 aulans, 26 talar, 28 himna, 30 eljusöm, 31 samtals, 33 svelgur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó