Fréttablaðið - 29.01.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 29.01.2003, Síða 10
29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR INNLENT ÍÞRÓTTIR Í DAG 15.00 Stöð 2 Spænsku mörkin 18.00 Sjónvarpið HM í handbolta (Ísland-Pólland) 18.00 Sýn Sportið með Olís 18.30 Sýn Western World Soccer Show 19.45 Sýn Enski boltinn (Liverpool - Arsenal) 20.00 Njarðvík 1. deild kvenna körfubolti (UMFN-ÍS) 22.30 Sýn Sportið með Olís 23.50 Sjónvarpið HM í handbolta (Ísland-Pólland e..) KÖRFUBOLTI Jerry Stackhouse skor- aði 33 stig og varði skot á lokamínútunni þegar Washington Wizards vann Phoenix Suns með 98 stigum gegn 93 í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrakvöld. Michael Jordan skoraði 19 stig, tók sjö frá- köst og stal boltanum fimm sinn- um fyrir Wizards. Reggie Miller skoraði 21 stig fyrir Indiana Pacers sem vann Miami Heat 102:95. Þetta var fjórði sigur Pacers í röð. Minnesota Timberwolves vann San Antonio Spurs 106:95. Kevin Garnett skoraði 34 stig og tók 10 fráköst fyrir Timberwolves í sjötta sigri liðsins í röð. Ricky Davis setti niður 32 stig í 104:100 sigri Cleveland Cavali- ers á L.A. Clippers. Fyrir leikinn hafði Cavaliers tapað sex leikjum í röð og ekki unnið heimaleik síð- an í desember. ■ FÓTBOLTI John Rudge, yfirmaður knattspyrnumála hjá Íslendinga- liðinu Stoke City, er himinlifandi með bikardráttinn gegn Chelsea í 5. umferð keppninnar. Leikur lið- anna verður háður 15. eða 16. febrúar. „Það er heilmikil saga á bak við viðureignir þessara liða. Þetta verður mikil prófraun fyrir okkur en við höfum fjölda áhorfenda á bak við okkur. Þar sem þetta er bikarinn veit enginn hvað getur gerst,“ sagði Rudge. ■ Sigurður Sigurðarson hesta-maður hefur verið kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2002. Í öðru sæti var Magnús Lárusson, kylfingur úr golf- klúbbnum Kili og í þriðja sæti varð Sigurjón Jóhannsson, bad- mintonmaður úr Aftureldingu. ZOLA Gianfranco Zola fagnar marki sínu í bikarnum gegn Shrewsbury, sem leikur í 3. deild. Chelsea vann leikinn 4:0. Zola verður í sviðsljósinu á Britannia-leikvangnum í 5. umferð bikarkeppninnar í febrúar. Bikarleikur Stoke og Chelsea: Rudge himinlifandi STACKHOUSE Jerry Stackhouse, framherji Washington Wizards, reynir körfuskot yfir Shawn Marion, leikmann Phoenix Suns. Stack- house skoraði 33 stig í leiknum. ÚRSLIT Miami Heat-Indiana Pacers 95:102 Washingt. Wizards-Phoenix Suns 98:93 Clevel. Cavaliers-L.A. Clippers 104:100 Minnesota-San Antonio Spurs 106:95 Houston Rockets-Grizzlies 100:95 Milwaukee Bucks-Hornets 108:93 New Jersey Nets-Denver 92:66 NBA-deildin: Stackhouse og Garnett atkvæðamiklir AP /M YN D Pólverjar fá hæstu einkunn Kjartan Steinsson er fjármálastjóri heildsölu Ásbjörns Ólafssonar, sem m.a. selur Prins Póló. Kjartan, sem hefur átt góð samskipti við Pólverja, á von á 26:23 sigri Íslendinga gegn Póllandi á HM í kvöld. HANDBOLTI Leikurinn í kvöld leggst vel í Kjartan. „Ég hef fulla trú á því að við vinnum Pólverjana, bæði miðað við hvernig Ísland hefur verið að spila og eins hvern- ig gekk á móti þeim um daginn á hraðmótinu í Danmörku [29:22 fyrir Ísland]. En allir þurfa að eiga góðan dag til þess að leggja Pólverjana. Þeir eru sennilega af svipuðu kaliberi og við þó svo að við séum kannski ívið sterkari. Það er krafa um að vinna leikinn,“ segir Kjartan. Kjartan er nýkominn frá Pól- landi og segist ekki hafa orðið var við mikla umfjöllun um HM þar í landi. „Samt höfðu þeir vitneskju um að við hefðum tekið þá í bak- aríið í Danmörku. En ég hef það á tilfinningunni að handbolti sé ekki hátt skrifaður í Póllandi í dag.“ Að sögn Kjartans eru Pólverjar afskaplega viðkunnanlegt fólk. „Það er gaman að koma til Pól- lands og þeir eru góðir í samskipt- um. Það er líka góður mælikvarði á Pólverja að þeir eru stærsti er- lendi hópurinn á Íslandi í dag, fyr- ir utan kannski starfsmenn varn- arliðsins, og mjög eftirsóttir í vinnu. Þeir eru bæði duglegir og samviskusamir og fá hæstu eink- unn hjá mér.“ Kjartan á von á íslenskum sigri í kvöld en segist eiga erfitt með að spá fyrir um lokatölur. „Margir leikir á HM hafa verið spilaðir á svo hröðu tempói. Mörkin sem hafa verið skoruð í öðrum hálf- leiknum hafa hingað til þótt eðli- leg úrslit eftir fullan leiktíma. Ég geri ráð fyrir að Pólverjar spili á hægara tempói en Þjóðverjarnir þannig að ég á von á því að við vinnum 26:23.“ freyr@frettabladid.is SIGRI FAGNAÐ Liðsmenn íslenska landsliðsins fagna sigrinum gegn Portúgal í riðlakeppninni. Leikurinn við Pólverja í kvöld hefst klukkan 18.30. FYRRI LEIKIR ÞJÓÐANNA Ísland-Pólland 1990 25:27 1992 23:22 1993 30:15 1993 28:24 1995 23:21 1995 31:26 1995 23:21 2001 24:27 2001 30:24 2003 29:22 Ísland hefur unnið 8 af síðustu 10 viðureignum þjóðanna. KJARTAN STEINSSON Kjartan Steinsson vill ekki kannast við að sala á Prins Pólói hafi aukist í beinum tengslum við leikinn í kvöld. Hann segist þó ekki kvarta enda seljist súkkulaðið alltaf vel á Íslandi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.