Fréttablaðið - 29.01.2003, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 29. janúar 2003
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
8
3
0
4
/ sia
.is
FITUL&LÍTIÐ
Ef þú ert að spá í línurnar getur þú notið þess að smyrja með fitulitlu viðbiti
sem bragðast líkt og smjör. Létt og laggott – þyngdarlausa viðbitið.
Nýr þáttur á NBC:
Lowe í hlutverki
lögfræðings
SJÓNVARP Rob Lowe, sem
áður lék í sjónvarpsþátt-
unum „West Wing,“ er að
leggja lokahönd á samn-
ing um að framleiða og
leika í sjónvarpsþáttunum
„Lyon’s Den“ á sjónvarps-
stöðinni NBC, þeirri sömu
og framleiðir „West
Wing“.
Þetta eru dramatískir
þættir sem fara að öllum
líkindum í prufusýningar í
Bandaríkjunum næsta
haust. Lowe mun leika
lögfræðing í gamalgrónu
fyrirtæki sem á erfitt
með að losna undan
skugga föður síns, sem er
mikilsvirtur þingmaður.
Lowe fékk um 6 milljón-
ir króna fyrir hvern Vest-
urálmuþátt en ákvað samt
sem áður að hætta vegna
launadeilna. Talið er að
hann fái talsverða launa-
hækkun fyrir hlutverk sitt
í „Lyon’s Den.“ ■
TÓNLIST Hundruð tónlistarmanna
söfnuðust saman í London á mánu-
dag til að mótmæla frumvarpi rík-
isstjórnarinnar sem talið er að
muni hafa áhrif á tónleikahald.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að staðir sem hafa ekki skemmt-
analeyfi geti ekki lengur boðið upp
á lifandi tónlist. Þar af leiðandi
þurfa þeir að greiða fyrir skemmt-
analeyfið, sem gerir tónleikahald
miklu dýrara en ella.
Samtök tónlistarmanna segja að
frumvarpið stefni tónleikahaldi
landsins í voða. Samkvæmt sam-
tökunum munu rúmlega 100 þús-
und staðir missa rétt til tónleika-
halds, þar á meðal kirkjur og
einkaklúbbar. Staðir sem halda
tónleika án skemmtanaleyfis þurfa
að borga allt að 20 þúsund pundum
í sekt, sem nemur tæpur þremur
milljónum íslenskra króna.
Dave Rowntree, trommuleikari
Blur, fór í broddi fylkingar og af-
henti þingmönnum undirskrifta-
lista með 40 þúsund nöfnum sem
mótmæli við frumvarpinu.
Kim Howells, menningarmála-
ráðherra Bretlands, segir að frum-
varpið sé hugsað til að hvetja til
tónleikahalds í stað þess að eyði-
leggja það.
„Þetta gerir stöðum auðveldara
um vik að halda tónleika og þar af
leiðandi aukin tækifæri fyrir tón-
listarmenn til að troða upp,“ sagði
Howells í samtali við BBC. „Tón-
listarmenn þurfa ekki að óttast
frumvarpið.“ ■
LOWE
Rob Lowe verður
að öllum líkind-
um áfram á NBC-
sjónvarpsstöðinni.
BLUR
Dave Rowntree úr Blur fór fyrir hópi tónlistarmanna sem mótmælti frumvarpi ríkisstjórn-
arinnarinnar. Með frumvarpinu er stöðum gert erfiðara um vik að halda tónleika.
Tónlistarmenn í London:
Mótmæla frumvarpi
til tónleikahalds