Fréttablaðið - 29.01.2003, Page 12
FUNDIR
12.05 Vigdís Erlendsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, sálfræðingur og for-
stöðumaður Barnahúss, heldur
erindi í stofu 201 í Odda um
skýrslutökur af börnum. Vigdís
hefur fengið þjálfun í skýrslutök-
um barna í Bandaríkjunum og
haldið marga fyrirlestra bæði hér
heima og erlendis um málaflokk-
inn.
12.15 Hrafnaþing á Hlemmi nefnast
opin fræðsluerindi Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, sem haldin eru
í sal Möguleikhússins á hverjum
miðvikudegi. Í dag segir Eyþór
Einarsson grasafræðingur í máli
og myndum frá gróðurframvindu
í skerjum í Breiðamerkurjökli.
12.15 Málstofa verður haldin í stofu 101
í Lögbergi á vegum Lagastofnunar
Háskóla Íslands þar sem dr.
Matthías Geir Pálsson ræðir efni
doktorsritgerðar sinnar Ósann-
girni í evrópskum samningarétti
og alþjóðlegum viðskiptasamn-
ingum, sem hann varði árið 2001
við Evrópuháskólann í Flórens á
Ítalíu. Allir sem hafa áhuga eru
velkomnir.
13.30 Opið hús verður fyrir þau sem
misst hafa atvinnuna í safnað-
arheimili Dómkirkjunnar, Lækj-
argötu 14a. Tilvalið er að byrja há-
degið með kyrrðar- og bæna-
stund í Dómkirkjunni kl. 12.10 og
fá sér síðan léttan hádegisverð á
kirkjuloftinu áður en haldið er út í
safnaðarheimili.
16.15 „Hugmyndir leikskólabarna um
grunnskólann“ nefnist fyrirlestur
sem Jóhanna Einarsdóttir, dós-
ent við Kennaraháskóla Íslands,
heldur á vegum Rannsóknastofn-
unar KHÍ. Fyrirlesturinn verður
haldinn í salnum Skriðu í Kenn-
araháskóla Íslands v/Stakkahlíð
og er öllum opinn.
17.30 Biblíuskólinn við Holtaveg og
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
standa í sameiningu fyrir mál-
þingi um líftækni og siðfræði í
húsi KFUM og KFUK, á horni
Holtavegar og Sunnuvegar. Yfir-
skrift málþingsins er Líf og tækni,
trú og Guð.
20.00 Fræðslufundur um fíkniefnamál
verður fyrir foreldra nemenda í 9.
bekk Ölduselsskóla. Þessi
fræðslufundur er liður í forvarna-
verkefninu „Hættu áður en þú
byrjar“. Foreldrar eru hvattir til að
fjölmenna.
20.00 Aukaaðalfundur Tilveru verður
haldinn í Bíósal Hótels Loftleiða.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf en sérstakur gestur fundar-
ins er Jón Einarsson grasalæknir
sem ætlar að flytja erindi um
ófrjósemi og þær úrlausnir sem
grasalækningar bjóða í baráttunni
við ófrjósemina.
NÁMSKEIÐ
20.00 Námskeiðaröð fyrir almenning
um rímur og rapp hefst í Þjóðar-
bókhlöðu í dag. Á vaðið ríða
rímna- og rappsnillingarnir Stein-
dór Andersen og Jón Magnús
Arnarsson. Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði mun tengja saman
þessar tvær hefðir og benda á
ýmsa snertifleti. Námskeiðið er
haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbók-
hlöðu frá kl. 20 til 22. Verð 3.500
kr.
LEIKHÚS
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son í leikstjórn Hauks J. Gunnars-
sonar á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
TÓNLEIKAR
20.00 Hljómsveit Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar undir stjórn
Guðna Franzsonar heldur tón-
leika í tónlistarhúsinu Ými við
Skógarhlíð miðvikudaginn 29.
janúar kl. 20. Á efnisskrá er 20.
aldar tónlist, verk eftir Benjamin
Britten, Aaron Copland, Leonard
Bernstein og Terry Riley.
SÝNINGAR
María Kristín Steinsson sýnir olíumál-
verk í Café Cozy, Austurstræti. Sýningin
er opin á opnunartíma Café Cozy.
Margrét Oddný Leópoldsdóttir sýnir
„Storesarnir eru að hverfa“ í gluggum
sínum í Heima er best, Vatnsstíg 9. Sýn-
ingin stendur til 26. febrúar.
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau
Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Halls-
son og Jessica Jackson Hutchins verk
sín.
Nú stendur yfir samsýning 7 málara í
Húsi málaranna, Eiðistorgi. Allir þessir
málarar eru löngu þjóðkunnir fyrir verk
sín og einkennir fjölbreytni sýninguna.
Þeir sem taka þátt í sýningunni eru:
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonarson, Ein-
ar Þorláksson, Guðmundur Ármann,
Kjartan Guðjónsson, Jóhanna Bogadóttir
og Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur
til 2. mars.
Hugarleiftur er yfirskrift á samvinnu-
verkefni bandarísku myndlistarkonunnar
Diane Neumaier og gríska rithöfundar-
ins Christos Chrissopoulos, sem nú er
sýnt í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningin er afrakstur Íslandsferðar þeirra
sumarið 2000.
Hitler og hommarnir nefnist sýning
þeirra David McDermott og Peter Mc-
Gough í Listasafni Akureyrar. Sýning
þeirra fjallar um útrýmingu samkyn-
hneigðra á nasistatímanum.
Aftökuherbergi nefnist sýning í Lista-
safni Akureyrar á 30 ljósmyndum eftir
Lucindu Devlin sem teknar voru í
bandarískum fangelsum á tíunda ára-
tugnum.
Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl-
unni í Ásmundarsafni við Sigtún í
Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl.
13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú-
ar.
Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru
Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs-
efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir
fanga sem teknir hafa verið af lífi í
Bandaríkjunum.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið „then ...hluti 4 -
minni forma“. Sýningin stendur til 2.
mars.
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, 21 árs
útskriftarnemi af myndlistabraut í Fjöl-
braut í Breiðholti, sýnir ljósmyndir og
skúlptúr í Gallerí Tukt. Sýningin stendur
yfir í tvær vikur.
12 29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
MIÐVIKUDAGUR
29. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
Þjóðarbókhlaðan:
Rappað í
menningar-
geymslunni
RÍMNAFLÆÐI Þjóðarbókhlaðan
gengst fyrir tveggja kvölda nám-
skeiðum alla miðvikudaga fram til
23. apríl. Nám-
skeiðin eru ætluð
almenningi og
tengjast efni
safnsins meira eða
minna á einhvern
hátt. Það eru
rímna- og rapp-
s n i l l i n g a r n i r
Steindór Andersen
og Jón Magnús
Arnarsson sem
ríða á vaðið í
kvöld. Hilmar Örn
Hilmarsson alls-
herjargoði mun
tengja saman þessar tvær hefðir
og benda á ýmsa snertifleti.
„Við erum að reyna að stíla inn
á það sem fólk hefur áhuga á og
því þótti ekki úr vegi að gefa rapp-
inu og rímunum gaum en það hef-
ur verið mikil vakning í rímum eft-
ir að rappið varð vinsælt,“ segir
Auður Styrkársdóttir hjá Þjóðar-
bókhlöðunni. „Bókhlaðan er
geymslustaður menningarinnar og
þeir Hilmar og Jón eru tíðir gestir
hérna og hafa skoðað mikið af
gömlum rímum og handritum.“
Námskeiðið er haldið í fyrir-
lestrasal Þjóðarbókhlöðu frá
klukkan 20 til 22. ■
HILMAR ÖRN
HILMARSSON
Mun leitast við að
greina upphafleg-
an tilgang rímna
og notar tóndæmi
máli sínu til
stuðnings.
TÓNLIST Hljómsveitin Dikta gaf út
hljómplötuna Andartak nokkrum
dögum fyrir jól. Jólaprófin í Há-
skólanum tóku það mikið á með-
limi sveitarinnar að ekki gafst
tími til að halda útgáfutónleika
fyrr en nú. „Ég er í læknisfræði
og Skúli bassaleikari er í lög-
fræði, alveg brjálað að gera hjá
okkur því við erum báðir á fyrsta
ári,“ segir Haukur Heiðar Hauks-
son, gítarleikari og söngvari
hljómsveitarinnar.
Dikta mætir til leiks á Gauki á
Stöng í kvöld og mun spila nýju
plötuna eins og hún leggur sig.
„Við spilum svo önnur lög í bland
og þetta verður svaka stuð.“
Dikta er tveggja ára gömul.
Hana skipa, auk Hauks, Jón Pét-
ursson (gítar), Skúli Gestsson
(bassi) og Jón Þór Sigurðsson
(trommur). Hún tók þátt í
Músiktilraunum Tónabæjar árið
2000 og komst í úrslit. Haukur
segir að Dikta leiki hart rokk sem
fari annað slagið yfir í mýkri til-
finningasemi. ■
DIKTA
Verður með útgáfutónleika á Gauknum í kvöld. Húsið opnar klukkan 21 og þeir félagar
lofa miklu stuði.
Útgáfutónleikar:
Fersk úr jólaprófum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T